Dagsbrún - 27.06.1916, Síða 4
84
DAGSBRÚN
Fyrsta kosningafundinn
hélt Alþýðu-flokkurinn í Báru-
búð á Sunnudaginn var. Fund-
armenn um 200. Næsti fundur
í Bárubúð á Sunnudaginn kem-
ur kl. 4. Þá meðal annars rætt
um kola- og olíumálið.
Húsaleigan í Rvík,
Sem dæmi upp á hve gífur-
lega er okrað á húsaleigunni
hér i Reykjavík, má nefna, að
leigan á kjallaraíbúð einni, sem
var í vetur leigð á 6 kr. hefir
verið sett upp í 10 kr. um
mánuðinn án þess að neift hafi
verið gert við íbúðina. Stofa í
sama húsi, sem í vetur var
leigð á 7 kr., er nú leigð út
fyrir 14 kr.
Hvað lengi á þetta okur á
húsaleigu að líðast? Hvenær
fer bærinn að byggja?
ijveravellir unðir þaki.
Ferð inn í framtíðina.
Frh. ----------
En það kom aldrei til þess
að eg fengi tækifæri til þess að
sýna hugrekki, því villidýrið
var að velli lagt, áður en eg
komst á vettvang. Mér var
mikil forvitni að því að sjá
dýrið, og fór að troðast til, þess
að komast að þvi. Að það
ekki væri mjög stórt, þóttist
eg sjá á öllu, en þegar eg loks
sá hvaða skepna það var, sem
fólkið hafði þotið upp til handa
og fót til þess að vinna á, þá
varð eg svo hissa að eg kom
ekki upp hlátrinum, sem mér
var í hug.
»Það er skotið flugueitri úr
þeim«, sagði Ari Höfði um
byssurnar, um leið og við kom-
um þeim fyrir, þar sem við
höfðum tekið þær.
Hann rétti mér ávaxtafatið.
»Þér mun finnast við gera
mikið úr litlu«, tók hann
aftur til máls. »Ykkur var
það ekki Ijóst 1010, að hús-
flugan er hættulegasta dýr jarð-
arinnar — það dýr sem flest-
um mannslífunum hefir grand-
að. Hver fluga flytur með sér
að meðaltali 1 milljón af bakt-
eríum, og oftast eru þær vel
birgar af tegundum. En auk
sýkingarhættunar, þá er sóða-
skapurinn að þeim. Mig hefir
stundum furðað á því að þið
— svo langt þið voruð komnir
í þrifnaði — skylduð þola ann-
an eins óþverra og fluguna,
sem situr á vixl í hrákadallin-
um og í sykurkerinu.
En eg var að segja frá æð
arfuglinum. Fyrsta skrefið i
áttina til þess sem nú er, var
gert, eftir að hætt var að drepa
hann, og var það, að taka
nokkur egg frá hverri æðar-
kollu og unga þeim út í vél.
Þetta varð til þess að æðurnar
verptu meira. Næsta sporið
var að gefa ungunum, og halda
þeim í landi, fvrsta hálfa mán-
uðinn, eða þann tíma, sem
þeim er mest hætta búin. Því
næst var farið að leggja sér-
staka rækt við þær æður, sem
mest verptu, og beztan dún
höfðu til þess að reita af sér.
En árangurinn af því hefir orð-
ið, að nú eru margar tegundir
að æðarfugli eins og jafnan
hefir orðið um þær tegundir
dýra og jurta, er mennirnir
hafa tekið undir verndarvæng
sinn.
Æðartegundunum má skifta
í tvent: egg-æður og dún-æð-
ur. Hinar fyrnefndu tegundir
reyta sig ekki, og eru því að-
eins hafðar vegna eggjanna.
Þær verpa frá 40 til 100 eggj-
um, hinar ýmsu tegundir, sum-
ar byrja í marz, aðrar tegundir
enda í september. Dún-æður-
nar verpa aftur aðeins 12 eggj-
um þær tegundir, sem fæstum
verpa, og 30 þær bezt verpa.
En þær hafa helmingi til fer-
falt meiri dún að reita af sér
nú, en þær höfðu þegar æðar-
tuglinn var viltur fugl. ísland
hefir nú geysimiklar tekjur af
af æðarfuglinum, miðað við
það sem áður var, enda fer
ekkert land enn þá fram úr
okkur hvað dúnframleiðslu
snertir, en Nýfundnaland fer
bráðum að gera það. Af öðr-
um löndum, sem mikil æðar-
vörp eru i, má nefna Hellu-
land, Grænland, Skotland, Nor-
eg og löndin norðan við Eystra-
salt. En öll þessi æðarfugla-
rækt er íslenzk menning, því
það erum við, sem höfum hæði
fundið upp æðarræktina og
fullkomnað hana, og má sjá
þess merki á þvi að íslenzka
orðið »varp« hefir gengið ó-
breytt inn í flest tungumál,
sömuleiðis, oftast þó lítið eitt
breitt, orðin »blíki« og »vetur-
liði«.
En eg gleymdi að segja, að
á sama hátt og við liöfum flutt
hingað til landsins pólnautin,
moskushjörtinn, alpakkadýrið,
hérana, safalann,sæbirnina, haf-
oturinn o. s. frv. hefir islenzk-
ur æðarfugl verið fluttur til
landanna við Berningshaf og
nyrðst við Kyrrahafið. Enn
fremur — nú fyrir fáum árum
— til suður hvelsjarðar, til Eld-
landsins, I'alklandseyja, Suður-
Georgiu o. fl. landa.
(Frh.)
Úr eigin herbúðum.
Verkmannafélag ísfirðinga
var stofnað 1. april í vetur.
