Dagblaðið - 28.10.1913, Qupperneq 3

Dagblaðið - 28.10.1913, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ 3 og hef nærri því fitnað; ekki vantar gestrisnina. Eg heyrði þá tala um, að farga öllum sín- um hestum í sumar, líklega til Ameríku, því Guðmundur B. segir, að nú séu harðindi í nánd og svo eigi að smella á akbraut- um eða járnbrautnm, og flytja alt á þeim. Gróa: Mikið segirðu, Siggi minn! Þeir ætla þó ekki, Dala- menn, að verða langt á eftir Borgfirðingum með framfarirn- ar, eftir þessu. Eða hefirðu les- ið Lögréttu? Siggi: Lesið Lögréttu! Hvað er það? Gróa: Nú jæja, drengur minn. Þú ert kannske ekki farinn að læra að stauta enn þá, en þú ættir þá að fara til þess úr þessu, því ekki liflr þú lengi á labb- inu eintómu. Nú á tímum verða menn að vita og fylgjast með. Siggi: Fylgjast með: Eg skal sýna þeim það, hvort eg ekki fylgist með. Varla verða þeir fljótari en hann Rauður sálugi hans Rórðar á Leirá, og tók eg hann með glans, þarna á eyr- unum fyrir neðan stóra húsið. Sjáðu! Gróa: Eg var að tala um að fylgjast með í framfaramálum þjóðarinnar, og ekki síst hér í Borgarfirði, þar sem þú ert upp alinn, drengur minn. Sjáðu nú í kringum þig! Siggi: Horfðu í austur kerl- ing! Gróa: Gerðu það þá líka, Siggi. Þá hyrjum við að skoða Skorradalinn. Þar eru falleg tún, hús og hlöður, enda er bóndinn, Bjarni, hinn mesti dugnaðar- maður. Vatnið er stórt og mik- ið; skógur í kringum það, og við suðurenda þess býr hinn fjölfróði á Fitjum. Þá kemur Svínadalurinn; hann er fallegur. Þar býr Pétur og Bjarni odd- viti, sem ver hreppinn sinn eins Gróa: Þegiðu Siggi! á meðan eg er að upplýsa þig, þú veist ekki of mikið, þó þú takir eftir því sem eg segi þér, dálitla stund. Við komum nú bráðum að aðalefninu. Lundareykjadalur er þarna á bak við hálsinn. Hann er grasi vafinn og falleg sveit, og marg- ir eru þar góðir búhöldar. Hérna fyrir neðan blasir við Andakíll- inn. Þar er mest mentun á landinu. Þar er Ólafur á Völl- um. Þar er Hvanneyri sem kostar peninga, og þaðan streyma búfræðingar, búskussar, eins og hrossaflugur út um landið. Hér fyrir neðan er Skeljabrekka. Siggi: Já, Skeljabrekka! Eg sæti hér ekki undir þessu rausi úr þér, Gróa, ef eg hefði ekki verið þar í nótt, því satt að segja Gróa min, er mér hálf bumbult. Þú segir ekki frá því. Eg kom þangað svangur í gærkvöldi, og húsmóðirin sparaði ekki í mig matinn, blessuð konan! Eg man ekki hvað hún heitir. Eg ætlaði að rjúka af stað í morg- un, en þá rak eg mig á liús- bóndann ogsagði: »Vertu sæll! Þakka þér fyrir matinn«. »Þú hefir þá fengið að borða«, segir hann. »Jú, í gærkvöldi«. Þá segir hann: »Ertu vitlaus, Siggi? að rjúka á heiðina svangur. Farðu inn til konunnar, og fáðu að borða«. Svo eg gerði það. Ja, maturinn, Gróa! sá var nú ekkert tris. Og veistu hvað? Súkkulaði á eftir. Eg gat ekki stilt mig um að borða heldur mikið. Gróa: Og garmurinn, þú kant þér ekki magamál. En af þess- um hjónum þarftu ekki að segja mér. Eg er öllu kunnugt. Þar fylgist alt að: Gestrisnin og góðvildin, vitið og dugnaðurinn. Eg hefi nú sýnt þér öll ríki ver- aldar og þeirra dýrð, upplýst þig um marga merkismenn og bæi. Hér er sjónauki, svo þú sjáir betur breiðuna af húsa- þökum og stórhýsum, hér upp um héruðin. Taktu nú vel eft- ir, svo þú munir hvernig hér- aðið er. Siggi horfir í sjónaukann og segir: Já satt er sem þú segir, Gróa! Fallegt og auðsældarlegt er hér- aðið. En manstu þegar við stóðum á Esjunni, og þú sýnd- ir mér alt suðurlandið og Reykja- vík? Gróa: Jú, man eg það, þá voru þeir að stækka Skólavörð- una? Siggi: Ekki hugsaði eg þá, að þú værir eins langséð, og nú er komið á daginn. Þú sagð- ir að vitlausraspítalinn kæmi til að verða of lítill. Gróa: Eg var þá komin til ára minna, Siggi. »Og vís er sá sem víða fer«. Eg hef fylgst með um dagana, og þekki Vík- verja, ekki síður en aðra, sér- staklega höfðingjana. Þeir hafa oft fengið hjá mér upplýsingar, blessaðir. Gróa gamla lýgur ekki, en margt hef eg ótrúlegt sagt fyrir fram. Ekki trúðu heimastjórnarmenn mér 1908. þegar eg sagði þeim að þeir innu að kosningunum með ofmikilli samviskusemi. Ekki trúðu heldur sjálfstjórar- menn mér, þegar eg sagði þeim, að bankrráðið yrði það skað- legasta inál landsins sem fyrir kæmi á þessari öld. Já, Siggi minn. Vitleysan er mikil. Og ætti að láta hana í eitt hús alla saman, þá sægirðj kofa í lægi. Þeir ætla nú að kæfa sjálfs- sjórnarmálið í ár, blessaðir, og sigla svo á sinum eigin skipum með líkið til Hafnar, og jarð- setja það þar mað mikilli við- höfn. Já, margt gæti eg fleira sagt þér, Siggi minn, af því sem eg hef séð og heyrt á minni löngu æfi, en bæði yrði það of- langt mál, að sitja yfir því hér, og svo myndir þú ekki skilja helminginn af því, sem ekki er heldur von, það eru ekki komn- ar svo upp í þér vísdómstenn- urnar enn þá, að þú skiljir þessa stjórnarvisku, tetrið mitt. En eg tek það fram aftur: Spit- alinn er of lítill. því heimskan er stór — æ. það er ekki til nokkurs að segja þér þetta. Siggi: Til nokkurs! Heldurðu kannske að eg heyri ekki hvað þú segir, og geti ekki sagt frá því? Gróa: Nei, Siggi, það er mér ekki ant um, að þú segir frá þessu. heldur að þú geymir þér það, eins og gull. Siggi: Eins og gull! Ertu vit- laus? Hver heldurðu að geymi gull nú? Ekki etnusinni Landsbankinn. Nei, svo vítt gengur það ekki nú á tímum, að geyma gull. Ertu þá svona vitlaus, Gróa? Gróa: Það er ekki til neins að tala við þig Siggi, um neitt, sem vit er í, þú ert svo mikill bjáni. En eg ætlaði að segja þér, af því við stöndum hér svo hátt, hvar þeir ætla að hafa brautina Borgfirðinga. Hún á að koma hér afan að. — Sjáðu — og liggja svo suður Draga,

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/170

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.