Baldur - 17.08.1903, Qupperneq 2
2
BALDUR, 17. ÁGtfST 1903.
BALDUR
er gefinn útiGIMLI, MANITOBA.
Kemur át einu sinni í viku.
Kostar $1 um 4rið.
Borgist fyrirfram.
Útgefendur:
Nokkrir Ný-Íslf.ndingar.
Ráðsmaður: G. ThoRSTEINSSON.
Prentari: JöHANNES VlGFÖSSON.
Utanáskrift til blaðsins :
BALDUR,
Gimli, Man.
Verð á #máum auglýsingum er 25 cent»
fyrir þumlurg dú 1UHlengd&r. Afslattur er
gefiun á etrerri auglýsÍDgum, sem birtast í
blaðinu yfir lengri tíma. Viðvíkjandi
slíkum afslætti, og öðrum fjármátum blaðs-
ins, eru menn beðnir að snúa sjeraðráðs-
manninum.
MÁNUDAGINN, Iý. ÁGÚST I9O3.
Pottbrot.
„Vfða er pottur
brotinn“.
(Framhald).
í nr. 28 var byrjað á að telja
fram fáein af pottbrotum heimsins.
I>ar var Kína, Filippseyjanna og
Indlands minnst að sfnu lftilræðinu
hvers.
Renni maður nú huga sfnum á-
fram vestur á bóginn, kemst mað-
ur æ betur og betur að raun um
það, hve mikill sannleikur er fólg-
inn f máltækinu gamla, ,,víða er
pottur brotinn“.
TYRKLAND hefir lengi stein-
inn klappað, og kristnu þjóðirnar
hafa um margar aldir dregið at-
hygli frá sjálfum sjer með þvf, að
benda á hryðjuverk Tyrkjans.
Öllum fullorðnum eru Armeníu-
morðin minnisstæð,sem hin ofboðs-
legustu skálkapör, sem sögur fara
af. Á þeim tfmum fórst „stórveld-
unum“ eins og ævinlega endra
nær þegar lfkt stendur á, að ekkert
þeirra þorði að skerast í leikinn
vegna hræðslu við hin. Þau ýmist
horfðu f gaupnirsjer cða hvcrt upp
á annsð, en engum hlífiskildi var
brugðið fyrir sverðseggjar morð-
ingjanna.
Þeir trúbrœður kristnu þjóðanna,
sem bjuggu f tyrkneska veldinu,
voru ristir niður í þúsundatali, og
enginn ljet sem sjer kæmi það
verulega við, að sletta sjer fram f
stjórnarfar annarar þjóðar, en þeg-
ar enskum fjárglæframönnum þótti
sjer ekki gjört nógu hátt undir
höfði í Suður-Afríku, þá var her-
sveitum stefnt þangað úr öllum
áttum jarðarinnar til þcss, að
skakka leikinn. Fyrir nokkrum
öldum fóru kristnu þjóðirnar kross-
ferð eftir krossferð til austurlanda,
f því sky.ni að vernda trúbrögð sín
á upprunastöðvum þeirra. í lok
nftjándu aldar fara dýrkendur
Mammons á sama hátt eina stór-
eflis krossferð til suðurlanda, sín-
um núverandi trúarbrögðum til
verndunar á útbreiðslustöðvum
þeirra.
Maður nokkur, sem var á ferð
um Tyrkland fyrir nokkrum árum,
lýsir á þessa leið ástandinu í þeim
hjeröðum, sein hann fór um :
„Alstaðar var dauði, alstaðar
eyðilegging. í borginni Curlover
voru fáeinar hræður eftir á lffi,
hungraðar og hræddar. Við sá-
um síðasta þakið í Kalofer bera
eins og blys við Ioftið, en enga lif-
andi sál var þar að finna. í Sopot
fundum við ekkert á lífi nema
nokkra hunda, og hjeraðið í kring
var að nœturlaginu yfir að Iftasem
eitt stóreflis eldhaf. Borgin Ke-
sanlyk, miðdepill hins nafnkunna
rósahjcraðs, var ein stór kolagröf,
og f skógartoppi skammt í burtu
fundum við 1200 lík svo hroðalega
sundurtœtt, að engin orð geta lýst
þeirri voðasjón. I gegnum þetta
jarðneska vfti ferðuðumst við f sex
vikur, ogþegarvið hurfum til baka
var Phiiippopolis umsetin af hcr-
sveitum, og allt hjeraðið tryllt af
ótta. Hinir kristnu hjeraðsbúar
voru hengdir f hópatali, án þess að
heitið gæti að nokkurt rjettarhald
færi fram“.
