Alþýðublaðið - 23.01.1962, Page 10
|_0 23. jan. 1962 — Alþýðublaðið
JT
l
sigraði KR
kvennaflokki
LEIKUR KR OG FRAM á sunnudaginn var býsna spennandi. Hér er vörn Fram illa á verði,
Pétur fékk boltann algjörlega frír á línu og skorar.
MEISTARAMOT Islands
handknattleik hélt áfram
,Nye Danske'
sunnudagskvöld og voru háðir
þrír leikir, Haukar sigruðu Þrótt
í 3. fl. karla með 9 mörkum
gegn 5, Þróttur sigraði Hauka
í 2. deild mfl. karla 24:21 og
! Fram sigraði KR í I. deild karla
I með 27:22. Áhorfendur voru í
Firmakeppni Skíðaráðs
Reykjavíkur var haldin
við Skíðaskálann í Hvera
dölum sunnud. 21. jan. sl.
KEPPNIN hófst um hádegið,
mikill snjór var þar efra og
snjóaði talsvert meðan á
keppninni sióð. Fjöldi áhorf-
enda var kominn og fór keppn
in ágætlega fram. 105 firmu
tóku þátt í keppninni og urðu
úrslit sem hér segir:
Nr. 1 Nye Danske vátrygg-
Framhald á 13 síðu.
j færra lagi. Mótið heidur áfram
í kvöld og þá leika m. a. Víking
ur og ÍR í I. deild karla.
+ I. DEILD Mfl. karla:
FRAM—KR 27:22 (14:13).
Geysispennandl leikur. þar til
aðeins 10 mín. voru til leiks-
loka, en þá kom í Ijós meira ör-
yggi og betra úthald Fram, sem
tryggði þeim verðskuidaðan sig
iur. Fyrri hálfleikur var mjög
ijafn og spennandi og munaði
oftast einu marki á víxl, aðeins
einu sinni tókst Fram að ná
tveggja marka forskoti, en það
; var um miðjan hálfleikinn. —
'Áberandi var hvað leikmenn
'gerðu sig seka um að skjóta í
lalgjörlega vonlausu færi. Fyrri
Tíu fyrstu í firmakeppni SKR á sunnudaginn.
hálfleik lauk með sigri Fram,
14 gegn 13.
Síðarihálfleikur hófst með
sama spenningi, en Fram hafði
þó ávallt forystu, nema einu
sinni tókst KR að jafna, 16:16,
en þá voru liðnar 10 mín. frá
hléi. Úr því fór að halla á ógæfu
hlið fyrir KR sérstaklega var
áberandi hvað línuspilarar Fram
léku KR-vörnina grátt. Annað-
hvort sksoruðu þeir glæsilega,
eða KR fékk dæmt á sig víta-
I kast. Það voru þeir Sigurður
Einarsson, Jón Friðsteinsson og
Tómas og Erlingur, sem þar
voru ágengastir. Mestur var mun
urinn 8 mörk, 27:19, KR lag-
færði tölurnar aðeins undir lok-
in, en sigur Fram var öruggur
— 27:22.
Áberandi er hvað leikmenn
Fram eru í betri æfingu en KR-
ingar og línuspilarar þeirra eru
mun leiknar og hafa betri grip.
Bæði liðin hafa býsna jöfnum
leikmönnum á' að skipa, en á-
berandi er hvað Þorgeiri mark-
verði Fram, hefur farið mikið
fram. Magnús Pétursson dæmdi
leikinn af miklu öryggi. Mörk
Fram skoruðu: Ingólfur Óskars-
son 8 (þar af 3 úr víti), Guðjón
Jónsson 4 Hilmar Ólafsson 4,
Sigurður Einarsson 4, (þar af 1
úr víti), Karl Benediktsson 4,
(þar af 1 úr víti), Ásgeir Þ. Odd
ge'rsson 2, Jón Friðsteinsson 2
og Tómas Tómasson 1 úr víti.
Mörk KR skoruðu: Karl Jó-
hannsson 5, Reynir Ólafssoji 5
(þar af 1 úr víti), Heinz Stein-
mann 4, Pétur Stefánsson 3, Sig
urður Óskarsson 3 Ólafur Ad-
olfsson 2.
Umsögn um leik Hauka og
Þrótta rí H. deild birtist á morg
• un.
Á laugarsagskvöldið voru
háðir fyrstu leikirnir í 23.
