Austurland


Austurland - 30.10.1920, Blaðsíða 2

Austurland - 30.10.1920, Blaðsíða 2
2 MJSTURLAND Nathan & Olsen, Sey ði sf i rð i. Hafa íyrirliggjandi: Karlmannafatnað Handbusta Verkamannafatnað Fatabusta Nærfatnað Skóbusta Peysur Fiskbusta Kvenkápur Rikkústa Fatatau Qötukústa Tvisttau 0. fl. Tjörukústa 0. fl Drengurinn. eftir Gunnar Gunnarsson. Gunnar Gunnarsson er einn þeirra íslendinga, sem farið hafa til Danmerkur og nurnið þar land, íslenzkri list og menningu til geng- is. Hann hefur náð vinsældum miklum meðal danskra lesenda, svo að bækur hans seljast í þús- undum eintaka. En Gunnar hefur eigi að sama skapi orðið vinsæll hér á íslandi. Og mun það í ýmsu liggja. Hann fór ungu héöan og lítt mentaður, hlaut andlegan þroska og atgerfi meðal erlendrar þjóðar og hefur eigi tileinkað sér að fullu lyndis- einkannirog einkenni þjóðarinnar íslenzku. Lýsingar hans á íslenzk- um háttum, íslenzku fólki og lyndiseinkunnum þess, eru því oft alls ekki þann veg, að landar hans finni sig þar sjálfa. Þá ber það að nefna, að hann tekur oftast alvarlegar og þá tíðum dökkar hliðar lífsins, en öllum aimenningi er þann veg farið, að í gegnum sortann í bókmentum veitist hon- um erfitt að sjá, að í raun og veru veitir hanr ^ss betri útsýn yfir mannlífið og tilveruna, heldur en vér höfum haft, þar eð oftlega opnast augu vor fyrirhinum Ijósu hliðum lífsins, er vér athugum hina svörtu afkima þess. Og Gunnar Gunnarsson ljær ekki list sína til fylgis dægurflugum og auvirðilegum deilumálum, heldur því, sem hefur hið eilífa gildi fyrir mennina. Sú bók hans, sem hér skal minst á, er „Drengurinn", sem út kom fyrir nokkru á kostnað Gyldendals bókaverzlunar og nú er komin út á íslenzku. Að mínu viti er bók þessi'frá Iistarinnar sjónarmiði fullkomn- asta verk Gunnars. Hann tekur þarna hið einfalda, barnslega og upprunalega í manninum og læt- ur aðalpersónu sögunnar vera fulltrúa þess — drenginn, sem alt af verður drengur, alt af jafn ynd- islega óvitandi um lífið og tilver- una, alt af jafn draumlyndur og trúr hinu hreina og falslausa í náttúrunni. Það verður því alt af jafn bjart og hreint yfir höfði hans, unz hann rekur á ísjaka út á hið víðáttumikla, himinbláa haf. Menn- irnir misskildu hann, þeir voru honum til óþæginda og hann þeim, þröngu dalirnir voru hon- umo/þröngir, þar sem handaverk mannanna og náttúruspell þeirra byrgðu alla sýn og þjökuðu hið upprunalega og hreina eðli drengs- ins. Kaldur hafísinn varð því fley það, er flutti hann út á djúpið óendanlega, víðfaðma, þar sem hvergi sér til landa. Og syngjandi hverfur hann sjónum vorum, sak- laus og hreinn, eins og fuglinn, sem flýgur frjáls úr búri. Menn ættu að lesa þessa bók með athygli. Hún er svo hrein, óspilt og fögur, ljósasta andstæða þeirra andlegu stefna, er nú gera all-mjög vart við sig á ýmsum sviðum. G. G. H. Bæjarstjórnarfundur var haldinn hér 25. þ. m. Allir voru mættir nema Karl Finnboga- son, kennari. Átján mál voru tekin fyrir á fundinum og stóð hann því all- lengi yfir. Flest málin voru smá- mál, sem vér hirðum eigi um að telja hér upp. Erindi kom frá niðurjöfnunar- nefnd þess efnis, að henni væri leyft aö láta prenta á kostnaö bæjarins eyðublöð, er gjaldendur skrifuðu á upphæð tekna sinna, nefndinni til leiðbeiningar við starf sitt. Var leyfið veitt. Er þetta þarflegt og miðar að því að koma niðurjöfnun bæjargjaldanna í við- unandi horf. En án slíkra upplýs- inga sem þessara, verður það aldrei vel gert, hversu sem nefnd- in reynir að vanda verk sitt. Sam- þykt var að fela rafmagnsnefnd að gera ráðstafanir Ijósum til bóta hér í bænúm. Mun áskorun sú, er nú birtist í blaðinu, fyrsta tilraunin í þá átt. Rafmagnsnefnd lagði fram tillögur um hækkun Seglasaum. Eg tek að mér allskonar segla- saum, bæði viðgerðir á eldri segl- um og tilbúning á nýjum, fyrir mótorbáta eða stærri skip. Enn- fremur sel ég og bý til vatns- heldar ábreiður (Presseninger), vatnsslöngur, tjöld, drifakkeri og fleira af því tagi. Efni í þetta hef ég fyrirliggjandi