Baldur - 09.01.1907, Blaðsíða 4
4
BALDUR, 9. janöar 1907.
Janúar 1907.
s. M. Þ. M. F. F. L.
1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 iS 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 3i
Tunglkomur.
Sfðaata kv. 7. kl. 8, i8m.
Nýtt t. 13. ki. 11, 28 m.
Fyrsta kv. 21. kl. 2, 13 m.
Fullt t. 29. kl. 7, 16 m.
Nfuviknafasta byrj. 27. janúar.
HVEITIMJÖL.
Til þæginda fyrir viðskiftavini
mfna hefi jeg nú fengið byrgðir af
HVEITI, SHORTS, BRANI
og HAFRAMJÖLI, og sel það ó-
dýrt.
KAFFI,
SYKUR,
TÓBAK og
STEINOLÍA af beztu tegund
ellajafna til,
Munið að jeg keyri vðrur heim til
ykkar, og tek alla verzlunarvðru.
Vinsamlegast
C. P. MAGNUSSON.
Keyrsla:
Frá Gimli til Winnipeg Beach
kl. 8 á hverjum morgni.
Frá Winnipeg Beach til Giml
á hverjum morgni, eftir að
Winnipeg-lest er komin.
G. E. Sólmundsson.
Gimli I'ced and Liverý Stable,
2nd Ave Gimli.
$1.00
Nýir kaupendur
að BALDRI fá blaðið frá byrjun
nóv. þ. á. (meðan upplagið endist)
til áfsloka 1907 fyrir $i.oO, með
þvf möti að
borgað sje fyrirfram.
# $ #
$525.°-
525 hundrud dollara er útistand-
andi fyrir Baldur. — Sendið á-
skriftargjöldin sem fyrst.
Þeir, sem fá reikninga með I
þessu blaði, eru beðnir að
borga sem fyrst og senda at-1
hugasemdir ef villur eru f,
þcim.
Austan yfir.
&
RÚSSNESKT ‘FRELSI'.
Af þingmönnum Rússa (meðlim-
um Dúmunnar fyrstu, er rofin var)
hefir einn verið drepinn, einn er
orðinn vitlaus (af ofsóknum stjórn-
arinnar), tíu hafa flúið til útlanda,
fimm verið fluttir í útlegð, 24 eru
f fangelsi, og gegn 182 hefir stjórn-
in höfðað sakamál til að svifta þá
almennum þegnrjettindum.
ALDUR JARÐARINNAR.
“Fundur radfumsins hefir farið
langt á leið með að skera úr mikils-
verðum ágreiningi milli stærðfræð-
ingannaog jarðfræðinganna1, sagði
Sir Robt. Ball (einn merkasti
stjarnfræðingur, sem nú er uppi) f
ræðu f Bishopsgatc-stofnuninni ný-
lega.
“Kelvin lávarði taldist svo til,
að ekki væri nema 20 miljónir ára
sfðan yfirborð jarðarinnar var svo
heitt, að vatn gat ekki viðhaldist
á henni. Hann byggði reikning
sinn á því sem mönnum var þá
kunnugt um hitann f iðrum jarðar,
og um ásigkomulag þess sem kóln
að er af jarðskorpunni. —- En Mr.
Strutt hefir sýnt oss, að f grjótinu
f jarðskorpunni er allmikið af radf-
um, sem sífellt lætur hita streyma
hraðtara út frá sjer. En úr þvf að
þessu er svo farið, þá hlýtur lfka
að vera miklu lengra en 20 miljón-
ir ára síðan yfirborð jarðarinnar
varð svo kalt, að líf gat þrifist á
þvf. Það hlýtur að vera svö lang-
ur tfmi, að vjer þurfum ekki að
rengja framar þær 80 miljónir ára,
sem jarðfræðingarnir þykjast þurfa
að telja til að geta gjört sjer grein
fyrir fyrirbrigðum þeim sem þeir
hafa athugað“.
[Eftir Reykjavík].
“ÍSLAND FYRIR ÍSLEND-
INGA“.
Stúdentafjelagsfundur 19. nóv.
hafði til umræðu: “ísland fyrir
fslendinga“. Frummælandi var
Benedikt Sveinsson og nokkurir
fleiri tóku til máls á cftir. — For-
maður fjelagsins bar upp svofellda
tillögu og var hún samþykkt með
27 samhljóða atkvæðum :
“Fjelagið skorar á þingmenn
vora að krefjast þess, er samn-
ingar takast um samband ís-
'ands og Danmerkur, að engir
hafi hjer rjett innborinna
manna, nema þeir, sem öðlast
hann með væntanlegum íslenzk-
um lögum þar um. Danir
standi öðrum þióðum jafnt að
vfgi hjer f; vjcr afsölum oss öll-
um rjetti innborinna manna í
Danmörku öð'rum en þeim, sem
þeir veita oss mcð samningum
gegn samskonar rjettindum
hjcr“.
RAFLÝSING í HAFNAR-
FIRÐI.
