Baldur - 09.01.1907, Page 3
BALDUR, 9. jANtf'AR 1907
3
fram, og að hann hafi aldrei verið
fullkomnari og göfugri en hann er
nú. Það er einrnitt meðal annars
á þessum punkti sem ‘orþódoxfan’
og nútfðarvfsindin eru ósamrým-
anleg. ‘Orþódoxfan* neitar
breytiþróunarkenningunni með
þessari staðhæfingu um syndafall,
og þessvegna er ekki hægt að lája
‘orþódoxa' presta standa fyrir al-
mennum uppfræðslumálum með
fullri vissu um að þeir hlaði ekki
trúarbragðalegum stýflugörðum á
leið þeirra sem uppfræðslunnar
eiga að njóta.
Trúarbragðalegar staðhæfingar
og vfsindaleg fræðsla geta ekki átt
sæti á sama bekk. Vísindin út-
heimta ótakmarkað hugsanafrelsi,
en ‘orþódoxfan' með sfnar staðhæf-
ingar -— sfnar trúarjátningar getur
ekki veitt hugsanafrelsi, þvf trúar-
játningarnar hennar eru einmitt
takrnörkun á hugsanafrelsi ; og
þessvegna er f meira lagi örðugt
að sjá, að vel gæti á því farið, að
sameina í einni persónu fræðslu í
hvorutveggju, þar sem önnurgrein-
in útheimtir ótakmarkað hugsana-
frelsi, en hin heimtar takmörkun
á því.
Vera má að sumir þeir prestar,
sem teljast ‘orþödoxir1, sje það
ekki nenra að nafninu til, og að ó-
hætt væri að treysta þeim til að
láta trúarbragðastað' æfi garnar
lúta f lægra haldi þar sem á milli
ber, og það er viðbúið að einmitt
þessi prestur, sem hjer er um að
ræða, sje af því tagi ; en það, að
fá prestastjettinni í hendur nálega
öll umráð vfir alþýðufræðslunni, er
að opna leið fyrir klerkdómslegan
yfirgang, og það er meira en búast
má við að alþýða manna nú á dög-
um gangi inn á.
Það er slæmt, að það skul'i ekki
vera hægt að nota f fuilum mæli
þá rmkiu krafta sem liggja í presta-
stjettinni, en það er sýnilega ekki
nema einn vegur til þess, og hann
er sá að sópa burtu trúarjátningun-
um, svo trúarbrögðin og trúarlffið
geti þroskast samhiiða vfsindalegri
fræðslu. Þegar það er hægt -—
þegar ‘orþódoxfan* er h dc að vera
til, þá er hægt að trúa k'erkum
eins og öðrum inönnum fyrir ai-
þýðu uppfræðslunni.
Það geta ekki verið tveir sann-
leikar um tilveruna, annar trúmáia-
leguren hjnn vfsindaiegur, oghvor
gagnstæðuröðrum. Burt meðtrú-
arjátningarnar svo prestarnir geti
orðið nýtir og dugandi meðiimir
manhfjclagsins, bæði á Islandi og
annarstaðar,
E. Ó.
Ábyrgð gegn hagli.
W
Maður einn vcstur í Saskat-
chevvan, Frank Gates að nafni,
skrifar í Nor-West Farmer frá 20.
des., góða grein um ábyrgð á ökr-
um gegn hagii. Hann bendir ú
að haglábyrgð hjá ábyrgðarfjelög-
unum sje bæði svikul og dýr.
Sömuleiðis segir hann að stjörnar-
ábyrgð í því formi sem hún hefir
verið, verði ávalt dýr vegna þess
hve fáir taki þátt f henni. Ráðið
sem hann kemur svo með er það,
að allir akuryrkjubændur sje skyld-
aðir til að borga vissa upphæð f á-
byrgðargjald af sjerhverri ekru
sem sáð er f, og að það gjald sje
innheimt á sama hátt og sama
tfma og aðrir skattar. Með þessu
móti segir hann að ábyrgðargjald-
ið þyrfti ekki að vera yfir eitt til
tvö cent fyrir ekruna, og hyggur
hann að flestir yrðu því mjög fegn-
ir að fá vernd gegn skeinmdum á
uppskeru sinni fyiúr svo lftið verð.
Þetta er áreiðanlega rjett hugs-
að. En þó sveitafjelögin væru
látin .innheimta gjöldin, ætti ekki
hvert sveitarfjelag að hafa ábyrgð-
ardeild fyrir sig. Sveitafjelögin
ættu að eins að innheimt-a gjöldin
og afhenda þau fylkisstjórnunum,
sem ættu að stofna áb)rrgðardeild
til að varðveita fjeð og útbýta þvf.
Ein sveit er of iftið svæði til þess
að bera mikinn skaða, og þcss
vegna þurfa ábyrgðarsamtökin að
ná yfir sem stærst svæði, ekki
minna en ’neilt fylki. Skemmdirá
ökrum verða venjulega að eins á
fáum stöðum, en eru oft iniklarþar
sem þær koma fyrir og skaðat inn-
an sjerstakrar sveitar geta orðið
méiri en svo, að eitt til tveggja
centa gjald hrykki til að bæta þá,
en væri um heilt fylki að ræða,
gæti það orðið nægilegt eða jafnvel
meira en þörf er á.
