Alþýðublaðið - 26.03.1963, Blaðsíða 3
MHHMMMMUtMMmtmmM W-í
I Bandaríkjunnm þykir gutt,
ef einstaklingur starfar hjá
sama fyrirtæki við sömu vinnu
í 20-30 ár. Eftir það er hann
oröinn gamall í starfi, hró. Svo
er þó ekki alls staðar.
Blaðamcnn ræddu í gær lítil
lega við mann', sem er búinn að
starfa tæp 48 ár sem epinber
starfsmaður, eða lengur en
nokkur annar núlifandi íslend-
ingur. Þessi maður er í þjón-
ustu Keykjavíkurborgar, nánar
tiltekið hjá slökkviliðinu og
heitir Anton Eyvindsson. Hann
er sjötugur í dag, og kemst því
á eftirlaun sem starfsmaður
borgarinnar.
Anton var ráðinn fastur
starfsmaður á slökkvistöðinni
þann 1. apríl 1916, en starfs-
maður hennar hefur hann verið
kallaður frá brunanum mikla
1915, þegar kjarni miðbæjarins
sem þá var, brann til kaldra
kola, og tvær manneskjur létu
lífið. Sá bruni varð Antons eld-
vígsla, hans mesta og fyrsta.
Þá voru starfshættir slökkvi-
Námumenn hafna
stjórnartilhoði
PARIS, 25. marz Leiðtogar ]
franskra kolanámumanna sátu á
fundi í dag og ræddu nýjar að-
gerðir til þess að fá kröfum sínum
framgegnt.
Námumenn höfnuðu tilboði
stjórnarinnar um 8% launahækkun
í gær.
Frönsk blöð telja, að námumenn-
irnir muni nú krefjast meiri
Iaunahækkunar en áður. Þetta
muni hafa víðtæk áhrif á e.fna-
hagsmálin og stefnuna, er stjórnin
SLOKKVILIÐSMAÐUR
I SAMTALS 48 ÁR!
liðs aðrir en nú eru, menn
lilupu í brunastað og dældu
vatni með höndunum.
I*á voru tveir menn á slökkvi-
stöðinni gömlu, og voru á vakt
allan sólarhringsinn, sváfu til
skiptis. Anton kom sem þriðji
maður, fyrst sem starfsmaður
síma, og vann við að sytja upp
bjöllu og brunasíma, síðan sem
fastur starfsmaður. Þeir voru
þrír orðnir þá. Bjuggu allir og
sváfu á slölckvistöðinni, nema
einn, sem var giftur og fékk
stöku sinnum að sofa lieima.
Þeir voru yfirmannslausir,
sjálfs sín herrar. Embætti
slökkviliðsstjóra var bitlingur,
sem þá gaf Guðmundi Ólsen 400
krónur á ári.
Starf þeirra á stöðinni var
mest megnis varzla, fremur en
slökkvistarf beinlínis. Það höfðu
á hendi þrjár 12 manna sveitir,
sín í hvcrjum hluta bæjarins.
Eitt hús var í hverju hverfi, og
voru kölluð slökkvitólahús. Þar
mættust slökkvimenn við útkall
tóku tól sín og réðust að eld-
inum með handdælum og öðrum
útbúnaði álíka.
Allt þetta fékk Anton að
reyna. Saga slökkviliðsins í
Reykjavík og saga hans eru sú
ein og sama. Frá mannsfótum
til liesta, frá hestum til vél-
knúðra farartækja, mismunandi
fullkominna. Fyrsti bíllinn fór
fetið, honum varð fylgt af gang
andi manni, sá næsti hraðar,
og svo koll af kolli til þess, sem
nú er.
Nú, þegar Anton er búinn að
lifa lengstan starfsdag opin-
berra starfsmanna íslenzkra,
vaxið ásamt slökkviliðinu að
viti og árum og með þvl, óskar
Alþýðublaðið honum til ham-
ingju með langan og gifturíkan
starfsdag og árnar honum
heilla með sjötugáafmælið.
Neyðarástand
í Guatemala
Guatemala-borg, 25. marz.
NTB-Reuter.
Stjórnin í Guatamala lýsti
yfir hernaðarástandi í landiuu
öllu i dag.
Yfirlýsingin var gefin út eftir
að komið hafði til átaka milli her
manna og uppreisnarmanna í
norðausturhluta landsins.
