Breiðablik - 01.08.1913, Blaðsíða 9

Breiðablik - 01.08.1913, Blaðsíða 9
BREIÐABLIK 41 á frásögnunum hafa menn alla tíma getað lesið þessa óslitnu sögfu af hjálpræöis- ráðstöfunum g'uös út af henni. Þrát': fyrir alt þaö.sem rannsóknirnar hafa leitt í ljós, höfum viö alt af og munum gfeta myndað okkur fasta ogf skýra mynd af persónu frelsarans. Hvaö gjörir það til ef viö lítum á ritninguna þessum augfum, hvort síðasti Babelkonungurinn hét Bels- azar eða Nabóned? Hvað gjörir það til hvort búið var að velta steininum frá grafarmunnanum þegar konurnar komu að gröfinni, eða þær horfðu á engil gjöra þaö? Alt þetta sem hljóta aö vera rot- högg fyrir óskeikulleika ritn. eftir gömlu skoðuninni, kemur nú hvergi nærri hon- um. í stað þess að rannsóknir og betri þekking hafi því eytt óskeikulleika ritn., eins og oft hefir heyrst hrópað, í staö þess hafa þær einmitt gefið okkuróskeik- ula ritningu, og það svo óskeikula að við því verður ekki haggað. Ut frá þessarri skoðun er ekki fremur ástæöa til að ótt. ast rannsóknir ritningarinnar, heldur en það er ástæða til að fyllast skelfingu, þó að viö heyrum um það, að sjórinn sé aö smábrjóta klettana við ströndina. Og hrópið um skaöræði biblíurannsókn. anna er álíka skynsamlegt, eins og þaö væri, að segja öllum aö flýja úr landinu, af því að sjórinn væri að eyða ströndinni. Og innblástur ritningarinnar ákveðum við svo þessu samkvæmt. Vafalaust er réttast að setja ekki upp neina fasta inn- blásturs-kenningu. En við erum sann- færð um það, að guð heflr þann veg út- búiö höfunda ritningarinnar, að þeir létu eftir sig rit, sem hafa í sér kraft til þess að leiða okkur til Jesú Krists. Hvað þeir segja um mannkynssöguna, landa- fræöina eða annað, sem liggur fyrir utan þeirra tilgang, kemur ekki innbl'æstri þeirra viö, haggar honum ekki. En það, að þeir ávalt sáu guð í viðburðunum, að þeir ávalt kunnu að lesa guðs opinberun út úr viðburðum sögunnar og persónum, það gaf þeim og gefur réttinn til þess að iheita guðinnblásnir. Það er yfirleitt hrapallegur misskiln- ingur á starfsaðferð guðs, sem gamla innblásturskenningin hvílir á, sá, að guð noti mennina eins og vélar, og geti bezt komið sínum vilja fram með því, að taka burtu þeirra eigið eðli. Við megum ekki á þann hátt líta á guðinnblásturinn sem ytra vald. Það eru ekki ritin að eins sem eru innblásin. Innblásturinn er ofinn inn í eðli mannsins alt. MaHurinn er inn- blásinn. Og hann er það ekki að eins meðan hann er að rita heldur stöðugt. Við getum, þó ófullkomið sé, líkt inn- blæstrinum við kærleikstilfinningu sem grípur manninn. Hann verður ekki ann- ar maður við það. Hans fyrra eðli hverfur ekki. En kærleikstilfinningin gagntekur alt eðli hans og hefir það upp í hærra veldi gagnvart vininum; Honum getur verið jafn ókunnugt um fæðingar- dag hans, aldur o. fl. ytra, en hann lærir að skilja eðli hans, kynna sér vilja hans, grípa óskir hans margfalt betur en áður. Á svipaðan hátt verða menn guðinnblásn- ir. Eðli þeirra er hið sama. Það verður ekki séð að þekking þeirra á því, sem er óviðkomandi, breytist að mun. En þeir hafa eignast streng, sem hljómar þegar guð talar. Þeir hafa eignast glugga með útsýn þangað, sem aðrir sjá óljóst eða alls ekki. Þeir sjá guð. Miklu betur mætti og þyrfti að skýra þetta mál, ef tíminn ieyfði. En hér skal staðar numið. Og það er miklu meira verk að ryðja burtu marg-rótgrónum híeypidómaskógi, heldur en hitt að planta heilnæman gróður í staðinn. Þess vegna hefi eg varið megin efni erindisins til þess. En eg vona þó að hafa gjört mönnum ljóst, að óskeikulleiki ritningarinnar, sá sanni óskeikulleiki, sem gamla innblást- urskenningin var búin að stofna í ýtrustu hættu, er nú aftur trygður í þessu ljósi.

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.