Alþýðublaðið - 01.07.1962, Síða 3
MUVMMHMMMMmHVMHU
LOFTLEIÐA-
FRÉTTIR
STUTTU
MÁLI
★ A AÐALFUNDI Loftleiða.
sem haldinn vir í fyrradajf,
var stjóru féligsins einróma
endurkjörin (sjá mynd á ior-
síðu), en hana skipa'. íinst-
ján Guðlaugsson hrl., Sigurð-
ur Helgason frkv.stj. Alfreð
Elíasson frkv.stj. E. K. Olsen
flugdeildarstj. og Einar Árna
son, flugstj., en í varastjcrn %
Dagfinnur Stefánsson, flag-
stj- og Sveinn Benedíktsson,
frkv.stj. Endurskoðendur
voru kjörnir hinir sömu og
fyrr:' Stefán Björnsson, skrif-
stofustj. og • Þorleifur Guð-
mundsson, skrifstofustj.
★ LOFTLEIÐIR hafa ákveð-
ið að hefja byggingarfram-
kvæmdir, jafnskjótt og lóð
hefur fengizt.
★ FLUGFÉLAGIÐ Loftleið-
ir seldi á síðasta ári erlend-
an gjaldeyri fyrir 39.234.000
— en keypti gjaldeyri fyrir
4'/Í! milljón og skilaði því
netto til bankanna gjaldeyri,
sem svarar 34.651,00 ísl. kr.
Þá greiddi félagið af fiug-
vélunum $843.00 eða kr.
36.000.00 með eigin gjald-
eyri.
★ ÁFORMAÐ er, að Loft-
leiðir taki í sínar hendur
mest allt viðhald flugvéla
sinna á næstu árum. — í
þessu sambandi hefur félag-
ið ákveðið að aðstoða 15—20
pilta til flugvirkjanáms í
Bandaríkjunum.
★ ÁKVEÐIÐ hefur verið að
leigja DC-6B flugvél frá Flug
félagi íslands h.f. í fjórar
ferðir frá Helsinki til New
York í ágúst og sentember
til að létta á áætlunarvélum
flugfélagsins.
/MMMMMVMMMMMMMVVMM
ALSlR
Framhald af 16. síðn.
frönsku stjómina sem mest í á-
standinu í Alsír, ráða de Gaulle
forseta af dögum og ræna síðan
völdunum í Frakklandi sjálfu
með stjórnarbyltingu varð að
engu þegar leyniviðræðum OAS
og FLN í Algeirsborg lauk með
vopnahléi.
Svo virðist sem OAS-menn sjálf
ir sjái eftir hinum tilgangslausu
mannvígum og hryðjuverkum.
OAS-menn í Oran voru lengur
að átta sig, en félagar þeirra í
Alsír, enda eru % íbúanna þar
af evrópskum ættum, og flestir
hinna síðarnefndu af spönskum en
ekki frönskum stofni.
VIÐBJÓÐUR.
Það eru einkum tvær ástæður
til uppgjafar OAS. í fyrsta lagi
hefur fólk af evrópskum ættum
gert sér grein fyrir því, að eina
framtíðarvon þeirra er samstarf
við Múhameðstrúarmenn í Iand-
inu og engin framtíð bíður
þeirra í Frakklandi. í öðru lagi
hafa æ fleiri menn af evrópskum
ættum fengið viðbjóð á hryöju-
verkunum og þessi almenni við-
bjóður hefur einnig gert vart við
sig í röðum OAS og forystunni
reyndist æ erfiðara að hafa stjórn
á hófsamlegri mönnum innan sam
takanna.
Framtíðin virðist vera bjartari
nú en fyrir nokkrum dögum, —
þegar 10 þúsund flýðu daglega
til Frakklands. Nú hefur dregið
mikið úr flóttamannastraumnum.
EINN ÞRIÐJI FLÚINN.
Af einni milljón evrópsk-ætt-
aðra íbúa Alsírs er þriðjungurinn
farinn úr landi. Þar af hefur helm
ingurinn skráð sig sem flófta-
menn, en jiinir eru í „sumar-
leyfi.” Hér er aðallega um konur
og börn að ræða, sem eiga eig-
inmenn og feður heima í Alsír er
fylgjast með framvindunni. Ef
þeir telja ástandið sæmilega
tryggt að kosningum loknum er
ekki ólíklegt að meirihluti kvenn
anna og barnanna snúi aftur.
Þó er það talin staðreynd, og
hryggir það marga, að eitthvað
á milli 33 og 50% manna af ev-
rópskum ættum verði um síðir
að fara úr landi, aðallega bænd-
ur og ófaglærðir verkamenn.
