Breiðablik - 01.04.1909, Qupperneq 2

Breiðablik - 01.04.1909, Qupperneq 2
B R E I Ð A B L I K SJÁLFHÆÐNI SIÐMENNINGARINNAR. AGURT var fyrsta skeytið, er sent var yfir Atlantshaf með sæsímanum, er því mikla verki var lok- ið að leggja hann á hafsbotni landa á milli: Dýrð sé í upphæðum guði og- á jörðu friður meðal manna, sem velþóknan er á. Fögur var sú hugfsan, hver sem hana átti, að láta þetta vera fyrstu boðin, er þetta furðuleg'a tæki nú- tímans flytti yfir hafið. Trú og siðmenning haldast í hendur. Svo ætti það ávalt áð vera. Langt sýnist friðarhugmyndin enn eiga í land með þjóðunum. Viðburðir síðustu vikna með vold- ugustu menningarþjóð heimsins hafa sannfært þá um það, sem einhverjar aðrar vonir kunna að hafa haft. Vígahugur óskaplegur hefir alt í einu gosið upp á Eng- landi, án nokkurrar verulegrar ástæðu. Stjórnmálamönnum þar tekst að æsa svo upp hugi manna á þingi, að menn verða frá sér, út af þeirri óskaplegu hættu, sem vofi yfir brezku landi oglýð, vegna þess að Þýzkaland verði búið að koma sér upp bryndrekum, nærri því jafnmörgum og England, að nokkurum árum liðnum. Og sú hræðilega tilhugsan flýg- ur út um alt land og allar hrezkar nýlendur og kveikir í hugum manna eins og eldur í sinu; nái slík fádæmi fram að ganga, sé alt í voða, brezk yfirráð eða þjóðafor- ysta í Norðurálfu, brezk menning — og með henni vitaskuld alt, er bezt sé í heimi. Nýlendurnar verða upp til handa og fóta. Lofa sínum bryndrekan- um hver, ættjörðinni að gjöf, svo Þjóverjinn skuli ekki hugsa, að hann komist nokkuru sinni fram úr. Alt þetta veður verður í lofti, til þess fjárveiting til herflota- aukningar fáist nógu rífleg á þingi, svo hugmyndum herforingja og stjórnmálamanna sé fullnægt. Nú er eigi Englendingum nógaðvera langt á undan mesta stórveldinu einu. Þeir vilja vera langt á und- an tveimur þeim stærstu, ef til kæmi, svo þeir gæti barið á bæði Þjóðverjum og Bandaríkjamönn- um í einu, ef á þyrfti að halda. Þetta bryndreka og drápsvéla kapp með kristnum þjóðum er annars bæði hlægilegt og grát- legt. Hve lengi getur það haldist? Hve nær verður sagt: hingað og ekki lengra? Englendingar hófu leikinn og hleyptu fyrsta bryn- tröllinu (dreadnaught) af hlunn- um. Svo komu Þjóðverjar, Banda- menn og Japanar á eftir. Nú

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.