Alþýðublaðið - 14.06.1962, Side 10

Alþýðublaðið - 14.06.1962, Side 10
Góð fæðuskilyrði norðurlandssíldar Hversvegna ekki að hlusta á dr. Oswald Skýrsla ísl. og norskra fiskifræðinga um rannsóknir Johan Hjort' og ,Ægis' Leiðangrarnir hófust 23. og 26. maí. Johan Hjort rannsakaði hafsvæðið norðan Færeyja, norð- austan og austan íslands til Jan Mayen. Kannsóknir Ægis fóru fram á svæðinu vestan og norð- vestan íslands og út af norður- ströndinni vestanverðri. Gerðar voru athuganir á hita sjávar, þör ungagróðri, átu og síld. Norðan og norðaustan þess svæðis, sem íslenzku og norsku skipin athuguðu, er rússneskur leiðangur við rannsóknir. Þar sem rússnesku skipin gátu ekki komið til fundarins á Akureyri, er gert ráð fyrir öðrum fundi í lok þessa mánaðar, er öll skipin hafa lokið rannsóknum sínum. II. ÍSINN í byrjun júní lá ísröndin norð- vestan íslands óvenjulega sunn- arlega, eða aðeins um 35 sjómíl- ur út af Horni. Við Jan Mayen iá ísröndin hinsvegar frekar vestar- lega eða um 17. lengdarbaug. - III. SJÁVARHITINN A svæðinu vestan íslands reynd ist hitinn í 100 og 20 m dýpi um einni gráðu lægri en í vorleyð- angri Ægis í fyrra. Undan Norð- ur- og Austurlandi reyndist hit- inn talsvert lægri en í fyrra. — r' Þess ber þó að geta, að ratlnsókn í irnar í ár eru framkvæmdar 10 , /iögum fyrr en í fyrra, og að end- urteknar hitamælingar hafa sýnt mjög örar hitabreytingar á skömmum tíma, sérstaklega á svæðinu norðan og austan Langa ness. Gera má þó ráð fyrir, að hitinn í 20 og 100 m. dýpi sé nú orðinn svipaður því, sem meðal- hitinn er á þessum árstíma, sam- kv. rannsóknum síðustu 13 ára. IV. PLÖNTUSVIFIÐ Rannsóknir á plöntusvifi beind ust aðallega að því að athuga magn og dreifingu plöntusvifsins og framleiðslugetu sjávarins af lífrænum efnum. Sömuleiðis voru gerðar víðtækar athuganir á gegn sæi sjávar. Athuganir þessar sýndu, að mjög mikið plöntumagn var fyrir hendi í kalda sjónum milli íslands, Jan Mayen og íss- ins. Hámark plöntumagnsins fannst i miðjum austur-íslands- straumnum, en hann mátti rekja alla leið suður undir Færevjar. Annað gróðurríkt svæði var vest an íslands sunnar, 65 gr. "0 m. N. L. og í heita sjónum norðan lands og strandsjónum norðan og austan lands fannst íremur lítið magn plöntusvifs. Atlant- íski sjórinn milli Færeyja og ís- lands, virtist einnig fremur gróð- urlítill. Rannsóknirnar á plöntusvif- inu virtust eindregið sýna, að plöntugróðurinn í kalda sjónum væri í hámarki, en í atlantíska sjónum og í strandsjónum, þar sem plöntumagnið var lítið, virt- ist hámark gróðursins vera liðið hjá. V. DÝRASVIFIÐ Áturannsóknir sýna, að nú er átumagnið á rannsóknarsvæð- inu yfirleitt meira en það var 1961, nema á svæðinu út af Snæ- fellsnesi og Látrabjargi. Mikil rauðáta var nú á Vestfjarðamið- unum, en þau hafa verið rauðátu snauð á þessum árstíma mörg undanfarin ár. Á vcstursvæðinu norðan lands er átumagnið helm- ingi meira en það var í fj/rra. Á mið- og austursvæðinu norðan lands var nú einnig meiri rauð- áta en 1961. Átuhámörkin á Norð urlandssvæðinu náðu nú bæði vestur og sunnar en í fyrra. Niðurstöður áturannsóknanna eru því þær, að síldin héfur nú góð fæðuskilyrði á Norðurlands- miðum, sem væntanlega munu lialdast á næstunni, þar sern rauðátan er þar aðeins hálfvaxin. Út af Vestfjörðum stendur rauð- átuhrygning fyrir dyrum, svo að þaðan má einnig vænta aukins magns á Norðurlandsmið, þegar hin nýja kynslóð vex upp. VI. SÍLDIN Síldar varð vart út af Vestur- landi á mun stærra svæði en í fyrra, en víðast hvar var síldin þar dreifð eða í örsmáurn torfum. Allgóðar torfur fundust þó úí af Látrabjargi. Á Norðurlandsmið- um fannst nú talsvert síldarmagn um 100 sjómílur út af Húnaflóa 25—40 mílur NA af ICoibeinsey og 70 — 90 mílur norður af Þistil- firði. Út af Húnaflóa var síldin í smátorfum, en á mið- og austur- svæðinu var einnig um stórar torfur að ræða á 10—50 m dýpi. í kalda sjónum NA af Langanesi fannst einnig talsvert síldar- magn. Þar virtist síldin vera á vesturgöngu. Norður af Færcyj- um og út af Austfjörðum varð vart við dreifða síld á stóru svæði. Síldarrannsóknirnar sýna glöggt, að í ór hefur síldin geng- ið mun vestar en á sama tíma í fyrra. Þá varð síldar ekki vart vestan Þistilfjarðar. en nú er hún komin að minnsta kosti vest ur undir Kolbeinsey, eins