Alþýðublaðið - 03.08.1961, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 03.08.1961, Blaðsíða 7
MtMUUMUMM GUÐNI GUÐMUNDSSON Alþýðublaðið — 3, ágúst 1961 'J Vísindaleg þekking nýt- ur ekki aðeins almenns á- lits, heldur er hún í augum nútímamannsins hið eina dómsvald í vitrænum og andlegum málum. En vís- indaleg menntun byggist aðallega á staðtölulegum staðreyndum og hlutrænni þekkingu og gefur þess vegna óraunverulega mynd af heiminum. 'Veruleiki einstaklingsins hverfur al- veg í skugga hins ytra veru leika, og flestar vísinda- greinar eru reknar þannig, sem kæmi maðurinn þar hvergi nærri, né hafi hann nokkur mótandi áhrif á staðreyndir vísindanna. — Þáttur sálar eða vit- undar mannsins er því gerð ur ósýnilegur með öllu, — sem kæmi hún hvergi ná- lægt. Á sviði félagsmála er staðan svipuð. í stað raun- veruleika einstaklingsins eru okkur rélt nöfn félaga og stofnana, sem ná hæst í hugmyndinni um ríkið, sem sé hinn sanni veruleiki stjórnmálanna. í stað sið- ferðis og ábyrgðartilfinn- ingar einstaklingsins kem- ur stefna ríkisins. I stað aukins siðferðilegs og vitræns þroska einstak- lingsins er lögð ótilhlýði- lega mikil áherzla á endur bætur í hinum ytra heimi. Takmark og tilgangur ein staklingsins, sem er hið eina raunverulega líf, ligg ur ekki lengur í þroska hans, heldur í stefnu ríkis- ins, sem þrýst er inn í líf einstaklingsins, og ríkið, — sem í raun og veru er að- eins óhlutræn hugmynd, dregur meira og meira líf til sín. Einstaklingurinn er í síauknum mæli sviptur siðferðilegum ákvörðunum um það hvernig hann eigi að lifa lífi sínu. I stað þess er honum stjórnað af rík- inu, nærður, klæddur og mennlaður sem þjóðfélags- leg eind, komið fyrir í því húsn. er stöðu hans hæfir að áliti ríkisins, skemmt í samræmi við þær kröfur, sem almenningur gerir til skemmtana og ánægju. — Stefna ríkisins ákveður hvað kenna skal og nema. Ríkiskenningin sem almátt ug virðist er svo boðuð og kennd í nafni ríkisstefn- unnar af þeim, sem í æðstu stjórnarembættum sitja, — þar sem öllu valdi hefur verið safnað saman. Sá, sem hins vegar kemst í þessar slöður, annaðhvort með kosningu eða á annan hátt, losnar undan þessu valdi og verður sjálf ríkis- stefnan og getur eflir því, sem kringumstæður leyfa, breytt ríkisstefnunni. — Hann getur sagt með Lúð- vík 14. „Eg er ríkið“. Hann er þess vegna hinn eini eða a. m. k. einn hinna fáu, sem geta notfært sér tilveru sína sem sjálfstæðra ein- slaklinga, þótt liklegra sé, að hann verði aðeins þræll ríkjandi hugmynda, sem áður hafi verið myndaðar. Þar sem múgurinn er stjórnlítill og sundurlyndur að eðlisfari, liggur alltaf sú hælta, að hann búi til ’leiðtoga’ til að bæta fyrir og hylja sitt sanna eðli. — Þessi ,,leiðlogi“ verður svo nærri alltaf útbelgdri ég- vitund sinni að bráð og of t með hörmulegum afleið- ingum bæði fyrir þá, sem hann ,,leiddi“ og aðra, eins og fjöldi dæma úr mann- kynssögunni sýna. Rökrænt séð verður þessi þróun óhjákvæmileg, strax þegar einstakling- arnir taka að hópast sam- an í stórum stíl og missa einstaklingseðli sitt um leið. Einstaklingar hverfa ekki aðeins, þegar stórir hópar þeirra safnast saman, heldur á hin vísindalega skynsemishyggja sterkan þátt í múghugsun og múg- eðli samtímans, sem rænir einstaklinginn virðuleika sínum og sjálfslæðri dóm- greind, og þar með þeim undirstöðum sem hann ætti - Jæja, þið skuluð vera kennarar og ég ætla að vera Selwyn Lloyd. að byggja líf