Meðlimir eru rúmir 80. í stjórn
eru Sigurður Þorsteinsson, for-
maður, Kristján Dýrfjörð, vara-
form., Gunnar Hallgrímsson,
ritari, Guðm. Sigurðsson, fjár-
málarit., Magnús Jónsson,gjaId-
keri, ennfremur tveir til vara.
Þjóðjarðasalan.
»Lögrétta« segir frá því, að
jörðina Háls í Ivjós, sem Þórð-
ur Guðmundsson hreppstjóri
keypti af landssjóði haustið
1909 fyrir eitthvað 5 þús. kr.
hafi Þórður nú selt Englend-
ingnum Copland, fyrir 20 þús.
kr.
Á stefnuskrá Alþýðuflokks-
ins stendur, að þjóð- og kirkju-
jarðasölu skuli hœlt.
Listi Alþýðuflokksins er:
C-listinn.
Frasg' meyjarsæng'.
Hið ágæta skáld, höfuðdýrðlingur
íslenzku þjóðarinnar, hálfguðinn
Hannes Hafstein, sem er efsti mað-
urinn á lista Heimastjórnarmanna,
er einn af þeim sem mest og bezt
hefir barist fyrir því, að þjóðjarða-
sala yrði lögleidd. Ein af röksemda-
færslum hans fyrir þjóðjarðasölu,
er þessi, (það má lesa hana í al-
þingistiðindunum). Dóttir hansbarn-
ung vildi ekki sofa i rúmi er henni
var ætlað, fyr en henni var sagt, að
hún ætti rúmið sjálf. Af þessu dró
hr. H. H. að betra mundi að selja
þjóðjarðirnar. Pað fer því miður
stundum saman, að vera ágætt skáld
og afarlélegur stjórnmálamaður.
Félagsmaður látinn.
Þann 12. Febr. druknaði
Kristján Einarsson vélstjóri á
fiskflutningsbát Lofts Loftsson-
ar kaupmanns, þeim er fórst
á leiðinni milli Reykjavíkur og
Sandgerðis.
Kristján var ekki nema lið-
lega tvítugur að aldri, fæddur
á Firði i Barðastrandarsýslu.
Um fæðingardag hans eða fæð-
ingarár veit eg ekki. Hann var
barn að aldri, er faðir hans dó,
og ólst hann að mestu upp
hjá Snæbirni Kristjánssyni
hreppstjóra í Hergilsey.
Snemma hneygðist hugur Krist-
jáns að sjómensku, enda gafst
honum brátt færi á að reyna
sjómenskuhæfileika sína. Var
hann um nokkur ár háseti á
þilskipum, frá ýmsum stöðum.
Síðan dvaldi liann í Noregi,
nekkurt skeið. Nam þar vél-
fræði og var í siglingum á
norskum skipum. Eftir heim-
komu sína var hann oftast vél-
stjóri á mótorskipum, stærri
og smærri, og seinast á bát
þeim, er har hann að feigðar-
ströndu.
Kristján heitinn gat sér hver-
vetna hið hesta orð fyrir dugn-
að og atorku, var gætinn og
greindur vel, og mun óhætí
að segja, að hann sé harm-
dauði öllum er þektu hann.
Hann var einn af stofnendum
hásetafélagsins í Reykjavík, og
erAþannig hinn fyrsti er hnig-
ur úr fylking þeirri. Vér fél-
agsbræður hans eigum hér á
bak að sjá ötulum liðsmanni
og sjómannastéttin islenska,
vöskum dreng.
Hásetafélagi nr. 309.
Þetta og hitt.
12 milj. kr.
vega í eintómum 500 kr. seðlum
72 pund.
Vélar
til þess að unga út eggjum, eru
nú alment notaðar erlendis. Fást
fyrir 50 kr. eða minna.
Kveðjur.
Knútur hertogi. Rúmið í blaðinu
er mjög lítið um þessar mundir.
H. B. Skag/jörð. Ritstj. þakkar
bréf og skilvísi.
Gunnl. Magnússon, Patreksfirði. —
Dagsbrún þakkar fyrir viðskiftin.
Ynnu aliir, sem vel er við hana,
eins vel fyrir henni og þér, og væru
eins skilvísir, þá gæti hún komið
út tvisvar í' viku og heilt blað í
hvert sinn, án þess verðið væri
fært upp.
Bækur
um
jafnaðarstefnuna.
Öllum þeim, sem þekkja
vilja jafnaðarstefnuna vel, er
nauðsynlegt að lesa um hana
á útlendum málum, þvi enn-
þá vantar bækur um hana á
íslenzku. Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar hefir þessar
bækur um jafnaðarstefnuna:
H. G. Wells: Nye Verdener.
Verð 1 kr. 50 aur.
A. Bebel: Kvinden og Soci-
alismen. Verð 1 kr.
Mönnum út um land er ráð-
lagt að draga ekki að panta
þessar bækur, þar bókaverzl-
unin hefir tiltölulega fáar af
þeim. Utanáskrift er:
Bókaverzlun S. Eymundssonar,
Reykjavík.
Xlzðaverzlun
og
saumastoja
Guðm, Sigurðssonar
Laugaveg 10
selur ódýrt íataeíni
ekta litir. ié'Ijót af-
<>rciðsla — Vönduð
vinna. Ný fataefni
með hverju skipi. Sparið
peninga.
„Suðurland“.
Afgreiðslu þess, hér í Rvík.
hefir hr. Ólafur Gíslason verzl-
unarmaður i Liverpool. Tekur
einnig við auglýsingum i blaðið.
3&kabnðin á taugav. 4
— ,AntikvariskÉ bókaverzlun —
Mikill afsláttur af brúkuðum
: ; bókum. : :
Anglýsingnm í Dagsbrún
veitt móttaka í Bókabúðinni,
Langavegi 4.
Prentsmiðjan Gutenberg.