Breiðablik - 01.04.1909, Qupperneq 16
176
BREIÐABLIK
kenningum sínum, gefist upp sjálfkrafa
er æskilegra, hu'gsaði hann nieð sér,
heldur en trúvilling'brenna, sem er
síðustu úrræðin, og- sjaldan er gripið til
af helztu mönnum kirkjunnar. Hann
kallar þjón sinn upp á loftsvalir ráðhúss-
ins, þar sem hann situr, klæddur rauðri
skikkju, og biður hann að segja söku-
dólgnum, að honum og fjölskyldu hans
og jafnvel þorpinu, þar sem hann átti
heima, skuli sýnd hin mesta líknsemd,
svo framarlega setn hann láti nú undan.
En þessi krossberi kvalanna veitir slíkum
freistingarboðskap áheyrn með fyrirlitn-
ingu.
Þá bilar þolinmæði trúvilludómstjórans
og í bræðiskasti, sem yfir hann kemur,
skipar hann böðlinum að höggva af
vinstri hönd trúvillingsins. En trúvill-
ingurinn réttir fram hægri höndina og
biður hann að höggva hana líka. Því
meiri kvöl, því ákafari písl, þeim mun
hærri verða óp hans og þeim mun lengra
berst röddin. Hún heyrist yfir völlinn,
eftir strætunum,borast gegn um húsvegg-
ina og ómar jafnvel utan borgarhliða.
Svitinn stendur í pollum á enni kardíná-
lans. Honum hefir verið falið að útvega
afneitan, játningu, afturköllun. Svívirð-
ing finst honum nú bíða sín og föðursins
helga, og kardínálaráðsins alls.
,,Hvað veitir honum þenna yfirnáttúr-
lega mátt ?“ spurði hann sjálfan sig og
þá, sem voru kring um hann. En engutn
hugkvæmist nokkur skýring. Hingað
til höfðu pyndingarnar komið öllum til að
gefast upp.
Þá gekk hirðfíflið fram — það fylgdi
hinum háæruverðuga m anni, jafnvel á
ferðum hans— og biður leyfis, að fá að
mæla nokkur orð.
,,Tala þú!“, sagði trúvilludómstjórinn.
,,Látið munnkefli upp í hann !“ Svo
hljóðaði ráð fíflsins. ,,Óp hans draga úr
sársaukanum, en sársaukinn tvöfaldast,
ef komið er í veg fyrir ópin. “
,,Það er fíflslegt ráð !“ sagði trúvillu-
dómstjórinn. ,,Hvernig geturhann játað
villu vegar síns og afneitað rangri trú, ef
við troðum munn hans fullan ?“
,,Þögn er samþykki !“
,.Þú spaka fífl ! Þú djúpvitri rænuleys-
ingi“ hrópar trúvilludómstjórinn af fögn-
uði.
Þegar í stað hýður hatin böðlinum að
breyta eftir bendingu fíflsins. Kefli er
troðið í mutin sökudólgsins og bundið
aftur um hálsinn og þegar þeir hengja
hann upp um bitann Og festa blýpundar-
ana við fætur honum, heyrist ekkert til
hans. Og þegar þeir setja hann í gadda-
stólinn, kemur honum ekkert hljóð yfir
varir, jafnvel eigi, þegar þeir klípa hann
glóðheitum töngum.
En þegar fólkið heyrir eigi lengur óp
hans, fer það sjálft að æpa. Vellir og
stræti, húsþök og gluggar gefa frá sér
sama volduga bergmálið :
,,Neita þú ekki ! Játa þú ekki !
Gefst ekki upp !“
Og hann gafst ekki upp. Því þó mað-
urinn gæti eigi lengur borið fram mót-
mæli sín hárri röddu,linuðust kvalirhans,
og hugrekki var blásið í hjarta hans með
ópunum, sem hann heyrði frá öðrum.
Og hatin barst af, unz hann hneig
dauðttr í faðm kvölurum sínum.
En í sama bili heyrðist nýtt óp frá
völlunum, frá strætunum, húsþökunum
og gluggunum :
,,Hann afneitaði ekki ! Hann játaði
ekki ! Hann gafst ekki upp !‘ ‘
Trúvilludómstjórinn varð óður og reitti
af sér hárið.
En fíflið hló með sjálfu sér í kyrrþey.
Það var ráðið, setn því hafði hugkvæmst,
ráðið, sem kom öllum mannfjöldanum til
að æpa, þegar þessum eina manni var
þrýst til þagnar.
LEIDRÉTTING.
I listanum í Brbl. síðast yfir nemendur við
Wesley College, sem innritast hafa þar síðast-
liðið ár, vantar eitt nafn: Matthildur J. Krist-
jánsson, sem er í síðara bekk undirbúning'sdeild-
ar. Sigrún S. Helgason er talin í fyrsta bekk,
en er í síðara bekk undirbúningsdeildar, og Óla-
fía Jónsson, sem talin er í þeim bekk, er í fyrsta
ári College-deildar.
BREIDABLI K
Mánaðarrit til stuðnings íslenzkri menning:.
Fridrik J. Bergmann
ritstjóri.
Heimili: 259 Spence St., Winnipeg, Canada.
_ Telephone 6345.
Utgefendur:
Breidablik Publishing Co.,
M. Markússon, ráðsmaður.
605 Mclntyre Block, - Winnipeg, Canada.
Verð : Hver árg-. 1 doll., á Islandi 4 kr.
Hvert eintak 10 cts.
Borgist fyrirfram.
Prentsmidja Ólafs S. Thorgeirssonar
678 Sherbrooke St., Winnipeg