Alþýðublaðið - 14.11.1962, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 14.11.1962, Blaðsíða 15
eftir Georges Simenon „Þér þeklctuð René Bouvet?” Gamli maðurinn starði og saug upp í nefið og virtist ekki skilja. „Ég er að spyrja, hvort þér hafið þekkt René Bouvet?” „Hvað gerir hann?” „í fyrrakvöld ...” reyndi leynilögreglumaðurinn. Hann skildi þegar í stað, að slík orð ollu enn nýjum vand- ræðum í heila gamla mannsins, sem hlaut fyrir löngu að vera liættur að reikna í dögum og nóttum og reiknaði iniklu frem-. ur í litrum af víni. „Hlustið þér?” „Já, herra minn. Má ég?” í þetta skipti hélt hann flösk- unni áfram í hendi sér, án þess að setja korktappann í aftur. „Reynið að fylgjast með því, sem ég er að segja. Það var í fyrradag, maður að nafni Mon- sieur Bouvet dó á árbakkanum fyrir framan bóksölukassa”. Um leið og hann taiaði rétti hann fram eintak af blaðinu, sem 'birt hafði myndina fyrst. „Þekkið þér hann?” „ J a '. „Hvers vegna voruð þér, kvöldið sem hann dó, að þvæl- ast fyrir framan húsið Qáual de la Tournelie?” „Mér þótti mjög vænt um hann”. „Voruð þið vinir?” Við hverja spurningu hnykl- aði umrenningurinn brýrnar, eins og hann væri hræddur um að misskilja merkingu orðanna. Þau hlutu að berast til heilans í gegnum eins konar þoku, sem hætt var við, að ruglaði merk- ingu þeirra. „Vissuð þér, að hann hét Bou- vet?” „Nei”. „Vissuð þér, hvað hann hét’” „Nei”. „Vissuð þér til, að hann héti öðru nafni?“ Hann skildi ekkert lengur. Monsieur Beaupere hafði flýtt sér um of. „Hittuð þér hann oft?” „Alloft”. „Síðan hvenær?” „Ég veit það ekki. Það er langt síðan”. „Ár?” „Meira en það”. „Tíu ár?” „Ég hugsa ekki”. „Hvað kallaði hann yður?1* „Hann kallaði mig ekki neitt. Má ég?” Hann hélt mjög í hemilinn á sér, tók aðeins munnsopa í einu og þurrkaði sér um munn* inn á handarbakinu, en nokkur blámi loddi við grátt skeggið. „Hvar kynntust þér honUm? Hugsið nú, áður en þér svarið. Ég er að spyrja yður, hvar þér hittuð hann fyrst”. Prófessorinn starði fast á gluggann og það voru lirukkur á enni hans; það hlaut að vera erfitt. fyrir hann að hugsa svona mikið. ,,Ég veit það ekki”. „Var það í París?” „Það var áreiðanlega við Mau- berttorgið. Kannski var ég að veiða, þegar hann ávarpaði mig. Ég veiði stundum. Ekki lengur en það er ekki langt sfðan”. „Sagði hann yður, hvað hann gerði?” „Af hverju?” „Takið eftir því, sem ég er að segja. Þegar þér sáuð í blaðinu, að hann var dáinn, fóruð þér og hénguð fyrir utan húsið. Lang- aði yður til' að fara inn?” Það virtist sem orðin þyrftu að fara ára leið á milli þessara tveggja manna. Auk þess vildi svo til, að i þessu herbergi — ósköp venjulegri skrifstofu — voru þúsund hlutir, sem um- renningurinn rak augun í og drógu að sér athygii hans. Eink- um var það bréfapressa, ’sem augu hans beindust að hvað eft- ir annað, og eins og barn virt- ist hann þurfa að halda í hem- ilinn á sér að taka hana ekki og hrista upp snjóinn innan í henni. „Langaði yður inn?” „Mig hefði langað til að sjá hann”. „Hvers vegna báðuð þer hös- vörðinn ekki um leyfi?” Prófessorinn brosti nú í fyrsta skipti. Ekki fullu brosi, heldur einhverju, sem nálgaðlst það, hálfhæðnislegu. Gat það verið, að maður úr lögreglunni, maður á hans eigin aldri, vissi ekki, hvernig húsverðir taka á móti mönnum eins og Prófessornum? „Reynduð þér heldur ekki að komast inn óséður? Fóruð þér nokkum tíma inn í húsið? Bauð hann yður nokkurn tíma inn með sér?” Vissulega töluðu mennirnir báðir frönsku, en þó var það ekki sama tungumálið. Gamli maður- inn var farinn að missa kjark- inn, þó að hann hefði í fyrstu verið svo ákveðinn í að gera sitt bezta. „Sem sagt, þér sáuð hann að- eins á götunni?” „Á götunni, á árbakkanum”. „Um hvað talaði hann við yð- ur?” „Ég veit það ekki". „Kom hann fram við yður sem vin?” Þetta var að verða erfiðara og erfiðara, og þá var Monsieur Beaupere líka fullur af velvilja og þolinmæði. „Gaf hann yður peninga?” „Oft”. „Mikla peninga?” „Ekki mikla. Nóg til að kaupa einn eða tvo lítra”. „Hann vissi, að þér munduð eyða þeim í vín?” „Já”. „Fór hann aldrei með yður inn að krá til að fá drykk?” „Hann drakk ekki”. „Hvernig vitið þér það?” „Af því að hann sagði raér það. Hann varð veikur af þvi. Það er jafnvel þess vegna . .” Hann