Baldur - 13.10.1906, Qupperneq 1
ísskápar niðurseítir
Skápar sem kostuðu $i I nö á $9. $20
á $1 7. $16 á $14. $807.50. Skoðiðþá
og fáið að vita um borgunarskilmáia.
Engu sanngjörnu bcði neitað.
ANDERSON & THOMAS,
Hardware & Sporting Goods.
538 Main St, , WPG. Phone 339.
STEFNA: Að efla hreinskilni og AÐFERÐ: Að tala opinákátt og
,eyða hræsni í hvaða máli, sem fyrir vðftuiaust, eins og hæfir þvf fölki
kemur, án tiilits til sjerstakra flokka. sem er af norrœnu bergi brotið.
| Burt meÖ ísskápana |
Við höfum of marga, og höfu'm því ♦
sctt verðið niður. $20 skápar nú á $ 17 5
og aðrir niðursettir að sama skapi.
Komið og skoðið þá. Gerið sanngjarnt
boð í þá og vjer tökum því strax.
ANDERSON & THOMAS
538 Main St. , WPG. Piione 339. |
9
♦bn»«s«®o®
IV. ÁR.
GIMLI, MANITOBA, 13. OKT. 1906.
Nr. 36.
FXTKDARBOÐ.
Samkvæmt fyrirskipun frá stjórn-
arnefndarfundi, sem haidinn var 3.
þ. m., auglýsist hjermeð, að á
mánudaginn 15. október er ætlast
til að meðiimir fiskimannafjelagsins
’The Fishermens Protective Uni-
on of L. Wpg. ‘, hafi fund ineð sjer
á ’Gimli Hall‘, Gimli. Fundurinn
byrjar kl. 1 e. h.
Auk fjelagsmanna eru allir
sem vijja styrkja fjelag þetta
með því að gjörast meðlimir
þess, sjerstaklega beðnir að
sækja fundinn. Ætlast er til að
& fundinum verði meðal annars
rætt um það, að gjöra það að laga-
ákvæði, að útgjörðarmenn og aðrir
vinnuveitendur í fjelaginu gefi fje-
lagsmeðlimum forgöngurjett, þegar
þeir þurfa á vinnukröftum að halda
við veiðiskap, fiskfiutninga og ann-
að, sem stendur í sambandi við
fiskiveiðar og fiskiverzlun.
Munið eftir fundinum, mánudag
15. okt., kl. 1 e. h.
Gimli, 6 okt. 1906.
E. Ólafsson.
Eru sósfalistiskar skoðauir að
breiðast út f heiminum ? Já, eng-
inn efi á því, og útbreiðsla þeirra
er býsna hröð. Er það afleiðing
af prjedikunum sósfalistanna, eða
þeirra sem styrkja þá á einhvern
hátt ? Að nokkru Ieyti sjálísagt,
en hreint ekki að mestu ieyti,
Hverjir gjöra menn þá að sósfa-
lisíum ? Kapftalistarnir — auð-
mannasamtökin. — Það er neyðin,
afleíðing auðsöfnunarinnar, sem
gjörir margfait fleiri menn að só-
sfalistum heldur en allar prjedikan-
ir sem sendar eru út meðal fólks-
ins. Til þess að sannfærast um
það, þarf ekki annað en að athuga
það, að hreyfingar f sósfalistiska
átt eru sterkastar þar sem samtök
kapftalistanna eru búin að grafa
mest um sig.
Sumir, sem halda að þeir sje
efni í kapítalista, cða hafa kapftal-
istiskt sálarástand, eru oftast með
vonzku og hatri f þeirra garð, sem
eitthvað haia að segja sósíalistisk-
um stefnum til málsbótar, en ef
þeir væru samkvæmir sjálfum sjcr,
aettu þeir að bera hatur til kapftal-
istanna, sem með yfirgangi sínum
hafa skapað að minnsta kosti 3
miljónir skrásettra sósíalista f A-
merfku á sfðastliðnum 30 árum,
fyrir utan alla, sem eru þeim meira
eða rninna hlynntir, en tilheyra
fjelögum undir öðrum nöfnum.
