Fréttir - 02.10.1915, Page 1
Hádegis-útgáfa.
Yerd: 3 aurar
i. tt>i.
Ite.ylijiivíl£, laugardaginn 2. október.
ÍOIS.
Hafa nú nýlega feng-ið
talsvert af
Vefnaöarvörum
sem eru seldar með hinu
alþekta lága verði hjá
J. B. & Co.
ÉÉ
Fréttir.
Tilgangurinn með útgáfu þessa
blaðs, er að bæta — með því —
upp skilvísum kaupendum »Ing-
ólfs« það sem fallið hefir úr af
blöðum þetta árið, og fá þeir
blaðið ókeypis.
Annars verður það ekki borið
föstum kaupendum, heldur selt í
lausasölu á 3 aura.
Meðan verið er að gefa út hina
ákveðnu blaðatölu (20) handa
kaupendum »Ingólfs«, kemur
blaðið út á hádegi hvern dag.
(Sjá annars augl. á 3. síðu).
Geymið blöðin. Þegar komin
eru út 20 blöð, verður gefin bók
(50 au. virði) þeim sem öll eiga
þá og geta sýnt á afgreiðslunni
eftir nánari tilkynningu síðar.
V eðurskeyti.
Veðrlð í gær:
Loftv. j £5 |Vindm.| <e 0 E
Vestm.eyjar 756,4 ASA 9 Alsk. 7,0
Reykjavík. . 754,9 SA 7 Alsk. 7,7
ísafjörður. . 758,0 0 Léttsk. 4,2
Akureyri . . 739,o NV 5 Alsk. -M,o
Grímsstaðir. 723,2 S 3 Heiði 1,5
Seyðisfj. . . 761,6 O Heiði 1,6
Þórshöfn . . 763,2 O Skýjað M
Veðrið í morgnn:
Loftv. j •3 |Vindm.j| C 0 •J 3
Vestm.eyjar 752.6 A 7 Heiði 5-6
Reykjavík. . 752,1 A 3 Alsk. 8,5
ísafjörður. . 754,0 O Heiði 7,3
Akureyri . . 753.0 S 2 Skýjað 9-°
Grímsstaðir. 721,5 S 3 Skýjað 4,5
Seyðisfj. . . 758.8 O Skýiað 4,6
Pórshöfn . . 763,0 SSA 2 Alsk. 6,0
Með því að bera saman veðrið báða
dagana má nokkuð ráða um veðrið á-
fram.
Dagfurinn.
Póstáætinn í dag:
Flóra fer til Austfjarða og Noregs.
Ingólfur fer til Garðs og á að
koma í kveld aftur.
Póstvagn kemur frá Ægissíðu.
Hvað líður póstskipnnnmi
Gullfoss kom i morgun og fer á
morgun.
Goðafoss kom til Leith 28. sept.
Pollux er hér, fer ekki í dag.
Flóra fór frá ísafirði í gær, á eftir
margar hafnir hingað.
Sterling á Hafnarleið frá Leirwik.
ísland komið til Leith fyrir nokkru
á leið hingað.
Botnia var á Siglufirði í gær.
Ceres er á útleið.
Vesta á að fara frá Kaupmanna-
höfn í dag, hingað.
Simskeyti.
Kaupmannahöfn í dag.
Frakkar og Englendiningar
hafa nnnið mikinn signr á vest-
nrstöðvnnnm. Tókn að hertangi
121 stóra fallbyssu.
Holllendingar mótmæla kröft-
nglega ferðnra Zeppiiíns-loft-
skipa ylir landið.
Akureyri í dag.
Góðviðri
er þessa dagana, en næturfrost
við og við.
Fiskveiði
er nú úti á Eyjafirði. Fæst
hvorki þorskur eða síld. En úti
á Sigluílrði er enn nokkur færa-
fiskur.
Síidveiðin
varð í ár 350 [þúsund tunnur
er saltaðar voru niður, en auk
þess 150 tunnur til bræðsluverk-
smiðjanna.
Verð á síld
er hér 60 krónur tunnan og
þar yfir, en síldarmjölstunnan
(100 kg.) kostar 20 kr.
Slátrað við Eyjafjörð.
Kaupfélag Eyfirðinga hefir
slátrað í haust á Akureyri 18000
fjár.
Kaupfélag Svalbarðseyrar hefir
slátrað i haust 5000.
Kaupfélag Höfðhverfinga hefir
slátrað 1 Grenivík 2500.
Kaupfélag Svarfdœla hefir
slátrað í haust 3000 fjár.
Alls slátra þá kaupfélögin við
Eyjafjörð 28Va þúsundi. Auk
þess slátra kaupmenn allmiklu.
Verð
á kjÖti er hér 90—92 au. kg.
mör kr. 1,00 og gærur kr. 1,20 kg.
Fyrirspnrn:
Verða vörur þær sem komafrá
Veslurheimi með »Botnía« seldar
almenningi, eins og landsjóðs-
vörurnar i fyrra haust?
Svar: Verða ekki seldar, en
geymdar sem landsforði.
Höfuðstaðurinn.
Pinglesin afsöl 30. September:
1. Jón Jensson selur 14. júní þ.
á. Hannesi Hafstein 1155 fer-
álna lóð frá lóð hússins nr. 27
við Þingholtsstræti.
2. H.f. P. J. Thorsteinsson & Co.
í Likv. selur 25. þ. m. Boga
Brynjólfssyni hálfa húseignina
nr. 10 við Grettisgötu.
3. Jón Magnússon bæjarfógeti sel-
ur 23. þ. m. A. Obenhaupt
31J0 ferálna lóð við Þingholts-
stræti.
4. Ingimundur Ögmundsson selur
28. þ. m. Guðlaugi Ingimunds-
syni og Guðríði Pálsdóttur
húseignina nr. 50 við Túngötu.
„Fréttir".
Blaðið byrjar óundirbúið og er
því að vona að því fari fremur
fram en aftur.
Ekki verður sókst eftir að fylla
það með auglýsingum, heldur að
hafa mikið af læsilegu efni, svo
öllum þyki það eigulegt.
Vanti einhvern skilvísan kaup-
anda Ingólfs blaðið (sem fyrir getur
komið í upphafi) er hann vinsam-
lega beðinn að tilkynna það á af-
greiðslunni.
Prestvígsla
fer fram á morgun. Verða þar
vígðir Stefán Björnsson fyrr rit-
stjóri Lögbergs og kand. Sigurður
Sigurðsson frá Flatey í Hornafirði.
Stefán er utanþjóðkirkjuprestur í
Fáskrúðsfirði og hefir söfouðurinn
nú óskað að hann taki vígslu. Sig-
urður verður aðstoðarprestur séra
Bjarna Einarssonar í Þykkvabæjar-
klaustri. Séra Jóhann iýsir vígslunni
en Stefán stígur í stólinn.
Húsviltar
urðu margar fjölskyldur í bæn-
um í gær, og má heita að til stór-
vandræða horfi. Borgarstjóri hefir
útvegað þeim skýli fyrir muni sína
í byggingum sem bærinn á og börn-
um hefir verið komið fyrir til
bráðabyrgða í ýmsum húsum. Eitt-
hvað af fullorðnu fólki hefir orðið
að liggja úti undir berum himni.
Dýr fátækraflutningur.
Nýlega var kona hér í bænum
flutt fátækraflutningi austur í sveitir
'á bifreið og kostaði 60 krónur.
Auðvitað er þetta ekki gert að
gamni sínu. Tveir læknar höfðu
úrskurðað að konan yrði heilsu
sinnar vegna að hafa fljóta ferð
og góða.
(Framh. á 3. síðu).