Fréttir

Issue

Fréttir - 15.10.1915, Page 3

Fréttir - 15.10.1915, Page 3
[15. okt. FRETTIR 57 OOOOOOOOOOOO OOOOGOOOOOOO I FRÉTTIR § koma út á hádegi hvern dag. g Ritstjóri: Einar Gunnarsson. § Hittist daglega heima (Laufásv. 17) kl. 3-4. Sími 528. Afgreiðslan er i Aðalstræti '8 uppi, gegnt )>Reykjavíkurkaffi«, opin kl. 11—3 og 4—6. Sími 529. Auglýsingar má afhenda í afgreiðsluna eöa í prentsm. _ Gutenberg, Sími 671. Einnig er O tekið við smáauglýsingum (gegn O borgun) virka daga: 8 í tóbaksbúð R. Leví’s. til kl. 11 g síðd. og verzl. Kaupangi til kl. o 8 síðdegis. § >0 000000000000 Massagelæknir Heima kl. 6—8 e. m. — Simi 394. Garðastræti 4 (uppi). Massage - Rafmagn - Böð Sjúkraleikfmi. ,NAPOLEON“heitirbestivindillinn || ífæst í LIVERPOOL. Reynið hann.ll Nýkomið i KADPÁNG: V erkmannaskór, dreng-j askór, regnkápur handa skólaböriinm o. m. il. Gjörið svo vel að styðja að útbreiðslu Fjallkonuútgáfu- bókanna. Ein á ferð i. Kína. (Frh.) að glugganum, vættu fingurnar og stungu þeim gegnum pappírinn á glugg- anum og lögðu augu við götin. Egfór út og sýndi á mér reiðisvip, svo að Tuan, er mjög var hugarhaldið um virðingu mína (eða sína öllu heldur, er honum þótti skugga bera á, ef minni virðingu væri misboðið), lét annan öku- sveininn standa á verði fyrir utan glugg- ann, og við það fór eg aftur í dvalar- stað minn. Þar voru steinhellur á gólfi og mátti af því sjá, að gistihúsið var í heldri röð, því að flest hafa moldar- gólf. Tveir tréstólar voru þar, með mjóum sætum, óþægilega háum, tré- borð líka, einnig of hátt, og þarnæst það sem Kínverjar kalla K a n g. Það er steinpallur, svo sem álnar hár, með eldstæði undir og leiðist hitinn 1 píp- um um allan pallinn; mottur liggja á palli þessum og lítið borð stendur á honum, vel spannar hátt og þrjú kvartil í þvermál. Eg virti þétta búgagn fyrir mér með tortryggni, þegar eg sá það í fyrsta sinn, mér fanst eg ekki geta hafst við í svona stað, og óskaði þess af hjarta, að eg hefði aldrei undirgengist að lýsa því sem fyrir mér yrði 1 Kína. Eg lét strá motturnar með borax dufti og enn öðru, sem ekkert kvikíndi geturlifað í* lét svo leggja þar á sængurföt mín. Þar hjá var sett upp baðker mitt úr togleðri, er vinkona mfn hafði gefið mér til ferðarinnar, og á hverju kvöldi þakkaði eg henni af hrærðu hjarta, meðan á ferðalaginu stóð. Loks gekk eg úr skugga um, að ökumaður væri á verði, eg fór þá að þvo mér og hátta holaði mér svo í svefnpokann. Aðeins í einu kínversku gistihúsi var máltíð að fá, vegna þess að þar var matsöluhús rekið í sambandi við gist- inguna. Hvað sem því líður, þá mundi Evrópumanni ekki koma til hugar að eta kínverskan mat, og eg lét kaupa í matinn og búa hann til handa mér, eins og aðrir sem ferðast í Kfna. Eg hafði með mér hrísgrjón og tegras og hveitimél. Tuan eldaði á svolítilli viðarkola stó, er mér hefði varla tek- ist að sjóða egg á, auk heldur meira. Eg lét kaupa alt annað, sem eg þurfti, hænsnaket, egg, lauk og perur, smáar og harðar. Tuan annaðist innkaupin og keypti með slíku verði, að eg undr- aðist hvernig hótelið sem eg gisti á í Peking gat staðið sig við að selja greiða fyrir eitt pund sterling á dag. Eg fór á fætur um sólaruppkomu. skoðaði morgunmáltíðina og drakk te- bolla; var svo ferðbúin. Alt þorpið stóð hjá og horfði á mig klifrast upp í vagninn, og mændi á eftir honum er hann hröklaðist yfir steinþrepið, þang- að til hann fór í hvarf. Þar sem eg fór um í Kína, var aldrei mannlaust. Það var«orðið heitt í veðri og karlmenn, sem á ökrum unnu, voru berir í beltisstað. Hvarvetna stóðu hús við brautina, svo og mörg þorp og hverfi, en kvenfólk sat á dyraþrep- um og saumaði — helst botna í skó, að mér virtist — eða snéru kvörnum, tvær saman, því að milluhvörn var í hverju þorpi. Sumstaðar voru asnar hafðir til að snúa kvörninni, en mest vann kvenfólk að því verki, haltraði f sífellu í kringum kvarnarsteininn, á sínum smáu fótum, snéru steininum og dreifðu mélinu. Fótameiðsl. Vesalings kvenfólkið! Það er mál- tæki i Kfna, að kvenfólkið hafi angur og beiskju til viðurlífis, og það álít eg satt vera, af því litla sem eg héfi séð. Þegar eg gekk um þorpin