Breiðablik - 01.08.1913, Qupperneq 16

Breiðablik - 01.08.1913, Qupperneq 16
48 BREIÐABLIK hve leiðir guðsóttans eru margar, eins og- hin lifandi dæmi biblíunnar sýna, jafn- breytileg og ólík hvert öðru og mannlífiö sjálft. Þess vegna er nú sú krafa hvarvetna í kristninni að verða hávær, að biblíunni sé skipað í heiðursess og öndvegi sem dýrmætustu kenslubókinni í trúarreynslu mannkynsins. Án þess að þekkja biblí- una og þekkja hana vel og kunna um leið að meta gildi hennar réttilega, getur enginn verulega kristinn maður verið, með mótmælendum. Biblían verður að vera helzti fræðslumiðillinn í trúarefnum. Allir sem láta sér ant um að hrinda krist- indómsfræðslunni inn á nýjar brautir,ætti að styðja það af alefli. Hún á að verða eini fræðslumiðillinn, — biblían sjáif eða úrvalskaflar úr henni með eigin orðum, á að koma í stað kver-kenslu og biblíu- sagna eins og áður hefir tíðkast. Barnabiblía þessi hefir nú slíkt úrval meðferðis, að því er gamla testamentið snertir. Er óhætt að segja að það hafi hepnast mæta-vel. Meira og minna er tekið úr flestum bókum gamla testament- isitis, bugðnæmustu og lærdómsríkustu kaflarnir, hvorki gengið fram hjá spá- mönnunum né apókrýfisku bókunum. Sami unaðsblær yfir máli og frásögn eins og á nýju og ágætu biblíuþýðingunni, svo bókin togar menn til sín. Kaflarnir stuttir og fyrirsagnir fvrir hverjum kafla, sem eiga að laða hugann og eru fagrar og vel til fundnar. Fyrirsögn sögunnar um afdrif Absalóms er: Fagra hárið, sögunnar um Rispu: Móðurhjartað, — sögunnar um Júdas Makkabeus: Látum skifta guð gittu, sögunnar um friðartíma- bilið á árum Símonar æðsta prests: Skin eftir skúr. En svo fagrar sem fyrirsagn- ir þessar eru, hefir spurning vaknað í huga mínum um, hvort ekki hefði verið betra að glöggva sig á efni bókarinnar fyrir unglinginn, ef fyrirsagnir hefði ver- ið ljósari og beinni. íslenzkan á bókinni er reglulegt fyrirmyndarmál, svo er hún vönduð. Það er stórmikil! ávinningur fyrir íslenzk ungmenni að fá þessar ynd- islegu sögurí hendur á svo kjarngóðri og gullfagurri íslenzku. Ótal spurnitigar vakna við að blaða í bókinni. Hvað á að kenna? Hvað á að segja blessuðum börnunum? Það er vandi með að fara. Á að segja þeim að guð hafi skapað jörðina á sex dögum? Að konan hafi verið sköpuð af rifi úr síðu mannsins? Að guð hafi skipað Abraham að slátra drengnum sínum, og að hann hafi látið rigna hrút? Að Jefta hafi fórn- að drotni dóttur sinni að brennifórn og þkð itafi verið guðsþakkaverk? Að Sam- son hafi rifið öskrandi Ijón sundur með berum höndum eins og kiðling? Að hann hafi drepið þúsund manns með asna- kjálka? O. s. frv., o. s. frv. Eitt er víst og það er, að aldrei ætti að fara krókavegu kring um sannleikann með börnin. Aidrei ætti að finna upp á neinu til skýringar, sem hinir eldri vita að er tómur tilbúningur. Bezt að láta sögurnar grafa um sig í hugum barnanna, unz þau fara sjálf að spyrja. Og þá að segja þeim það sent maður veit réttast og . sannast, en ekki koma þeim til að skilja að þetta og þetta, sem þeim er bannað og álitið stórsaknæmt nú, hafi verið skipað af drotni sjálfum í biblíunni. Aldrei vert að segja meir en þroskinn leyfir barninu að skilja nokkurn veginn. En um leið og þroski er til, þá að gefa því eins sanna og rétta hugmynd og föng eru til. Verður þá að fara eftir því sem fullþroskuðu foreldri finst það fá út úr sögunni, þegar það les hana nú, en ekki eftir því sem kent var fyrir 20 til 30 ár- um. Vandaðir foreldrar hafa ávalt hug- fast, að kenna harninu ekkert í trúarefn- um, nema það sem þeir álíta sjálfir satt og rétt. Barnablblíuna ætti hvert íslenzkt barn hér vestra að eignast. Fegurri, skemti- legri, dýrlegri sögubók er ekki unt að fá börnum í hendur. Heimur trúarinnar opiiast barninu þar frá fyrst til síðast og eldur trúarinnar fellur í sálu þess við lest- urinn, ef rétt er á baldið. Préritsm iðja Ólafs S. Thorgeirssonar 678 Shcrbrooke St. Winnipeg

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.