Alþýðublaðið - 27.02.1963, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 27.02.1963, Blaðsíða 13
SHAKESPEARE- KYNNiNG LEIKHÚS æskunnar flutti síð- astliðinn laugardag kynningu á köflum úr þremum verkum eftir i skáldjöfurinn William Shake- speare. Þetta er annað verkefni j þessa unga fólks, sem stofnaði | samtök sín í lok maí síðastliðins árs. Ekki verður annað sagt en að myndarlega sé af stað farið og ekki er ráðist á garðinn, þar sem hann er auðveldastur yfirferðar. Sýnir það stórhug og þrátt fyrir hrakspár efa ég ekki, að þétta fólk á eftir að auðga leikhúslíf borgar- innar að miklum mun. Svo væn- legt er það oð eðlisgáfað. Það er athyglisverð staðreynd, að engin af þeim leikritum, sem Leikhús Æskunnar kynnti á Shake speare-kvöldi sínu, hafa hingað til verið tekin til meðferðar í grón- um leikhúsum okkar. Er þó ekki j því um að kenna, að hér séu ekki á ferðum verk, sem vekja myndu fögnuð og þakklæti áhorfenda. Shakespeare er ekki enn búinn að missa neitt af upprunalegum ferskleika sínum. Hann mun áreið- ! áreiðanlega um margar ókomnar aldir vera tíðlaus ástmögur allra þeirra, sem unna leiklist. Vonandi verður þetta framták Leikhúss Æskunnar til þess að við fáum að sjá og heyra eitthvað til Shakespeares á næstunni, annars staðar að, við fullkomnari aðstæð- ur og í heildum. Ég efa satt að segja, að meiri gróska sé í félagsskap ungmenna hér á landi en er í þessum, sem hér er ræddur. Félagsmenn eru nú þegar nálægt sjötíu talsins og starf þeirra er mjög vel skipulagt og unnið af ótakmörkuðum á- huga. Það er sannarlega full á- stæða til að borgaryfirvöldin og aðrir þeir aðilar, sem mega, leggi þessu fólki lið eftir mætti. Sá stuðningur mun borga sig marg- faldlega, er fram líða stundir og stærri vettvangur býður því til verkefna í þeirri eilífu glímu, sem háð er til viðhalds og aukningar blómlegu menningarlífi í okkar fámenna landi. Ævar Kvaran, leikari hefur með stjórn sinni og öllum undirbúningi að Shakespeare-kvöldinu, unnið mjög gott verk. Styrka stjórn hans mátti greinilega sjá í öllum atrið- um og mjög til sóma. Einkum var athyglisvert, hve honum hefur tekizt um alla þjálfun í framsögn leikaranna ungu. Hún var ótrúlega jafn góff. Það er full ástæða til að óska honum til hamingju með svo giftudrjúgan árangur. Á þessari kynningu voru leikin atriði úr Rómeo og Júliu, MacbetH og Hinrik IV. í Rómeo og Júlíu vakti Arnar Jónsson mikla at- hygli fyrir fágaða framsögn og leik, svo og Þórunn M. Magnúsí dóttir í hlutverki Júlíu, gærr mikl- um þokka og góðri rödd. Jón Ingvason hefur mjög .trausta frám sögn og skýra og er öruggur á sviði. Röddin þó ef til vill heldur flöt. Minni hlutverk í þéim leik voru í höndum Grétárs Hannes- sonar, Sigríðar Gunnlaugsdóttur og Sigurðar Skúlasonar og öll þokkalega unnin. Pétur Einarsson lék Macbeth laglega. Pétur hefur sterka rödd, en beitir henni vart nógu nákvæmt enn og er ívið þunglamalegur. Leynir sér þó ekki að þar er gott leikaraefni á ferð. Lady Mac- beth nokkuð reisuleg í flutn- ingi Oktavíu Stefánsdóttur. Hún hefur ágæta rödd og beitir henni vel, en betur hefði mátt sjást innri átök í svip hennar og hreyfingum. Þriðji maður í þeim hópi var Jón Framh. á 14 slðu Framh. af 3. síðu upplýsa mál þetta. Fundi þá, sem hann hefur tekið þátt í síðan, sótti hann samkvæmt beiöni lögreglu- yfirvalda. „Þakksrskutd^ Fundurinn 7. janúar fór fram í samræmi við það, sem hann hafði sagt fyrir um að fyrirhugað