Það hafa víst fæstir af þeim, scm
sýta og gráta yfir því að verið sje
að leiða fólkið út á sósfalistiskar
villigötur, gáð að þvf, að mennirnir
sem þeir dást að, mennirnir sem
þeir vilja hlafa sem fyrirmynd,
mennirnir, sem heimsins framfarir
fljóta frá, eftir þeirra áliti, menn-
irnir sem eiga að ráða, að þeirra
skoðun — yfirgangsmennirnir,
eru mennirnir sem hafa hleypt af
stað öllum sósfalistahreyfingum
heimsins ; þeir gá ekki að þvf, að
sósíalism er eðlilegt, óhjákvæmi-
legt spor í breytiþróun mannfje-
lagsins — afleiðing af vissri orsök
— afleiðing af neyð, sem skapast
af skorti, sem aftur skapast í flest-
um löndum af yfirgangi vissra
manna, sem hafa náð haldi á þeim
tækjum sem fólkinu eru nauðsyn-
leg til bjargráða.
Það er ekki skortur á hlutum í
náttúrunnar ríki, sem orsakar skort-
inn sem fólkið líður, heldur skortur
á tækifærum tii að afla þess sem
þarf, af þvf sjerstakir menn halda
lyklunum að búri náttúrunnar f
trássi við aðra jarðarbúa.
Menn verða ekki sósíalistar að
gamni sínu, heldur verða menn só-
síalistar af því menn neyðast til að
verja sig fyrir þeim, sem f ofsa
fjárgræðginnar eru að gjöra hina
mörgu að þrælum hinna fáu. Só-
s'falistisku stefnurnar : þjóðeign á
samgöngufærum, þjóðeign á verk-
stæðum, bein löggjöf, og annað af
líku tagi, eru nauðverjur gegn yf-
irgangi — vfirgangi, sem á ffnu
viðskifta og verzlunarmáli kallast
samkeppni.
A meðan menn ófu klæðaefnin
sín heima hjá sjer, á meðan menn
bjuggu tii húsgðgnin sfn sjálfir, og
áttu áhöldin og samgöngufærin sín
sjálfir, var lftið taiað um sósfalism.
En þegar stórar verksmiðjur i
mðrgum deildum, fóru að búa til
klæðnað eða annað f stórum stýl,
var Iögð undirstaðan undir sósía-
lism, og það er fram af áníðslunni,
sem svona verkstæði, og aðrar
stofnanir með samskonar augna-
| miði hafa beitt, að sósfalistahreyf-
j ingarnar hafa sprottið.
Póikið, sern vinnur á verkstæð-
um, á ekki áhöldin, en verður að
fá ieyfi eigandanna til að vinna
með þeim, en það ieyfi er oftast
eins dýrkeypt eins og hægt er að
láta það vera — kostar oftast eins
langan vinnutfma eins og fólkið
þolir, með eins litlu kaupgjaldi
eins og fólkið getur drcgið fram
lífið á. Menn geta sagt, að það
l!5P= Þeir, sem fá reikninga rneð
þessu blaði, eru beðnir að
borga sem fyrst og senda at-
hugasemdir ef viilur eru í
þeim.