Þessu máli ætti sem fyrst að
hieyfa f sambandi við önnur al-
menn mál, ekki sízt f sambandi
við kosningar til fylkjaþinga. Það
er ekki sfður þörf á skynsamlegri
og hagkvæmri ráðstöfun f sambandi
við haglábyrgð, heldur en t. d. f
sambandi við telefóna og annað
þessháttar. Rannsókn sú sem fór
fram í sumar viðvíkjandi haglá-
byrgðarfjelögum hjer f Manitoba,
hefir sýnt að bændur eiga f sffelldu
stríði með að fá skaðabætur hjá
þessum fjelíigum sem bafa starfað
hjcr að unrdanförnu: fyrir utan það
sem þeir neyðast til að borgaþeim
margfalt hærra ábj’Tgðargjald held-
ur en þyrtti, ef.um ifkt fyrirkomu-
lag væri að ræða og hjer er bcnt á
að framan.
Menn ættu að hafa það hugfast,
at á þes-um tfmum cr það að eins
með samtökum aimennings, sjer-
stakiega f gegnum þjóðeignr.rstofn-
anir, að hægt er að koma f veg
fyrir yfirgang og rangsleitni, og
menn ættu þvf að gcfa svona sam-
tökum gaum, og fylgja þessari hug-
mynd svo riiggsainlega, að nauð-
synlegar framkvæmdir af stjórn-
anna liálfu fengjust sem fyrst.
Fóikið á að segja pólitisku flokks-
foringjunum hvað það vill fá, en
ekki að láía pólitisku flokkaforingj-
aua scgja fólkinu livað þeir vilji
veita þvf.
E. Ó.
Heimskan út með hroka brýzt
hjá þein, ‘ rþódoxa" lýði ;
trúin eins og trissa snýst
til að dyija falsað smfði.
Ofc fær lýgin áheyrn bezta
ef hún kemur gegnum prcsta.
Tapaöa blómið.
Mfn er æfin iinnur
en áður fyr á tfð,
þá allflest ljek í lyndi
og lukkusólin frfð
gullnum geislum stráði
á grýtta þyrnislóð.
Jeg víða átti vini
og vart neinn móti stóð.J
Þá ijúfa sá jeg lilju
í lífsins blómareit,
sein bar af öllum öðrum
— jeg enga fegri ieit.
Að bera mega á brjósti
það blóm jeg þráði heitt,
og vernda — firra frosti,
það fjekkst um sfðir veitt.
I siinnum sæludraumi
jeg sveif og helgri ró.
Oft Kári kaldan steyttist;
til kulda fann ei þó,
þvf hulda hörpustrengi
mfns hjarta næma sló
gleðin tignum tónum,
en tál að baki hló.
Því svartur sveif að mökkur
og sólskin huldi bjart,
illar eiturnöðrur
að mjer sóttu hart.
Rógburð kaldan kyntu ;
af kænsku stríð var þvælt,
með flærðar fagurgala
þær fengu rós burt tælt.
Þó sorgin sárt mig nfsti
og-sollin blæði und,
og allt sje yndi horfið
sem áður kætti iund,
jeg held beina brautu
og bifast læt ei neitt,
einn um eyðimerkur—
þvf enginn getur breytt.
Jcg veit hver blómið bjarta
nú ber, þó fari hljótt,
mcð harla göfugt hjarta
og hatar sjerhvað ljótt,
sem enga hugmynd hcfir
hve hart jcg leikirn var.
Hann guð og iukkan leiði
um leiðir ókornnar.
JóHANNES H. HÓNFJÖRD.
» « *s®®« •»•»**♦« Í9 *««•»»»
t
ELDSABYRGÐ og PENINGALAN.
Þeir sem þurfa að setja hús og aðrar eignir í eldsábyrgð, eða %
i fápeningalán út á fasteignir, geta snúið sjer til mín. •
® EINAR ÓLAFSSON, |
Skrifstofu ,,Baldurs,“ GIMLI, MAN. ®
» 9
• <*•*•»•«• »«•••••• »•••••••
ÓVIBJAFNANLEG KJÖRKAUP
Á BÓKUM
framlengd um nokkrar yikur.
80 til 60 prósent afsláttur!
Lesið eftirfylgjandi verðskrá :
Uncle Tom’s Cabin, eftir H. B. Stowe ioc.
Hidden Iland, eftir Mrs. E. D. E N. Southworth ioc,
Self-Made, ,, tvær bækur 150.
How Christianity Began, eftir William Burney ioc.
Advancement of Science, eftir Prof. John Tyndall 150.
Christianity and Materiaiism, cftir B. F. Underwood 150.
Common Sense, cftir Thomas Paine ‘ 150.
Age of Reason, jtcftir Thomas Paine 15C,
Apostles of Christ, eftir Austm Holyoake 05C.
The Atonement, eftir Ch. Bradlaugh 050.
