Austurland


Austurland - 17.04.1920, Qupperneq 3

Austurland - 17.04.1920, Qupperneq 3
AUSTURLAND 3 „Unga ísland". Þeir, sem gerast vilja kaudend- ur að „Unga íslandi", geta snúið sér til Snorra Norðfjörð,\ Landamóti. óvíst er að borgi sig. Þá þykir „Verkamanni“ það all-undarlegt, að vér teljum eigi til íastrar vinnu afgreiðslu skipa. Má vera að nokkrir menn hafi við það fasta atvinnu, og ef til vill fjöldi manna, einkum þegar skip koma jafn oft og í vetur — einu sinni í mán- uði og varla það. Þætti mér eigi undarlegt, þótt eigi kæmist mikið hér í framkvæmd, ef tugir manna stæðu dag eftir dag kófsveittir við' að velta sömu vörunni fram og aftur 25—30 daga mánaðarins. Því skiljanlegt er það, að illa borgar sig að þurfa að láta vinna öll önnur störf að nóttu til og svo munu verkamennirnir fljót- þreyttir á slíkum þrældómi. Eða heldur „Verkamaður" að aðferð sú, er notuð var af stéttarbræðr- um hans hér í vetur, sé sú eina giftuvænlega, til þess að auka hér vinnu? Þá vildum vér minnast nokkr- um orðum á kaup verkamanna í Reykjavík og kaup þeirra hér. „Verkamaður" bendir á að mikl- um mum sé meiri vinnuþörfin þar. En veit hann ekki, að aukin vinnuþörf stafar af aukinni fram- leiðslu og af aukinni framleiðslu auknar framkvæmdir, og að þetta tvent er það, sem skapar gjald- þol og eftirspurn eftir verkalýð, gn aukin eftirspurn hefur í för með sér aukið kaup og hefur komið hinu gífurl.ega verði á alla vinnu og þar af leiðandi á alla vöru. Og vegna þessa fyrst og fvemst, geta eigi verkamenn út um land krafist hins háa kaups, sem Reykvíkingar hafa. Þá má og benda á húsaleiguna, sem vera mun fimm og í sumum tilfellum ■ tíföld við það, sem hún hér er. „Verkamaður“ fjölyrðir að lok- um um hið tvíeggjaða sverðið, sem eigi hafi verið að oss reitt. En er það eigi reitt að hverjum manni þjóðarinnar, þegar tekin er óheiliavænleg og varasöm stefna í málum, sem mikils er vert um fyrir alla þjóðina, hvort farið er með af skynsemi og gætni eða heimsku og fljótfærni? Og er það ekki sízt mikilsvert, þegar um er að ræða nýjar stefn- ur, sem eru að ryðja sér braut, hvort valin er sú braut, er leiðir til meiri samvinnu og samúðar, en áður hefur verið, eður til úlf- úðar, ósanngirni og þvermóðsku. Og það vonum vér, að „Verka- maður komist að raun um, að í upphafi greinar sinnar hafi hann að oss reitt se'r tvíeggjað sverð. Vildum vér svo óska honum góðs og gleðilegs sumars, þar eð vér liöfum fyrirhugað að setjast eigi með honum á rökstóla fyrst hann hefur grein sína, að „stefn- an“ norður og niður, er alls ekki líkleg til að breytast — því er nú ver segjum vér — hans vegna. Ritstj. ------ .....—. — Skipsskaði. Þrjátíu manns drukna. Sem getið er um í símskeytun- um frá fréttaritara vorum í Reykja- vík, er fiskiskútan „Valtýr“, eign Duus verzlunar í Reykjavík talin af. „Valtýr" var stærsta skip verzl- unarinnar og á því valið lið mann fyrir mann. Höfum vér afl- að oss upplýsinga um nöfn og heimili skipverja og birtum þau hér á eftir: Pétur M. Sigurðsson, skipstjóri Reykjavík. Vilhjálmur Gíslason, stýrimaður Reykjavík. Guömundur Jónasson, vélamað- ur Reykjavík. ' Böðvar Jónsson, matsveinn Reykjavík. Guðmundur ísleifsson, háseti Reykjavík. Valdemar Olafsson, háseti Reykjavík. Kristján Jónsson, háseti Reykja- vík. Magnús Eggertsson, háseti Haukadai Dýrafirði. Andrés Gestsson, háseti Keldu- dal Dýrafirði. Einar Gestsson, háseti Keldudal Dýrafirði. Guðmundur Guðjónsson, háseti Keldudal Dýralirði. Gísli G. Kristjánsson, háseti Núpi Dýrafirði. Sigurður Bjarnason, háseti Þing- eyri Dýrafirði. Gunnar Sveinsson, háseti Þing- eyri Dýrafirði. Jóhann Gísiason, háseti Selár- dal Arnarfirði. Guðmundur Eymundsson, liáseti Hólmavík. Páll Júníusson, háseti Stokksevri Brandur Sigurösson, háseti Ólafsvík. Jósef Sigurðsson, háseti Akra- nesi. Kristófer Bjarnason, háseti Akranesi. Jón Árnason, háseti Hafnarfirði. Jón Guðmundsson, háseti Mjóafirði. Peder Andersen, háseti Mjóafirði Friðrik Jónsson, háseti Einars- lóni. Lafuer Jónsson, háseti Einars- lóni. Guðmundur Pálsson, háseti Sandi Snæfellsnesi. Vigfús Hansson, háseti Sandi Snæfellsnesi. Stefán Guðmundsson, háseti Litla Kambi. Sigurður Guðmundsson, háseti Breiðuvík. Skipverjar voru því 30, en eigi 29, eins og sagt er í skeytinu. Um