sje eigandanum f hag að láta vinna
með áhöidunum sfnum, og þvf sje
hann eins mikið kominn upp á
náðir vinnufólksins eins og vinnu-
fólkið upp á hans náðir ; en þetta
á ekki við nema þar sem fólksfæð
er, en þangað sækja ekki verk-
stæðaeigendurnir. Hitt er algeng-
ara, að mergðin sem sækir um
vinnuna sjesvo mikil, að húsbónd-
inn geti sett nálega hvaða kosti
sem honum lfzt. Eftir því sækj-
ast þeir, og það er með þvf augua-
miði, að auðkýfingafjelögin eru allt
af að hrópa um meiri mannfjölgun,
og reyna að kenna mönnum að
ganga f sekk og ösku og biðja fyr-
ir sjer, þegar manntalsskýrslur
einhvers lands sýna, að fóiksfjölg-
unin hefir ekki verið eins mikil og
búast hefði mátt við — það er f
því augnamiði að fá ódýra vinnu-
krafta — f því augnamiði að fá
þræla í þrældóminn, að þau hrópa
um mannfjölgun ; og svo upp úr
því fara landstjórnirnar og kyrkju-
fjelögin að syrgja mannfæðina, og
heita þeim verðlaunum sem geti
komið í heiminn sem flestum
þrælaungum, til að koma í stað
hinna þrælkuðu foreldra sinna.
Verðlaun fyrir mannfjölgun hefir
verið boðin á Frakklandi um und-
anfarin ár, og á liiny nýafstaðna
kyrkjuþingi Methodistakyrkjunn-
ar, sem haldið var í Montreal, var
með sorg minnstáþað, að viðkom-
an væri hlutfallslega að minnka
við það sem hefði verið. Það er
sannarlega hugvekja í þessu fyrir
alia, sem hugsa verulega út f það
hvað orðið ’framför1 merkir á
tungu auðkýfinganna, og hvað það
ætti að merkja á tungu fólksins, og
það er engin furða þó merking sú,
sem auðkýfingurinn hefir lagt í það,
hafi leitt marga út f að raða sjer
undir merki sósíalista-stefnunnar,
og reyna þannig að vcrja hendur
sínar og stemma stigu fyrir yfir-
gangi kapitalistanna — yfirgangi,
sem leiðir af sjer þrældóm, hörm-
ungar og nautnasnautt iíf fyrir
miliónir karla, barna og kvenna.
E. Ó.
Gimli Feed and Livery
Stable.
Keyrslafrá Gimli til Winni-
peg Beach kl. 8 á hverjum
morgni. Frá Wpg Bcach til
Giinli á hvcrjum morgni, eftir
að Winnipeg-lest er komin.
G. E. Sólmundsson9
Gimli Feed and Livery Stable,
2nd Ave Gimli.
^kólanefnd Geysirskóia ætlar að
láta grafa brunn við skölann.
Nefndin óskar eftir tiiboðum f
verkið, samkvæmt auglýsingu,
sern fest er upp á skólann,
Menn snúi sjer til Tómasar
Björnssonar, eða mfn,
Bjarni JóHANNSSON.
TIL NÝ-ÍSLENDINGA1
HEIÐRUÐU VIÐSKIFTAVINIR:—
Um leið og jeg þakka ykkur fyrir góð viðskifti á síðastliðnu árij þá
leyfi jeg mjer að tilkynna ykkur, að jeg er nú sjerstaklega undir
það búinn að mæta öllum þörfum ykkar hvað við vfkur uxa- og
hesta-aktýgjum og öllu sem þeim viðvíkur, svo sem: hesta-ábreið-
um, svitapúðum, bjöllum, aktýgja- og vagnhjóla-áburði og
fleiru. Ennfremur hefi jeg mikið upplag af sjerlega vönduðum
hunda-aktýgjum með mjög sanngjörnu verðí. Komið og talið
við mig áður en þið leggið inn pantanir annarsstaðar—þið græðið
á þvf.
Aðgjörð & skóm og aktýgjum. fljótt og vel af hendi leyst. Verðiö
sanngjarnt.
Með vinsemd
J. H. HANSON,
HARNESSMAKER.
GIMLI, - ■ ■ TALAfisr XT O T3.iL.
Búðin er á 2nd Ave. skammt fyrir norðan Baldursprcntsmiðjuna.
FRJETTIR.
%
Töluvert af herliði Bandarfkja-
manna er nú kornið til Cuba, og
leggja nú uppreistarmenn niður
vopn sín hver af öðrum. Má svo
segja að kyrð sje komin áf flestum
hluturn landsins, hversu langvinn
sem hún verður.