íslandsmótinu í handknalt-
leik (innanhúss). Formaður
HSÍ, Asbjörn Sigurjónsson
setti mótið með stuttu ávarpi
og síðan hófust leikirnir. —
Fyrst fóru fram 2 leikir í 2.
flokki karla.
2. fl. karla A b Fram—
JÞróttur 20:6 (12:1, 8:5).
Ekki verður annað sagt, en
að hér haft verið um ójafnan
le;k að ræða. Þrótlur er að
vísu Reykjavíkurmeistari í
flokki þessum, en nú um ára-
mótin gengu flestir, ef ekki
aihr þeir, er sigruðu í Rvíkur
mótinu upp og því varla við
því að búast, að þeir séu mjög
sferkir nú. Lið Fram er frem-
ur jafnt, þó ber einna mest á
þeim Sigurði, Tómasi og
markverðinum Þorgeiri, en
þeir eru einnig í meistara-
flokksliði Fram. Fyrri hálfleik
ur var því sem næst sýning af
hálfu Fram, en hinn seinni var
nokkuð jafnari, enda gætti þá
nokkurs kæruleysis hjá Fram,
sem ef til vill á rót sína að
rekja til hins mikla markamun
ar í fyrri hálfleik. Óskar Ein-
arsson dæmdi leikinn af rögg
semi.
2. fl. karla Ab Víkingur
‘ —KR 15:6 (4:2, 11—4).
Fyrri hálfleikur var jafn,
en í hinum seinni var Víking-
ur alls ráðandi. Úrslit þessi
mega teljast sanngjörn, þar
sem Víkingar hafa þarna á að
skipa góðu liði, sem er allvel
skipulagt og vinnur oft vel
saman. Uppistaðan í liði 'Vík-
ings eru þeir Sigurður Hauks
son, Steinar og svo mark-
vörðurinn, sem gerir margt
laglega. Dómari var Gunnar
Jónsson, er hafði góð tök á
leiknum.
M.fl. kvenna Valur— ;
Fram 13:12 (7:6, 6:6).
Eins og búaat var við, var
leikur þessi mjög jafn. Lið
þessi mættust í hraðkeppni
HKRR fyrir skömmu og sigr-
aði Valur þá með ein marks
mun og útkoman varð nú hin
sama. Allan fyrri hálfleikinn
skiptust lið'n á um að skora,
þó höfðu 'Valsstúlkurnar alltaf
forystuna utan einu sinni er
Fram tókst að jafna (3:3). — í
byrjun seinni hálfleiks taka
Valsstúlkurnar góðan sprett
og skora tvö mörk og er staðan
þá 9:6 fyrir Val, en fljótlega
minnka Framstúlkurnar bilið
í 9:8 og skoraði Inger bæði
þau mörk. Þá skorar Sigríður
fyrir Fram (10:9). Þá fer Sig-
ríður enn einu sinni í skot-
skóna og skorar tvisvar fyrir
Val (12:9). Þetta bH dugði Val
t:l sigurs, þrált fyrir góðan
endasprett Framslúlknanna.
Það var báðum liðum sameig-
inlegt að þau skorti úthald í
30 min. leik. Var leikurinn
því fremur hægt leikinn. Þá
var það og sameiginlegt að
markverðir beggja væru frem
Framhald á 15. síðu.
Úr setningar-
ræöu Ásbjörns
Ásbjörn Sigurjónsson
form. Handknattleikssam-
bandsins gat þess í ávarpi
sínu við setningu íslands
meistaramótsins 1. laugar
dagkvöld, að í mótinu
tækju þátt alls um 900
þátttakendur, leikir væru
261 að tölu og dómarar og
starfsmenn um 50. Kvað
Asbjörn þetta gleðilegt
tímanna tákn um vöxt og
viðgang liandknattleiks-
íþróttarinnar hérlendis.
I upphafi ávarps síns
minntist Ásbjörn þeirra
merku tímamóta í íþrótta
sögunni, sem eru 50 ára
afmæli ÍSÍ og 20 ára af
mæli handknattleiksráðs
Reykjavíkur. í HKRR
hafa jafnan setið ungir
menn, sagði hann, sem
hafa öðlast þar dýrmæta
og haldgóða reynslu í fé
lagsmálum. Þaðan hafa
komið margir beztu for-
ysíumenn íþróttahreyfing
arinnar. Formaður HSÍ
Iauk ávarpi sínu með því
að biðja alla viðstadda
hylla HKRR í tilefni af-
mælisins með ferföldu
húrrahrópi.
Ritstjóri: ORN