Alþýðublaðið - 24.12.1961, Blaðsíða 10
ÁRIN 1924 og 1925 sat hann á
grjóti og hjó grjót dag eftir
dag, viku eftir viku og mán-
uð eftir mánuð. Hann settist
í sæti sitt á grjóthrúgunni alla
daga á sömu mínútunni og
hvarf nákvæmlega á tiltek-
inni stundu. Hann hjó og hjó,
klauf grjótið, raðaði því vand-
lega í borgir, nostraði við
grjóthöggið og hjó alltaf eins,
reiddi alltaf jafn hált til
höggs, lagði ekki mikið afl í
sleggjufallið, hélt um fleininn
vinstri hendi og reiddi sleggj
una með þeirri hægri.
Ég horfði oft á hann út um
lítinn glugg á litlu timbur-
húsi, fannst lítið ganga dag
hver, en þó breyttust björgin
í vel höggnar steinflísar og
sleinborgirnar kringum hann
stækkuðu.
Svo gerðist hann innheimtu
maður; hjá Alþýðublaðinu. —
Það var árið 1926 — og síðan
hefur hann gengið hvern dag,
gengið og gengið, arkað götur
Reykjavíkur teinréttur, hæg
látur en ýtinn og afftaf lokið
dagsverkinu, aldrei slakað til
fyrr en lokið var, aldrei þreytt
ur, aldrei misdægurt, maður
með enska húfu á höfði í slitn
um rykfrakka, með litla
skjalatösku undir hendinni,
alltaf eins mánuð eftir mán-
uð, áratug eftir áratug. Hann
hefur þegar gengið vegalengd
margsinnis kringum jörðina
og hann kennir einskis meins
í fótum fremur en annars
staðar í líkama og sál, áttræð
ur á morgun, sannkallað jóla
barn.
Hann heitir Kristján Helgi,
seinna nafnið af því að hann
fæddist á jólanóttina. Það var
árið 1881 vestur á Kvíanesi i
Súgandafirði.
Kristján H. Bjarnason á
heima að Nökkvavogi 60. —
Ég heimsótti hann eitt kvöld-
ið af tilefni áttræðisafmælis
hans. Hann sat við bókalest-
ur, en spil lágu útbreidd á
litlu borði. Hann hafði verið
að leggja kapal. Ég vissi fyrir
fram, að það yrði enginn hægð
arleikur að fá að rabba við
hann til þess að setja það í
blað, því að Kristján er nokk-
uð sérsinna og hneppir ekki
sömu hnöppum og samferða-
mennirnir. Hann skrifaði
nokkrum sinnum greinar í A1
þýðublaðið á fyrri tíð og ég
þekkti það, að ekki dugði við
hann neinn leikaraskapur.Það
mundi ekki þýða neitt fyrir
m:g að leiða hann út í viðlal
svo að ég gekk beint til verks.
Hann þagði góða stund — og
sagði svo um leið og hann leit
beint í augun á mér:
— Þú færð mig ekki út í
neitt karlagrobb. — Hann var
snöggur upp á Iagið. Ég kann
aðist við tóninn.
— Hefurðu af nokkru að
grobba?
— Nei. Til hvers er þá að
skrifa?
— Það er ekki eintómt
grobb í afmælisviðtölum.
— Ég sé ekki betur. Annað
hvort eru þeir sterkari en all-
ir aðrir hafa bjargað öðrum
úr lífsháska, eða þeir hafa upp
götvað lífsins sannindi, sem
enginn annar hefur komið
auga á. Ég er ekki sterkari en
aðrir, heldur þvert á móti. Ég
hef engum bjargað, en bara
baslað fyrir sjálfum mér — og
ég hef ekki uppgötvað nein
ný sannindi.
— Þú hefur þó alténd kunn
að að lifa lífinu þannig að þú
ert ánægður og samferða-
mennirnir eru ánægðir með
þig.
— Nú ýkir þú. Mér er illa
við ýkjur.