sitt á. Hann verður aðeins tala á hag- stofunni og starf eða hjól í lífi ríkisins, sem virðist hafa hverfandi þýðingu og vera óendanlega lítið. Því fjölmennari sem heildin er, því lítilfjörlegri verður einslaklingurinn. — Láti hann yfirbugast af smæðar og þýðingarleysis- tilfinningu sinni, og finn ist honum líf sitt hafa mist tilgang sinn, sem er þegar allt kemur til alls ekki hið sama og stefna ríkis eða félagslegar umbætur, þá er hann á góðri leið með að missa einstaklingseðli sitt og falla alveg inn í líf og stefnu ríkisins og verða án þess að hann vilji eða vili alger áhangandi þess. Sá, sem aðeins lítur til hins ytra heims og lætur hug- fallast, getur ekki snúið til neins, þangað sem hann geti sótt styrk itil að berjast á móti því, sem skynsemi hans og skynfæri segja honum. Það er einmitt þetta, sem er að ske í dag. Öll erum við heilluð og slegin óttablandinni virð- ingu af sannindum stað- talnanna og daglega látin vita um tilgangsleysi og magnleysi einstaklingsins, sé hann ekki fulltrúi eða persónugervi einhverrar fjöldahreyfingar eða hóps. Gagnrýnilitlum almenn- ingi virðist hins vegar, að þeim mönnum, sem athygli Frh. á 14. síðu. armanna á þingi, Denis Hcalcy, segir t. d. í grein í Arbeidcr- biadet í Oslo, að raunverulcga séu þetta sömu ráðsafanir, scm framkvæmdar hafi verið í öll þau fjögur skipti, sem vand- ræðaástand hafi blasið við brezku efnahagslífi á tíu ára stjórnarferli íhaldsflokksins og ástandið sé nú orðið þannig, að meirihluti stuðningsmanna stjórnarinnar trúi nú ekki leng ur að þessar ráðstafanir gcti veitt meira en tímabundnar bætur á djúpstæðum, grund- vallar veikleika í kerfinu. Healey ber saman við hið óháða blað The Times, uip, að ráðstafanir Lloyds muni -hafa þau áhrif að styrkja trú manna erlendis á pundið. (Hann tcl- ur það raunar eina tilganginn með ráðstöfununum). Cg það- hefur þegar komið í ]jós,,iví að gengi pundsins hefur þegar hækkað verulega á kauphöll- um, erlendis, en báðir þessir aðilar telja, að þar geti aðcins verið um tímabundna þróun að ræða, þ. . a. s. kapítalflótta írá meginlandi Evrópu vegna ótt- ans við stríð út af Berlín. Og Healey gerir orð The Tirncs að sínum, er það segir: „ . . . pcn- ingar, sem koma svo lctt, hverfa líka með léttu móti aft- Framhald á 2. síEu. NÚ HEFUR Macmillan, for- sætisráðherra Breta, tilkynnt, að stjórn hans muni leita eftir upptöku í sameiginlega mark- aðinn og þar með bundið enda á allar vangaveltur um þetta atriði. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar efnahagsráðstafananna, sem Selwyn Lloyd, fjármála- ráðherra, tilkynnti í neðri mál stofunni í s. 1. viku. Ráðstafanir þessar hafa sætt mjög misjöfnum móttökum, en þó mest slæmum. Stjórnarand- staðan hefur að sjálfsögðu lítið gott um þær að segja og stuðn ingsmenn stjórnarinnar á þingi hafa einnig gagnrýnt þær mlk- ið. Athyglisverðara er þó, að kaupsýslumenn í City i Lond- on urðu fyrir vonbrigðum og hissa á ráðstöfununum, og verkalýðshreyfingin er bál- vond og hneyksluð. Það kann að virðast svo, að ráðstafanir, sem komi við kaunin á svo mörgum, hljóti að hafa nokkuð til síns ágætis, en svo virðist ekki vera. Yfirleitt eru menn sammála um, að þetta sé sami grautur í sömu skál, þó að Lloyd hafi að þessu sinni tek- izt að sneyða hjá ráðstöfunum, er hafi truflandi áhrif á hina víðtækarj efnahagspólitík Breta. Einn af talsmönnum jafnað-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.