Dagskrá II - 30.10.1902, Blaðsíða 3

Dagskrá II - 30.10.1902, Blaðsíða 3
DAGSKRA. 3 NÝTT TILBOÐ TIL RITSTJÓRA LÖGBERGS. Ritstjóri lögbergs gjörir þá staöhæfingu í Lögbergi er kom út 23. þ.m., aö A. J. Andrews hafi boöiö að gefa 100 dollara tif Winnipeg spítalans, ef nokkur gæti sannfært hann (Andrews), að nokkur mis- munur væri á stefnu conservativ- og lib- eral-flokkanna. þetta hyggjum vér ó- sannindi. Ef ritstjóri Lögbergs getur sannaö að Mr. Andrews hafi gjört slíkt boð, þá skulum vér (útgefendur Dag- skrár) gefa 10 dollara til almenna spítal- ans. Og til þess að gjöra þetta boð sem aðgengilegast fyrir ritstjóra Lögbergs, þá bjóöum vér honum hvorki að sannfæra oss um að hann hafi rétt að mæla, né heldur að leggja málið undir almennings úrskurð, heldur bjóðum vér honum að leggja málið í gjörðardóm þriggja manna, og mundum vér gjarnan vilja að þann gjörðardóm skipuðu þeir þrír íslenzkir prestar sem búsettir eru hér í bænum, þeir séra Jón Bjarnason, séra Friðrik Bergmann og séra Bjarnl þórarinsson. Ef ritstjóri Lögbergs ekki þorir að leggja málið undir dóm þessara manna, þá bjóð- um vér honum að útnefna einn mann sjálfur og vér annan og þeir tveir komi sér svo saman um þriðja mann. Vérgefum ritstjóra Lögbergs tækifséri á að sanna þessa staðhæfing sína tii 30. Nóvember, 1902. Vér gerum það að skilyrði aö ritstjóri Lögbergs leggi fram aðra $10, sein gangi til spítalans ef dómnefndin álítur að hann hafi ekki farið með rétt mál. ÍSLAN D. Ágæt tíð á Suðurlandi síðari hluta sum- ars; heyföng víðast minni en í meðallagi, en nýting hin bezta. —Afli á þilskip góður allstaðar umhverfis land.—-Rjómábú á að stofna í Reykjadal og annað á Vopnafirði. —Sigurður Sigurðsson búfræðingur hefir ferðast í 15 vikur um Norðurland og Mýra og Borgarfjarðarsýslur ; kveður hann áhuga í búnaði fara mjög vaxandi og Ameríkuhug óvíða nema í stöku §veit í Norður-þingeyjarsýslu.—Páll Bjarnason kandídat sektaður um 300 kr. fyrir meið- yrði um séra þorleif á skinnastöðum.— Björn sýslumaður Bjarnason hefir sannað að hann var saklaus um fjárglæframál það er hann var kærður fyrir, óg málið fallið niður.—Barð í Fljótum veitt séra Jón- mundi Halldórssyni.—Séra Ólafur í Arn- arbæli fengið lausn frá prestsskap með eftirlaunum.—Brotist var inn í búð hjá Birni kaupmanni Guðmundssyni í Reykja- vík og stolið um 130 krónum, óvíst hver gjörði.—Héraðslæknir í Reykhólahéraði skipaður Oddur Jónsson. — Vígður til prests 14. sept. Magnús þorsteinsson frá Húsafelli.—í ráöi er að koma á fót slátr- unarhúsum á helztu stöðum á íslandi.— Helgi Valtýsson hefir stofnað æskulýðs- skóla á Seyðisfirði.—Barnablaðið Æskan, sem nú er 5 ára gamalt, kemur nú aðeins út einsinni á mánuði (en tvöíalt í hvert skifti), í stað þess að það kom áður út tvisvar ; sú breyting er óheppileg ; börnin eru bráðlát og vilja fá blaðið sitt sem oft- ast. Jtað er betra að fá þrisvar að borða á hverjum degi en sex sinnum annan daginn og ekkert hinn. Séra Matthias ritar hverja greinina á fætur annari í Bjarka um trúmál og kirkju; alt í anda og stefnu únitara.