Austurland


Austurland - 30.10.1920, Qupperneq 4

Austurland - 30.10.1920, Qupperneq 4
4 AUSTURLAND Uppboðsauglýsing. Samkvæmt beiðni Jóns Ásbjörnssonar lögfræðings í Reykjavík, fyr- ir hönd útflutningsnefndarinnar, verður opinbert uppboð haldið hér á Seyðisfirði miðvikudaginn 10. nóvember næstkomandi, á circa 460 skpd. af saltfiski, eign firmans Helgi Zoéga & Co. í Reykjavík, en út- flutningsnefndin hefur fisk þenna að handveði. Fiskurinn er geymdur hér á Seyðisfirði hjá H/f. „Framtíðin“, H/f. Sámeinuðu íslenzku verzl- unum og kaupmanni Wathne. yHJppboðið hefst nefndan dag kl. 12 á hádegi hér á bæjarfógeta- skrifstofunni og verða söluskilmálar þá birtir. Skrifstofu bæjarfógeta Seyðisfjarðar, 8. október 1920. Ari Arnalds. * Askorun. Til þess að komið verði í veg fyrir það, að tekin verði af bæjar- búum, um all-langan tíma, rafsuðustraumur sá, er þeir nú nota, leyf- ir rafmagnsnefndin sér hér með að skora á straumnotendur, að verða nú samtaka í því, yfir skammdegið, að nota aö eins eina suðu- plötu, seinni hluta dagsins, frá kl. 3 til 8,5, og alls ekki bökunar- eða hitunar-ofna á þeim tíma. Sömuleiðis eru bæjarbúar beðnir að fara sparlega með ljósstraum- inn, þannig, að láta ekki loga að nauðsynjalausu í herbergjum þeim, sem ekki eru notuð, eða mannlaus eru, heldur slökkva jafpan þegar út er gengið. Rafmagnsnefndin væntir þess, að menn verði vel við þessari beiðni, svo ekki þurfi að grípa til örþrifaráða. Virðingarfyllst Rafmagnsnefnd. Seyðisfjarðarkaupstaðar. Sérverzlun með brauð, sœlgœti og tóbak Þar eru bezt kaup á tóbaki. Sveinn Árnason. R A F M AGNSTÖÐVAR A F Indr. Helgason Seyölsí. A F H I Nýkomið: L Járnpottar, Handföng á Ý T straujárn, Straujárn stór, S U N Ristar undir straujárn. B a 11 e r i í vasalauktir. I N Lampatenglar o. fi. o. fi. Q RAFMAG NSTÖÐVAR AUSTURLAND kemur út vikulega. Verð 5 kr. árgangurinn. Qjalddagi 1. júlí Ritstjóri, ábyrgðar- og afgreiðslu- maður Guðm. Q. Hagalín. Sími 6 c. Innheimtumaður Einar Blandon, kaupmaður. Prentsmiðja Austurlands. Allskonar stimpla frá Signeter - Derplader - Haandtryltkerier Brændejern - Nnmeraterer - Perforérer. i Kaupmannahöfn útvegar HANS SCHLESCH cand. pharm. SEYÐISFIRÐI umboðsmaður á Austurlandi. i ,Framtíðin‘ Seyðisfirði. Nýjar birgðir aí ýrasu, t. d. g u m mi st i gvél kvenna og karia, ennfremur handa drengjnm 10—15 ára. TryggiO yður vönd- uð gummistigvél tíl vetrarins, þér vernd- • ið með því heilsuna. Vátryggingar Brunatryggingar Sjóvátryggingar Stríðsvátryggingar Sigurður Jónsson Sími 2 og 52. Uppboðsauglýsing. Samkvæmt kröfu málafærslumanns, Jóns Ásbjörnssonar í Reykja- vik, fyrir hönd útflutningsnefndarinnar, verður opinbert uppboð sett og haldið á Eskifirði 10. nóvember næstkomandi ki. 1 e. hádegi og verða þá seld 250 til 260 skpd. af fiski, eign firmans Helga Zoéga & .Co. Reykjavík, en sem geymdur er hjá Sameinuðu ísl. verzlununum Eskifirði og kaupmönnunum Andr. Figved og Q. Jóhannessyni, Eski- firði. Fisk þenná hefur útflutningsnefndin að handveði fyrir víxiiskutd nefnds fi'rma. — Söluskilmálar verða birtir á undan uppboðinu. Skrifstofu Suður-Múlasýslu, 11. október 1920. Sigurjón Markússon. ar en fyr og þeyttu löðrinu hátt í loft upp. Ekkert