Baldur - 20.04.1908, Síða 1
j rfgg jyffg Ffff¥ Fgffg iW? 'r¥¥9VW VWiHtVfftt !kWi gWggFgy 8Wt tfl
STEFNA:
Að efla hreinskilni og eyða
hræsni í hvaða máli, sem fyrir
kemar, án tillits til sjerstakra |j
flokka.
H'ffi'ÆB-ðHSíSíffiHSHfSíSfSíSSSHSSBJfíHflSiMfíSHMiS
BALDUR.
| AÐFERÐ:
P Að tala opinskátt og vöflu-
|| lauet, eins og hæfir því fólki
18 senu er af uorrœnu bergi
i| brotið.
VI. ÁR.
GIMLI, MANITOBA, 20. APRÍL iqo8.
Nr. 4.
Gjörðu þetta, gjörðu hitt,
gáttu’ að verki, maður.
Með þvf færðu stundir stytt.
Starf! en ekki þvaður.
10-16-19
C§C&3 C&K&3 cSl C&3 C&3 C&g]
t§ FRJETTIR. g>
4. apríl fdr fyrsta lestin yfir
járnbrautarbrú G. T. P. fjelagsins
hjá Saskatoon. [íslendingurinn
Þorsteinn S, Borgfjörð, frá Winni-
peg, hefir verið yfirmaður þessarar
brúarbyggingar].
6. aprfl lætur ‘Frec Press1 þess
getið, að kjörskrárnar hjer í Mani-
toba sje mesta óhræSi. Vel að
merkja, sambandsstjórnin er að
hugsa um að brjóta sfn eigin lög á
Manitobamönnum, og láta fara að
búa til aðrar skrár heldur en þær
sem fylkismenn hafa sjálfir búið til,
áður en sambandskosningarnar
ganga í garð. Tribune getur ekki
orða bundist, og telur það vafa-
samt, að nokkrar kjörskrár f Cana-
da hafi verið bctri en núverandi
kjörskrár Manitobafylkis. [Látum
það ódæmt hvort þær eru beztar
eða ekki be?.tar. Það eru einka-
rjettindi fylkjanna, lögbundin frá
sambandsstjórnarinnar eigin hendi,
að þau hafi sjálf umsjón á sínum
kjörskrám. Fari hún svo að gjöra
upp á milli fylkjanna, eiga fylkis-
menn að venja hana af þvf; —
sýna henni sama viðmót eins og
Gimlimenn sýna fylkisstjórninni
sinni, þegar hún er að gjöra upp á
milli kjördæma].
7. aprfl er þess getið að þúsund
vinnumenn vanti til uppfyllingar á
þörfum bænda í þessu fylki. [Þetta
getur verið villandi, þvf ekki er
svo að skilja að ekki sje nóg til af
vinnulausum mönnum f fylkinu,
þótt þcssi skörð kunni að vcra ó-
fyllt úti f sveitum. Blöðin geta
þess daglega, hver urmull sje af
vinnulausum mönnum í Winnipeg,
og hvað margt af þeim dreifi nú
úr sjer með hverri lest, sem út úr
borginni er að fara.
INNFLUTNINGATÁLIÐ
virðist helzt vera óviðráðanleg á-
strfða hjerlendra blaðamanna,
nema þeirra sem standa að verka-
mannablöðunum. Þeir vita hvað
skórinn kreppir fast].
— Núeru japanskir innflytjend-
ur að ryðjast inn f Suður- Ameríku,
svo þúsundum skiftir. [Skelfilegur
sulldallur er öll Ameríka að verðaj,
— í dag er þess getið úr skýrsl-
um, að verzlunarhrun í Vestur-
Canada sje óðum að fara í vöxt.