Blasphcmy and thc Bible, eftir C. B. Reynolds 05C.
Career of Religiaus System, eftir C. B. Waite 050.
Christian Deity, eftir Ch. Watts 050.
Christian Mysteries Q^c.
Christian Scheme of Redemption eftir Ch. Watts 050-
Christianity— eftir D. M. Bennett 05,0.
Daniel in the Lions’ Den, eftir D. M. Bennett 05C.
Giordano Bruno, æfisaga hans, kenningar og písIarvættisdauði 050.
Last Link in Evoiution, eftir Ernst Haeckel 050.
Liberty and Morality, eftir M. D. Conway 05C.
Passage of the Red Sea, eftir S. E. Todd 05,0..
Prophets and Prophesies, eftir John E. Remsburg o^jc.
Science and thc Bibie Antagonistic, eftir Cn. Watts Q5<&>.
Scicnce of thc Bible ojc.
Snperstition Displayed, eftir Wiiliam Pitt q5.0,
Twelve Apostles, eftir Ch. Bradlaugh 050.
What did Jesus Teach ? eftir Ch. Bradlaugh 05,c.
Why don’t God kill the Devil ? eftir M. Babcock loc,
Aliar þsssar ofantökiu bækur $2.00-
Jeg borga póstgjöld til hvaða staðar sem er, í Cansda eða
Bandaríkjunum.
PÁLL JÓNSSON,
655 Toronto St., WTNNIPEG, MAN.
HEIMSPEKISLEGS,
VÍSIND ALEGS,
STTÓRN FRŒÐISLEGS,
OG TRTJARBRAGÐ.aLEGS
EFNIS.
WHAT IS RELIGION? Síð-
asta ræða Ingersolls. Verð icc.
DESIGN ARGUMENT FAL-
ACIES.ef'cir E. D.Macdonald 25C.
WISDOM OF LIFE, eftir Arth-
Gocl and My Neigjibou*
eftir Robert Blatchford á Eng-
landi, sem er höfundur að ,,Mcr-rie
England,“ , ,Britain for Britishv‘A
o.fi. Bókin er 200 bls. á stærff,
prentuð með skíru lctri á góðan
pappfr. Bokin er framúrskararsd
vel rituð, eins öll ritverk Robert
Blatchfords. Verð:íbandi $1.00
í kápu 50C.
ADAM’S DIARY, eftir Mark
Twain $1.00
EVE’S DIARY, eftir Mark
Pwain $1.00
Lönd til sölu.
&
160 ekrur, 3 mtlur frá Gimli,
gott heyland og plógland.
80 ckrur, skammt frá Gimli,
nytt timburhús á eigninni, gott
vatnsból, mjíig falleg t’gn.
G. ThORkTBIN.SON.
Gimii, ------- Man.
ur Schopen’nauer. — Verð 25C.
RITVERK Charles Bradlaughs,
með mynd, æfisögu, og sögu um
baráttu hans 1 enska þinginu.
Verð : í skrautbandi - - $1.10
í kápu - 50C.
í FORCE AND MATTER : or
Principles of the Natural Order
of the Universc, witli a System of
•
Morality based theron, eftir Prof.
Ludwig Buchner. Með mynd.
Verð: ( bandi - - $110
.■">»» .->, .O v •-»> -’V
f öONNAR Sclif
® HARTlEY |
BARKISTERS Etc. #
P. O. Box 223, %?
WINNIPEG, — MAN.
'«<>■
4 £5^ Mr. B O N N A R er
m
inn langs-njallasti málafærslu-^y
'ý maður, sem nú er f þessu y
/fiS fylki-
M
MEN, WOMEN, AND GODS',
eftir HqLri H. Gardener. Með
formáia cftir Col, R. G. Ingersoli,
i °2 mynd höfunnarins. Þessi bók
j cr hin langsnjatiasta sem þessi
i fræga kóna liefir ritað.
Vrerð : í bandi $I. 10, í kápu 50C,.
P H i LOSOP H Yof SPIRIT U A L-
ISM,
cftir Frcderic R.Marvin. í bandi.
Verð:......................50C.
PULPIT, PEW.anð CRADLE,
eftir Helen H. Gardener. I kápj.
Verð: ioc.
EXAMiN ATION OF THE
PROPHECIES-—T>aine 15C.
Is thc God of Israel the True God?
eftir Israei W. Groh. 15C.
Hitvek Voltaies:
VOLT Tl!'. e:s roaLvn.cjls.
Ný útgáfa í bandi $1.50
Micromegas. í kápu 250.
Man of Forty Crowns 25C.
Pocket Theoiogy 25C.
Letters on the Christian Religion,
með myndutn af M.de Voltaire.
Francois Rabelais, John Locke,
Peter Bayle, Jean Meslier og
Benedict Spinoza. 250.
Philosophy oí History 25C.
Ignorant Philosopher, með mynd-
um af René Dcscartes og Benc-
dict Spinoza 25C.
Chinese Catecism 250.
Sentið pantanir yðar til
PÁLS JÓNSSONAR,
655 Toronta St>
WINNIPEG, MAN.