Alþýðublaðið - 26.03.1963, Qupperneq 1
SEMENTIÐ LÆKKAR (SJÁ BAKSÍÐU)
Flokkurinn sýnir
æskunni troust
SÍÐASTLIÐINN sunnudagur var starfsfræ'ðsludagur í Reykjavík. Við tókum mynd-
ina í leikiistardeildinni. Ef að okkur missýnist ekki, er Guðbjörg Þorbjarnardóttir að
segja ungum stúlkum, hvernig það er að að vera leikkona.
AUKAÞING ALÞÝÐUFLOKKSINS, sem haldið var um síðustu helgi, sam
þykkti nýja stefnuskrá fyrir flokkinn. Kemur hún í stað aldarfiórðongs
gamallar stefnuskrár, og er hin nýja mun ítarlegri í einstökum greinum,
enda þótt markmiðið sé hið sama: þjóðfélag jafnaðarstefnunnar.
í hinni nýju stefnuskrá ákveður Alþýðuflokkurinn meðal annars að
hefja baráttu fyrír 18 ára kosningaaldri. Er sú stefna beint áframhald af
baráttu flokksins fyrir auknum mannréttindum, sem hann hefur háð allt
frá stofnun.
Aukaþing flokksins var fjöl-
sótt og fulltrúar komnir víðs veg-
ar að af landinu. Fjallaði þingið
um þetta mál eitt, en endurskoðun
stefnuskrárinnar hefur staðið yfir
í mörg ár, og voru fyrstu drög
lögð fyrir flokksþing 1960. Emil
Jónsson, formaður flokksins, setti
þingíð, og var Bragi Sigurjónsson
ritstjóri frá Akureyri kjörinn að-
BOTVINNIK
MEÐ VA v.
Annarri skáklnni í elnvígi
þeírra Botvinniks og Petrosjans,
sem tefld var í gær, lauk með
jafntefli. Botvinnik hafði hvitt.
Botvinnik vann fyrstu skákina
sem tefld var á laugardag. Sænski
skákmeistarínn Stáhlberg er aðal
dómari.
Hestamenn slasast. Harðár bífreiðaárekstrar og slys á mönmrm. 10 teknir ölv-
aðir viö akstur. Tveir féilu í sjóinn. Innbrot. Mannlaus bátur sekkur.
SÍÐASTA helgi var helgi mik-
illa slysa og óhappa. Margt manna
slasaðist í árekstrum, og hesta-
menn urðu fyrir alvarlegum meiðsl
um er þeir féllu af baki.
Á laugardaginn varð hestamað-
ur bráðkvaddur á Skeiðvellinum
við Elliðaár. Var þetta Kristinn
Kristjánsson, sérleyflshaft, Njáls-
götu 77. Hann var að stíga af baki
hesti sínum, er hann féli niðúr
®g var meðvitundariaus. Hann
var þegar fluttur á slysavarðstof-
una, en var látinn er þangað kom.
Á sunnudaginn slasaðist svo
hinn kunni útvarpsmaður, Baldur
Pálmason. Reið hann hesti sín-
um eftir Vatnsveituvegi, er hann
féll skyndilega af baki og hlaut
mikið höfuðhögg og skrámur á
andlit. Hann mun hafa fengið
heilahristing og var fluttur á
á slysavarðstofuna.
Þá fcll kona af baki á.sunnudag
er hún var á ferð skammt frá Hafn
• arfjarðarveginum hjá benzínstöð-
inni í Hraunsholti. Kona þessi,
sem heitir Sigrún Árnadótth* frá
Hafnarfirði, mun hafa slasast eitt-
hvað á baki.
j Á sunnudaginn um klukkan 2,30
varð mjög harður bifreiðaárekstur
’ á Bústaðaveginum. Skemmdnst 3
bifreiðar mikið' og þrír menn slös-
uðust, þar af tveir all mikið. (Sjá
mynd á baksíðu). Áreksturinn varð
með þebn hætti, að Mercedes Benz
bifreið kom niður Stóragerði. —
Kvaðst bílstjóri hennar hafa stöðv
að við Bústaðaveginn. Er hann tók
af stað aftur, kom leigubifreið af
Dodge-gerð á mikilli ferð, og lenti
á vmstri hlið hennar. Dodge-bif-
reiðin hélt áfram austur veginn,
var nærri komin á ljósastaur, og
hafnaði siðan á Volkswagen-bif-
reið, sem stóð við hægri vegar-
Framhaid ó 3. siSu.
alforseti þess, en varaforsetar
Ragnar Guðleifsson og Jón Sig-
urðsson. Ritarar voru kjörnir Ax-
el Benediktsson og Þorsteiuu Pét-
ursson.
Á Iaugardag flutti Benedikt
Gröndal ítarlega framsögu :um
stefnuskrána fyrir hönd þeirrar
milliþinganefndar, sem um málið
fjallaði. Urðu síðan umræður til
kvölds, en þá var málinu vísað
til nefndar. Á sunnudag hafði
formaður nefndarinnar, Gylfi Þ.
Gíslason, framsögu og urðu e»»
miklar umræður. Að þeim loknum
fór fram atkvæðagreiðsla og var
hin nýja stefnuskrá einróma sam-
þykkt af þinginu.
Alþýðublaðið mun síðar gera
grein fyrir stefnuskránni í heild,
en hér fara á eftir nokkur atriði
úr henni:
★ Alþýðuflokkurinn krefst þess,
að lýðveldinu verði sett stjórn-
arskrá. Verði mcðal annars gert
ráð fyrir, að fjöldi þingmanna
í einstökum kjördæmmn skuli
endurskoðaður með vissú milti-
bili án stjórnarskrárbreytingar
hverju sinni.
★ í efnaliagsmálum berst Al-
þýðuflokkurinn fyrir fastri • og
skipulegri stjórn rikisins á
efnahagskerfinu og gerð þjóð-
hags- og framkvæmdaáætlana.
Yfirráð atvinnutækja eiga að
lúta hagsmunum heildarinnar
en ekki einstaklinga, og opin-
berum rekstri er ætlaður veiga
mikill sess í efnahagslífi, þar
sem hann er við hlið samvínnu-
reksturs og einkareksturs.
★ Aiþýðuflokkurlnn berst gegn*'
því, að mikið efnahagslegt vald
safnist á hendur eins eoa fárra
manna og krefst löggjafar til að
koma í veg fyrlr einokun og
einokunarliringa.
★ Alþýðuflokkurinn telur óbeina
skatta hafa marga kosti feam
SfÐÁ