[Það kemur af þvf, að alþýðan get-
ur ekki borgað skuldir sfnar til
smásalanna, og svo kremja þeir
sterkari lífið úr þeim; tapa þó
stórfje sjálfir, af þvf þrotabúin
hrökkva ekki upp í skuldirnar, og
fá svo að kenna á hinu sama af
þeim, sem eru þeim aftur sterkari],
— Það hefir núna f Ottawaþing-
inu í vetur goppast upp úr Lauri-
er ástæðan fyrir vináttulátum Breta
við Japanfta. Það sem fyrir Bret-
um á að hafa vakað árið 1902, var
hætta, sú sem þeim gæti verið bú-
in af árás á vesturströnd Canada-
veldis, svo þeim væri ckki Iftils-
vert að eiga japanska flotann á
vaðbergi fyrir sfna hönd á Kyrra-
hafinu, þar sem þcir hafa svo lftil
hergögn sjálfir. Bandamenn hafa
tekið þetta óstinnt upp; þykjast
vera grunaðir um græzku, hvað
mikið; sem Ifberalblöðin hjer reyna
að berja það niður, enda virðist
ekki nema um tvo hugsanlega ó-
vini að ræða við vesturströndina,
Bandamenn eða Japaníta sjálfa,
og þá er ekki hægt þvf að leyna,
hverjum betur hefir verið trúað til
mótstöðu við hinn.
8. aprfl. Vfnsölubannslög, sem
borin hafa verið undir atkvæða-
greiðslu kjósendanna f ýmsam
sýslum Illinois og Michigan-ríkj-
anna, hafa verið staðfest með meiri
hluta. Illinois : — Atkvæði greidd
f 20 sýslum. Alstaðar samþykkt.
Lokað 1500 vínsöluhúsum. Vinn-
ingur vfnsölumanna, — enginn
neinstaðar. Michigan: — At-
kvæði greidd f 14 sýslum. Sam-
þykkt f 10. I einu þeirra er meiri
hlutinn ekki nema 72, og verður
talið upp. Standi meiri hlutinn,
falla I. maf, f þeirri einu sýslu, S3
vínsöluhús og 1 bruggunarhús.
— Búist er við fylkiskosningum
f Quebecfylki um miðjan næsta
mánuð.
— I tollmálaumræðum í sam-
bandsþinginu var minnst á sfgar-
ettur. Ekki vildi Lauricr leggja
neina tollhindrun í veg þeirrar
varningstegundar, en mótfallinn
var hann reykingu þeirra.
HANN VILL LÁTA HÝÐA
unglingatil þessað hætta að reykja
þessa vöru, en .... tóbakssalana
er óheppilegt að móðga. [Áður
höfum við þekkt ‘frjálslynda1, sem
vildu hýða. Nú sjest að allt er
sami húðstroku-átrúnaðurinn, allt
upp f — þann kaþólska].
— Fjármálaráðgjafinn f Ontario
hefir tilkynnt að stjórnin þar hafi
veitt C. N. R. fjelaginu $20,000 á
míluna á 50 mflna kafla þar í fylk-
inu, með sama hætti eins og fje-
laginu hafa að undanförnu verið
veitt samskonar hlunnindi hjer í
Manitoba. [Það kcmst furðanlega
á spenann, þar sem conservativar
ráða, en svo er nú þetta ekki nema
ein einasta milljón. Og þó gat
einn conservativ í þinginu verið
svo hótfyndinn að setja sig upp á
móti þessu].
11. aprfl er þess getið að Winni-
pegmönnum hafi verið lofað að sjá,
hvernig farið er að drepa þá hunda
sem þar eru teknir fastir fyrir að
vera á flækingi. Auðvitað stafar
þetta af þvf, að einn presturinn f
borginni Ijet það f ljósi fyrir
skömmu í prjedikun, að drápsað-
ferðin á þessum kvikindum þar í
borginni væri glöggt dæmi í sam-
bandi við ræðuefai hans, sem var
um illa meðferð á skepnum. Prest-
ur þcssi og aðrir fleiri þáðu tilboð
um að vera viðstaddir og horfa
upp á handaþvott hlutaðeigenda,
■en vitaskuld hafði hann aldrei efast
um að mögulegt væri að veita flæk-
ingshundum kvalalausan bana, eins
og öðrum skepnum. Fyrst um
sinn cr vafalaust að hundagreyin
njóta þess, að þeirra var minnst
“af stólnum“.
