Baldur - 06.01.1908, Blaðsíða 1
V *
1
VtHlr) |l|^ifi‘|l|^UiiV|Ul|'i'|MA|W *!f \>"m v' 1 'ii 1 tJMÍHAMI.l VlMMíAiAAUVftM
xVUtfJftd'tWi HWgyÉHtWWt'É^HBCrmT rfclSrtiii‘iHTkiiKYy8MÍTr¥h^k!ifltT>rfww
STEFNA: |
Að efla hreinskilni og eyða j|
|j hr.esni f hvaða máli, sem fyrir j|
g k.'nur, án tillits til sjerstakra jgj
j| fl ikka. 1
1 I
H.fs»
BALDUR.
i
i
i
I
AÐFERÐ: |
Að tala opinskátt og vöflu- í
laufit, eins og hæfir því fólki ^
sen. er *f uorrœnu bergi g|
brotið. É
V. ÁR.
GIMLI, MANITOBA, 6. JANÚAR iqo8.
Nr. 41.
Oft þó vaidi öfund skæðri,
er f titlum lftill fengur.
Nafnbót tel jeg enga æðri
en að kaliast GóðUR PRENGUR.
E. J.
C§C^C^c5&C&3C&3C&3C&)g]
<8 FRJETTIR. g>
t§[^)[03(^JI^3Cg3Cg3Cg]g)
21. des. Brezka stjórnin ætlar
að fara að setja á fót herskipaflota
í Kyrrahafinu, og verður Esquinalt
f B C. aðal-hafnarstöð hans.
Einn frski þíngmaðurinn f brezka
þinginu dæmdur f 6 mánaða fang-
elsi, sakaður um fyrirlitningu fyrir
rjetti.
Nefndin f sameiningarmáli evan-
/
gelisku kyrknanna búin að semja
sameiningarfrumvarpið.
24. des. Yfir 26 milljónir dol!-
ara höfðust upp úr ranadiskum
fiskiveiðum árið 1906.
Bandarfkin ætla að fara að gjöra
miklar hafnarbætur hjá sjer á
Kyrrahafsströndinni. [Ensku þjóð-
urtum Ifzt ekki nú orðið á Japanfta.
25. des. Þrfr fimmtu áf allri
“nickel“framleiðslu er sagt aö sje
úr Sudbury-námunum f Ontario.
í gær voru 16 nemendur niðri f
kjallara f Pittsburg, að hlusta á
kennara f launmorðafræði, þegar
um 40 lögreglumenn steyptu sjer
yfir þá, og stungu þeim inn f svart
holin eftir snarpa og sögulega við-
ureign.
27. des. Yfir nóvember fórust
142 verkamenn af slysförum hjer
í Canada.
Oddvitafjelagið f fylkinu beiðist
nú eftir endurbættri aðferð við yf-
irskoðun á sveitareikningum.
30. des. Nú liggur það í loftinu
að Bandarfkin muni til vinfengis
við Japanfta veita þeirn frfverzlun-
arrjettindi á Filippseyjunum.
1. jan. 1908. Fylkið hefir keypt
eignir BcIItelefónfjelagsins fyrir
$3.3oo,ooo, borgað með 40 ára
veðskuldabrjefum með 4°/o ' öxtum.
sem eftir núverandi peningaverði
f Vesturheimi er næstum sama
sem verðið hefði verið $3,000,000
út f hönd.
2. jan. í Fort William eru 79
dúkobórar. Tólf af þeim, 6 karl-
menn og 6 kvcnnmenn (Æsir og
Ásynjur!!), hjeldu nýársdaginn há-
tfðlegan með þvf, að ‘marsjera1
allsnaktir um götur bæjarins, svo
að nam mflu vegar áður en lög-
reglan gat stöðvað þá. Prósessfan
hafði valdið talsverðu uppnámi f
munnum manna.
Humboldt, Sask , f vatnabyggð-
unum fslenzku, á að verða ein að-
alstöð C» P. R. brautarinnar, sem
verið erað leggja til Prince Albert.
Á nýársdaginn hlupu allir vagn-
arnir f lest einni austur í Ontario,
nema gufuvagninn, út af teinun-
um, og ultu niður 35 feta brekku,
fullir af fólki. Enginn beið lffs eða
lima tjón, en 15 höfðu nokkuð
meiðst.