Hins vegar er mikil þörf fyrir
tæknimenntaða menn, og talið er,
að efnahagslíf landsins mundi
hrynja til grunna, ef þeirra nyti
ekki við. Samkvæmt Evian-samn-
ingnum hefur fólk af evrópskum
uppruna þrjú ár til að ákveða —
livort það vill verða um kyrrt í
Alsír eða flytja af landi burt.
ENGIN KOSNINGABAR-
ÁTTA.
Engin kosningabarátta hefur
verið háð, og hafa margir kvart-
að yfir því. Hin raunverulega
kosningabarátta verður ekki háð.
fyrr en kosningum lýkur, þar sem
enginn alsírskur flokkur, er keppt
gæti við FLN, býður fram, og held
ur ekki neinn flokkur manna af
evrópskum uppruna.
Að kosningunum loknum koma
ágreiningsefni og skoðanamunur
FLN-leiðtoganna betur í ljós. Ben
Bella er enn vinsæll meðal als-
írsku þjóðarinnar, síðan Frakkar
handtóku hann 1956.' Og gerðu
hann að píslarvætti. En fangavist I
in varð til þess, að hann missti
stjórnina á flokknum að miklu
leyti út úr liöndunum á sér á
sama hátt og Ferhat Abbas, sera
nú hefur sáralítil eða epgin áhrif
innan hreyfingarinnar.
Ben Bella hefur sýnt með
kuldalegri afstöðu sinni til við-
ræðnanna við OAS, að hann er
andvígur öllu því, sem franskt
er. Aftur á móti er Abbas hóf-
samur í skoðunum og hægfara.
NÝ KYNSLÓÐ.
Meðal Ben Bella sat í fang-
elsi og Abbas var enn foringi óx
upp ný kynslóð innan hreyfiug-
arinnar og eru þeir B'en Khedda,
sem var vinstri sinni og gat því
náð samkomulagi við Frakka, er
gerði Eviansamning|na mögu-
lega, — og Belkacem'Krim, sem
var einn af 9 mönnum er skipu- j
lögðu uppreisnina 1'954 og sá|
eini, sem nokkurt orð fer af, t.
d. sem laginn sáttasenijari dæmi-
gerðir fulltrúar hennar.
HLUTLEYSI.
Hin nýja stjórn Alsír — hver
sem hún verður, og um það er
rætt, -- mun gæta hlutleysis og
vera hlynnt vesturlöndum, en
það gera hin nánu tengsl við
Frakkland á næstu árum, sem
eru efnahagsleg nauðsyn.
Geta má þess, að alsírskir stúd-
entar, sem verið hafa við nám í
kommúnistaríkjunum, hafa orðið
fyrir vonbrigðum. Þá hafa leiðtog
ar alsírskra þjóðernissinna forð-
azt öll tengsl við franska kommún-
ista.
— þilplötur nýkomnar frá Finnlandi.
PÁLL ÞORGEIRSSON
„Uss, maður, við eigum miklu fínna
sjóminjasafn - 46 togaraM
Verður ferð-
unum fækkað?
TILMÆLI hafa borizt frá stjórn
Bandarikjanna um endurskoöun á
gildándi loftferðasamningi railli ís-
lands og Bandaríkjanna. Þetta var
tilkynnt á aðalfundi flugfélagsins
Loftleiðir fyrir skömmu.
Formaður félagsstjórnarinnar,
Kristján Guðlaugsson hrl., tók það
fram, að þessi endurskoðun þyrfti
ekki að þýða neinar breytingar,
lieldur væri hér aðeins um að
ræða sams konar tilmæli og bor-
izt hefðu til annarra þeirra Evr-
ópuþjóða, sem héldu uppi flu„-
ferðum til og frá Ameríku.
Thor Thors, ambassador, ásamt
sendinefnd héðan að heiman imm
taka þátt í þessum viðræðum af
íslands hálfu, — en viðræðurnar
munu hefjast I septembcr næst-
komandi.
Krisján Guðlaugssou var bjart-
sýnn á, að endurskoðun samnings-
ins mundi ekki leiða til þess, að
ferðum LofUeiða til Bandarikjanna
yrði fækkað, — en ef sv j færi
mundi það leiða til mikils tjóns
fyrir Loftleiðir.
Kristján Guðlaugsson sa/ði m.a.:
„Stjórnendur Bandaríkja Norður-
Ameríku hafa alla tíð sýnt íslenzku
þjóðinni einstæða vinsemd. Því er
algjör misskilningur að ætla, að
nú muni annar liáttur upp tekinn
og að okkur kreppt í flugmálun-
um, ekki sízt þar sem félag okkar
er eina félagið, sem rekur flug yf-
ir Norður-Atlantsliaf án ríkis-
styrks . . .“
Auglýsingasími t
Alþýðublaðsins
er 14906
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 1. júlí 1962 3