— 'Voruð þið mörg systkin-
in?
,Við vorum ellefu. Foreldr
ar mínir, Helga Njálsdóttir
og Bjarn' Ólafsson, bæði Ön-
firðingar, bjuggu að Kvíanesi
í Súgandafirði. Þau eignuðust
e’lefu börn, en sex dóu úr
barnaveiki og öðrum krank-
konar verkamannavinnu. Ég
vann til dæmis við Reykjavík
urhöfn meðan verið var að
gera hana, eða réttara sagt
fyrsta áfangann, því að segja
má að höfnin sé alltaf að
byggjast. Ég byrjaði að vinna
í höfninni 1913 og hélt áfram
til 1919 að lokið var. Annars
var vinnan á eyrinni eintóm-
ar snapir og þótti því gott að
fá fasta vinnu. Ég var vitan-
lega í Dagsbrún og í Jafnaðar
mannafélagmu, hef verið í A1
þýðuflokknum svo að segja
frá fyrstu tíð. Það var hugsjón
okkar að byggja Alþýðuhúsið
á lóðinni við Hverfisgötu. 'Við
keyptum lóðina og svo beið
hún lengi ósnortin því að
engir peningar voru til. Flokk
urinn og félögin slörfuðu í
JÓTHÚGGS- OG
NGU-MADUR,
sem fæddist á jólanótt
izt um sjálfan mig á tiltölu
lega litlum bletti — og stigið
inn í allar skrifstofurnar og
hitt alla gjaldkerana. Nú er
allt öðru máli að gegna, nú
geng ég og geng daginn út og
daginn inn, svo tugum og jafn
vel hundruð km. skiptir á
hverjum degi. Það er alveg
makalaust hvað ég er búinn
að ganga um æfina. En ég
kenni mér einskis meins, —
hvorki í fótunum né annars
staðar. Ég keypti mér gler-
augu fyrir mörgum árum, en
svo var það eitt kvöld, að ég
var á heimleið í fárviðri og
sá telpu sem var í vandræð-
um. Ég fór að hjálpa henni
en missti þá gleraugun. Ég
keypti ekki aftur nein gler-
augu, lét við þetta sitja. Ég
les allt gleraugnalaust. Eg
hef frá fyrstu tíð greitt gjöld
í sjúkrasamlögin, en ég man
varla eftir því, að ég hafi
nokkru sinni þurft að láta það
borga nokkuð fyrir mig — og
sem betur fer“.
— Voru menn skuldseigir í
gamla daga? Hefur það
breyzt?
— Þetta er alveg eins Það
eru alltaf menn, sem vilja
helzt ekki borga og svo eru
aðrir sem alltaf borga eins og
þeim ber. Þetta breytist ekki
svo mikið — og skiptir litlu
máli hvort verðbólga er eða
ekki.