Fyrir hálfu öðru ári kom hr. Jó-
hannes Reykdal, verksmiðjueig-
andi, raflýsing f Hafnarfjörð. En j
ekki voru þá ncma 12 hús, sem
notuðu þá lýsingu og tvær verzlan-
ir. Rafmagnsstöðin var í sam-
bandi við trjesmíðaverksmiðju
Reykdals.
Nú hcfir þetta fyrirtæki verið
hcldur en ekki eflt og aukið.
Sami framkvæmdamaðurinn hef-
ir nú komið upp nýrri rafmagns-
stöð handa bænum, 300 föðmum
fyrir ofan hann, við Hafnarfjarðar-
læk.
Hún er f iox 12 álna húsi þar,
tvílyftu. í öðrum enda hússins er
hlaðinn 16 feta hár grjótstöpull.
Uppi á honum er rafmagnsvjelin
og hverfihjólið. Að þessum stöpli
liggur 360 álna löng vatnsrenna,
lokuð, úr læknum. Fallhæðin er
30 fet.
Á efra lofti hússins er fbúð um-
sjónarmanns. En niðri er húsið
enn óbyggt.
Frá þessari stöð er rafmagninu
veitt ofan f bæinn eftir eirþræði,
sem liggur á staurum.
Nú eru lýst með rafmagni 44
hús, og eftir eru 8, scm ætla að
fá þá lýsingu í vetur. Auk þess
eru á aðalgötu bæjarins 7 ljósker,
með 250 kerta styrkleik hvert, 4,
sem bærinn leggur sjer til sjálfur,
og 3, sem kaupmenn hafa sett
fyrir framan búðir sfnar.
Stöðina á Reykdal, og leigir
bæjarbúum ljósin. Verð á hverj-
um 16 kerta lampa er 6 kr. um
árið. Húseigendur kosta raf-
magnsveitu um húsin, en Reyk-
dal að þeim.
RafmagnsVjelin getur framleitt
allt að 600 Ijósum (16 kerta). Nú
eru Ijósin orðin um 350, og verða
rúm 400, þegar fram á veturinn
kemur.
Stöðin hefir kostað um 19,000
krónur.
Lýsing frá þcssari nýju stöð byrj-
aði um 6. október. Allt hefir
gengið vel síðan, aldrei nein snurða
hlaupið á.
Gamla stöðin er nú eingöngu
notuð handa einu húsi, fundarhúsi
Goodtemplara. Þar eru samkom-
ur oft fram á nætur, og fyrir þvf
þykir hentugra að þurfa ekki að
nota stóru stöðina handa þvf húsi.
Ekki mundi það hafa verið nein
vanvirða fyrir kaupstaði landsins,
þó að Hafnarfjörður hefði fcngið að
bætast við f hópinn með bæjar-
rjettindum, eins og hann sótti um
á síðasta þingi og var synjað^uin.
Framtakssemi og framfarahugur er
vfst ekki annarstaðar meiri á þessu
landi.
f sfmasamræðu, sem vjÝr áttum
við Reykdal á þriðjudaginn (20.
nóv. f. á.), minritist hann á hina
fyrirhuguðu lýsingu Reykjavíkur.
Hann furðaði sig stórlega á því,
ef Rcykjavfk hallaðist ekki að þvf
að afla sjer lýsingar frá Elliðaánum,
taldi alveg áreiðanlegt, að hún yrði
svo dýrað öðrum kosti, að almenn-
ingur fengist ekki til þess að nota
hana.
Til samanburðar benti hann á
það, að þar sem vatn er hjer ekki
nema mflu vegar burtu, þarf Kristj-
ánssandur f Noregi að fá rafmagn
að 2l/l mílu. Sá bær cr ckki
nema um þriðjungi stærri en
Reykjavík. Ög bærinn hefir orð-
ið að taka þátt f stórkostlegum og
dýrum mannvirkjum til þess að
auka vatnsmagnið svo, að það yrði
nægilegt f þurkum á sumrum.
Samt er kostnaðurinn þar ekki
nema 8 kr. fyrir ljósið um árið.
[Eftir Fjallk.]
Flestum jarðfræðingum kemur
saman um það, að hin stóru stöðu-
vötn sem liggja langt inni í megiu-
löndunum, sjeu kyfar stórra hafa
sem einhverntíma hafi þakið það
sem nú er þurt land. Baikalvatn-
ið og Kaspiska hafið f Asfu, og
öll stóru stöðuvötnin f Afrfku virð-
ast benda á það, að tilgáta þessi,
sem hefir bæði jarðfræðislega og
dýrafræðislega þýðingu, sje rjett.
Dýrin, sem heima eiga f vötn-
um þessum, eru af mörgum teg-
undum, flest þelrra heyra til dýra-
rfki stöðuvatnanna, en sum þeirra
eru þó tilheyrandi dýraríki sjávar-
ins, eins og t. d marglittan, sem
hinn enski landkönnuður Moore
fann í Tanganyikavatninu í Afrfku.