þagnaði, eins og hann hefði ákveðið að þegja um það, sem komið • var fram á' varir hans. „Það er þess vegna hvað?” „Ég veit það ekki”. „Neitið þér að svara?” „Ég er ekki að neita. Ég veit það ekki”. „Sagði hann yður nokkurn tíma, hvað hann gerði áður?” „Ekki beinlínis, nei”. „Vissuð þér, að hann hafði verið mjög ríkur?” „Mig hafði grunað það”. „Af því að hann talaði, eins og maður, sem hefur verið rík- ur”. „Gefið skýringu”. „Hann hafði efeki áhuga á peningum”. „Á liverju hafði hann áhuga?” Hann leit næstum bænaraug- um á kvalara sinn og, án þess að bíða eftir leyfi, fékk hann sér gúlsopa úr fiöskunni. Síðan byrj- aði hann að tálá, eins og við sjálfan sig. „Það er ekki auðvelt að út- skýra það, og ég er ekki viss. Hann spurði mig spurninga. Hann hafði gát á mér, og öðr- um ...” „Hverjum öðrum?” „Öðrum eins og mér”. „Að hverju vildi hann kom- ast?” „Hvort þetta væri mjög erfitt, hvort mig langaði ekki stundum til að lifa annars kon- ar lífi ... Hvernig þeir færu með okkur hjá Hjálpræðishemum ... Hvort það væri satt, að lög- reglan berði okkur stundum ... Ég veit ekki ... Það er fólkið ... Ég er ekki vanur því lengur •.. Mér fannst, eins og hann langaði til að slást í hópinn ...” „Með hverjum?” „Okkur. Og þó kann mér að skjátlast. Það er vegna spurn- inga hans. Og líka vegna þess, að það var alltaf hann, sem leit- aði mig uppi. Stundum beið hann hann. eftir mér í klukku- tíma eða meira ...” ~„Hvar?” „Á Mauberttorgi eða hvar sem var ...” „Kærði hann sig ekki um fé- lagsskaD?” „Hvaða félagsskap?” „Minntist hann nokkumtíma á konu sfna, dóttur sína, við- skintamál?” „Ég. veit, að hann átti allt þetta. Hann lét í bað skína”. „Af hveriu hHóp hann svona skvndilega frá öllu saman?” Gamli maðurinn starði, furðu lostinn. x„Ja, ef þér skiliið ekki . . .” „Hvaða ástæðu gat hann hafa haft til að skilia ailt við sig og fara að búa eins og maður á litlum eftiriaunum á Qual de la Tournelie? Þér söeðuð, að hann hefði okki drukkið”. „Af því að hann eat það ekki”. „Og ef hann hefði getað drukk ið?” „Þá held ég. að hann hefði slegizt í hópinn”. „Að hann hefði gerzt um- renningur?” Prófessorinn kinkaði feimnis- lega kolii. en þó vottaði aðeins fyrir móðgun í aitgtim hans. „Eins og ég saeði honum oft, þá er ekkert nema kuldinn, sem er raunveruleea erfitt að þola”. „Og hungur?” „Nei, hann hafði þolað það allt”. „Þér segið sem sagt, að Mon- ] sieur Bouvet hafi leitað félags- skapar yðar vegna meira eða minna játaðrar löngunar til að lif lífinu eins og þér?” „Kannski. Ég held, að svo sé um fleiri”. „Hafið þér nokkurn tíma verið prófessor í raun og veru?” „Kannski ekki alveg”. „Kennari?” „Það var fyrir svo löngu”. Fáið yður að drekka, Legalle, en hlustið á mig. Það er mikil- vægt, ekki svo mjög fyrir lög- regluna, heldur fyrir margt apn að fólk, að komast að fortíð Mon sieur Bouvet. Það er meira en líklegt, að hann hafi lifað undir öðru nafni, ef til vill mörgum." „Til þessa eruð þér eini mað urinn, sem hann virðist hafa tal að við næstum frjálslega. Fylgizt þér með? Það er ekki um þaft að ræða að víkja hann. í fyrsta lagi er hann dáinn. í öðru lagl erum við ekki að saka liann um neitt. Aðalatriðið er að komast að því, hver hann var í raun og veru.“ ' > „Hvers vegna?“ „Vegna þess að hann á konu, dóttur, viðskiptafélaga, pen- inga, og vegna þess að það þarí að ráða fram úr ýmsu. Talaði hann nokkurn tíma við yður um konu sína og dóttur?“ „Kannski”. / „Hvernig?“ , „Hann minntist á „nöldur- skjóðuna". Ég skildi það svo, að hann ætti við konu sína.“ „Og dótturina?“ „Hann spurði mig, hvort ég ætti nokkur börn. Ég sagði hon- um, að ég vissi það ekki. Maður veit það aldrei, er það?“ „Og hvað sagði hann?“ „Að það þyrfti ekki að skipta neinu máli að vita eða ekki vita.“ „Hvaða ályktun dróguð þér a£ því?“ Það er staðreynd að hver fjölskylda getur spar- að sér þúsundir króna árlega me(5 því að panta frá HAGKAUP. Gerist áskrifendur að pöntun arlistunum. Póstverzlunin. ^rfflasBíaiaas!., ÍMIMMMMIM mimimmimiim IMMIIMMMMM MIIMMIMMMMI lliMMIlMllllM MMIIMMMMMI 'ViVmVmmmm^SS^Vmmi'mmmiimii ii ' M M. . I ! Miklatorgi. ■'■tJ. 'i’ * CRANNARNIPI 7739 Ég veit ekki hvort ég kemst heim í hádegismatinn, mammi? ALÞÝÐUBLAÐID - 14. nóv. 1962 |,5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.