aldur mannanna höfum vér eigi náð í neinar upplýsingar. En Vestfirðingar þeir er á skipinu voru, voru allir menn ókvæntir á aldrinum 19—30 ára. Og heíur Ægir gerst stórtækur að þessu sinni og eigi valið af hinum verri endanum, frekar en hdns er venja. ♦ Símskeyti frá fréttaritara Austurlands. V Rvík. 7/4. Allsherjarverkfailinu lokið 5. þ. m. Verkamenn fengu öllum kröf- um sínum framgengt. Þjóðþingið var kvatt saman í gær og rólegt ef nú í landinu, „ísland“ laust úr sóttkví í dag, engir fleiri hafa orðið veikir. Niðárós kom í gær, veiðiréttur Elliðaánna leigður fyrir 10,510 krónur. Sóttvarnarnefnd ríkisins hefur sagt af sér. Tveir menn druknuðu í lendingu á Eyrarbakka, voru þeir að koma úr fiskiróðri, hinum þriðja varð bjargað Ofsa- veður hér á norðan, kuldi og hríð. Rvík. u/4. Sjöunda þ. m. voru 60 lög- reglustöðvar í írlandi lagðar* í auðn af uppreistarmönnufíi og 32 skattaskrifstofur rændar. Tyrkir í fjárþröng, selja nú dýrgripi og listaverk soldáns. Franskar her- sveitir hafa tekið þýzku þorgirnar Frankfurt am Main, Darmstadt, Hanau og Deiburg og ætla að halda þeim unz varnarlið Þjóð- verja er farið úr Rnhrhéruðunum. Friis ráðuneytinu tekið með kostum og kynjum í ríkisþinginu danska. Verkfalli haldið áfram af bökurum, múrurum, trésmiðum og sjómönnum. Verkamenn krefj- ast launahækkunar strax og þátt- töku í stjórn fyrirtækjanna. Sjó- menn krefjast 400 króna á mán- uði auk fæðis, og ennfremur sér- staks trúnaðarmanns á hverju skipi. Járnbrautarþjónar krefjast þátttöku í stjórn ríkisbrautanna, þorparalýður er með óspekt á götum borgarinnar á hverri nóttu. Fiskiskipið „Valtýr“, eign Duus- verzlunar, talið af, lagði út 21. febrúar og hefur ekki sést síðan. Á skipinu voru 29 manns. Skip- stjóri Pétur M. Sigurðsson, ötull maður og aflasæll með afbrigðum, Arnfirðingur að ætt, en búsettur í Reykjavík. Stýrimaður Vilhjálm- ur Gíslason úr Reykjavík. Fjöldi skipverja Vestfirðingar. Strjáll ís fyrir ísafjarðardjúpi. „Leifur hepni“, son. Veikir farþegar á „íslandi" á batavegi, engir fleiri veikir. Rvík. 12Á. í dag símað frá Vestmannaeyj- um að hiaðafli sé þar þegar gefur á sjó og þakka menn það nýja varnarskipinu, sem Vest-“ manneyingar eru nýbúnir að fá, telja þeir skipið búið að borga sig að helmingi óbeinlínis. Niðár- ós fór héðan til Hafnar í morgun. Hafís fyrir öllum ströndum, aust- ur fyrir Horn. Rvík. 13/4. Óspektir lengur engar á götum Hafnar. Malarar, ökumenn og kyndarar hófu 8. þ. m. samúðar- verkfall. Brauð orðið af skornum skamti í borginni. 9. þ. m. feng- in trygging fyrir því að kosning- arlögin gangi fram. Samband verksmiðjuverkamanna hefur sam- þykt að gera verkfal! utan aðal- sambandsins. „Times“ segir að Bandamenn ætli að kúga Frakka til þess að láta undan í Ruhr- deilunni og neita að ræða um framkvæmd friðarsamninganna í bráðina. Nýr botnvörpungur kom í morg- un frá Englandi, eign Aliance, nafn Skúli fógeti. Til Austfjarða fór í dag frá Hafnarfiröi þýzkt skip „Cavalla". Rvík u/4. Kosningarlögin í Danmörku samþykt. Nýjum kosningum frest- að til 22. apríl. Hafnarverkamenn, bakarar og verksmiðjumenn halda áfram verkfalli. Þýzk mörk komin í 12V2 eyri. Sterling kom hingað í nótt. Von um næga kolaaðflutn- inga í sumar. Borg fer bráðlega frá Newcastle hingað, hlaðin koksi til landsverzlunar. Gullfoss teptur í New-York og Laga.rfoss í Khöfn, í báðum höfnunum vegna hafnar- verkfalla. Botnvörpungar afla ágætlega. Rvík. lS/4. Símað er frá Berlín 13. apríl að komið hafi íram raddir í blöðum, um að Bayern fái skiln- að frá Þýzkalandi. Símað frá London að Rússar og Japanar hafi lokið samningum sín á milli og orðið á eitt sáttir um löndin í austur-Asíu. Allsherjarverkfall er hafið á írlandi til þess að mót- mæla meðferð Breta á írum sem hneptir hafa verið í varðhald fyrir stjórnmálaafbrot. Deilumál Breta og Frakka virðast leidd til lykta. Nýjar byltingatilraunir eru hafnar í Mexico. Sírnað frá Washington að Wilson hafi versnað aftur. Sig. Eggerz mun bjóða sig fram til borgarstjóra hér við næstu kosningar í maí auk Zimsen. Rvík. lö/4. Símað er frá Berlín 16. apríl að Frakkland leggi stöðugt undir sig meira af hlutlausa beltinu milli Þýzkalands og Frakklands. Símað frá London að allsherjar

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.