Austurland - 15.05.1920, Page 4
' 4
AUSTURLAND
Tilkynning.
Ég tilkynni hér með að hr. skósmiður Sigurgísli Jónsson hefur
leigt skósmíðavinnustofu mína, og rekur hann þar, frá þessum degi,
skómíði fyrir sinn eigin reikning.
Um leið og ég þakka öllum viðskiftamönnum fyrir góð viðskifti,
vona ég að þeir sýni hr. Sigurgísla Jónssyni þá velvild að skifta við
hann framvegis.
Seyðisfirði, 1. maí 1920.
Hermann Þorsteinsson.
R VFMAGNSTÖÐVA R
A F Indr. Heigason Seyðisf. A F
H 1 lí t v e g a r L Ý
T U N Bifreiðar S 1 N Q
R ^FMAQNSTÖÐVA R
AUSTURLAND
kemur út vikulega.
Verð 5 kr. árgangurinn.
Qjalddagi 1. júlí
Ritstjóri, ábyrgðar- og afgreiðslu-
maður Guðm. Q. Hagalín. Sími 6 c.
lnnheimtumaður
Tryggvi Quðmundsson, kaupm.
Sími 16.
Prentsmiðja Austurlands.
Samkvæmt ofanrituðu, leyfi ég mér hér með að tilkynna heiðruð-
um almenningi, að ég hefi tekið á leigu skósmíðavinnustofu hr.
Hermanns Þorsteinssonar, og rek ég framvegis skósmíði á sama stað.
— Alt, sem að skósmíði lítur, verður fljótt og vel af hendi leyst, og
vona ég að heiðraðir viðskiftavinir láti vinnustofuna njóta sömu hylli
og að undanförnu.
Seyðisfirði, 1. maí 1920.
Sigurgísli Jónsson.
Hý tilbúin timburhús til sölu!
Nú eftir stríðið, vantar allstaðar tilfinnanlega íbúðarhús, og sumstað-
ar kveður svo ramt ae, að fjölskyldur neyðast til að flytja úr átt-
högum sínum vegna húsleysis. Til þess að ráða bót á þessu, hef
ég samið við stærstu húsabygginga verksmiðju í Noregi, „STROMM-
EN“, um tilbúin hús af ýmsri gerð eftir óskum. Húsin eru planka-
hús og kosta frá 8 þúsund til 18 þúsund krónur „fob“ Kristiania.
Hér er tækifœri til að verða húseigandi og fá gott hús.
Komið og fáið upplýsingar og skoðið teikningar sem fylgja tilboðunum.
St. Th. Jónsson, Seyðisfirði.
K j ö r þ i n g
verður haldið í bæjarþingstofunni hér í bænum laugardaginn 22. þ.
m. kl 12 á hádegi til þess að kjósa tvo endurskoðunarmenn bæjar-
reikninganna og einn mann í niðurjöfnunarnefnd í stað Einars Met-
húsalemssonar. —
Kjörlistar verða að vera afhentir hingað á skrifstofuna fyrir hádegi,
tveim sólarhringum á undan kosningunni. —
Skrifstofa bæjarfógeta Seyðisfjarðarkaupstaðar, 14. maí 1920.
Ari Arnalds.
Saumavélar
hvergi nú eins góðar og ódýrar á öllu landinu eins og hjá
St. Th. Jónssyni Seyðisfirði
Mótorbátur íil solu!
Mótorbáturinn „VONIN“, með 6 hesta
„Gideon“vél, ertil sölu með góðum kjörum
R. Johansen, Reyðarfirði.
Símskeyti
frá
fréttaritara Austurlands.
Til kaupmanna.
Ég hef fyrirliggjandi nokkur þúsund af
„Three Castle“ cigarettum,
sem ég sel mjög ódýrt í heildsölu. Einnig nokkuð af
Keflatvinna.
R. Johansen, Reyðarfirði.
Sérverzlun með brauð, sœlgœti og tóbak
Þar eru bezt kaup á tóbaki.
Sveinn Árnason.
Rvík. 7/r,.
Danskar hersveitir komu tíl
borga í Norður Slésvík í gær,
var tekið með miklum fagnaðar-
látum, í einum bæ urðu alvarleg
uppþot. Viðbúnaður hafinn til
samninga með Þjóðverjum og
Dönum. Danir taki að fullu
stjórnina í Norður Slésvík. Algert
hafnarverkfall í Frakklandi.
Hiti í dag og rigning, kosninga-
baráttan fyrir borgarstjórakosning-
una eykst.
Rvík. %
Zimsen kosinn með 1760 atkv.,
Eggerz fékk 1584. Upptalningu
atkv. lokið kl. 3 í nótt.
Sfmað frá Eimskipafélaginu:
Verið að hlaða „Villemoes“ af
íslendingum í Höfn og skipverj-
um. Búist við að skipið leggi af
stað þann 12. þ. m.
söltuð (spegesíld), ágæt, stór
síld, að eins 20 aura st. hjá
St. Th. Jónssyni
Rvík n/s
Kolaleysi alvarlegt í Khöfn, iðn-
aður þessvegna í kaldakoli, 40,000
smálestir liggja ólosaðará höfninni.
Kvisast hefur að Rúmenar og
Pólverjar séu að semja um banda-
lag til þess að ráða á Rússa.
Símað frá París, að Ukrainebúar
hafi tekið Odessu. Bakaraverkfall-
inu lokið í Höfn.
Tuttugu og fimm ára afmæli
Hjálpræðishersins hér á landi í
dag'