Alþýðublaðið - 14.06.1962, Síða 7

Alþýðublaðið - 14.06.1962, Síða 7
s s s s s s s s s s HÉR er enn eitt afbrigðið af liálfvíðu drögtunum, sem nú eru alls ráðandi. Pils með fellingum að neðan eð'a útvíkkandi saum- um er einkar þægilegt og það sést líka, að konurnar kunna að meta þægindi tízkunnar, því að pils í þessum stíl sést hér á hverju götuhorni. En það er annað, sem vert er að taka eftir á þessari mynd. Jakkinn er talsvert síður og bryddingarnar framan á ermunum eru röndóttar eins og blússan. Snoturt og notandi fyrir okkur allar. s s s s s s s s s GÆTIÐ þess, að öll föt, sem á að setja niður í kistur og geyma til vetrarins verða að vera hrein, annars er hætt við, að mölurinn verði búin með talsverðan hluta þeirra í haust. FYRIR skömmu var haldin sýn ing á handavinnu gamla fólksins á elliheimilinu. Þar voru ýnvsir eigulegir munir, en annars bar mest á ýmis konar bastvinnu hjá gamla fólkinu. Efalaust hefur gamia fólkið gaman af að læra eitthvað nýtt, en annað mál er það, hvort ekki hefði fengizt betri árangur með því að láta gamla fólkið halda áfram að prjóna og hekla. Gömlu konunum hlýtur að vera það tamara og hinar gömlu hendur hljóta að vera leikn ari með prjóna en tágar. UM DAGINN stóð dálítið at- hyglisver-t í einhverri grein um kvenléga fegurð. Þar stóð, að kveníólk ætti alltaf að lesa ei hvað göfgandi, áður en það færi að sofa. Það gerði bæði að göfga það og fegra. Þarna kemur bó loks eitt fegrunarráð, sem ekki er leiðinlegt. mm ' -p - ' ' ' ' -$*•?!%'!. V Vr V. ■ ■ ■ HÉR ER uppskrift af brasi- lískum kaffihornum. Rjómaostur, smjörlíki og hveiti jafnt af hvoru — allt er hnoðað saman. Breiðist þunnt út og sker ist í þríhyrninga. Ofurlítið af sultu er sett á hvern þríhyrning, sem er brotinn í horn yfir sult- una. Hornin eru svo bökuð i 12- 15 mín. við fremur lágan híta eða þar til þau eru ljósbrún. HJARTALINAN datt upp fyrir, segir í nýjustu fréttum af hár- tízkunni. Með öðrum orðum, liún var „fiasko“, konurnar tóku hana ekki upp, þótt hárgreiðslumennirnir mæltu með henni í vor. — í ár og raunar öll ár — vilja konurnar hafa þægilega liártízku og pass íuhárið virðist ætla að halda velli en með nokkrum breytingum. Það rís meira og er léttara en í fyrra eins og meðfylgjandi myndir sýna. (Ef þær þá prentast sæmilega). S0'í'WSf-' ALÞYÐUBLAÐIÐ - 14. júní 1962 y

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.