Alþýðublaðið - 23.01.1962, Side 2
(Mtetjórar: Gísll J. Ástþorsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjón:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
•—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðufiokkurinn. — Framkvæmdastjórl Sverrir KJartansson.
RÍKI OG AUÐHRINGAR
í ANDRÓÐRI sínum gegn Efnahagsbandalagi
Évrópu halda kommúnistar mjög fram, að banda
lagið sé samsæri vestur-þýzkra auðhringa til að
ná öðrum þátttökuríkjum á sitt vald og féfletta al-
fjýðu þeirra. Alþýðublaðið vill út af fyrir sig ekki
tiraga úr árvekni manna gegn auðhringum og á-
lirifum þeiírra. Hins vegar er þetta orðið áróðurs-
slagorð kommúnista, að stimpla allt auðhringa,
sam þeim mislíkar. Nánari athugun sýnir, að rík-
isvaldið á nú í 'fullu tré við samsteypur efnahags
lífsins í löndum Vestur-Evrópu og er sjálft mun
sterkara á því sviði en flestir hafa gert sér grein
fyrir.
Áhrif ríkiisins í efnahagslífi eru mest á Ítalíu.
Þar eru voldugustu fyrirtækin, eins og IRI og ENI,
eign ríkisins. Ríkið á sjálft hvorki meira né minna
en 90% af grundvallariðnaði landsins, stálverk-
smiðjum, skipasmíðastöðvum, vélverksmiðjum,
olíuvinnslu og fleilra slíku. Þar fyrir utan eru áhrif
ríkisins á önnur fyrirtæki margþætt. í Frakklandi
eru slík ríkisafskipti aldargömul hefð. Þar á ríkið
95% af kola- og gasframleiðslu, 90% af rafmagni,
■helming banka- og tryggingastofnana, 60%, flug-
♦vélaframleiðslu, Renault bílaverksmiðjurnar og
margt fleira.
Jafnvel í hinu voðalega Vestur-Þýzkalandi er
hlutur ríkisins mun meiri en flestir halda. Ríkið á
f)ar í 235 stórfyrilrtækjum, 25% eða meira, og hef-
tir sérstakar stofnanir til að gæta þar hagsmuna
íHÍnna. Þannig á ríkið 90% af brúnkolaframleiðslu,
50% af stálframleiðslu, 70% af alúmínumfram-
leiðslu, 60% af rafmagnáframleiðslu og 50% af
járnframleiðslunni.
Allt þetta sýnir og sannar, að þessi ríki hafa ekki
Iátið og munu ekki láta einkahagsmuni vaða uppi
eða verða ráðandi. Þessu til viðbótar koma mikil
völd verkalýðshreyfingar og pólitískra afla, sem
hún og eignalausar millilstéttir ráða yfir. Þess
vegna hefur verkalýðshreyfing allrar Vestur-
Evrópu verið hlynnt þeirri þróun, sem lýsir sér í
myndun Efnahagsbandalagsins. Af þessari sömu
ástæðu eru kommúnistar andvígir þessu öllu sam
an. Lýðræðislegar umibætur tefja byltinguna í
þeirra augum, og eru eitur í þeirra beinum.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir og Ford pic-up bifreiðar,
er verða sýndar í Rauðarárporti í dag, þriðjudag
inn 23. þ. m. kl. 1—3 e. h.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 í dag.
SÖLUNEFND VARNARLIÐSEIGNA.
,Þessi aftari er Víðir II.“
(Síldarskýrslan er á 16. síðu.)
HANNÉS
Á HORNINU
Dansklúbbar unga
fólksins.
ýV Eiga að hefjast fyrr á
kvöldin og enda fyrr.
Af seint kl. 1 að
nótt.
ýV Skólinn hefst kl. 8 að
morgni.
FREYJA SKRIFAR: „Fyrir
nokkru minntist þú á ung:linga
klúbba, sem stofnaðir hafa ver
ið og efna til skemmtana, að-
allega dansskemmtana fyrir
unglingana, án áfengis. Fú
maeltir með þessari starfsemi
og vil ég taka undir það. Þó t
vil ég benda þér á það, að
þessi starfsemi er ekki alveg
ný af nálinni, því að Góðtcnipl |
arar hafa í mörg ár efnt til
ódýrra dansskemmtana ein-
staka sinnum í Góðtempiara-
húsinu.
