Alþýðublaðið - 17.08.1962, Blaðsíða 12
SÁ 8UVCR DET
VÆXST FOR HAM
sílv!
l'ZNK PÁ, HVAO POUTIST V/U
tl6£ 77L OEN t>YNíC AF EEVISER,
VI HAR ORbANtSERET IMOO
HAM... ^
HVIS EDO/C NU tKKC
HAR SMYKKCRNC MCO,
NÁR HAN KOMMCR? .
dct cr ocr Mcsr
FANTASriSKC, Vt>
UN0ERU6C KUP, //
TRE N06CNSIN0C.
HAR LAVCr! JC6
VIUC 6ERNE SC'
■ HANS ANS/6TÍ
I 0/CSLIKKCr ER
eooies ANí/sr
UDT FORM0RKCT.,
ccpekiu:
Ef Eddie er nú ekki með skartgripina,
liegar hann kemur? Þá verður það verst
fyrir hann sjálfan.
Hugsaðu til þess, hvað lögreglan segir við
öllum þeim ósköpum af sönnununi, sem
við höfum gegn honum . . .
Þetta er það stórfenglegasta, ævintýrleg
asta.og undarlegasta fyrirtæki, sem við
þrjú höfum nokkurn tíma tekið okkur fyr
ir hendur. Ég vildi fá að sjá hann. — En
Eddie er dálítið þungbúinn þessa stund-
ina.
KRULLI
Fátæki Jói og
hundur hans
I
„Ég segi hvorki hver gaf mér það, né hvað það
er“, sagði kóngsdóttirin. „Látið alla fara út“.
Hirðmaðurinn blés í lúðurinn sinn og gaf með því
öllum merki til að fara. Um leið og fólkið flykktist
út, kom Jói í ljós, þar sem hann hafði staðið inni í
miðri þyrpingunni.
Fyrir framan hann var nú hásætið mikla, þar
sem kóngsdóttirin sat við fætur föður síns. í fang-
inu hélt hún á hunangsgula kettinum og við hné
hennar lá hvoípurinn.
AHt í einu heyrðist gleðigelt, hvolpurinn stökk
í loft upp þaut yfir gólfið, lagði framlappirnar upp
á axlir Jóa og sleikti hann í framan. Um leið emjaði
hann og gelti eins og hjarta hans væri að springa.
Jói hélt dauðahaldi utan um hann og grét.
ÞaÖ varð ógurleg ringulreið meðal hirðarinnar.
Allir spurðu: „Hvað er þetta? Hver er þetta? Hvað
er að gerast?“
Kóngsdótirin stóð á fætur og leit yfir höfuðið á
hunangsgula kettinum sínum. Hún vissi
ekki vort hún-átti heldur að hlæja eða gráta. Kóng
Tvo miða í fremstu röð, takk.
urinn leit til Jóa og spurði: „Hver ert þú?“
„Ég er konunglegur skógarhöggsmaður“, sagði
Jói.
„Já, nú man ég það“, sagði kóngurinn. „En hvern
ig stendur á því að hundurinn hleypur til þín eins
og þú værir húsbóndi hans?“
„Hann var húsbóndi hans“, sagði kóngsdóttirin.
„En nú er ég það, því að hann gaf mér hundinn
sinn, af því að mig langaði svo mikið til að eignast
hann“.
I
Mangoldt
Framh. af 1G. síou
gerðar voru hér á landi árin 1960
— 1961. hefðu orðið góð og jafn
vel betri en vonir stóðu til. Hann
kvaðst starfs síns vegna hafa
fylgzt vel með þróun mála hér,'
en nú fengi hann enn betra tæki-
færi til að kynnast framförum og
ástandi hér, en hann hefði áður
haft.
Von Mangoldt var spurður að
því hvaöa áhrif frjáls fjárfesting
útlendinga mundi hafa hér á landi.
Hann taldi slíka fjárfestingu alltaf
hagstæða viðkomandi landi, enda
hefði reynslan glögglega sýnt það.
Viðkomandi land hagnaðist ætíð
á fjárfestingu útlendinga, atvinna
ykist og velmegun fólksins.
Aðspurður kvað hann ekkert því
til fyrirstöðu, að ísland fengi lán
úr Framkvæmabanka Evrópu, ef
það næði tengslum við Efnahags
bandalagið, enda væri ,-það hlut-
verk bankans að hjálpa aðildarríkj
unum. Von Mangoldt taldi stefnu
íslenzku ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum vera þá réttu og halda
bæri áfram á sömu braut unz fuir
ur árangur hefði nást.
Dr. Von Mangoldt og kona hans
ætluðu að fara héðan flugleiðis, í
morgun.
Genghis Khan
Framhald af 13. síffu.
ir hestar, eða kameldýr eða
mótorhjól eða allt þrennt.
Umskiptin urðu í byltingunni
1921. Þá íosnaði Ytri-Mongólía
undan yfirráðum kínversku
„stríðs-lávarðanna“. „Hinn lif-
andi Búddha“ varð í fyrstu Khan,
eins og þingbundinn konungur.
Við dauða hans 1924 bannaði
Þjóðarráðið, að nokkur annar
slíkur yrði fundinn og landið
varð lýðveldi.
Enn lifa 70% þjóðarinnar af
hjarðmennsku og eiga flestir
sínar eigin jarðir, þó að komm-
únistastjórnin, sem tók við eftir
stríð, hafi stofnað nokkur sam-
yrkjubú. Minna er orðið um
ferðir milli haga og vegalengdir
styttri, sem farnar eru. Aðrir
landsbúar lifa á einhverskonar
iðnaði, sem nú gefur af sér
jafnmikið og hjarðmennskan.
Mongólía framleiðir nú nóg korn
fyrir eigin þarfir.
Aðeins örfá lamaklaustur eiu
eftir. Sumum 'liinum þekktustu
þeirra, eins og Erdeni Tsu, sem
byggt var á þeim stað, er áður
stóð á höfuðborg heimsveldis
Mongóla, Qaraquroum, hefur nú
verið breytt í söfn. í stað 100.000
lama eru nú 200 i landinu. Ailt
fram undir 1930 voru enn rúm-
lega 90.000 munkar i landinu,
en með aukinni menntun þorn-
uðri upp þær lindir, sem munk-
arnir sp.ruttu upp af.
Genghis Khan tólc á sínum
tíma upp fyrsta stafrófið fyrir
tungumál Mongóla, en allt fram
til 1921 var aðeins örlítill minni-
hluti laés ó mál sit-t. Lærdómur,
sem var eiginlega einokaður af
lamaklaustrunum, var alveg
tengdur klassík Tíbetbúa, og
lærðu menn þjóðsögur fyrri alda
utanbókar á erlendri tungu.
Jafnvel árið 1940 voru aðeins
10% landsbúa læs og skrifandi.
Nú munu.svo til allir vera læsir
og skrifandi. Háskóli var stofn-
aður 1942, sem hefur nú allar
venjulegar deildir og 2000
stúdenta og eru kennarar og
prófessorar mongólskir.
12 17. ágúst 1962 - AIÞÝÐUBLAÐIB