Alþýðublaðið - 23.01.1962, Síða 4
í SNJÓNUM verður ýmsum kalt og árejðanlega eru
skjólklæði úr snjó, eins og hún hefur sveipað sig- að nokkru
ekki vcl til bess faltin að verjast kuldanum. Alþýðublaðs-
myndin var tekin í garðinum fvrir sunnan Bókhlöðustíg
um helgina.
VWWMMMWMWMWIwmMWWWMMMMMWMWWMMMW
Hvar höfðu Hermann og
íysteinn augun 1958?
í TÍMANUM lesum vér sl.
íöstudag „staðreyndirnar“ um
^fnahagsástandið 1958:
„1. Gjaldeyrisstaðan út á
vlð var mun betri í árslok
1958 en hún var í árslok 1961.
•sGjaldeyrisafkoman á einu ári
Ihefur ekki um langt skeið
verið betri en á árinu 1958.
2. Afkoma ríkissjóðs var
með allra bezta móti á árinu
1958.
3. Bændum og útvegsmönn-
-um mun áreiðanlega koma
saman um, að afkoma land-
búnaðar og sjávarútvegs var
Ætórum betri á árinu 1958 en
1961.
4. Kaupmáttur launa var
Ætórum mun meiri á árinu
1958 en 1961. Þetta geta laun
þegar bezt dæmt um með því
að bera saman kjör sín nú og
þá. ■
5. í árslok 1958 hafði þjóðin
gott lánstraust, eins og sést á ■
því, að á árinu 1959 voru tek'
in erlend ián, sem námu 500
—600 millj. kr. miðað við nú-
verandi gengi.“
Oss er spurn: Hvar höfðu
Hermann og Eysteinn eigin-
lega augun í árslok 1958? Þá
sögðu þeir, að fótmálið eitt.
væri fram af hengifluginu,:
óðaverðbólga blasti við, engin
úrræði á hendi og einskis ann
ars völ en segja af sér ríkis-'
stjórn. Nú á hins vegar allt
að hafa verið í stakasta lagi.
En flnnst ekki mörgum. að
þetta sé heldur seint séð hjá
blessuðum mönnunum?
(Alþýðumaðurinn, Ak.).
,4 23. jan. 1962 — Alþýðublaðið
Þórshöfn, 15. jan.
SKIPASMIÐJA Þórshafnar
var stofnuð 17. ágúst 1936, og
varð því 25 ára á síðasta ári.
Eg gekk á fund forstjórans
hr. Kjartans Mohr, þing-
manns og fyrrverandi borgar
stjóra hér í Þórshöfn. Varð
hann fúslega við beiðni
minni um að segja eitlhvað
um skipasmíðar hér í Færeyj
um.
Upphaf skipasmíða eins og
þekkist í dag var, að árið 1804
strandaði danskt skip hér. —
Nólsoyjar Páll notaði viðinn
úr skipinu, sem nothæfur var,
og smíðaði sér skip, sem hann
nefndi „Royndin Fría“ (Til-
raunin frjálsa). — Ætlaði
hann að nota þetta skip til
vöruflutninga í samkeppni
við konunglegu verzlunina.
'Var þetta skip eingöngu smíð
að af Nólseyingum.
En eftir árið 1890 fór skip
um (kútterum) að fjölga, og
þá jókst þörfin fyrir slað, sem
hægt væri að taka skipin upp.
til lagfæringar og botnhreins
unar. Þótti mönnum þá til-
finnanlega vanta einhverskon
ar dráttarbraut hér í Færeyj
um. Á þessum árum var við
gerð framkvæmd þannig, að
skipin voru tekin upp í fjör-
una á háflóði og síðan unnið
við sk:pin meðan útfalj var.
En ef framkvæmá þyrfti
meiriháttar viðgerðir, þá urðu
skipin að fara til Orkneyja.
Þar lærðu Færeyingar ýmis-
legt um skipasmíðar.
Fyrsta viðgerðar-dráttar
brautin var gerð á Tvöoyri,
árð 1894. Hér í Þórshöfn
jókst svo áhugi fyrir að gera
dráttarbraut, en málið lá um
kyrrt allt til ársins 1930. En
bá vaknaði áhugi á að hrinda
þessu máli í framkvæmd. En
svo komu kreppuárin og náði
málið þessvegna ekki fram að
panga að s:nni. Ekki voru þó
tagðar árar í bát, sem mest
var að þakka Kjartan Mohr,
sem var lífið og sálin í þess
um undirbúningi.
