Alþýðublaðið - 23.01.1962, Síða 16
43. árg. — ÞriðjudagUr 23. janúar 1962 — 18. tbl.
AÐALFUNDUR Sjómannafé-
lags Reykjavíkur var haldmn i
It»nó í fyrradag. Var þá lýst
Btjórnarkjöri en allsherjarat-
kvæðagreiðslu um kjör stjórnar
Riuk um hádegi á laugardag. —
Urðu úrslit þau, að A-listinn, bor
jhn fram af stjórn og trúnaðar-
mannaráði félagsins hlaut 713
aíkvæði en B-listinn, borinn
fram af kommúmstum, hlaut
417 atkvæði.
Auðir og ógildij. seðiar voru
JÓN SIGURDSSON
19. Á kjörskrá voru rúmlega
1500 en alls kusu 1149. í íyrra
hlaut A-listinn 704 atkvæði en
B-listinn 404. Auðir og ógildir
voru þá 16. Alís kusu þá 1124.
í samband við úrslit stiórnar-
kjörsins nú má geta þess, að at-
kvæðatala A-listans er sú hæsta
er A-listinn hefur nokkru sinni
fengið í félaginu. Hins vegar
náðu kommúnistar nú ekki at-
kvæðatölu sinni 1959 en þá kom
ust þeir hæst í félaginu.
Jón Sigurðssson formaður fé-
lagsins flutti á aðalfnndmum
skýrslu fráfarandi stjórnar. Kom
það m. a. fram í skýrslunnj að
gerð:r höfðu verið tveir nýir
kjarasamningar á star/sárinu. —
S. 1. vetur var gerður bátakjara
samningur og s. 1. sumar nýr
farmannasamningur. Þá skýrði
Jón • ennfremur frá því að í
undirbúningi væri nú að gera
enn nýja bátakjarasamninga
svo og togarasamninga. Það kom
ennfremur fram í skýrslu Jóns
að á starfsárinu höfðu 124
menn gengið inn í félagið en
37 sagt sig úr því. 10 félagar
höfðu látizt á árinu og 52 verið
strikaðir út af félagaskrá, vegna
skulda.
Gjaldkeri félagsins, Sigfus
Bjarnason las reikninga féla.gs-
ins. Kom það m. a. fram í þeirr,
að eignaaukning á áririu hafði
orðið 69 þús. kr. Nema nú bók-
færðar skuldlausar eigni.r félags
| Magnús í
hluíverki
;• + ÞESSI MYND er af
í; Magnúsi í hlutverki sínu
j; í Ævintýrum Hoffmans.
ins 1,2 millj. kr.
Nokkrir kommúnistar tóku tii
máls á fundinum en ræður
þeirra fengu fremur daufar
undirtektir. Urðu þeir fundar-
mönnum fremur til leiöinda.
Nokkrar ályktanir voru gerð-
ar á fundinum og verða þær
birtar síðar.
Stjórn Sjómannafélags Reykja
víkur er nú skipuð sem hér seg
ir:
Formaður Jón Sigurðsson,
varaformaður Hilrnar Jónsson,
ritari Pétur Sigurðsson, gjald
keri Sigfús Bjarnason, vara- 1
gjaldkeri Óli Barðdal, með-
stjórnendur Ólafur Sigurðsson 1
og Karl E. Karlsson. Vara-
menn: Jón Helgason, Sigurður
Sigurðsson og Þorbjörn D. Þor
björnsson. j
----------------------:-------+
Síminn bauð okkur að fala til útlanda:
Syngur í Rigoletto
og Bóhem, og
boðið nýtt hlutverk
Þung færð um
aElt land
FÆRT var um alla vegi í ná-
grenni Reykjavíkur > gær, en
talsvert hafði fennt á veginn á
Kjalarncsi og Kollafirði og inn
undir Sjávarhóla. Hellisheiðin
var einnig fær en talsvert hafði
skafið þar og var vegurinn
mokaður.
Hafnarfjarðar\-egurinn var
illfær á sunnudaginn og var
hann mokaður í gær. Sama er
að segja um ýmsa vegi austan
fjalls, t. d. vegina í Hreppum
og að Eyrarbakka og Stokks-
eyri, veginn milli kauptúnanna
og fleiri vegi, sem voru mokað
ir í gær. Talsvert mun hafa
snjóað á Grindavíkur- og Krísu
víkurvegi, en vegagerðin hafði
Framhald á 7. síðu.
ÍÍINN nýi tal- og ritsímastreng
ur var tekinn formlega í notk
un í gærdag, og við það tæki
færi var öllum dagblöðunum í
bænum gefinn kostur á að tala
við einlivern í útlandinu,
svona rétt tii að reyna h'*ð
nýja samband.
Alþýðublaðið valdi Magnús
Jónsson. óperusöngvara, sem
um nokkurt skeið hefur sungið
við Konunglega leikhúsið í
Kaupmannahöfn, og jafnframt
stundað söngnám.. Fyrra suniiu
dag söng hann í Rigoletto við
'mikla hrifningu, og 1. laugar-
dag söng hann í Bohem og hef
ur fengið góða dóma fyrir.
Klukkan var rúmlega þrjú
þegar Magnús kom í símann,
og heyrðist eins vel í honum og
hefði hann verið heima hjá sér
á Sólvallagötu 17. Magnús sagði
strax. að dómarnir, sem hann
fékk fyrir að syngja hertogann
í Rigoletto og Rudolf í Bohem,
hefðu verið þeir beztu, sem
hann hefði fengið frá því að
hann byrjaði að syngja opin-
berlega.
Hann sagðist vilja taka það
fram, að hinn góði söngárangur
hans nú að undanförnu væri
mest að þakka Stefáni Islandi,
en hjá honum hefur Magnús
verið í söngtíma í allan vetur.
Magnús sagði að Stefán hefði
verið veikur að undanförnu, —•
með magasár, en væri nú kom
inn á fætur og væri við góða
heilsu;
Fyrir nokkrum dögum var
Magnúsi boðið að syngja aðal-
hiutverkið í danskri áperu, sem
nefnist Sál og Davíð og verður
hún frumsýnd í apríl. Magnús
sagði. að það yrði mikið að gera
hjá sér á næstunni, bæði við
Frh. á 7. síðu.