Breiðablik - 01.08.1913, Síða 3

Breiðablik - 01.08.1913, Síða 3
BREIÐABLIK 35 á aö vera, — ef stóra Kanada verður þessu litla Kanada samferða, — þá verð- ur fólkið orðið margt, frarr.kvæmdirnar miklar, sagan göfug, bókmentirnar glæsi- legar, þjóðernismerkin glögg,— þá efast enginn maður um að Kanada er þjóð, glæsileg þóð, sem leyst hefir ætlunar- verk sitt vel af hendi og lagt fram sinn skerf til alheimsframfaranna. En hér í bygðinni voruð það þið, sem lögðuð grundvöllinn til þúsundárablóm- ans. Þá verður huganum rent til baka og spurt: ,,Hverir voru það, sem hér unnu fyrstu handtökin? Hverir ruddu landið? Hverir hrópuðu fyrst til ux- anna, sem drógu arðurinn? H\erir iögðu fyrstu brautirnar um landið? Hverir gróðursettu fyrstu trjágarðana kring um húsin sín? Hverir reistu fyrstu skólana? Hverir stofnuðu söfnuði fyrstir í landinu? Hver andleg áhugamál voru þá efst á baugi? Um alt þetta verður spurt. Því það liggur í eðli mannsand- ans að vera stöðugt að grafast fyrir ræt- urnar. Og svarið verður vi‘asktild: Það voru synir víkinganna gömlu norðan úr höfum. Þegar þeir höfðu lifað þúsund ára sögu á Fjallkonu-Iandinu norður við heimskautabauginn og gert þann sögu- lausa stað að sannkölluðu sögulandi, — tóku nokkurir þeirra sig upp af nýju og breyttu þessarri sögulausu ogtilbreytinga- litlu sléttu í þetca mikla söguland, sem það nú er orðið. Pá verða drápur ortar og skáldsögur ritnar um íslenzka menn og konur,sem grundvöllinn lögðutilmenn- ingar og velferðar bygðarinnar. Þér eruð að lifa mannkynssögu. Þér eruð að skapa riýjan heim. Þér eruð að reisa sjálfstætt Kanada- Þér eruð að skapa nýja þjóð. Þér eruð að leggja grundvöllinn til glæsilegrar menningar á komandi öldum. Það gjörist ekki með hernaði og blóð- ugum bardögum. Þeir tímar eru liðnir. Það gjörist ekki með bryndrekunum, sem verið hefir svo tíðrætt um hér í Kanada. Kanada verður aldrei sjálfstæð þjóð fyrir bryndryka og drápsvélar, hvort sem þeir gefa þá öðrum eða eiga sjálfir. Slíkt er barnalegur hugarburður. En Kanada verður sjálfstæð þjóð með því aðtaka vel- ferðarhugmyndir mannkynsins að sér. Kanada veiður sjálfstæð þjóð með því að gera það sem í hennar valdi slendur til þess að þjóðirnar hætti að hervæðast og alþjóðafriðurinn renni upp. Kanada verður sjálfstæð þjóð eftir því hvað ant þaö lætur sér um mannréttindin. Hagur engis manns og engrar stéttar má vera fyrir borð borinn. Mannfélagið má eigi eiga nein olnbogabörn. Almennur atkvæðisréttur verður að komast á, þar sem allir, konur jafnt sem karlar, greiða eitt atkvæði um almenningsmál, og eng- inn nema eitt. Hví ekki konurnar líka? Hverir taka sér nær um velferðarmálin en þær? Hví skyldi helmingur mann- kynsins segja við hinn helminginn: Eg á öllu að ráða og þú engu? Nei. Mann- réttindin verður Kanada að taka að sér og vermda og gefa öllum jafnt, ef hún á að verða sjálfstæð þjóð. Kanada verður sjálfstæð þjóð eftir því hvað hún verður mentuð þjóð. Þekking- una verður hún að elska. Þekkingar- leysið verður hún að reka úr landi. Skóla- skyldan verður að vera almenn og skól- arnir betri og fullkomnari með líðandi árum. í þessu sólríka landi máenginn Ijósfælinn maður búa. Kanada verður að vera ljóselsk þjóð, ef hún á að vera sjálfstæð þjóð. Fullkomnustu þekking hverrar aldar á öllum svæðum verður hún að láta leiða sig í öllum efnum. Á þann einn hátt starfar hún að síduhjálp sii.n með ótta og andvara. Þekkingatleysið er þjóðarsmán og sjálfstæðishamla, Kanada verður að vera siðrakin þjóð, til þess að geta orðið sjálfstæð þjóð. Góð- ir siðir eru undirrót allrar þjóðmenningar. Kanada verður að vera djörf og einbeitt til að taka í tauma og fjarlægja alt, sem góðum siðum er til niðurdreps. í insta

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.