Baldur


Baldur - 17.08.1903, Blaðsíða 3

Baldur - 17.08.1903, Blaðsíða 3
BALDUR, 17. ÁGtfST I9O3 3 Hvernig á að gjöra landið arð- SAMT ? Nýlega hefir þetta spursmál verið borið fram og svarað af rosknum og ráðnum bónda. Til íhugunar og eftirbreytni fylgir útdráttur af svarinu : . Fyrst verður að athugafyrir hvaða búskap- artcgund landið er hentugast. Sum lcind cru hent- ugust fyrir kvikfjárrœkt, aftur önnur til akuryrkju, en flest cru þau lönd, sem nota má bæði til akur- yrkju og kvikfjárrœktar. Þegar maður er búinn að ráða við sig til hvers landið muni hcntugast, liggur næst fyrir að spyrja sjálfan sig: Til hvers dugi jeg, hvað er jeg hneigð- astur fyrir? Því það eru caðimargir menn og þeir duglegir sumir, sem komist hafa á skakka hillu í heim- inum og ekki notið sín, af þvf að þeir æfðu annað starf en náttúran hafði ætlað þeim. Bóndinn verður að haga sjcr eins og allir iðnaðar- menn gjöra að þvf leyti, að framleiða þá vöru sem beztur markaður er fyrir, hægast að selja sjer til á- bata, og gjöra sjer að reglu að vanda hana eins vel og honum er unnt. Hvað sem þú leggur fyrir þig að framleiða sem bóndi, þá gjörðu það eins vel og þú getur. Eða, hefir þú nokkru sinni þekkt bónda, er reynt hefir alvarlega að bœta land sitt og að fram lciða sem beztar tegundir, sem ekki hefir átt bærilegu láni að fagna við búskapinn ? Við bœndurnir ættum að haga oss eins ogiðnaðar- mennirnir. Þeir nota tímann vel og hugsa alvarlega og ftarlega um það starf, sem þeir hafa með höndum. Þcir sitja ckki tfmunum saman f verzlunarbúðum, til að fárast j'fir því að starf sitt borgi sig ekki, sjc unn- ið fyrir gfg, eins og jeg því miður verð að játa að of margir bœndur gjöra. Jeg er sannfærður um að búskapur gctur orðið arð- berandi í þessu landi, sje hann stundaður með sömu iðni og umhyggju og aðrar atvinnugreinar. Bœnd- urnir ættu að heimsœkja hver annan við og við til þess að komast eftir hvað fram fer, ogtil þess að ráðg- ast um störf sín, búnaðarháttu og afleiðingar þeirra. Bœndur ! Bœtið land yðar á hverju ári, betrið útsæði yðar og gripastofn, og þá skal jeg ábyrgjast að kjör yðar batna, bæði í siðferðislegu tilliti og að þvf er snertir afkomu yðar og velferð yfirlcitt. Nú kunna einl verir að spyrja: Hvernig eigum við að haga okkur til að verða aðnjótandi sem mests og bezts hagnaðar af búskapnum ? Ef þú stundar akuryrkju, þá verður þú á rjcttum tfma að undirbúa akurinn eins vel og unnt er, og sá þvf bezta útsæði sem þú getur fengið. Ef þú stundar nautgriparœkt, verður þú að sjá um að landið framleiði sem bezt fóð- ur, bæði til sumar og vetrar notkunar. Hafir þú ekki gripi af „hrcinu kyni, “ sem ávallt er affarasælast, þá ættir þú að fá þjer naut af hrcinu kyni, í samlög- um við aðra ef þú ert ekki einfær um það. Það gjör- ir minnstan mun hvort nautið er af mjólkur eða holda kyni, að eins að það sje gott naut. Viljirþú náfram- förum sem bóndi, verður þú að ganga vel frá öllum þínum verkum, hugsa um starf þitt og stöðu og vera iðinn og athugull. Þá er engum efa bundið að þú Uppskcr unaðsrfkan árangur vinnu þinnar. Arfurinn minn. —:o:— (Framhald). ,,Reynið þjer það ekki,“ sagði jcg, ,,lát- ið yður dreyma frá honum til mín. Látið þjer mig bœta fyrir brot hans. Látið þjcr mig verða yður það, sem hann ekki var“. Jeg fleygði mjer niður fyrir fcetur hennar, greip hendur hennar og þrýsti þeim að vör- um mfnum. Jeg fann að hún skalf. Hún í horfði í augu mjer með ósegjanlega sterkri löngun. ,,Getur nokkur afmáð 18 ár?