hér. Jón Árnason skípstjóri, Seyöisíirði. kaups rafstöðvarstjóra og sam- verkamanns hans. Voru tillögurn- ar í fylsta máta sanngjarnar, enda samþyktar f einu hljóði. Gat kaup það, sem stöðvarmennirnir höfðu haft áður, kallast óheyrilega lágt og er enginn sómi bænum að svelta starfsmenn sína. Falið var veganefnd að sjá um að borið væri að einhverju leyti ofan í götur bæjarins f haust, þar sem hún lítur svo á, að mest sé þörf- in. Loks var lögð fram fjárhags- áætlun fyrir árið 1920. Höfðu fulltrú- ar fátt verulegt við hana að athuga og bíður samþykt hennar, lögum samkvæmt, næsta fundar. Verður hún að lokinni samþykt birt hér í blaðinu. En upphæð sú, sem nið- ur verður jafnað, mun hækka um 10 þúsundir frá í fyrra. Símskeyti frá fréttaritara Austuriands. Rvík 23/io. Símað frá London að kola- verkfallið hafi þótt koma, þegar iðnaði gegndi verst, atvinnuleysi eykst þar með degi hverjum. Kobbi gamli. Niðurl. Nú var skamt ófariö til Iands, og báturinn, sem á undan sigldi, var nú kominn að sundínu, er lá inn í lendinguna. Háir klettar gnæfðu beggja megin hennar, er öldurnar brutu á dynjandi og stynjandi, svo að skall 02 small í skjálfandi berginu. Allir á bát Þorvaldar störðu á hinn bátinn. Hann ætlaði auðsýni- lega að sigla inn sundið, til þess að hraðinn yrði sem mestur. Öldurnar komu beint í sund- mynnið, skullu þar á klettunum austanmegin, er gengu lengra fram í sjóinn og meira út í sundiði heldur en vestari klettarnir, síðan féllu þær með undra hraða að skerjunum vestanmegin, svo að ægilegt skakkafall myndaðist í sundinu. Nú var fremri báturinn kominn í sundið. Allir mennirnir í síðari bátnum horfðu á hann með eftir- væntingu, eins og þarna væri þeirra eigið fjöregg að glatast í öldubrotunum. — Bara að þeir ráði nú við skakkafallið, hugsuðu þeir hver um sig. En alt í einu sáu þeir bátinn breyta stefnu og fleygjast með ógnahraða að vest- ari klettunum. Sárt og skerandi óp kvað við í gegnum öskur brimsins, og alt var — horfið. — Takið inn í seglið og færið hálsinn framm! kallaði Þorvaldur og þróttur var í röddinni. Skipun hans var þegar í stað hlýtt, og svo var sem mönnunum létti fyrir brjósti. Þeir vissu hvað þetta þýddi: Þorvaldui ætlaði auðsýnilega að leita lendingar annarsstaðar — innar við fjörð- inn. Það var þó að minsta kosti frestur á dauðanum. Báturinn vék sér upp í vindinn og lagöi borðstokkinn að sjó. Vindurinn stóð nú á kulborðs- skutröng og öðruhvoru sauð á keipum. Alt af skvetti inn á kul- borða og við og við lagði bát- urinn í kaf hlésíðuna, er stærstu þoturnar komu í seglið, eða er hann reið á stærstu bárunum. Bátsmenn voru því því nær jafn- mikið undir sjónum sem ofan á honum. Jakob hafði setið rólegur og gætt verka sinna og hafði honum aldrei brugðið hið allra minsta. Og er slysið bar að í vörinni, þá glotti hann að eins lítið eitt. En nú var hann myrkur og ægilegur á svip. Alt af, er gaf á bátinn, þurfti Jakob að ausa, og vann hann það verk af mesta kappi. En annars sat hann og horfði til hafs og lét sjó og storm berja andlit sér. — Ljóta bölvað veðrið! grenj- aði Jón í eyra honum, og voru það fyrstu orðin, auk nauðsyn- legustu fyrirskipana formahnsins, er töluð höfðu verið á bátnum, síðan siglt var frá duflinu. Jakob vissi vel hvar Þorvaldur mundi leita lendingar. Aldan jókst stöðugt, svo að ekki var um að tala aðra lendingu nær, en Vog- inn. Var það þröng lending, rnilli tveggja skerja, er sífelt braut á, og þurfti lengi að bíða lags fyrir framan þau, áður brimróðurinn væri hafinn. Ekki var því um að ræða að leita þar lendingar undir segli. Göða lendingu var til einkis að hugsa um að þessu sinni; í slíku brimi sem þessu, var hana ekki annarsstaðar að finna, en langt inni í firði. Og eigi mundi af veita birtunni, þó að leitaö væri lendingar í Vognum, hvað þá ef lengra væri haldið. Tekið var að bregða birtu og báturinn ekki kominn nema miðja vegu inn til Vogsins. Þorvaldur formaður skygndist um í áttina

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.