og að framan getur. VII. NIÐURSTÖÐUR Þar sem ætisgöngur sildar- innar á Norðurlandsmiðin eru háðar þeim miklu breytingum, sem í sjónum verða á þessurn árs tíma, er erfitt að gera sér fulla grein fyrir, hvernig þeim verði háttað langt fram í timann. Hið mikla rauðátumagn, sem nú er á Norðurlandsmiðum, bendir þó eindregið til þess, að síldin muni þar hatdast í góðum torfum fyrst um sinn. Þegar fram í sæk'r, eru einnig horfur á, að rauðátumagn- ið haldist, enda þótt hugsanlegt sé, að hið tiltölulega litla þöru- magn í atlantíska sjónum geti tak rnarkað stærð hinnar nýju rauð- átukynslóðar á vissum svæðum norðanlands, en það heíur úr- slitaáhrif á göngur og torfumynd un síldarinnar eftir lok þessa mánaðar. J. Smith Notið hið ein- síæða tækifæri, — ineðan þessi heimsfrægi predikari dvelur liér á landi. — — Hann mun vera í Frí- kirkjunni til 21. júní og tala kl. 8,30 hvert kvöld. Komið strax / kvöld NEFNDIN. ÁRSSALA Kl MILLJÓNI Tsafirði, 9. júní. AÐALFUNDUR Kaupfélags ísfirð inga var haldinn í fundarsal félags ins á ísafirði dagana 2. og 3. júní s. 1. Kaupfélagsstjórinn, Jóhann T. Bjarnason, flutti ítarlega skýrslu um rekstur og afkomu félagsins á liðnu ári. Heildarvörusalan, að frád.'cgn- Slasaðist um- borð i Heklu ÞEGAR farþegaskipið Hekla var á leið frá Álborg til Reykjavíkur, hinn 4. júní sl., varð það slys um borð, að bátsmaðurinn, Sverrir Her mannsson, féll illa og meiddist eitt hvað á höfði. Var hann fluttur í land í Lerwick á Shetlandseyjmn. Sverrir náði sér þó fljótlcga, og er nú kominn heim. Hekla var í „klössun“ í Álborg, og hefur nú byrjað sínar árlegn Norðurlandaferðir. um söluskatti og álagningarlausum vörum varð rúmar 27 miltjónir króna og hafði aukizt um rúmar 3 millj. kr. frá fyrra ári. Álagður söluskattur nam kr. 613.486.00. Innvegin mjólk nam 1.333.765 kg. og er aukningin 74.932 kg. frá árinu á undan. Mjólkurframleiðendur hafa feng ið að meðaltali kr. 4,795 fyrir hvern lítra af mjólk á árinu 1961 og er það 4614 eyri hærra en verðlags- grundvöllurinn gerir ráð fyrir. Innlagt dilka og geldfjárkjöt varð rúmlega 104 tonn, en það er 10 tonnum minna en í fyrra. Bændur fengu meira en verð- lagsgrundvallarverð fyrir slátur- afurðir sínar á síðasta ári. Stjórn K.í er nú þannig skipuð: Marías Þ. Guðmundsson, formað- ur, Björgvin Sighvatsson, Birgir Finnss., Guðm. Guðm., Ragnar Ás- geirssori. — Kjartan Helgason, Un- aðsdal, Hákon Salvarsson, Reykj- arfirði, Páll Sólmundsson, Bol- ungavik og Kristján Jónsson, Hnífsdal. Alþýðublaðinu barst eftirfarandi i fréttatilkynning frá Sjávarútvegs- máltráðuneytinu í gær: Samkvæmt lögum nr. 40/1960 um takmarkað leyfi til dragnóta veiða í fiskveiðilandhelgi íslands undir vísindalegu eftirliti, hefur ráðuneytið ákveðið opnun veiði- svæða til dragnótaveiða sem hér i segir. Veiðisvæðin eru ákveðin með ! hliðsjón af álitsgerðum hlutaðeig- andi aðila eins og greind lög gera i ráð fyrir: 11. Milli lína réttvísandi norðaustur um Bjarnarey sunnan Vopna- fjarðar, og réttvísandi austur í frá Gerpi.. Þó skulu veiðar óheimilar innan línu úr Skálanesi um Borgarnes í Kögur fyrir Seyðisfjörð og Loð mundarfjörð 2. Frá línu Reyðarfjall um Skrúð , að línu réttvísandi 120° frá I Hafnarnesvita sunnan Fáskrúðs fjarðar. Veiðar skulu þó óheimilar inn f.iarða í Fáskrúðsfirði, innan línu úr Hafnarnesvita að sunnan i Hafnarnes (Vattarnes) að norðan 3. Frá línu réttvísandi austur frá Kambanesi að línu réttvísandi suður frá Geithlíðarfjalli (220° v.I.) austan Grindavíkur. 4. Samfellt svæði fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð og Vestfirði, að línu réttvísandi norðaustur frá Geir ólfsgnúpi á Ströndum. Svæðið takmarkast að sunnan af iínu réttvísandi vestur úr punktinum 64° 8‘ n. br. og 220° 42‘ v.l. og i Faxaflóa af línu sem dregin er úr þeirn punkti um Gerðistangavita, Gróttuvita og Þormóðsskersvita í Kirkjuhóls- vita. Á Vestfjörðum cr dragnótaveiði óheimil innfjarða, innan lína sem hér segir: 1. Úr Ólafsvita um Tálkna, þvert fyrir Patreksfjörð og Tálkna- fjörð. 2. Milli Svarthamra að sunnan og Tjaldaness að norðan í Arnar- firði. Framh. á 14. síðu ATVINNA 13. ára dreng vantar vinnu. Helzt í sveit, er vanur sveita- vinnu. Upplýsingar í síma: 51072 eft- ir kl. 6. 10 M. júní 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.