“ Á sama augnabliki varð albjart í her- berginu af eldingu og húsið hristist af þrumunni, sem fylgdi strax á eftir. Óveðr- ið var beint uppi yfir okkur. Miss Lynde þaut upp úr legubekknum og staulaðist meðfram herbergisveggjunum, en jeg tók hana og lagði hana á legubekkinn aftur. Svo hljóp jeg til og lokaði gluggunum °g gluggahlerunum, en birtan af eldingun- um smokkaði sjer inn um hverja smárifu °g hagl og rigning keyrðu fram úr hófi. Á meðan á þessu stöð, sat jeg við hlið hennar, sem jeg elskaði. Jeg hjclt í hendi hennar og reyndi að friða hanaþegar þrum- urnar öskruðu sem hæðst. Loksins slotaði veðrinu ögn. Þrumurnar heyrðust óglöggara. Ljósin f herberginu voru farin að deprast og dagsljósið var byrjað að gera vart við sig. Jeg stóð upp, gekk yfir að gluggunum og opnaði hlerana. TJti fyrir var allt eins og nýskapað. Nátt- úran brosti í gegnum daggardropana. ,,Lfttu út, Miss Lyndc, það er kominn dagur, hinn nýji dagur, sem við eigum að byrja saman,“ sagði jeg. Hún var Iíka staðin upp. Birtan í aug- um hennar var horfin, þau voru dauf og fjörlaus eins og glóð, scm er að deyja. í andliti hennar sást nýr ásetningur, hún var eins og á nálum. ,,Það er of seint,“ svaraði hún í dimm- um róm, ,fyrir mig getur enginn dagur orðið nýr. Mig hefir dreymt, en nú er það búið. Farið þjer, yfirgefið þjer mig. Það er ekki til neins að við mætumst aftur, og jeg vil vera einsömul“. Hún gaf mjer bendinguum að fara. Jeg hikaði ögn við og svo hlýddi jeg henni. Jeg ætlaði ekki að yfirgcfa húsið, en jeg sá að hún var svo illa á sig komin, að jeg áleit að hún ætti hægra með að jafna sig ef hún fengi að vera ein. Jeg gekk hægt og hljóðlaust yfir gólf- teppið, opnaði dyrnar og fór út. Þáheyrði jeg að sagt var bak við mig f kvalaríkum róm : „Ralph !“ Miss Lynde stóð í miðju herberginu með útbreiddan faðminn; andlit hennar talaði greinilega ; nú var þar ekkert hulið ; ekkert gat misheppnast. Á næsta augnabliki hjelt jeg henni f faðmi mfnum. „Það er heimska, en — jeg get ekki dáið tvisvar,“ sagdi hún og titraði öll. „Það eru forlög,“ sagði jeg, sigri hrós- andi. „Þú ert mfn, bæði liðinn tími, nú- tíminn og ókomni tíminn mun sanna það. Þú ert arfur minn. Jeg hefi blátt áfram fengið þig f arf“ bœtti jeg við, um leið og mjer datt f hug viðaukinn við erfða- skrána, „sá bezti auður, sá bezti arfur, sem jeg gat fengið, fjekk jeg í gegnum viðauka hins sfðasta vilja föðurbróður mfns“. En — hvað við vorum bæði ánægð. Ljótt gaman. TvEIR UNGIR STÚDENTAR sátu heima hjá sjer í háskólafríinu, í litlum bœ f Nevada. Það voru kátir piltar, en of mjög hneigðir fyrir það, sem Amerfku- menn kalla „good jokes“. „Hjer er nokkuð sem jeg skal nota mjer, “ sagði annar þeirra, Richard Mea- dows að nafni, ,,það getur orðið nógu gaman“. ,,Hvaðþá?“ spurði hinn, og Richard las eftirfylgjandi upp úr blaði nokkru : „Óskað eftir — stöðu, sem kennslukona eða lagsmær. Hlutaðeigandi er vel að sjer f frönsku, kann hljóðfæraslátt og hefir full- komna þekkingu í ensku. Viðfeldið heim- ili er metið meira en há laun. Áritun : E. R., Morning Call, San Francisco“. „Ef þetta getur ekki orðið gaman, þá er jeg svikinn. Þú veizt það, Bobb, að úti f Ruby Creek býr heiðarlegur og góður kennari, Egbert Summers; það lítur út fyrir að hann ætli að lifa og deyja sem yngiskarl, en nú ætla jeg að skrifa henni með nafni hans undir. Hlustaðu nú á : ,,Heiðraða ungfrú! Jeg sá auglýsingu yðar í blaðinu ’Morn- ing Call‘, sem út kemur f San Francisco, og ímynda mjer að þjer afsakið að jeg skrifa yður f tilefni af henni. Jeg er sjálf- ur kennari og hcfi verið það í 10 ár. Staða mín hefir ekki þreytt mig, en jcg þrái við feldna, hjartagóða óg vel upp alda unga stúlku, sem gæti veitt mjer heimilis ánægju. (Framh.)

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/165

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.