— í dag sýna skýrslur,- að lífsá-
byrgðum í fylkinu fjölgar, en elds-
ábyrgðum fækkar, og járnbraiita-
tekjur f ríkinu í heild sinni minnka.
[Allt sannindamerki um virkilega
ástandið : fyrirkvíði einstaklings-
ins fyrir áhangendum sfnum þegar
sfn missi við, jafnframt fjárskorti
til að uppfylla yfirstandandi þarfir
eða tryggja sjálfan sig gegn fjár-
tjóni í lifanda lffi].
— Hver líflátsdómurinn eltirnú
annan í Mið-Amerfku-ríkinu Ni-
caragua, yfir höfuð þeirra, sem
sakaðir eru þar um pólitisk svik-
ráð.
12. aprfl (Pálmasunnudag) eyði-
lagðist bærinn Chelsea, skammt
frá Boston, í eldgangi, sem óð þar
yfir f stormi, sem hafði fram und-
ir 60 mflna hraða á klukkustund.
Ekkcrt er talið þar nýtilegt eftir f
rústunum nema peningarnir f járn-
skápum verzlunarhúsanna. Aðeins
2 konur misstu lffið, en um 50
manns meiddust, sumt til óbóta.
Þar urðu 150,000 fólks húsvilt-
ar. Meðal annars, sem brann,
var bæjarráðhúsið, bókasafnið, tvö
sjúkrahús, fimm bankar, fimm
skólar, þrettán kyrkjur, og mörg
verkstæði auk annara húsa ; — alls
talið f það minnsta ómilljóna tjón.
— Sama daginn völdu Galisfu-
menn heima á æt.jörð sinni
til þess að myrða fylkisstjóra sinn.
Sendineftid bænda og skólapilta
gekk til fundar við hann, og hjelt
cinn þeirra á samanvöfðu skjali,
sem lífverðina grunaði ekki að væri
annað en bænarskrá. Málsflytj-
andinn, sem er sonur nafnkcnnds
prests í Galisfu, virtirt ætla að
rjetta fram skjalið, en hleypti um
leið þremur skotum af skamm-
byssu, sem innan í þvf var fólgin,
og urðu þau fylkisstjóranum að
bana. Enga mótspyrnu veitti
þessi skólapiltur þvf, að verahand-
tekinn ; sagðist að eins hafa álitið
það skylduverk, að ljetta einhvern
veginn af bændalýðnum því oki,
sem yfirmaður þessi hefði á hann
lagt.
13. aprfl er “Free Press“ að
nudda um kjörlista svik, sem hafi
valdið þvf, að Campbell dómsmála-
ráðgjafi náði kosningu sfðast.
[Samt er liberalflokkurinn allra-
bróðurlegast hættur við alla mál-
sókn út af kosningu þessa manns,
eftir að búið var þó að hefja hana.
•Þessi belgingur er allur til þess
ætlaður, að viðhalda eldinum f fá-
fróðum kjósendum út um fylkið,
— ekkert annað].
—- G, T. P. fjelagið er, svosem
kunnugt er, brjóstmylkingur liber-
alflokksins, enda keppist nú “Free
Press“ við að tína upp frjettir þvf
til sönnunar, að hinar óskaplegu
slysfarir, sem allt af eru að verða
við hina miklu brautarbyggingu,
sje allar gáleysi verkamannanna að
kenna. Það er svo sem ekki hætt
við fyrirhyggjuskorti hjáþeim, sem
yfir þessum fáráðlingum eiga að
segja ! “Telegram“ byrjaði á að
leiða athygli að þessu, og þvf er
þetta nú orðið að flokksmáli. Hefði
það verið á C. N. R., þá hefði
“Free Press“ auðvitað byrjað, og
“Telegram“ snapað saman varnar-
gögnin.