Kjartan Mohr sigldi til Dan
merkur árið 1915 til að læra
skipasmíðar. Hann kom hing
að aftur árið 1921, og vann
hann vtð smábátasmíðar. —
Hann hafði sama brennandi
áhuga á því að koma á stofn
skipasmíða- og viðgerðarstöð.
Margir voru það, sem voru
mótfallnir þessari hugmynd,
en sem betur fór voru það
fleiri, sem voru jafn framsýn
ir og hr. Mohr, og því var það
17. ágúst 1936, að stofnuð var
„Tórshavnar Skipasmiðja
p.f.“. Var Kjartan Mohr val-
inn forstjóri og hefur gegnt
því embætti síðan.
Það skiptust á skin og skúr
ir á fyrstu árum fyrirtækis-
ins, en með fjárhagslegri að-
stoð frá ýmsum mönnum hér
í Færeyjum og velvild bæjar-
sljórnar Þórshafnar, sem út
hlutaði skipasmiðjunni stað
fyrir dráttarbraut. Arið 1937
hófst svo undirbúningurinn
fyrir alvöru. Og árið 1939 var
fyrsti togarinn tekinn upp í
dráttarbrautina. Það var tog
arinn „Stella Argus“, héðan,
annað skipið var svo þýzki
togarinn „Ernst von Bries-
sen“ sem var allmiklu stærri
en færeyski togarinn. Voru
menn því háifhræddir við áð
taka hann upp, því engin
reynsla var fyrir hendi um,
hve sterkur dráttarvagninn
væri. Þessi logari hafði strand
að hér, fengið gat á stefnið
fyrir neðan sjávarmál, og var
ekki .hægt að tosa fiskinn úr
honum. En allt gekk vel, og
fengu menn betri trú á þessu
fyrirtæki, sem átti eftir að
spara þjóðinni mikinn gjald
eyrir.
Þegar skipasmiðjan hóf
starfsemi sína, unnu þar 10
manns, en nú eru 80 starfandi
þar. Á þessum 25 árum hefur
skipasmiðjan tekið um 125
skip (togara og línuveiðara)
á ári, að meðaltali, og greitt
í vinnulaun á seinustu árum
um 3á tif 1 milljón danskar
krónur áriega. Síðan árið
1940 hafa um 200 manns lært
skipasmíðar hjá fyrirtækinu.
Jafnframt því að annast
viðgerðir á skipum, þá var í
athugun að hefja smíði tré-
skipa, sem myndu henta
veiðiaðferðum Færeyinga
Árið 1938 var kjölur lagður
að fyrsta skipinu í þeirri von
að kaupandi fengizt, — og
hann fékkst. Árið 1940 var
skipinu svo hieypt af stokkun
um og hlaut nafnið „Vón“,
og hefur það á allan hátt
reynzt prýðilega. Árin 1944
til 1959 hafa 6 skip verið smíð
uð í skipasmiðjunni.
Nú fóru þeir í Skipasmiðj-
unni að setja markið hærra
með því að hefja smíðar stál-
skipa. Eftir að hafa kynnt sér
málið ýtarlega, var kjölur
lagður að fyrsta stálskipinu,
sem smíðað yrði í Færeyjum.
Þetta var í júní 1960, og skip
ið hljóp af stokkunum 3. júlí
1961. Er þetta sögulegur dagur
fyrir Færeyinga og færeyskan
sjávarútveg. Síðan var lagður
kjölur að öðru stálskipi, sem
er langt komið.
Öll árin, sem Skipasmiðjan
hefur starfað, hefur sami
dráttarvagninn verið notað-
ur, en nú er í ráði að stækka
og endurnýja dráttarbraut-
ina þann:g að möguleiki verð
ur á að taka upp skip, sem eru
allt að 2000 tonn, en hingað
til hafa þeir mest getað tekið
upp skip, sem eru 1000 tonn.
Kjartan Mohr sagðist vera
bjartsýnn á framtíð skipa
smíða í Færeyjum. Hann
kvaðst oft hafa komið til Is-
lands og sagðist hafa undrast
yfir þeim miklu framförum,
sem orðið hafa á þessum sein
ustu árum, hvað snertir skipa
smíðar. Óskaði hann íslend-
ingum alls góðs í framtíðinni.
H. Jóh.
Hluti af höfninni. Nólsey í baksýn.