Newfoundlandsbúar eru sagðir:
stórlega óánœgðir ' með samning
þann, sem Bretar hafa gjört við
Bandaríkin viðvíkjandi fiskiveiðum
Bandaríkjainanna við Newfound-
land. Þykir þeim Bandarfkja-
mönnum gcfin of mikil hlunnindi,
og litur út fyrir að afleíðingin
verði miklar róstur og máskc lang-
vinnar.
Haldið er að skipið ’Adventure1,
sem Dominionstjörnin sendi mcð
lögreglulið til ýmsra staða við Hud-
sonsfióann snemma f ágúst, hafi
farizt — átti að vera kornið fyrir
hálfum mánuði.
Um þessar mundir stendur yfn
mál milli C. P. R.-fjelagsins og
nokkurra hluthafa í fjelaginu. Fje-
lagið er stofnsett f fyrstunni undir
enskum lögurn, og ákveða þau, að
ollurn hreinum tekjum skuli skift
milli hjuthafanna, en að fje til utn-
bóta og aukningar á áhöldum fje-
lagsins skuli ckki tckið af tekjum
þess, hcldur skuli það fengið með
sölu hlutabrjefa eða skuidabrjefa.
Að undanförnu hcfir fjelagið lagt
nckkuð af tckjum sfnum til sfðu,
: og notað í umbætur eftir þörfum,
I en borgað hluthöfum að eins vissa
| upphæð. Þessi aðferð eykur auð-
i
I vitað verðmæti hvers hlutar í fje
i
j laginu, en að öðru leyti er hún
| slæm, því með henni hefir rnargur
hluti sfna fyrir lítið verð, þar eð |
; surnar fjelagsstjórnir hafa notað)
allan ágóða fjc'agatína til umbóta,
en borgað hluthöfum ekkert. Úr-
skurður f málinu er ekki kominn.
Nýr pólitiskur flokkur er í
myndun í Austurfylkjunam, og er
eitt aðalatriðið í stefnr.skrá hans,
að samcina Austurfylkin, og gjöra
úr þeim eitt fylki. Hugmyndin
er sú, að með þessu móti hefðu
Austurfylkin meira að segja í Ott-
awaþinginu, þarcð þau yrðu þá bet-
ur samtaka en nú.
Sagt er að vfsindamenn á Frakk-
landi sje f rniklu uppnámi um þess-
ar ntundir út af loftskeyti, sem
enginn veit deili á enn,en sem búið
er að koma hvað eftir annað, og
kemur ávalt kl. 12 á nóttunni.
Það eru margar loftskeytastöðv-
ar nú í Parisarborg, og ein þeirra
er á Eiffelturninum. Það er þang-
að sem þetta skeyti kemur. Merk-
ið eru þrfr punktar, og er það
sama merkið sem Marconi brúkaði
er hann sendi fyrsta Skeyttð yfir
Atlanzháf. Sumir halda að þetta
sje skeyti frá stjörnur.ni Mars, sem
menn hafa á sfðari tímum fengið
hugboð um að væri byggð mann-
legum verum.
Bóluveikin hefir gjört vart við
sig í Wínnípeg. Kom upp f mat-
vörubúð á Logan Ave.. sem er
bæði brúkuð fyrir fveruhús ogbúð.
Sóttvörður hefir auðvitað vcrið sett
ur um húsið, en ekki er óifklegt
að sýkin hafi borizt út uro bæinn
tneð fólki sem verzlaði við búð
þcssa.
Prince Albert-búar hafa ráðið
það mcð sjcr, að skoráá Ðominion-
j stjórnina að láta gjöra sjömælingar
jf Hudsonflóanum, til þess að örva
siglingar þangað. Halda þeir þvf
fram, ao leið þaðan til Evrópu sje
færfrálokum júlf til 30. növernber.