Alþýðublaðið - 27.05.1962, Blaðsíða 8
fiépferðabif reiðir
Höfum ávallt t§5 leigu
þægiiegar
hópferðabifre§öir
Kjörorð okkar er
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Símar 20720 og 13792.
tvíofið þýzkt ullarefni — 4 tízkulitir.
Verzl. SIF, Laugravegi. — Verzl. EROS, Hafnarstræti.
Verzl. SÓLEY, Laugavegi. — Verzl. FONS, Keflavík.
Verzl. ANNA GUNNLAUiGSSON, Vestmannaeyjum.
SOKKABÚÐIN, Laugavegi.
Heildsölubirgðir: YLUR H.F. Sími 13591.
Óskars
Framhald af 5. síðu.
Það sem af er kosningabar-
áttu, hefur Alþýðuflokkurinn,
máigögn hans Og frambjóðendur,
lagt á það ríka áherzlu, að vera
málefnalegur og jákvæður í öll-
um umræðum um málefni Reykja
víkurborgar. Við höfumuekki kos-
ið að taka þátt í þeim leik, sem
því miður alltof oft hefir verið
háður hér fyrir kosningar, að
vera með aurkast í allar áttir, og
loka augum og eyrum fyrir stað-
reyndum.
Þessari málsmeðferð munum
við fylgja fram þar til yfir lýkur,
og spyrja að léikslokum, hvernig
til hafi tekizt.
Það er trú mín, að þessi leið
muni reynast affarasælust,
þegar til lengdar lætur því svo
vel þekki ég hug Reykvíkinga að
ég veit að þeir telja meira en
tíma til kominn, að teknar séu
upp menningarlegri og málefna-
iegri umræður um málefni
Reykjavíkurborgar, en tíðkazt
hefur til þessa, og kosningabar-
átta hinna flokkanna virðist enn
ætla að bera keim af og í þessum
kosningum.
Það getur vart hjá því farið.
að þegar einn flokkur hefur haft
meirihlutavald í liartnær fjóra
áratugi, sem hér er raun á um
Sjálfstæðisflokkjnn, þá hafi hann
á þessu langa timabili komið ýins
um þörfum hlutum í framkyæmd
Ekki sízt þegar .tekið ér iillit 'til
þeirra miklu fjármuna sem borg-
aramir hafa lagt fram á þessu
sama tímabili. Þetta er bæði rétt
og skylt að viðurkenna og láta
andstæðing njóta sannmælis. Hitt
er eigi að síður ómótmælanleg
staðreynd, að hér er margt ógert
og annað sem ekki ér í samræm'
\úð þann stórhug og það framtak,
sem Reykvíkingum er í blóð bor-
inn. Á þetta skulum við leggia
áherzlu og undirstrika það sem
við böfum jákvætt til borgarmál-
efna að leggja.
Alþýðuflokkurinn á í þessari
kosningabaráttu við andstæðinga
að etja á allar hliðar.
Kommúnistar og Framsóknar-
menn, munu veitast að okkur
vegna stjórnarsamstarfsins og
stefnu ríkisstjórnarinnar. Við
skulum því gera okkur þess ljósa
grein, að frá þeirra hendi verð "
revnt að láta þessar kosninga’-
öðrum þræði a. m. k., snúast um
■stiórnarstefnuna og ráðstafaru'”
stjórnarinnar í efnahagsmálum og
öðrum þjóðmálum. Sízt þurfum
við undan slíku að kvarta. Þvert á
móti gefur slík baráttuaðferð
okkur aukinn styrk til baráttu
fyrir hinn góða málstað flokks
okkar, hvort heldur sem er á
veítvangi þjóðmála eða borgar-
mála.
Sjálfstæðisflokkurinn mun hins
vegar leggja alla áherzlu á að
sannfæra okkur um, að Alþýðu-
flokkurinn sé öruggur með tvo
borgarfulltrúa kjörna, og þess
vegna sé okkur óhætt að fara
okkur hægt. Þeir munu að vísu
ekki segja þetta í blöðum sínum
né öðrum málgögnum. En því
meiri áhei-zlu leggja þeir á þetta
í málflutningi manna á milli.
Það er að vísu satt, að allt bend
ir til þess að Alþýðuflokkurinn
muni fá góðar kosningar nú og
auka fylgi sitt verulega. En hitt
skulum við gera okkur ljóst, að
þetta verður því aðeins, að við
leggjum okkur öll fram þá daga,
sem eftir eru til kosninga, látum
ekkert tækifæri ónotað til þess
að efla fylgi flokksins, og tökum
öll einhuga þátt í að gera sigur
íians sem stærstan.
Andstöðuflokkarnir óttast það,
að i þessum kosningum verði Al-
þýðuflokkurinn stærsti andstöðu
flokkur borgarstjómarinnar, og
fái þannig aðstöðu til þess að
veita Sjálfstæðisflokknum það
aðhald, sem hann þarfnast.
Ég veit, að þið hafið öll orðið
vör við það undanfarna daga o;-
vikur, að mörgum fyrri kjósend-
•um Sjálfstæðisflokksins finnst
nóg um algjört vald hans.í mál-
efnum borgarinnar, og telur
flokknum iiollt, að verða ekki í
aðstöðu eftir kosningar, til þess
aS vera jafn einráður um stjórn
fcorgarinnar og rekstur sem hing-
að til.
Þetta fólk kýs ekki stjórnarand-
stöðuflokkana.En það vill gjarna
eíla frjálslyndan lýðræðissinnað
an umbótaflolck og efla Alþýðu-
flokkinn tii aukinna áhrifa í
bórgarstjórn. Við skulum öll sem
eitt, vinna að því að svo verði,
undir kjörorðinu: TRAUST AÐ-
HALD í BORGARSTJÓRN.
Gott Alþýðuflokksfólk og aðr-
ir stuðningsmenn! Vinnum Ötul-
lega að glæsilegum sigri Alþýðu
flokksins. Komið öll til starfa.
Setjum markið hátt! Markmið
okkar er:
ÞRJÁ ALÞÝÐUFLOKKSFULL
TRÚA í BORGARSTJÓRN!
Tryggjum glæsiléga kosningu
Páls Sigurðssonar!
Sendum um allt lánd
EFNAGERÐIN VALIJR. H.F.
Box 1313. — Sími 19795.— Reykjavík.
g 27.. 'JTisj 196?, - AkÞVPUBLAÐjO