kvölds og morgna, heyrði eg mikinn barnagrát. Börnin i Kína eru framúrskarandi ó- þekk, þeim er aldrei bannað, og eg rendi ekki grun í, af hverju þessi börn gætu verið að gráta. Eg hélt það væri af óþægð. En trúboða kona sagði mér, svo og karlmaður, sem héltmikið móti trúboðum, að á kvöldin og morgnana væri hert á böndunum um fætur stúlku- barnanna, og þar af stafaði gráturinn. Þeim umbúnaði fylgja altaf kvalir og eina fróunin, sem börnin geta veitt sér, er að leggja kálfana sem fastast að grjót- bálkinum ( K ’ a n g), þar við stöðvast mikið blóðrásin til fótanna og þeir dofna, en þetta geta þær ekki lengi, Ófriður og uppeldi. 37 fornmenta-iðkunum eða raunvísinda-iðkun- um vorra tíma var ekki með öllu útdauð. Allar þessar og margar aðrar stælur um uppeldisleg »vandamál« eru nú hættar, kæfðar niður af þrumugný fallbyssanna. Það er neyð hinna yfirstandandi tíma, sem hefir leitt oss til viðurkenningar á þvi, að það eru heilhuga menn, menn með fram- sóknarhuga, sem vér þörfnumst um fram alt. Hún hefir sýnt oss, að dugandi iðn- fræðingar eru betur hæfir til þess að inna af hendi þjónustu fyrir ættjörð sína, þegar hún á tilveru sína að verja, en þeir, sem alira best eru að sér í fræðum og tungu- málum fornaldarinnar. Hugsæisskoðun hinna síðarnefndu er að vísu meinlaus, en hún er lika gagnslaus, þegar á reynir. Verkefni vor þjóðverja er nú það, að ala seskumenn vora upp í þjóðlegri hugsœis- •skoóiui' Við verðum að venja oss af að leita hamingjunnar lengst í álfum, þar sem hana er eigi að finna. Oss varðar það miklu, að æskumenn vorir verði rótfastir meiðir í þjóðar jarðvegi vorum, áður en þeir mæta erlendum áhrifum. Þessi ófriður hefir fært alþjóð manna heim sanninn um það, hví- lik ótæmandi uppspretta siðferðislegra afla, samfara sjálfstæðri þjóðareinkunn, býr í þysku þjóðinni. En vér megum ekki láta oss nægja það, að þau komi að eins í Ijós 38 á neyðartímum, þegar mest reynir á. Vér verðum að láta oss vaxa ásmegin oftar en í viðureign við morðvélar óvinanna. Hörmungar ófriðarins hafa visað oss veg að uppsprettum máttar vors og megins. — Munum vér láta oss það að kenningu verða i framtíðinni? Má vænta þess, að skólar vorir verði hér eftir þýskir út í ystu æsar? Eða er hugsanlegt að vér vöðum í sömu villu og svima sem áður. Hingað til höfum vér með nokkrumrétti getað sagt, að vér gyldum saklausir skamm- sýni feðra vorra. En í framtíðinni tjáir oss ekki að koma með slíka afsökun. Vér verð- um að losa oss við alt, sem heftir þjóðlega þróun skóla vorra. Vérverðum að viðhalda hetjumóð þjóðar vorrar, þessum hetjumóð, sem gefur oss máttinn til að gera hið ó- mögulega framkvæmanlegt, svo að vér þurf- um ekki að eiga á hættu, að gera oss seka í sömu villunni sem feður vorir. Þá efl- umst vér í trúnni á æskumenn vora, sem svo ágætlega hafa staðist hina hörðu reynslu þessara tíma og vafalaust munu geyma til hinna ókomnu tíma það besta sem hún hefir gefið þeim: traustið á þrótti, fegurð og göfgi þjóðar sinnar, og viljann ó- biluga til þess að vera meðstarfandi að hug- sjóninni miklu: fullkomnun hins þýfska frið- ar-ríkis. (Eftir »Das Echo«). j'leytstovatn og þekktng á því. Eftir Dr. K. B. Lehmann. Vatnið er einn sá hlutur, sem maðurinn má síst án vera til heimilisþarfa. Hann get- ur þolað bungur stórskemdalaust i 3 og alt að 6 vikum, ef hann fær nségilegt vatn, en deyr eftir vikutima ef hann er sviftur þvi. Likami vor missir vatn við útöndunina, útgufun frá hörundinu og þvaginu. Fái hann ekki vatn í þess stað, þá þykna vess- ar hans og ytri slimhimnur skorpna, en því fylgir mikill sársauki og heilsunni verð- ur bráðlega hætta búin. Þar sem nú siðað- ir menn þurfa enn fremur mikil? vatns við til þess að lauga likama sinn og til mat- reiðslu, til þess að hreinsa búshluti sina og hýbýli, þá er það eitt aðalskilyrði fyrir þrifnaði og tærilæti, að nægilegt vatn sé fyrir hendi, en það vill nú svo vel til, að viðast hvar hagar svo til, að eklíi veitir ervitt að afla sér neytsluvatns. Þó geta sum- staðar verið vandkvæði á þessu, t. d. þar sem mjög er mýrlent svo að vatnið fær 1

x

Fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.