Fréttir - 15.10.1915, Side 4
58
FRETTIR
[15. okt.
Fermingar- og afmæliskort,
fjölbreytt og smekkleg, selur
Friðfinnur Guðjónsson,
Laugaveg 43 B.
og þegar blóðið rennur til fótanna á
ný. aukast kvalirnar. Hið sama gera
þær 1 hvert sinn sem hert er á bönd-
unum.
Allir þekkja kvenfólkið í Kfna á
göngulaginu. Það gengur einsog eng-
in liðamót væru á leggjunum fyrir neð-
an mjaðmir. Fæturnir eru afarsmáir,
einsog hófar í laginu, nálægt 4 þuml.
á lengd; flest kveflfólk hefir 9 litsaum-
aða skó á fótum, og til þess að detta
ekki, verður það að halda út hand-
leggjunum þegar það gengur. Þegar
hlegið var að því, hve sárt mig tók til
fótmeiðsla kvenfólksins, þá tók eg mig
til og hafði tal af fjórum læknum, þrem
karlmönnum og einum kvenmanni.
Þeirra skoðun var allra eins: Að kven-
fólkið tæki út miklar kvalir. Það væri
ekki aðeins kvalafult fyrir stúlkubörnin
að láta leggja á sig þessi bönd, heldur
væri það algengt eftir á, að veiki legð-
ist að fótunum, sár og þroti, og að
verkir kæmu í þá, ef á þá væri reynt.
Við legstað Manchuanna.
Þar kom eitt kveld, að við náðum
undir fjöll, er lengi höfðublánað fram-
undan í fjarska, og var eg þá komin
þangað sem ferðinni var heitið. Þann
dag fórum við fjörutíu mílur, á afar
vondum vegi. og fegin og þakklát var
eg, þegar við fórum skröltandi inn um
borgarmúr, og lentum í því óhreinasta
gistihúsi sam eg hitti á, í óhreinum
smábæ undir fjallinu.
Kínverskar borgir, jafnvel smáþorp
í sveit minna mann á fátækrabýli í
enskum borgum, og þessi smábær var
allra verstur. En eg svaf eins og steinn
af þreytu og vaknaði næsta morgun í
sólar upprás og lagði upp til legstað-
arins. Eg fór með stórri prýði, hafði
þrjú múldýr fyrir kerrunni, eg sat undir
skygninu, en þjónninn og heldri öku-
maðurinrf sátu á stöngunum, og þá tók
eg eftir því, að ef hlaðin kerra er af-
leit, þó er tóm kerra ennþá hræðilegri
að sitja í. En eg hafði séð múrinn
umhverfis legstaðinn frá borgarhliðinu,
kveldíð áður, svo að eg huggaði mig
við, að kvalirnar mundu ekki standa
lengí.
Þegar Manchu keisarar kusu sér leg-
stað, höfðu þeir úr öllu Kínaveldi að
velja, og tóku það sem fátæka fólkinu
kom verst. Staðurinn er prýðilegur, þó
ekki sé hann góðmannlega valinn,
Hann er margar mílur að ummáli, þar
sem fjall og slétta mætast. Þar er
jarðvegur ákaflega frjór af vatnsburði
írá fjallshlíðunum, og Kína með sín-
um ótölulega fólksgrúa, má ekki við
því að missa eitt fótmál af frjósömu
landi. Hver smáblettur |þar sem eg
hafði farið um, var ræktaður og not-
aður þó ekki sprytti þar nema eitt
aldina tré eða einn hnefi af korni, þá
er sá blettur ræktaður og vandlega
hirtur, en hér komum við i víðivaxinn
grasgarð, óyrkt land, margar mílur að
ummáli, til einkis notað, þó að fólkinu
sárliggi á meira landi. Hvíldarstaður
keisaranna liggur í slakka eða bolla
inn í ber og gróðurlaus fjöllin, er stinga
prýðilega í stúf við hinn fagra hvíldar-
stað keisaranna. Mér þótti grafreitur
Ming keisaranna fagur, en sannarlega
er enginn staður þeim líkur, sem
Manchukeisararnir hafa kosið sér að
liggja 1.