Ársskýrsla verkamáladeildarinn-
ar sýnir, að yfir þúsund manns
hefir misst lffið af slysförum hjer í
Canada árið 1906.
Hæstirjettur hefir nýlega fellt
dóm yfir Grand Trunk fjelaginu.
Fjelagið unir þessu svo illa, að það
ætlar að áfrýja málinu, auðvitað til
Englands. Það getur það.
Vegna rigningafrjetta frá Ar-
gentfna (sem nú hefir sumar með-
an veturinn er hjá okkur), hækkaði
verð á hveiti um 2 cent f Minnea-
polis. [Ekki gjöra menn sjer nú
almenrit grein fyrir því, hvað fjar-
læg lönd og þjóðir hafa við sín kjör
að gj<,raj.
‘Nú heyja C. P. R. og G. T.
fjelögin sameiginlegt strfð gegn
járnbrautalöggjöf þeirri, sem á að
leggja fyrir sambandsþingið1, segir
Free Press. [Engum greindum
manni dettur f hují að trúa þvf, að
stjórnin sje að herða skóinn að G.
T. fjelaginu, sem er hennar aðal-
hjálpræðishella; en mótþrói við
járnbrautafjelög er orðinn svo vin-
sæll, að heppilegt er að leika sem
bezt svona Iátalæti].
Haffloti Bandarfkjanna, sem ný-
lega er lagður af stað til Kyrrahafs-
ins, og fer suður fyrir Ameríku, á
að koma heim aftur hina Ieiðina,
þ. e. a. s. kringum hnöttinn, eftir
indverska hafinu, Suezskurðinum,
og Miðjarðarhafinu.
Nýlega fóru tveir þingmenn f
Washington f handalögmál inni í
þingsalnum, og voru búnir að
blóðga hvor annan áður en hinir
þingmcnnimir gátu skilið þá. [Það
er engin furða þótt þjóðirnar búi
við viturlega og friðstillandi iöggjöf
f svona frjálsum og siðuðum lönd-
um].
Presbyteriana, Meþódista, og
Congregationalista kyrkjurnar eru
vel á veg komnar með það hjer f
Canada, að sameina sig f eina heild.
Enska kyrkjan getur ekki veitt af-
gjörandi svar fyr en á ársþingi sfnu
að hausti. Baptistar vilja að vfsu
vera með, en setja það upp að all-
ir verði kaffærðir f skfrnarlauginni.
Án þess geta þeir ekki sálu sinnar
vegna, aðhyllst þetta bræðralag 1
sáluhjálparverki evangeliskra
rnanna. Á lútersku kyrkjuna minn-
ist enginn f þessu sambandi, frem-
ur en hún væri engin til hjer f
landi. [“Margt er manna bölið“.
Nú er það skfrnin].
Heimafrj^ttir.
W
INNBROT3ÞJÓFNAÐUR
var framinn hjer á Gimli á nýárs-
nótt. Suðurglugginn á búð þeirri j
sem Gyðingarnir verzla f syðst f
strandgötunni að austanverðu, var
brotinn upp. Allmiklu af fatnaði
og ýmsu fleiru var stolið. Ekki
eru neinar bendingar fyrir hendi
um það hver unnið hafi verk þetta.
Maður úr leynilögreglunni f Winni-
peg hefir komið hingað niðureftir,
en horfið jafn harðan til baka,
vegna þess að engin spor væri
hægt að finna, sem slóð þjófsins
vrði rakin eftir. Sennilegt þykir
að hvorki íslendingar nje jafnvel
neinir Pólverjar hafi gjört þetta.