Óeirðimar skullu á fyrir 2
dögum. Sagt er að neðanjarðar-
samtök standi hér að baki.
hefur fylgt í þessum málum sl.
fjögur ár.
Parísarblaðið „Le Figaro" telur,
að nú muni verða verkföll í Cieiri
atvinnugreinum. Blaðið telur, að
bankamenn, blaðamenn og bygg-
ingaverkamenn muni gera verk-
fall í byrjun næsta mánaðar.
Járnbrautarstarfsmenn hafa hót
að að gera tveggja tíma verkfall til
sgiptis á morgun. Búizt var við, að
jámbrautasamgöngur stöðvist um
allt landið á morgun af þessum
sökum.
Verkfall námumanna hefur nú
staðið í 25 daga. Verkamenr.iynir
krefjast 11% launahækkunar, 40
stunda vinnuviku og 4 vikna su.mar-
leyfis. Þeir segja, að allir vorka-
menn, sem vinna hjá eínkafyrir-
tækjum, hafi fengið þessi kjör í
fyrra.
★ ZERMAT: Læknasamtökm í
kantónunni Vally í Sviss, saka yfir
völdin í skíðabænum Zermat um
að hafa leynt því í tvo mánuði að
taugaveiki hefði komið upp 1 b'æn
um af ótta við að gistihúsareksjtur
í bænum legðist niður. Tveir hafa
látizt úr veikinni. Öllum hótelún-
um í bænum, 65 að tölu, verður, uú
lokað.
ÁTJÁN ÁRA
Framhald af 1. síðu.
yfir beina, en telur að þeir eigi
að vera lægstir á nauðsynjum
og þvi hærri sem vara telst ó-
nauðsynlegri.
★ Víðtækir kaflar eru um eflingu
atvinnuveganna og eru í þeim
margar nýjungar, svo og mik-
il áherzla á neytendasamtök
og vernd neytenda i nútíma
þjóðfélagi.
ÞAD VAR SLYSAHELGI
Framh. af 1. síðu
kant. Tveir menn stóðu hjá Volks-
wageninum og lenti annar þeirra
uppi á bifreiðinni (VW) og fót-
brotnaði. Hinum tókst með snar-
ræði að’ forða sér. En hélt Dodginn
áfram og hafnaði að lokum úti í
skurði vinstra megin við veginn.
Farþegi í bílnum slasaðist er hann
lenti með andlitið á framrúðunni.
A sunnudaglnn varð annar harð-
ur árekstur skammt frá Félags-
garði í Kjós. Þar lenti saman Mer-
cedes Benz og Volkswagen. Hin
síðar nefnda bifreiðin var á leið
í Kjósina, en hinn á leið í bæinn.
Við áreksturinn skall farþegi í Vw
á framrúðu bilsins, og skarst mik-
ið á andliti. Kona, sem bílnum
ók, lilaut einnig töluverða áverka.
Tvö börn sátu í aftursætinu, en
þau sluppu émeidd. í Mercedes-
bílnum meiddist enginn.
Polaris-kaí-
bétur til Mið-
jarðarhafsins
Washington, 25. rnarz.
Fyrsti bandaríski kjarn-
orkukafbáturinn, sem búinn
er Polaris-eldflaugum, kem-
ur til Miðjaröarhafs í byrjun
næsta mánaðar. Jafnframt
liefst brottflutningur Jupit-
er-eldflauga frá bandarísk-
um herstöðvum í Tyrklandi
og á Ítalíu.
Blaðafulltrúi bandaríska
utanríkisráðuneytisins, Lin-
coln White, skýrði frá þcssu
á fundi með fréttamönnum
í dag.
Alls hafa Bandaríkjamcnn
40 Júpíter-eldflaugar á ítal-
íu og 15 í Tyrklandi.
Hver kafbátur, sem hér um
ræðir, getur flutt 16 Polar-
is-eldflaugar. Tilkynnt er, aö
3 Polaris-kafbátar verði á
Miðjarðarhafi fyrst um sinn.
Um helgina voru 10 ökumenn
teknir vegna ölvunar við akstur. —
Einn þeirra lenti úti í skurði við
Breiðholtsveg á föstudagskvöldið.