15. apríl berast frjettir um mikla
og skaðvæna sljettuelda, bæði vest-
an úr Saskatchewan og Alberta.
Bæði kornhlöður og önnur húsa-
kynni hafa brunnið, auk mikils af
heyi.
16. aprfl frjettist það, að búið
sje að leysa upp fylkisþingið í On-
tario, en ekki sagðist Whitney
stjórnarformaður geta sagt mönm
um afdráttarlaust hvenær gengið
yrði til kosiiinga, yrði máske fyrir
miðjan júnf, en gæti lfka dregist
til hausts.
17. aprfl frjettist það hingað
norður að 7 menn hafi farist í
sljettueldi suður f Dakota. Ekki þó
f nágrenni við fslen?ku byggðirnar.
— National Life Assurance fje-
lagið hjer f Canada ætlar að taka
upp á sig að halda áfram að hafa
þá menn f lífsábyrgð, sem hjer í
landi hafa að undanförnu verið f á-
byrgð hjá Mutual Reserve fjelag-
inu, sem nýlega er hrunið um koll.
Þeir sem hafa staðið í skilum eru
þvf jafn óhultirmeð ábyrgðir sínar
eftir og áður.
— Geigvænlegasta vinnustrfð,
sem sjest hefirí Canada, virðistnú
f vændum. C. P. R. fjelagið seg-
ir opinskátt frá þvf, að það ætli að
fyrrabragði að leggja til orustu við
alla sína þjóna 1. maf ; —— segist
ákveðið 1 að brjóta á bak aftur all-
an verkamanna fjplagsskap, sem
sjer við komi.
Gimlimenn í Winnipeg!
Föstudagskvöldið, 10. þ. m.,
hjelt “Winnipeg Beach CIub“
fund í Winnipeg, til þess að búa
sig undir sumarið.
W. Whyte var kosinn heiðurs-
forseti, en J. G. Dagg forseti.
Óánægja kom f Ijós f garð St.
Andrews-sveitarinnar fyrir matið
á sumarbústöðum fjelagsmanria, og
voru þeir, Dagg, Smith, og Wal-
ker settir f nefnd til að finnasveit-
arstjórnina að máli. Einnig voru
þeir, S. P. Ritchie og C. G. Cru-
ikshanks tilnefndir til þess að hafa
tal af Gimlisveitarstjórninni, og
má vænta að umtalsefnið sje hið
saraa, þótt það sje ekki tekið
fram.
Tvær aðrar nefndirvoru skipað-
ar: — í aðra fjelagsforsetinn með
tvo menn með sjer, til þess að
semja um flutningskjdr fjelags-
manna við C, P. R- fjelagið; f
hina forsetinn með fjórum öðrum,
til þess að vinna að því við sam-
bandsstjórnina og C. P. R. fjelag-
ið, að hafnarbætur yrðu gjörðar
sem fyrst.
Nú, nú. “Gimlimenn í Winni-
peg‘ ! þ. e. a. s. Winnipegbúar,
sem eigið eignir og greiðið skatt
hjer á Girr.li. Ekkert gætuð þið
drengilegra lið vcitt þessum litla
bæ okkar hjerna heldur en það, að
mynda svona klúbb og berast á,
rjett á borð við hina, eins og full-
komnir jafnokar. 1 svoleiðis klúbb
ættuð þið til drengi, sem kynnu að
slaga dálítið upp eftir þeim, þess-
um hinum, ef vel væri á haldið.
Bryggjan er hjer til, og náttúru-
skilyrðin á landi öll okkur í hag, í
hvaða samkeppni sem er við
Beach,
Pine Valley, 23, marz ‘08.
. ,, , Hjeðan úr byggðinni er
ekkett nýtt að segja í frjettum,
nema mislingar hafa verið að týna
þá upp, sem ekki hafa fengið þá
áður, en enginn hefir dáið úr þeim
ennþá...
GOTT HÚS
á góðum stað f GIMLIBÆ
TIL LEIGU EÐA SOLU.
Eigandann er að finna í prer.t-
smiðju Baldurs.