Birkibeinar - 01.02.1913, Blaðsíða 1

Birkibeinar - 01.02.1913, Blaðsíða 1
I. Inngangur. „Island er öðrum löndum fremr háð verzlun «inni við erlendar þjóðir. Landið er bæði afskekt og náttúra ])ess öðrum löndum frábrugðin. Að vísu gefr landið af sér fémæt gæði, langt fram yfir þörf landsmanna sjálfra, en þó þessi gæði sé að vöxtum ríkuleg, þá er tegund þeirra og tala bæði fáskrúðug •og fábreytileg og vantar landið tugum saman þau gæði, sem landsmenn geta tæplega eða alls ekki án iifað. Landsmenn vei’ða því að skifta þvi sem þeim -verðr afgangs af fiski, lýsi ull og kjöti, og kaupa sér fyrir það nærri alt annað, sem þarf lil tifsforða -eðr nautnar. Island stendr því öðruvís að en önnur lönd, þar sem náttúran teiðir af sér fleiri gæði> filutar sitt af hverju, minna, enn jafnara. Yerzlunarsaga Islands er þvi landssaga þess, í fám löndum hata umskipti á verzlunarhag dregið æftir sér slíkan slóða sem á íslandi, og ráðið slíku um hag og heill lands og lýðs.“ (Ný félagsrit, XXII ár, bls. 100)- Svo fara Konráði Maurer orð, og fer hann ef- ilaust með rétt mál. Væri því full þörf fyrir lands- imenn að þekkja verzlunarsögu landsins, en því er miður, að hún hefir eigi verið rannsökuð ennþá til neinnar hlítar, og liggur því eigi á harðbergi sú kunn- átta. Nú höfum vér Islendingar, góðu heilli, sett á stofn innlendan háskóla, og er þvi von á að bráðum rætist úr til batnaðar um þetta mál. En þótt rannsókn á þessum efnum sé eigi lengra komið en nú var sagt, þá er þó alkunna, hver leiks- lokin urðu, að vér komumst í hina verstu verzlunar- ánauð og urðum fullkomnir hlutræningjar í nálega öllum hlutum. Þar af leiddi örbirgð og eymd og mannfall, svo að nærri stappaði fullum þjóðardauða. Oss væri nauðsyn á að vita, hverjar orsakir lágu til þess að svo fór, til þess að vér gerum eigi hin söniu glapræði sem forfeður vorir. Þessar orsakir hafa verið margar og margbreyttar, og munu verða leiddar í ljós við nánari rannsókn, en fram hefir farið hingað til, sem fyr var sagt. Hér verður drepið á eina orsökina, þá er án alls efa hefir verið ríkust og aífaramest. Má með sanni heimfæra áður töld um- mæli Konráðs Maurers upp á hana, og setja verzlun fyrir land en skipakost fyrir verzlun. Því að svo er um öll eylönd að vitni veraldarsögunnar, að saga skipakostsins er saga verzlunarinnar. Og þar sem svo er háttað sem hér á landi, að verzlunarsagan er landssaga, þá er saga skipastólsins saga landsins. Eigi eru hér tök á að rannsaka það mál til neinnar hlítar, en talin munu verða nokkur höfuðatriði og sýnt um leið, hverjar urðu afleiðingar þeirra. Að því búnu mun verða sýnt fram á, hverja lærdóma vér hljótum að draga þar af og til hverra framkvæmda þeir benda oss. 11. Skipakostur landnámsmanna. Noregur teygir sig alla leið norðan úr Dumbs- hafi og suður undir Jótlandsskaga, en er að því skapi mjór sem hann er langur. Yiða eru þar fjöll og ó- færur inn i landið og alstaðar torsóttir landvegir, þar sem iðjandi mannshöndin hefir eigi fjallað um. En

x

Birkibeinar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birkibeinar
https://timarit.is/publication/166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.