HÁTÍÐAHÖLD
talsverð hafa verið hjer nú að und-
anföríiu. Á aðfangadagskvöld var
jólatrjessamkoma og aftansöngur f
únítarisku kyrkjunni hjer á Gimli,
og á jóladagskvöldið samskonar
samkvæmi f nýju lútersku kyrkj-
unni, sem þann dag var einnig f
fyrsta skifti messað í. Á gaml-
árskvöld var enn samkvæmi hjer f
gömlu lútersku kyrkjunni að til-
hlutun lúterska kvennfjelagsins, og
önnur áramótasamkoma f skólahús-
inu f Árnesi, að tilhlutun hinria
únítarisku kvenn^ f þvf byggðar-
lagi. Svo var árinu 1908 heilsað
með nýárs'balli1, bæði norður við
íslendingafljót og hjer suður á
Gimli, Piltaklúbburinn hjerna
stóð fyrir þvf ballinu, sem hjer
var haldið.
Loks var mannmargt prfvat-
samkvæmi haldið hjer að kvöldi
hins 3. þ. m. f Lakewievv hótelinu,
og eru þar, eins og kunnugt er,
fullkomnari skilyrði fyrir hendi, að
húsakynnum. og öðrum kringum-
stæðum, heldur en nokkurstaðar
annarstaðar f sveitinni, til þess að
láta gestunum lfða vel.
UM SVEITARMÁL
hefir enn ckki þótt varlegt að fara
mörgum orðum hjer í blaðinu. Þau
eru á ýmsan hátt svo viðkvæm, að
vandi er að stilla svo orðum að
ekki verði til tjóns. Óhætt virðist
þó að rifja nú upp uokkur spor
sem stigin hafa verið sfðastliðin
í mánuð.
Að morgni hins 3. des. hóuðu
! milli 10 og 20 fslenzkir menn sjer
j hjer saman á afvikinn stað, til þess
I að fhuga framtfðarhorfur opinberra
mála f Gimlisveit, eins og henni
er nú orðið háttað sfðan norður-
j hlutinn var f fyrra gjörður að nýrri
I s'-eit eins og kunnugt er*. Fyrst-
' * Þegar beiðni norðanmanna urp
ur allra hófst sá maður máls, sem f
fyrra var öruggastur um það, að
aldrei yrði hætt við ofrfki í íslend-
inga garð af hálfu pólskra manna.
Kannaðist hann hreinskilnislega
við, að sjer hefði manna mest glap-
ist sjónir í þessu efni fyrirfarandi
ár, og bað menn, f stað þess að á-
mæla sjer, að taka nú drengilega
saman höndum, og þiggja sfna
krafta með, til þess að afstýra, ef
kostur væri, óhöppunum, sem yfir
vofðu. Undir þetta varvel tekið.
Var mönnum þá kunnugt orðið, að
pólskir menn ætluðu sjer að hafa
þegar f stað algjör hausavíxl.þann-
igað enginn íslenzkur maður skyldi
komast f sveitarstjórnina, ekki
einu sinni f 2. kjördeild, sem
Gimliþorpið er í. Virtist öllum
við stöddum þetta svo stórt af stað
riðið, og svo þrungið af þjóðernis-
heift, að lftillar sanngirni þyrfti að
vænta þegar fram f sækti, þarsem
byrjunin var svona svarraleg.
Fannst flestum ókarlmannlegt, að
láta ginkefla sig umbrotalaust.
Varð það svo úr, að gengið skyldi
á hólm við oddvitaefni nýkomend-
anna og þrjú meðráðendaefnin.
Þótti þá ekki óhugsandi að þrjú
sæti ynnust. Engum þótti fýsi-
legt að heyja þessaorustu. og mun
það f fyrsta skifti hjer, að allirhafi
látæðislaust færst undan virðingar-
sætum mannfjelagsins. Það þótti
sjálfdæmt^ hr. Björn B. Olson að
sækja í 2. deild. Það eina sæti
var ugglaust, en sækjandinn átti
það á hættu að verða einn f Ijóna-
gryfjunni, eins og raun varð á að
lokum. Mestar lfkur þóttu fyrir
þvf, að hr. Arnljótur B. Olson
kynni eitthvað að kvarna utan úr
hinu pólska mannfjelagi f 1. deild,
og var honum þvf þar vfsað til at-
lögu. Úr 3. deild var að einseinn
gjaldandi við staddur, sjera J. P.
Sólmundsson, og var honum þvf
annaðhvort að gjöra, þar eð komið
var fast að útnefningartfmanum,
enda sá, som ákjósanlegastur þótti
fyrir oddvitaefni, hr. Jóhannes
Sigurðsson, ófús á að slást f leik-
inn, nema allur bekkurinn væri
setinn.