le:ka. Þegar ég var á tiunda
ári missti ég föður minn og
heimilð sundraðst, við börnin
fórum á ýmsa bæi. Ég varð
svo heppinn að fara til séra
Janusar Jónssonar í Holti í
Önundarfirði og þar leið mér
vel. Séra Janus var kostamað
ur og konan var eins en stjórn
samari og vinnuharðari. Ef
eitthvað brá út af, reyndi séra
Janus að bæta úr því bak við
tjöld:n. Þarna var ég vinnu-
piltur og fékk gott kaup. Eitt
sinn bað séra Janus mig að
segja engum frá því hvað hátt
lcaup hann borgaði mér, því að
hann hafði orðið fyrir aðkasti
út af kaupi mínu. Bændum
var ekki vel við það, að vinnu
mannskaupið væri sprengt
upp. Ég var á prestssetrinu í
(' J i
V.S.V. ræðir |j
ij v/ð Kristján ii
i; Bjarnason
ellefu eða tólf ár, en fór þá
alla leið austur á Mjóafjörð í
hvalinn hjá Ellefssen, Ég
vann þar í tvö ár. Við íslend-
ingamir fengum 50 krónur á
mánuði en Norðmennirnir,
sem unnu sömu störf og við,
aðsins um 30 krónur. Magnús
heitinn Gíslason hefur sagt
skilmerkiiega frá hva’num og
lífinu þar. Ég ílutt'st. svo til
Reykja’víkur og vann alls
litla t:mburhúsinu þar sem
nú er Gamla-bíó. Loks var
ráðizt í að grafa fyrir grunn
inum, en það var lítið hægt
að grafa, því að grunnt var
niður á blágrýtisklöpp. Svo
var farið að sprengja. Við
söfnuðum dagsverkum og ég
lagði mitt fram ekki síður en
aðrir, en svo hélt ég áfram
að höggva grjótið í smátt, og
þarna sat ég í grjóthrúgunni
mánuð eftir mánuð, oftast
einn, og hjó og hjó. Það féll
aldrei dagur úr hjá mér,mætti
allt af hvernig sem veðrið
var. Þetta voru alls ekki allt
gjafadagsverk, ég fékk líka
kaup. En svo réðist ég inn-
heimtumaður hjá Alþýðu
blaðinu og byrjaði að vinna
6. febrúar 1926 — og hef víst
bráðum starfað að þessu í 36
ár. — Ég kvæntist 9. nóvem-
ber 1911 Mörtu Finnsdóttur
frá Meðalfelli í Kjós. Við
eignuðumst einn son, Finn
rafvirkjameistara. Konan
hans heitir Svanhildur Thor-
lacíus — og ég á fimm bama
börn. Ég er hér — og uni mér
vel ... Konu mína missti ég
1949.
— Og tekur þín ellilaun
eins og aðrir.
— Ellilaun? Ég? Nei. Hvað
á ég að gera við ellilaun? Ég
vinn fyrir mér“.
— Það skiptir engu máli.
Þú átt rétt á elHlaunum.
— Það skiptir ekki nokkru
máli, ég þarf ekki ellilaun, ég
vnn fyrir mér“.
— En svona eru lögin.
Margir auðugir menn taka
sín ellilaun.
— Mig varðar ekkert um
slík lög, og heldur ekki um
það, sem þeir gera. Ég vil
ekki standa við hliðina á þess
um auðugu mönnum og taka
við ellilaunum með þeim. Ég
er ekki svo smár í mér að ég
held ...
Mér finnst Kristján hafi
reiðst þessum umræðum um
ellilaun.
— Borgin hefur stækkað?
— Það má nú segja. Þegar
ég kom til Reykjavíkur voru
takmörk hennar við Bráð-
ræði að vestanverðu og við
Ráðleysu (Laugavegur 40) að
austan. Það nafn fékk bærinn
af því, að það var talin hin
mesta ráðleysa að byggja svo
langt fyrir innan bæ. Þegar
ég byrjaði að rukka þá má
segja, að ég hefði getað snú-
—: Og hvenær ællarðu að
setjast í helgan stein?
— Það geri ég aldrei. Eg
held áfram meðan heilsan
leyfir, þó að ég verði hundr-
að ára, og ég finn ekki betur
en að ég geti haldið áfram að
labba þetta um göturnar í
tuttugu ár enn. En ef til vill
kemur kallið einhvern dag-
inn, og sá sem öllu ræður seg
ir: — „Hættu nú þessu labbi,
Kristján“. Og þá hlýði ég.
— Og jólabarnið að vestan
fer þá heim til sín“.
— Já, ætli það ekki. Ég get
svo sem farið heim til mín
hvenær sem er. Mér er ekkert
að vanbúnaði. VSV.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
MARGRÉTAR SIGURÐARDÓTTUR
Blönduhlíð 11.
Sigurjón Eiríksson Una Pálsdóttir
Eirík Sigurjónsson Helgi Sigurjónsson
£0 i-2|4. de§. 1S61 ,-r- Alþýðuþlaðið