Breiðablik - 01.08.1913, Qupperneq 4
BREIDABLIK
36
eðli er menningin fólgin í góðum sið-
um. Hún er sfömennitig. Engin sið-
lítil þjóð getur verið menningarþjóð.
En eftir því sem siðirnir eru á hærra
stigi og siðferðið betra, verður menn-
ingin meiri. Siðferðishugsjónirnar eru
mannanna æðstu hugsjónir. Að vera
þeim trúr er þjóðargæfa. Að svíkja þær
er hamingjurán og auðnuleysi.
Kanada verður að vera trúrœkin þjóð.
Því trúin er andans sjón inn í hugsjón-
anna heim. Trúlaus þjóð er blind þjóð.
Blind þjóð er ósjálfstæð þjóð. Hún vel-
ur sér blinda leiðtoga og þeir leiða út í
gryfju, þar sem allir Iiggia flatir. í einu
er Kanada þegar á undan öðrum; það
stendur í sambandi við trúræknina og
er um leið menningarmál í fyrstu röð. Hér
eru kirkjudeildir, sem verið hafa skildar
og skiftar og hver að toga í sína átt, nú
að sameinast. Það er eitt af hinum miklu
velferðarmálum mannkynsins. Allir ætti
að vera eitt, sem leggja vilja rækt við
trú og siðgæði og verja lífi sínu vel. Það
er hinn sameiginlegi nefnari, sem allar
tölur trúarinnar ganga upp í.
Skoðið bygðina ykkar sem Kanada í
smáum stíl. Látið alt það þróast í bygð-
inni, sem yður finst þjóðarprýði og þjóð-
arsómi.
Elskið öll velferðarmál mannkynsins
og láfið þau vera yðar velferðarmál. Elsk-
ið mannréttindin. Farið vel með þau
sjálfir og kennið öðrum. Auðgist ekki á
annarra kostnað. En verðið auðugir
með því að auðga aðra, einkum þá sem
minst hafa. Verið ljóselskir menn. Lát-
ið sólskin vera eins bjart í hugum yðar
og hugum annarra í kring um yður og
það er í náttúrunni. Aflið yður fylstu
þekkingar í hverjum hlut og látið hana
ráða, en gerið þekkingarleysið sveitarút-
laga; gerið það landrækt. Verið siðrækn-
ir menn. Rekið yður af höndum alt sem
verður góðum siðum til niðurdreps.
Verið trúræknir menn.
Á þenna hátt tekst yður að skapa
nýjan heim, nýtt söguland, sjálfstpett
Kanada, ekki með herskipum og bryn-
drykum, heldur með hinu kyrrláta starfi
þeirra rnanna, sem stöðugt eru að breyta
heiminum sem er, í heim eins og hann á
að vera.
Lengi lifi Kanada!
BIBLÍAN, INNBLÁSIN OG ÓSKEIKUL.
Erindi flutt aS Mountain 22. júní 1913
Eftir Magnús Jónsson.
(NiBurl.).
Höfuð sönnunargagnið gegn bókstafs-
innblásturskenningunni liggur þó í því,
að samkvæmt henni verður biblían að
vera óskeikul í öllum atriðum, en sé nokk-
urn hlut á þessari jörð hægt að fullyrða,
þá er hægt að fullyrða það, að það sé hún
ekki, og hafi aldrei þózt vera það né
gert kröfu til þess að vera það. Nægir
að benda hér að eins á einstaka atriði
þessu til stuðnings.
Fyrst mætti benda á mótsagnirnar
innan biblíunnar sjálfrar, þessar mót-
sagnir, sem svo mikið hefir verið talað
um af ónytjuorðum, og svo margir hafa
hneykslast á. Og óhætt er að skrifa all-
an þorra þeirra hneykslana á syndareikn-
ing innblásturskenningarinnar umræddu.
Þessar mótsagnir eru svo ótvíræðar, að
ekkert er hægt á móti þeim að segja ann-
að en neita þeim, segja blákalt nei og
færa engar frekari ástæður fyrir. En þeir
dagar eru nú vonandi taldir að slik að-
ferð haldist uppi. Eg vil neftia að eins
örfá dæmi, af handahófi. I Post. 7,16
er ruglað saman kaupum Abrahams á
Makpelahelli af Efron Hetitai) og því er
Jakob keypti Iandspilduna hjá Sikem af
sonum Hemors.2) I fyrstu Kor. 10,8
eru þeir, sem dóu í plágunni nefndir
23000, en í 4 Mós. 25,9, sem vitnað er í,
stendur, að þeir hafi verið 24000; Mark-
1) Mós. 23,8-9.
2) Mós. 33,19.