Undir eins og komið var inn-úrhlið-
inu varð þelliskógur fyrir mér, greni
og fura, er varð þvi þéttari, sem lengra
var farið.
(Frh.)
H.f. Eimskipafél. íslands.
I’eir Iiér í bænum o« nágreiiiii. sem Reypt
liafa Iiluti í Il.f. Kíiiiskipafélaifi tslands eftlr
brunann þann 35. apríl. geta fengið blutabréf
sín á skrifstofu félagsins (Hafnarstræti 16 uppi)
gegn þvi ad afhenda bráðabirgðakvittanir.
Æskilegt væri, að hlutabréfln yrðu sótt sem fyrst.
H. f. Eimskipafélag’ íslands.
Eg undirritaður kaupi
tómar steinoliutummr
liæsta verði eins og liiiiii*.
Jón Jónsson, beykir.
Laugavegi 1.
M
1
M
UI
wu
g%% Allir vita og eru sammála um það, að fjölbreyttast
$2$ úrval og bestu vindla-, sigarettu- og tóbakskaupin eru
f
m
m
®Í8®
í Leví's tóbaksverslunum,
Austurstræti 4
°g
Laugaveg 13.
0»*> »*«©*»< f**í *«**©
Kolakörfur
Og
Ofnskermar
hjá
H. P. Duus.
Prentsmiðjan Gutenberg.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
X Saumastoía {
{ V öruliússins. {
{ Karlmannfatnaðir best sanniaðir. X
♦ Best efnt. FJjótust afgreiðsla. ♦
Sjiiir pskélans.
Prestaskólasjóður álti 1. jan. i
ár kr. 6403,65. Mest i banka-
vaxtabréfum og sem innstæðu í
Söfnunarsjóði. Úr honum hafði
verið veittur styrkur samtals kr.
230,00 síðastliðið ár.
Gjöf Halldórs Andréssonar átti 1.
janúar 1915 kr. 4615,83. Mest í
bankavaxtabréfum og veðskulda-
bréfum. Veitt hafði verið úr hon-
um kr. 150,00 styrkur.
Minningarsjóður lectors H. Hálf-
dánarsonar átti í ársbyrjun kr.
901,56. Aðallega i Söfnunarsjóði.
Var enginn styrkur veittur úr
honum.
Heiðurslaunasjóður Ben. S. Þór-
arinssonar átti í ársbyrjun kr.
2320,13. Aðallega í Söfnunar-
sjóðnum. Er ekki veitt úr hon-
um enn.
Minningarsjóður H. Hafsteins var
á nýári kr. 1738,31. Aðallega í
bankavaxtabréfum. — Hefir ekki
verið veitt úr honum.
Háskólasjóðurinn frá 1893 var á
nýári 6249,21. Mest í bankavaxla-
bréfum. Var ekki veitt úr honum.
Háskólasjóður stúdenta var í árs-
byrjun kr. 2896,90 í innlánsbók
í íslandsbanka. Var ekki veitt úr
honum.
Bræðrasjóður Háskólans átti í árs-
byrjun kr. 316,69. Sjóður þessi
var stofnaður í fyrra af gjöfum
til minningar um Geir Einarsson
stud. mag. (kr. 244,00) og Jónas
Stephensen stud. jur. (kr. 67,90).
Ekki verður veittur styrkur úr
þessum sjóði fyr en lxann er orð-
inn 15 þús. krónur.
Saltpétur
fæst í versl.
Ásgr. Eyþórssonar.
Simi 316. Aitöturstræti 18.
I
l
►
■
,Antikvarisk‘ bókaverslun á Lauga-
veg 22.
Ung kýr til sölu. Afgr. v. á.
Sjálfsag-t
er að kaupa
Líkkistur
og annað er með þarf við útfarir
hjá
Eyv. Arnasyni.
Sími 44.
4 KAU PSKAPUR >