hljóð heyrðist utan gnýr brimsins, er hljóðnaði og hækkaði á víxl, eftir því hvort bára braut, eða hlé varð á. Þústa ein, utarlega í fjörunni, halfhulin þara, tók að hreyfa sig. Þar var Jakob að vakna til lífs- ins. Hann opnaði augun og sá einhverja ferlega mynd svífa fyrir sjónir sér. — Hvað er þetta, hvar er ég? Og hann sneri höfðinu til hægri og vinstri, sperti upp aug- un, en fanst eins og honum veitt- ist erfitt að hreyfa augnalokin. Honum fanst sem einhver storka hefti hreyfingar þeirra. En hver var þessi ægilega mynd. Stórt, blóðugt ferlíki grúfði sig ofan að honum, tunglið skein á það og varpaði yfir það fölvum glampa. — En hvað var þetta? Þekti hann ekki þessi starandi augu, þetta þykka dökka hár? Var það manns- andlit . .? Hann lét aftur augun. Honum fanst eitthvað þungt farg ofan á brjóstinu á sér og reyndi og 'rísa upp. En hann gat það ekkf og lét fallast aftur á sama stað. Hann reyndi að hreyfa hægri hendina, en hún var stirð og sár. Hann lét hugann reika og reyndi að gera sér grein fyrir hvað við hafði borið. — Og hann opnaði augun á ný. Alt í einu varð hon- um ljóst, hvað þetta var sem lá ofan á honum og hver var þessi ógurlega, afskræmda mynd. Það var ekki skynvilla hans. Það var Þorvaldur þorvaldur formaður. Ógurleg hræðsla greip hann og hann gerði árangurslausa tiiraun tii þess að rísa á fætur. Hann reyndi að hljóða. En hrökk saman, er hann heyrði sína eigin rödd. Hann skaut augunum upp á við, svo að hann sá himininn heiðan og fagran. Björt og tindrandi stjarna starði á hann, en alt í einu rann fyrir hana ský. Það var sem guð vildi hyija honum ásjónu sína. Jakob lét aftur augun. — Þei! honum heyrðist fótatak í fjör- unni, margir menn á ferð, marg- ir menn sjóklæddir. Hann hélt niðri í sér andanum og hlustaði. Þeir færðust nær og nær. Hann opnaði .augun. Og tunglið skein beint á blóðugt hðfuð líksins, sem glotti blóðstökknu brosi til hans. Hann lokaði aftur augunum og hlustaði á fótatakið og skrjáf- ið í sjóklæðunum umhverfis sig. Og nú tóku þeir í hann, einn í hægri handlegginn, annar í þann vinstri. Þeir sögðu eitthvað, en hann gat ekki greint orðin, þau voru eins og dimmur og drunga- legur dynur hafsins, ógurleg, ó- greinileg og feiknum þrunginn. Hann verkjaði í hverja taug og hjartað sló veikt og óregluiega. Nú tóku þeir í fætur honum og drógu hann af stað fram fjöruna. Hann heyrði sama ægilega, ógn- andi hljóðið og fann fjöruhnull- ungana skerast upp í bak sér, er hann var dreginn fram fjöruna. Sjóklæðin skrjáfuðu og grjótið glamraði og alt af barst hann nær og nær dynjandi flúðunum. Hann fann löðrið skella í andlit sér, leit upp og sá sama blóðstokkna gat- ið og grimdarleg brostin augun og honum sýndist líkið kinka kankvíslega til sín kollinum. Hann rak upp sárt og skerandi hljóð, fann sig falla fram af skerjunum og sá alt hverfa í samfeldan, suð- andi sorta. — Morguninn eftir fanst hann meðvitundarlaus í fjörunni. Tekið er að fækka í kránni. Jakob tekur ritblý upp úr vasa sínum, dregur nokk-ur klunnaleg og lítt kennileg stryk á borðið, horfir á þau um hríð.skellihlær, drekkur út úr glasi sínu og ráfar út. Q. G. H. ----- » ■

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.