Með honum var mágkona hans, og
hafði hún ekið bifreiðinni. Hún
var próflaus, hann ölvaður og
hafði auk þess verið sviptur öku-
leyfi ævilangt fyrr í vetur. Að-
faranótt sunnudagsins ók ölvaður
ökumaður á ljósastaur á Miklu-
brautinni. Ilafði liann áður ekið
þvert yfir brautina, yfir reitina,
sem cru á milli akbrautanna og
upp á gangstétt hinum megin. —
Bifreiðin hafnaði að lokum á ljósa
staur og braut liana. Maðurinn var
fluttur á slysavarðstofuna og síö-
an í fangageymsluna við Síðu-
múla.
Á sunnudagskvöldið um kl.
22.30 féllu tveir ölvaðir menn í
sjóinn hjá Grandagarði. Voru þeir
nokkra stund á sundi, unz til
þeirra var kastað bjarghring og
þeir dregnir á land. Síðan voru
þcir fluttir í Siðumúla.
Um helgina var brotist inn í
fiskvinnslustöð við Súðavog en hún
er eign Halldórs Snorrasonar. í
kringuin hana er allhá girðing og
höfðu þjófarnir farið yfir hana,
og inn í fiskþurrkunarlijall, og
stolið þaðan töluverðu magni af
hertri ýsu.
Aðfaranótt sunnudagsins braut
drukkinn maður þrjár rúður í
kjallara í húsi við Skipholt. Vildi
hann komast þar inn, en stúlka,
sem í kjallaranum bjó, flýði upp
á loft. Maðurinn skreið inn um
einn gluggann, en er lögreglan
kom á staðinn, fannst hann sof-
andi í íbúðinni.
I í gærmorgun var óskað eftir
[ hjálp úr húsi í Bústaðahverfi. Þar
| hafði barn gleypt tveggja krónu
j pening og náðist hann.
Skömmu eftir hádegi í gær varð
slys í Lækjargötu. Þar varð maður
fyrir bíl og mciddist lítið.
í gærmorgun um kl. 8,30 var
Slysavarnafélaginu tilkvnnt, að
bátur væri á reki við vestur odda
Viðeyjar. Sást báturinn frá Gufu-
nesi, og var álitið að hann væri
mannlaus. Voru gerðar ráðstafan-
ir til, að farið yrði að bátnum, eu
skömmu siðar var liann sokkinn.
Ekki var vitað í gærkvöldi hvaðan
bátur þessi var, eða hvaðan hann
kom.
★ I verkalýðsmálakafla stefnu-
skrárinnar krefst Alþýðuflokk-
urinn þess, að ríkið tryggi öll-
um þegnmn atvinnu, er skapi
þeim tekjur til að lifa menn-
ingarlífi. Markmið kjarabar-
áttunnar er eðlileg laun fyrir
samningsbundinn vinnutíma,
hæfileg hvíld og nægilegar
tómstundir fyrir alla. Flokkur-
inn krefst stöðugrar leitar að
nýjum úrræðum og réttláta
hluta af arði tækninnar til
launþega, svo að nokkuð sé
nefnt.
★ Alþýðuflokkurinn mun halda
áfram að berjast fyrir viðtæku
tryggingakerfi, heilsuvernd,
varðveizlu fjölskyldunnar sem
hyrningarsteinn þjóðfélagsins.
I stefnuskránni eru og kafl-
ar um jafnrétti kynja, æsku
og íþróttir, héraðsmál, menn-
ingarmál og loks utanrikismál.
■mmmmmmmimmmmmmmm
Aðalfundur
Kvenfélagsins
AÐALFUNDUR Kvenfér
Iags Alþýðuflokksfélagsins
í Reykjavík verður haldinn
næstkomandi fimmtudagSr
kvöld 28. marz í Félags-
heimili prentara að Hverf-
isgötu 21. Að aðalfundar-
störfum loknum hefur ÓI-
afur Ólafsson læknir fram* 1
sögu um frumvarp til laga
um aöstoð við eldra fólk.
Einnig mun Jóhanna Egils-
dóttir ræða um frumvarp
til laga um almannatrygg-
ingar. Félagskonur erú
beðnar að fjölmenna stund-
víslegá.
WMMMMWMMMtMMMMW
ALÞ’íÐÖBLAÐJÐ — 26. marz'1963 3