Alþýðublaðið - 23.01.1962, Síða 1
íilboð í síldarbræðsluna á Seyðisfirði
43. árg. — Þriðjudagur 23. janúar 1962 — 18. tbl.
Hann heitir Jón Hálfdánarson, þessi efst til vinstri og er 14 ára,
sá við hliðina á honum er Haukur Angantýsson frá Kefiavík, 13
ára_ Vilmundur Gylfason er líka þrettán ára, — hann er nr. 3
og sá niðri í horninu hér til hægri er Helgri Hauksson, 13 ára.
Þeir eru búnir að tefla í tvær vikur á Skákþingi Reykjavíkur, —
þótt aldursárin séu ekki ýkja-mörg eru þeir sagðir harðir i horn
að taka. — Myndirnar eru teknar í fyrradag, — á skákþinginu.
Þeir hugsuðu og hugsuðu . . . því að þótt ekki sé um lífið að
tefla, — þá er um nokkuð annað teflt, sem er einhvers virði,
— hejðurmn.
STJÓRN Síldarverksmiðja rík
isins hefur saniþykkt að gera;
kauptilboð í síldarbræðsluna á 1
Seyðisfirði. Bæjarsjóður Seyð
isfjarðar á bræðsluna að mestu
leyti og hyggst stjórn S. R.
kaupa hlutabréf bæjarins í
bræðslunni. Nái kaupin fram
að ganga hyggjast Síldarverk
smiðjur ríkisins stækka bræðsl
una á Seyðisfirði mjög veru-
lega.
Miklar umræður hafa átt sér
stað um það á hvern hátt væri
bezt að bæta aðstöðuna eystra
til móttöku síldar. Mikil síld
hefur verið við Austurland und
anfarin sumur og svo mikil, að
hinar liflu síldarbræðslur
eystra hafa ekki haft undan að
taka á móti síld. Munu Seyð-
firðingar hafa mikinn bug á
því að stækka bræðsluna á
ALLT 7
VITLEYSU
í GÆR komst liið versta
ólag á símann í Hafnar-
firði, þ. e. eitthvað um
300 númer urðu sambands
Iaus eða allt símasamband
ruglaðist svo gersamlega
ag ekki var nokkur glóra
í því.
Nokkrir menn voru að
vinna með loftpressu, þeg
ar það slys varð að þeir
skáru í sundur símastreng
með 300 línum í. Varð
þetta nokkru eftir hádegi,
og í gærkvöldi var enn
unnið við lagfæringar.
Hjá sumum símnotend-
um var ekki möguleiki að
fá rétt númer, og einn
maður t. d. sem yar að
reyna að ná í annan, er
bjó í Hafnarfirði, fékk
alltaf 02. Ruglingurinn
varð svo margvíslegur, að
ekki er unnt að lýsa því
með orðum.
Nær var lokið við að
gera við í gærkvöldi og
vroru símarnir óðum að
komast í lag.
muvwt. - iV . jviWiVWVWVtMí
Seyðisfirði. Að sjálfsögðu á
bæjarstjórn Seyðisfjarðar eft
ir að taka afstöðu til kauptil-
boðs Síldarverksmiðjanna. En
ef tilboðið verður samþykkt
mun ætlunin að hefja stækkun
bræðslunnar sem fyrst þannig
að henni verði lokið fyrir næstu
síldarvertíð. Síldarbræðslan á
Seyðisfirði getur nú unnið 2
þús mál á sólarhring en ætlun
in mun sú að stækka hana upp
í 4—5 þús mál, á sólarhring.
Þá munu SUdarverksmiðjur
ríkisins hafa hug á því að öðl
azt umskipunaraðstöðú á Seyð
ísfirði til þess að unnt verði að
skipa beint úr síldveiðibátum í
flutnngaskip, sem flytja mundu
síldina norður.
fer frá
DARES — SALAAM, 22.
janúar (NTB—Rauter) Lands
stjórinn í Tanganyika tók í
dag við lausnarbeiðni Júlíusar
Nyerre, forsætisráðherra. Ras
hildi Kawawa, ráðherra án
stjórnardeildar, hefur verið út
nefndur eftirmaður Nyerres. —
Julius Nyerre var skipaður for
sætisráðherra í Tanganyika þeg
ar landið, sem var áður vernd
argæzlusvæði SI> undir stjórn
Breta, öðlaðist sjálfstæði í des
ember í fyrra. Hinn nýskipaði
forsætisráðherra er talinn
standa til vinstri við liina hæg
fara stefnu Nyerres.
Framhald á 3. síðu.