væri, 'og höfðu lögreglumenn komlð sér svo fyrir með samþykki hans, að þeir gætu fylgst með viðræðum Ragnars og sendiráðsmanna, og eru þær til skráðar nærri orðrétt- ar. í þessum viðræðum báru sendi ráðsmenn m. a. fram tilmæli um, að Ragnar aflaði upplýsinga um strætisvagnsstjóra, er æki verka- niönnum til og frá vinnu á Kefla- víkurflugvelli. Einnig skyldi hann, ef það reyndist mögulcgt án þess að vekja grunsemdir, setja sig í samband við slíkan aðila. Ef áhugi lians í þessu efni vckti grunsemd- ir, skyldi hann gefa þá skýringu, að hann leitaði eftir möguleikum til þess að ná í tollfrjálst áfengi. Einnig kom fram í viðræðunum, að sendiráðsmenn spurðu um hvort það væri tíðkað að útlendingar fengju störf í hafnarvinnunni í Reykjavík. Ragnar nefndi í við- ræðunum Lóranstöðvarmyndatök- una og aðrar slíkar myndatökur, er hann kynni aff þurfa að ann- ast, og sögðu þeir honum þá, að liouum myndu útvegaðar nauðsyn- legar sérstakar „linsur", þegar hann þyrfti á þeirn að halda, en annars kynnu slík tæki að vekjá grunsemdir. í viðræðunni hóf Ragnar einnig máls á peninga- greiðslunni, sem honum væri á móti skapi, og var honum sagt, að hann yrði að líta á hana sem gjöf. Hann mætti ekki vera feiminn við að taka við peningum til þess að standa straum af kostnaði við at- huganir sínar, kostnað á veitinga- liúsum, vínveitingar, er hann væri að kynnast mönnum o. fl. Sendi- ráðsmenn lögðu áherzlu á, að næsti fundur mætti ekki fara fram í heimahúsum, það væri af ýmsum ástæðum óheppilegt, og gæti vak- ið grnnsemdir. Var næstl fundur ákveðinn á vegamótum við Hafra- vatn 28. janúar kl. 19,00. Við Hafravatn. Fór sá fundur fram samkvæmt áætlun og fjlgdust lögreglumenn með því, að bifreiðar mættust á tilsettum stað og tíma. Ragnar fór úr sinni bifreið og í hina og var henni ekið í nágrenni Hafravatns um eina klukkustund. Samkvæmt skýrslu Ragnars voru viðræðumar í framhaldi af umræðuefnum síð- asta fundar. Ragnar gat þess, að erfitt væri að finna strætisvagns- stjóra í þessum tilgangi vegna þess hve fáir þeir væru. Auðveldara væri að finna einhvem starfs- mann Keflavíkurflugvallar, er byggi í Reykjavík og færi daglcþa á milli. Lagði Kisilev þá áherzlu á að slíkur maður yrði aö vera starfsmaður á flugvellinum en ekki starfandi í Keflavík og spurði hvort slíkur maður hefði ekki möguleika á aö kynnast banda- rískum hermönnum. í skýrslu Ragnars segir, að næsti fundur hefði verið ákveðinn mánudaginn 25. febrúar á sama staff, en nú kl. 20,30. Leikslok. Samkvæmt ósk Ragnars var á- kveöið að hann skyldi ekki þurfa að taka þátt í fleiri fundum. Ók Ragnar á mótsstað á tilsettum tíma og leyndust tveir lögreglu- menn í aftursæti bifreiðar hans. Bifreið sendiráðsmanna kom þang- að að þegar á eftir og settist ann- ar sendiráðsmaðurinn, sem reynd- ist vera Dimitiev, inn í bifreið Ragnars og óku bifreiðarnar 50- 60 metra inn á Hafravatnsveg og stöðvuðust þar í því að Dimitriev varð lögreglumannanna var. Að ósk lögreglumanna gerðu sendi- ráffsmennirnir grein fyrir því hverjir þeir væru, og jafnframt staðfesti Ragnar, að þeir væru sömu menn og hann hefði átt fundi með í desember og janúar sl. — Er sendiráðsmennirnir höfðu gert grein fyrir stöðu sinni, fengu þeir að aka brott óhindr- aðir. Rómeo og Júlía. Árnar Jónsson og Þórunn M. Magnúsdóttir. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 27. febrúar 1963 J3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.