Alþýðublaðið - 30.08.1962, Qupperneq 3
Eiríksson
Blaðinu hefur borizt )iý bók frá
Helgafelli eftir Dr. Benjamín Ei-
ríksson bankastjóra, er liann kall
ar „The Concept and Nature of
Money“, en bókin er gefin út á
, sem forlagið gefur út á ensku eftir
ensku, og er þetta önnur bókin,
dr. Benjamín. í þessari nýju bók
sinni setur Dr. Benjamín íram
skoðanir sínar á eðli peninga, í
framhaldi af peningahugtaki því
er hann setti fram í sinni fyrri
bók. Sýnir hann fram á að pening
arnir séu samföstunartæki atvinnu
lifs og viðskiptis.
Kaupmannaliöfn, 29. ágúst.
NTB.
VIGGO Kampmann, forsætis-
ráðherra Dana, mun ákveða á
föstudag hvort hann segir af sér
embætti. Er hann nú til rannsókn-
ar á sjúkrahúsi eftir að hafa
veikzt á ný, en hann lá sem kunn
ugt er lengi í sumar, en liafði
nýtekið við stjórnartaumunum að|
nýju. Læknar hans segja, að enn
sé of snemmt að segja hvernig
heilbrigðisástand Kampmanns er,
eða hvað þeir ráðleggja honum.
Segi hann af sér embætti sem
forsætisráðherra mun hann einn-
ig segja af sér formennsku í
Jafnaöarmannaflokknum.
Dragi Kampmann sig í hlé er
almennt búizt við, að Jens Otto
Krag, utanríkisráðherra, sem jafn
framt hefur gegnt forsætisráð-
herraembætti í veikindum Kamp
manns, verði forsætisráðherra, en
Per Tækkerup verði utanríkis-
ráðherra. *
Myndir þessar eru frá há-
tíðahöldunum á Akureyri í
gær í tilefni af 100 ára af
mæli kaupstaðarins. Efri
myndin er tekin á hátíða-
fundi bæjarstjórnarinnar.
Forseti íslands ráðherrar o.fl.
gestir sitja fremst. Á neðri
myndinni sjást þeir Gylfi Þ.
Gíslason, menntamálaráð-
herra og Friðjón Skarphéð
Ínsson forseti sameinaðs
þings skoða „Sögusýning-
;una“ (Ljósm. Aiþbl. Gísli
Gestsson.)
Ný bók eftir
Dr. Benjamín
Rússum ekki
treystandi
Genft, 29. ágúst. NTB.'
Fulltrúi Sovétríkjanna á af-
! vopnunarráðstefnunni í Genf vís-
! aði í dag á bug tillögu Bandaríkj-
| anna og Breta um að semja þeg-
ar um bann við öllum kjarnorku-
j tilraunum án eftirlits, nema
þeim, sem fram fara neðanjarð-
; ar. Aftur á móti bar hann fram
I munnlega tillögu um, að þegar
verði hætt öllum tilraunum stór-
veldanna.
Framhald á 14. síðu.
Bann án eftirlits
einskis virði
Washington, 29. ágúst. NTB.
Kennedy Bandaríkjaforseti
sagði á fundi með blaðamönnum
í kvöld, að ekki sé hægt að fall-
ast á bann við kjarnorkutilraun-
um nema því aðeins að jafnframt
sé samþykkt eftirlit með að banni
sé framfylgt.
Forsetinn sagði ennfremur, að
utanríkisráðherrar Vesturveld-
anna mundu halda fund áður en
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna kemur saman um miðjan
september. Ekki er búið að á-
kveða hvaða dag fundur utanríkis
ráðherranna hefst.
Kennedy sagðist ekki hafa orð-
ið var við neinar tillögur Sovét-
ríkjanna um að stórveldin ræði furter, sem beðið hefur um lausn
Berlínarmálið. ; frá embætti.
Þá tilkynnti Kennedy, að hann Kennedy kvaðst uggandi vegna
hefði skipað Arthur - Goldberg, þess, að skip undir fánum Atlants
atvinnumálaráðherra, í hæstarétt hafsbandalagsins flyttu vopn frá
Bandaríkjanna í stað Felix Frank- i Sovétríkjunum.til Kúpu.
4VWWWMWVWWWWWW
Nkrumha
fangelsar
ACCRA 29. ágúst (NTB)
Nkrumah, forseti Ghana, hef
ur látið handtaka utanríkis
ráðherra sinn Ako Adjei, á-
samt upplýsingamálaráðherr
anum og aðalritara flokks for
setans, sem er eini flokkur-
inn, sem leyfður er í landiau
Þessir þrír menn hafa verið
nánustu samstarfsmenn N-
krumah í fjölmörg ár.
Útvarpsstöðin í Ghana
staðfesti í kvöld að menn þess
ir hefðu verið handteknir.
Ekkert hefur verið látið uppi
um ástæðuna.
WWWWWVVWVWWWWWUWV
OVIST HVORT KAMP-
MANN SEGIR AF SÉR
ARIZT
Alsír, 29. ágúst. NTB.
Áköf skothríð hófst í bæjar-
hluta Múhammeðstrúarmanna í
Algeirsborg í dag. Áttust þarna
við hermenn andvígir Ben Bella
og stuðningsmenn hans og stjórn-
arnefndarinnar. Sagt er, að 24
menn hafi orðið fyrir skotum.
Lögreglan í Algeirsborg hefur
sett á útgöngubann frá kl. 8 að
kvöldi til morguns. Ben Khedda
formaður stjórnarnefndarinnar,
sendi í dag frá sér ávarp þar,
I sem segir, að hætta sé á borgara
■ styrjöld í Alsír og skoraði á alla'
aðila, að semja frið, svo hægt
verði að ganga til kosninga og
síðan mynda ríkisstjórn. Hann,
lagði til, að deiluaðilar skipuðu
sameiginlega nefnd til þess að
j undirbúa kosningarnar, sem hent
ugt væri að halda í september.
Skothríð heyrðist í kvöld bæði
úr borgarhluta Múhammeðstrúar
| manna og eins fyryir framan stjóm
I arbygginguna í miðborginni.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. ágúst 1962 3