Alþýðublaðið - 14.06.1962, Side 2

Alþýðublaðið - 14.06.1962, Side 2
Jtitstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef- andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson. Árangur viðreisnar ALÞÝÐUBLAÐIÐ skýrði frá því í gær, að spari innlán hefðu aukizt um rúman milljarð frá því að viðreisn efnahagslífsins hófst. Og í dag skýrir Al- þýðublaðið frá því, að gjaldeyrisstaðan hafi batnað nm rúmar 900 milljónir króna á sama tímabili. Þessar tvær tölur tala skýru máli um árangur við reisnarinnar. í byrjun ársins 1960 áttu Íslendingar <engan gjaldeyrissjóð. í marz 1960 sýndi gjaldeyris staðan 47 millj. kr. skuld (miðað <við núverandi gengi) en strax eftir gengisbreytinguna og aðrar þær ráðstafanir, er ríkisstjórnin gerði í efnahags- málum, tók gjaldeyrisstaðan að batna. í lok ársins 1960 var gjaldeyri'sstaðan 112.3 millj. og í lok sl. árs 526 millj. En í lok apríl sl. 901.2 millj. sem fyrr segir. Þessi hagstæða þróun er sem kraftaverk, svo ör hefur batinn verið. Og á sama tíma hefur þjóð- in aukið sparnað sinn um rúman milljarð króna. Sparifé að frádregnum innstæðum í ávísanabók- um nam 2.9 milljörðum í lok apríl sl. en í marz 1960 nam það 1.8 milljarð. Ríkisstjómin lýsti því yfir strax, er efnahagsráð stafanirnar voru gerðar, að nauðsynlegt væri að fella gengið til þess að bæta hag útflutningsat- vinnuveganna og binda endi á skuldasöfnunina er- lendis. Ríkisstjórnin gerði sér það ljóst að þessu marki yrði ekki náð með gengisbreytingunni einni. Ef útlán bankanna hefðu haldið áfram að auk ast án þess að sambærileg sparifjármyndun ætti sér stað hefði það komið fram í aukinni eftirspurn eftir gjaldeyri og eyðilagt hin hagstæðu áhrif geng isbreytingarinnar á greiðslujöfnuðinn við útlönd. Þess vegna beitti stjómin sér fyrir hækkun banka vaxta einnig. Og vaxtahækkunin hefur án efa átt stærsta þáttinn í því, að sparifjármyndun hefur aukizt svo mjög og útlán ekki aukizt meira en sem svarar aukningu sparifjármyndunar. Þegar vaxta hækkunin hafði stuðlað að hagstæðri þróun á pen ingamarkaðnum vom vextirnir lækkaðir nokkuð aftur. Og haldi þróunin áfram að vera hagstæð verður án efa unnt að lækka þá enn meira áður en langt um líður. Stjórnarandstaðan átti ekki nógu sterk orð til að gagnrýna gengisbreytinguna og vaxtahækkunina, þegar þær ráðstafanir voru gerðar. Það hét svo í blöðum stjórnarandstöðunnar, að með þeim ráðstöf upum væri stjórnin að ráðast gegn atvinnulífinu og stuðla að aukinni verðbólgu. En reynslan hefur synt að ráðstafanir stjórnarinnar hafa haft þveröf ug áhrif. Þær hafa skapað aukið jafnvægi í efna- hágslífinu og treyst grundvöll þess. Hagur Sam- bands ísl. samvinnufélaga sl. ár sýnir það bezt hversu <vel ráðstafanir stjórnarinnar hafa reynzt atvinnulífinu. En á því ári varð hagur SÍS betri r e# nokkru si'nni fyrr. Reikningar SIS eru hér óræk ari vitnisburður en sleggjudómar Tímans og Þjóð- víljans. 2 14. júní 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Maznah{ BÍLALAKK RYÐVARNARGRUNNUR LAKKGRUNNUR HANNES Á HORNINU ★ Bréf frá Selfossi. ★ Drukknir og veglausir unglingar. ★ Hörmulegt um að lit- ast að morgni. ★ Skemmtanafýsn og drykkjuskapur. SELFOSSBÚI skrifar mér: „Þeg ar ég las bréfið í pistli þínum í dag datt mér í hug að senda þér línu. Hér liggja krossgötur eins og allir vita cg liér eru skemmtanir haldn- ar. Hingað sækja unglingar víða að, frá Reykjavík, Hafnarfirði, af Suð- urnesjum, neðan úr þorpunum og jafnvel austan úr Vík í Mýrdal. Hingað sækja þeir skemmtanir um helgar og hér nema þcir staðar þegar þeir eru í skemmtanaleit. MJÖG MARGIR þessara ungl- drukknir og verða hér drukknir. Þeir koma með áfengi og þefr kaupa hér áfengi af bifreiðarstjór- um. Hér verða unglingar stranda- glópar, liggja hér við hús að morgni, illa til reika, drukknir, soltnir, kaldir og skítugir, leita svo að einhverjum til þess að hjálpa sér um fargjald heim til sín ef einliver hefur ekki verið svo góð- hjartaður að lofa þeim að skríða í skjól. SUMIR ÞESSARA UNGLINGA hafa ekki átt nema fyrir fargjald- inu austur og lenda því í vandræð- um með að komast heim, aðrir hafa gjald, en tapa af síðustu ferðinni og oft ber það við, að þó að nokkr ir hafa slegið saman i bil aur.tur, hefur slegizt upp á vinskapinn hér og svo er bara stungið af og sá sem útundan liefur orðið er skilinn eftir veglaus. UM IIEGÐUN þessara unglinga sem flestir eru á aldrinum 14-18 ára og stúlkur eins fjölmennar og piltar, ræði ég ekki. Þetta eru al- gerir óvitar, en vita alls ekki af inga eru alger plága. Þeir komaþví, og lcikur forvitni á hverri hættu. Þeir vega salt á brún hverr ar fallgryfju, og margir falla í þær því miður. Ég vii taka það fram, a8 þó að ég hafi hér að framan nefnt nokkra kaupstaði og þorp, þá er það ekki vegna þess, að hér í þorpinu séu ekki íil unglingar af sömu gerð, en sá er aðeins munur- inn að heimaunglingarnir eiga hér athvarf og geta leitað í skjól, sem hinir geta ekki. BRÉFRITARI ÞINN á miðviku- daginn segir að Áfengisverzlun rík isins selji unglingum undir lög- aldri áfengi. Já, ég veit, að þetta er rétt. Ég er alveg sannfærður xun að unglingarnir, sem hér veltast um helgar iiafa ekki allir keypt það hjá bílstjórum. Þeir hljóta aS hafa keypt það í Áfengisverzlun inni. Fyrir nokkru ræddi ég þetta mál við mann úr kaupstað á Vest- urlandi. Hann fullyrti, að Áfengis- verzlunin sendi í pósti áfengi til unglinga. HVER BER ÁBYRGÐ Á ÞESSU? Ber ekki pósthús viðkomandi stað ar ábyrgð á því að unglingar fái ekki áfengi gegnum póstinn? Ekki er líklegt að skírnarvottorð fylgi áfengispöntun gegnum póst. Og ef svo er ekki, þá er mér forvitni á að vita, hvernig Áfengisverzlunin fer að því að vita livort um „lög- legan kaupenda" cr að ræða. ÞETTA ER MJÖG alvarlegt mál eins og bréfritari þinn sagði. Framh. á 12. síðu

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.