HINS VEGAR má segja. að
hér sé um dálítið annað rnál að
ræða, þar sem unglingarnir
sjálfir hafa stofnað þessa tvo
klúbba og stjórna þeim Ung-
lingar, sem eru á mínu heim-
ili, taka báðir þátt í þessum
skemmtunum og hef ég ekkert
nema gott urn þær að segja,
nema að einu leyti og skrifa
ég þér þetta bréf í von um að
orðsendingin oerist til stjórn-
enda klúbbanna svo að þel'
sjái að orð mín eru sprottin af
velvild og að nauðsynlegt er
að breyta til.
ÉG ÁLÍT nauðsynelgt, að
dansskemmtanir byrji fyrr á
kvöldin og þeim Ijúki fyrr. Nú
byrja þær kl. 8.30 til 0 og þær
enda ekki fyrr en kl. 1 að
nóttu. Þær eru alltaf á rúm-
helgum kvöldum og veldur
þetta erfiðleikum á heimilum.
Bæði er það, að heimilisfólk
þarf að fara til vinnu sinnar
að morgni. enda vilja foreidrar
ekki fara að sofa fyrr en börn
þeirra, þó að þau séu orðin
sextán ára eru komin heim —
og í rúmið. Auk þess eiga ung
lingarnir flestir að mæta í skól
um sínum kl. 8 að morgni, en
þeir eiga erfitt með að rífa
sig upp kl. 7.30 ef þeir geta
ekki komizt í rúmið fyrr en
kl. 1.30 til 2 að nóttu.
MÉR VIRÐIST, að það sé
alveg nóg fyrir unglingana að
njóta félagsskapar jafnaldra
sinna og þeirrar skemmtunar,
sem dansinn veitir, í 3 tíma
eða svo. Þess vegna eiga þess
ar skemmtanir að hefjast kl.
8 á kvöldin. Unglingarnir
geta vel verið tilbúnir um það
leyti og þeim á að ljúka um
kl. 11, en alls ekki síðar en
kl. 12. Það er nefnilega brýn
nauðsyn að unglingarnir séu
komnir í náðir fyrir miðnætti.
Þá komast heimilin líka í ró
fyrir þann tíma, annars ekki.
| ÉG RÆDDI ÞETTA nýlega
við skólamann, sem dvaldj i
j fyrra um skeið í Englandi. Þar
eru svona unglingaklúbbar
starfandi en þeir starfa líKa
undir eftirliti kennara. Þar
byrjar skemmtunin um kl. 7.30
og þeim lýkur aldrei síðar en
kl. 11 að kvöld. Þetta er föst
og ákveðin regla, sem aldrei er
út af brugðið, nema einstaka
sinnum á laugardagskvöldum,
þá er þeim lokið kl. 12 á mið-
nætti, en þetta er sjaldgæft.
ÉG TEK UNDIR þau orð
þín, að vonandi er þessi
klúbbastarfsemi upphaf að nýj
um og betri siðum í skemmt-
analífi unga fólksins, enda
veit óg’það. að það er rangt
að allir unglingar sækist eftip
siðleysi veitingahúsanna með
vínveitingarnar, Þórsmerkur*
siðferðinu eða þvílíku. Ung-
lingarnir, sem ég þekki, hafa
einmitt óskað eftir félagsskap
eins og Tígulklúbbnum og
Laufaklúbbnum sem uriga
fólkið hefur nú stofnað til Ég
er ánægð með þssa starfsemi,
en vona að forstöðumennirnir
taki tillit til þessarar tillögu
minna. Hún er nauðsynleg urrt
bót og ég er sannfæcð ’im að
unglingarmr fallast strax á
hana.“
JÁ, ÞESSU er ég sammálá
__ og sendi tillöguna rétta
boðleið.
Hannes á hormrtu.
STÓR og mikil þrýstiloftsflugS
vél af gerðinni Boeing KC 135
hefur verið hér á landi nokkra
daga, og verður nokkra enn
við að „flugprófa allt flugvita
kerfi landsins. Vél þessi er hér
á vegum Alþjóðaflugmála*
stofnunarinnar. j
2 23. jan. 1962 — Alþýðublaðið