—Neðri deild alþingis sámþykti áskorun til landstjórnarinnar um það að komið sé af stað verklegri kenslu í fjárkláðalækningum. — Báðar deildir samþyktu áskorun til landstjórnar um það að hún gjöri öflugar ráðstafanir gegn útbreiðslu berklaveiki. — Ástvaldur Gíslason hélt nýlega fyrirlestur á Akur- eyri um heima trúboð og fordæming; lítill rómur gerður að því. Steingrímur lækni Matthiasson- (Jochumson) andmælti Ástvaldi; taldi enga þörf á neinu nýju helvíti upp til íslands og fór hörðurn orð- um og maklegum utn alt þessk,onar rugl. Einar Hjörleifsson segir að Ástvaldur hafi annars ekki farið langt út í það að verja djöfsa, þótt hann sé kostaöur til þess frá Danmörku. — Áhöld eru komin til Oddeyrar til að veita vatni í hús, er talið víst að vatn verði í hverju húsi þar og á Akureyri eftir ár.— Halldór Bjarna- son sýslumaður skipaður rannsóknardóm- ari í málum ísafjarðar þingmannanna.— Jtessir eru látnir: Magnús Mikaelsson á Ytri-Bakka við Hjalteyri; Elín Jónsdóttir móðir séra Árna Björnssonar á Sauðár- krók; Halldór þórðarson í Bræðratungu í Biskupstngum; Eggert Jónsson á Kleif- um f Gilsfirði; Guðmundur ívarsson á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd. — Einar Benediktsson hefir gefið ut ritling, er hann nefnir “Nývaltýsku”; kveður hann það glappaskot af þinginu að sam- þykkja stjórnarskrárfrumvarpið óbreytt, vildi láta nema þaö brott að íslenzk mál skuli borin upp í ríkisráðinu; Eiríkur Magnússon, Cambriðge, hefir gefið út annan ritling sama efnis. — Milli-þinga- nefnd í fátækramálum ætlar að leggja til að stofnað verði vitskertra hæli, komið á fót vinnustofnun fyrir þurfamenn og veitt- ur ellistyrkur ósjálfbjarga fólki, nokkurs- konar alþýðu eftirlaun.—Jiyzkalandskeis- ari hefir látið skreyta Guðlaug Guðmunds- son sýslumann rauðri örn, hvort það er blóðörn, vitum vér ekki. — Krossfestir hafa þeir verið nýlega af Dana konungi Ólafur Ólafsson bæjarfulltrúi í Reykjavík, Jón Jónsson hreppstjóri í bygðarholti í Austurskaftafellssýslu og Páll Ólafsson á Akri í Húnavatnssýslu. Á hverju heimili má heita að “Vatnsþróin” hafi verið keypt meðal Islendinga í Winnipeg og mjög víða úti á landi. Hafa víst fáar ís- lenzkar bækur útbreiðst eins á jafnstutt- um tíma. Nokkur eintök eru enn óseld ; pantið þau hjá útgefendum Dagskrár eða herra Kristjáni Stefánssyni, 410 Ross yve., sem er aðal-útsölumaður. QESTUR PALSSON. Fyrsta heftið af ritum Gests Pálssonar verður fullprentað í byrjun næsta mánað- ar. það verður nokkru stærra en upp- hafiega var gjört ráð fyrir, ‘en þó með sama verði. þeir sem þess æskja, geta fengið bókina í fallegu bandi, aðeins 25 centum dýrari en hún verður í kápu. Sendið sem fyrst pantanir til Sig. Júl. Jóhanneksonar, 547 Ross Ave. DAQSKRÁ II. Gefin út af nokkrum Islendingum í Win- nipeg.—Kemur út þrisvar í mánuði. Ivostar $ 1.00 árg. Til Islands $1.00. Ritstjórnarnefnd : Sig. Júl. Jóhannesson, F. Swanson, Stefán Thorson. Utanáskrift til þeirra er : Editor Dagskrá II., 560 Sherbrooke St., Winnipeg. Ráðsmaður : Wm. Anderson, 499 Young St., Winnipeg. j*j* Auglýsingaverð : Smá-auglýsingar 250. hver þumlungur dálkslengdar. Afslátt- ur á stærri auglýsingum, eða ef samið er um augl. fyrir lengri tíma. jtj* Kaupendur verða að muna það, að gera ráðsmanni blaðsins aðvart er þeir skifta um bústað, og geta um fyrverandi bú- stað sinn. United Brotherhood of Carpenters and Joiners of America Deild þessa félags hér í bænum hefir fund á hverju föstudags kvöldi í TRADES HALL.

x

Dagskrá II

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá II
https://timarit.is/publication/174

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.