Hann og fleiri landkannendur
leituðu marglittunnar í mörgum
öðrum stöðuvötnum, en árangurs-
laust. Loks hefir nafnkunnum
frönskum landkönnuði, Charles All-
naud, heppnast að finna marglittu
f Victorfa Nýanza vatninu önd-
verðlega á árinu 1904. Marglitt-
an heyrir dýrarfki sjávarins til, og
að hún getur lifað í ósöltu vatni,
hlýtur að orsakast af þvf, að hún
hefir orðið eftir f þessum sjávar-
hafsleyfum þegar landið f kringum
þær þornaði, og smátt og smátt
vanist ósalta vatninu. Að öðru
leyti er lfklegt að fleiri sjávardýr
finnist í stöðuvötnum við nákvæm-
ari rannsóknir, og að menn komist
að rjettri niðurstöðu um það, hvern-
ig eðli þeirra getur breytzt.
Victorfa Nýanza eða öðru nafni
Ukereva, er stórt stöðuvatn f aust-
urhluta Mið-Afrfku, 3,800 fet yfir
sjávarflöt og 88,000 ferhyrnings
kflómetrar að stærð ; það stendur
ekki f neinu sjáanlegu sambandi
við Tanganyikavatnið, sem er í
400 kílómetra fjarlægð. Bæði þessi
vötn eru að líkindum leyfar af stóru
hafi, sem hefir þakið allt það svæði
sem hin stóru stöðuvötn eru á.
JL HJj sem hafið fyrir lengri
tíma orðið að stritast við saghest-
inn mcð smásög í höndum, og
sveizt blóðinu við að saga f eldfær-
in, ættuð að KASTA SÖGINNI en
BRENNA SAGHESTINN, Og fá okk-
ur undirritaða til að saga eldivið-
inn fyrir ykkur. Við gjöruin það
með töfrakrafti, sem nefnist á inn-
lendu máli ”GASOLINE“.
Verðið verður sanngjarnt.
Þeir, sem hafa í hyggju að hag-
nýta sjer þenna verkljettir, ættu
að firina
G. P. Magnusson,
Gimli, að máli, og semja við hann
um verð og verk.
Yðar þjónustureiðubúnir
Magnússon &
Brynjólfsson.
| GIMLI lÆZLlSr.
“MOTSAGNIR
BXBLIUNNAR“
eru til sölu hjá undirrituðum.
Verð 25 cts.
E. ÓLAFSSON.
Gimli --Man.
ÁGRIP AF HEIMILISRJETT-
ARREGLUGJÖRÐ FYRIR
CANADA-NORÐVESTUR-
LANDIÐ.
J>ær ’sectionir1 f Manitoba, Sas-
katchewan og Alberta, sem
númeraðar eru með jöfnum tölum,
og tiliieyra Dominion stjórninni
(að undanskildum 8 og 26 og öðru
landi.sem er sett til síðu),eru á boð-
stólum sem heimillsrjettarlönd
handa hverjum (karli eða konu),
sem hefir fjölskyldu fyrir að sjá,
og handa hverjum karlmanni, sem
hefir fjölskyldu fyrir að sjá, og
handahverjumkarlmannisem eryfir
18 ára að aldri; 160 ekrur eða
úr ’section1 er á boðstólum fyrir
hvern um sig.
Menn verða sjálfir að skrifa sig
fyrir því landi, sem þeir vilja fá, f
landstökustofu stjórnarinnar, f þvf
hjeraði sem landið er f.
Sá sem sækir um heimilisrjett-
arland getur uppfylgt ábýlis-
skylduna á þrennan hátt:
1. Með því að búa í 6 mánuði
á landinu á hverju ári í þrjú ár, og
gjöra umbœtur á þvf.
2. Mcð þvf að halda til njá
föður (eða móður, ef faðirinn er
dauður), sem býr á landi skammt
frá heimilisrjettarlandi urúsækjand-
ans.
3. Með þvf að búa á landi,
scm umsækjandinn á sjálfur f nánd
við heimilisrjettarlandið sem hann
er að sækja um.
Sex mánaða skriflegan fyrirvara
þurfa inenn að gefa Commissioner
of D:minion lands f Ottawa um
að þeir vilji fá eignarbrjef fyrir
heimilisrjettarlandi.
\V. W. CORY,
Deputy of the Minister of the Interior
£0* ■%%-%%<
# The a
# SELKIRK #
$ LAND & IN- "
t VESTMENT
#
CO, LTD.
SELKIEK, #
dVL^VIsriTOBuA-. #
VERZLAR MEÐ ^
FASTEIGNIR : HÚS \
OG LÖND, í BŒJUM ^
OG ÚT í BYGGÐUM. ^
----------------#
ELDSÁBYRGÐ, #
LÍFSÁBYRGÐ #
og <r
PENINGAR TIL LÁNS. \
ZET1 -A. G-EITÆIVETIX,,
MANTAGEE.
1