Sjaldan munu fslenzkir menn
hafa staðið betur hlið við hlið, eú
að þessu sinni, og þó er það fs-
lenzkra manna skuld, hvernig úr-
slitin urðu. Hjer á Gimli greiddu
f það minnsta 5 íslenzkir kjósend-
ur atkvæði á móti íslenzka odd-
vitaefninu, og 11, sem heima voru,
komu ekki á kjörstað, en í það
heila tekið vantaði að eins 11 at-
kvæði til að vinna. í I. deild
vantaði 3 atkvæði, og f 3. deild 2,
og þar greiddu líka að minnsta
kosti 5 íslénzkir kjósendur atkvæði
á móti íslendingum. Ekki var þó
trúarbragðalegur ágreiningur þess
valdandi, því þar vann lúterski
presturinn manna bezt að kosningu
hins prestsins. Flestir sáu og sjá,
að nú liggur fyrir spurningin um
það, hvort saga okkar hjer á að
vera búin. eða ekki búin, Þeir fáu,
sem missáu sig svo, að þeir báru
vopnin á fslenzkt þjóðerni, ættu að
láta sjer farast eins og Bolla forð-
um, að kasta þeim sem allra fyrst
frá sjer, enda hafa sumir þeirra
þegar gjört það.
Sjálfsbjörgunarviðleitninni hefir
nú verið bent f það horf, að biðjast
enn á ný þess, sem synjað var um
f fyrra, aðskilnað strandarinnar frá
hinum víðlendu nýbyggðum uppi
í landinu, Eftir fundarhöld f hverri
kjördeild á strdndinni, og tvfvegis
f Gimliþorpi, er nti 13 fnahna
nefnd til þess valin, að hafa skift-
ingarmálið i hðndum :
Fyrir Gimliþorp: Stefán Sig-
urðsson, Jóhannes Sigurðsson,
sjera Rtinólfur Marteinsson, og
Árni Þórðarson; fyrir nágrenni
Gimliþorpsins: Björn B. Olson
(skrifari nefndarinnar), og Jón
Pjetursson ; fyrir suðurbyggðina :
Arnljótur B. Olson, Þorvaldur
Sveinsson, og Sigurður Sigurðsson;
fyrir norðurbyggðina: Þorvaldur
Þorvaldsson, Jóhannes Magnfis-
son, og sjcra J. P, Sólmundsson ;
og oddamaður kosinn í einu hljóði
af nefndinni sjálfri: Sveinn Þor-
valdsson (formaður nefndarinnar).
í nefndinni eru þannig allir fyr-
verandi oddvitar hinnar gömlu
Gimlisveitar, nema hr. Guðni Þor-
steinsson, scm lá rúmfastur þegar
nefndin var kosin,
ítarlegar er ekki vert að segja
frá þessum málum að svo komnu.
þá sveit var veitt, þávarbeiðni
þeirra sunnanmanna, sem á
ströndinni búa, synjað. Sú
beiðni var þess efnis, að fá
hinni gömlu Gimlisveit sundr-
að f þrennt, svo hinir eldri inn-
byggjendur suður með vatninu
gætu framvegis fengið að vera
sjálfum sjer ráðandi, en yrðu
ekki yfirþyrmdir af nýkomnum
mönnum.sein ótal orsaka vegna
var sýnilegt að yrðu um langan
aldur óhentuglega valdir stall-
bræður þeirra, sém fyrir voru
og mest höfðu sveizt og þreyzt
á landnámsárunum.
TVEIR GRIPIR
tvævetrir, uxi og kvlga, hafa tap-
ast, Uxinn alrauður, en kvígan
| rauðskjöldótt, Finnandi beðmn
að gjöra mjer aðvart,
JÓN JÓNASSON.
Árnes P. O., Man,
TAPAST
1 hefir haglabyssa, tvfhleypt, á leið-
i inni frá B. B. Olson norðurað járn-
brautarstöðinni á Gimli. Finnandi
| beðinn að skila henni til S t e f á n s
j Eldjárnssonar á Gimli pósthúsinu,
;gegn borgun.