Nú í síðastliðnum mafmánuði
myrtu Múhamedstrúarmcnn níu
þúsund kristna búendur í Novi-
Bazar. Ósamlyndið spratt af trúar-
ofsa. Múhamedstrúarmenn áttu
eitt vígi og átján kyrkjur eða must-
eri f borginni, og til þess að eiga
ekki minnstu ögn þar á hættu í
sínum trúmálum, sópuðu þeir ná-
unganum úr vegi „guðitil dýrðar“.
Þeirra trúarbragðafjelagsskapur
hafði engan hag, heldur þvert á
móti óhag, af þessu kristna fólki,
og þá þarf sjaldnast að sökum að
spyrja í hinum „menntaða heimi“.
Sarni aldarandi rfkir í öðrum
„menntuðum löndum“. Hvorki
einstaklingarnirnje nokkur sjerstök
þjóð þorir, að breyta samkvæmt
beztu vitund og veita hinum und-
irokaða lið sitt, af ótta fyrir þvf,
að einhver nágranna sinna noti
tækifærið og sláist upp á sigámeð-
an. Sá ódrengskapur, sem forðum
varð Gunnlaugi Ormstungu að
bana, cr nú orðið hið almenna átu-
mein í sálarlífi allra hinna mamm-
onsdýrkandi þjóða.
SERBÍA er lftið ríki á Balkan-
skaganum, sem Iftið hefir komið
við mannkynssöguna að undan-
förnu. Hinn 11. júní síðastliðinn
gjörði herinn þar upphlaup og
myrti konung sinn og drottningu
hans, bróður hans og hans konu,
og tólf varnarmenn þeirra og að-
standendur. Þessi drottinssvikara-
flokkur hafði allt fyrir fram undir
búið, og gáfu þegar í stað konungs-
nafnið öðrum manni, sem þeim ein-
hverra hluta vegna var geðþekkari.
Þessi maður var sjerstakur vinur
hinna rússncsku „stórmenna,“ og
þar af leiddi algjört afskiftaleysi
allra ,,stórveldanna“ af málum
þessum. í hvert skifti sem einhver
hálfbrjálaður „anarkisti" vegur
mann, þá nötrar mannkynið af
hryllingi yfir ódáðaverkinu, og lög-
regla þjóðanna eltir morðingjann
land úr iandi svo að rjettvísinni
vcrði fullnægt; en f svona lfiguðu
tilfelli finnur engin þjóð það í sfn-
um verkahring, að grípa fram fyr-
ir höndurnar á „stjórnmálamönn-
um“ annarar þjóðar. Líklegast
hafa þau Alexander konungur og
drottning hans verið drambsamar,
lftilsigldar og siðspilltar manneskj-
ur, lítt hæfar til þess? að stjórna
sjálfum sjcr hvað þá öðrum. ' Slíkt
getur samt enginn heiðvirður mað-
ur talið tullnægjandi afsökun fyrir
lffláti þcirra. Eftir sömu , ,siðferðis-
reglu“ mætti lífláta þúsundir
manna um allan heim, og þar á
meðal ýmsa þjóðhöfðingja ekkert
síður en annað fólk. Hjer var um
það eitt að ræða, hver harðstjórinn
skyldi drottna yfir fólkinu. Það
var að sönnu stjórnarbylting, en
engin sannarleg stjórnmálabreyt-
ing. Hefði hjerveriðum samskon-
ar byltingu að ræða eins og stóru
byltinguna á Frakklandi forðum,
— hefði almenningur Serbfuríkis
risið upp til þess, að hrista af sjer
hlekki harðstjórnarinnar, í þvf
skyni að gefa heiminum nýja fyrir-
mynd f þvf, sem sannarlega gæti
miðað f þjóðfrelsisáttina, þáer eng-
in hætta á því, að Rússar, Austur-
ríkismenn, og aðrar nágrannaþjóð-
ir hefði látið það viðgangast. Svo
lengi sem grundvallareðli auðvalds
og höföingjastjórnar er engin hœtta
búin, hreifa ,,stórveldin“ ekki legg
eða lið, en láti lýðvald og alþýðu-
frelsi nokkursstaðar á sjer bóla, þá
er uppi fótur og fit f öllum herbúð-
um ,,menntuðu þjóðanna,“ til þess
að kæfa allt slfkt f fæðingunni.
(Framhald).
Deeriim'S nafntojíuðu
cj o
sláttuvélar
eru nú til sölu hjá
G. Thorsteinson
á Gimli.
Deerings ágætu
stálhrífur
eru nú til sölu hjá
G. Thorsteinson
á GlMLI.
er til sölu
hjá
G. Thorsteinson á Gimli.