Fréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - 22.10.1915, Qupperneq 2

Fréttir - 22.10.1915, Qupperneq 2
84 FRÉTTIR [22. okt fyrsta Jorícyrarvcrslnn. Eftir Jónadab Önðmnndsson á Núpi. (Niðurl.) Kvenfólk var afarfíkið i að fara út í spe- kúlantana, komu þær oft hundruðum saman á Borðeyri og var tanginn stundum fullur. Var þá orðtak þeirra dönsku: »Margur pilsungk. Dálítið versluðu þær, keyptu helst klúta eða lérefsbætur, en höfðu afar gaman af að skoða kramið. Svo var og með unglings- pilta að þeir sóttust mjög eftir að koma útí spekúlantana. Höfðu þeir að jafnaði pela- glas með sér og snýktu á það áður þeir færu. Bændur höfðu gjarnan þriggja pela flöskur og Finnur á Fitjum kom með kút fyrir nestispela. Voru spekúlantar örlátir á áfenginu og var ekki neitað um á ferðapel- ann. En á kveldin var venja spekúlantanna að bera sig saman um það sem gerst hafði um daginn. Kom þá stundum upp úr kaf- inu að sami maður hafði komið til þeirra allra með kút og náð sér þannig í allgóðan forða af brennivíni. Var þá talað um að tak- marka brennivínsgjafirnar, en Bjarni Sand- holt bróðir Árna og félagi þeirra Clausens tók málstað viðskiftamannanna; sagði hann að þetta væri eina skemtunin sem þessi grey hefðu á árinu þegar þeir kæmu og varð nú engin fyrirstaða með að gefið væri á ferðapelann. Verslun óx stórum við það að spekulant- ar komu. T. d. var áður tekið til meðal heimilis 5 8 af kaffí til ársins en nú um 30 ®. Áður 5—6 pottar af brennivíni, en nú þótti ekki mikið þó tekin væri tunna. Kornvara var flutt laus í skipunum, en brennivinstunnur og kvartil voru á dreif innanum kornbinginn og þurfti þá oft að grafa upp ef eftirspurnin var meiri eftir brennivíninu en kornmatnum. Kornvaran var í stórlestinni en tjara og járn í fram- lestinni. Til meðal heimilis (10—12 manna) voru teknar 7 tunnur af kornmat. Rúgmjöls hálf- tunnan (80 ®) kostaði 8 dali. Sama verð var á ertum og rúgi en bankabygg var tveim dölum dýrara og sama verð var á beilrís og hálfris sem selt var í 100 “S pokum. Þekt- ist sú kornvara ekki þar um slóðir fyr en spekulantarnir komu. Brennivínspotturinn kostaði mark en í tunnum kostaði hann 14 skildinga og fylgdi tréð með gefíns. Annað áfengi var extrakt, mjöð og rauðvin. Bæerst öl höfðu spekulant- ar einnig, en aðeins sem skipsforða og seldu það ekki, en veittu einstaka mönnum. Rjól kostaði túmark en rulla 4 mörk. Vindlar kostuðu ríktsdal hundraðið, slæm tegund, en aðrir mjög dýrir. Lítið var um reyktóbak, var það selt í bréfum »Kardus, Biskup« og »Blámaður«. Ull var tekin á túmark pundið, tólg á rikisort og sellýsi 25 dali tunnan. Var þetta aðalvara landsmanna. Þá voru og lambskinn keypt á 8 skildinga, tóuskinn mórauð á 4 dali en hvit á 2 dali. Selskinn voru ekki seld. Framanaf komu spekulantar sér saman um vöruverðið áður en þeir byrjuðu versl- unina, en er Glad spekulant kom á skipi sínu Agnet í Köje þá sveik hann alla þá samninga. Seldi miklu ódýrar og gaf betur fyrir innlendu vöruna. Glad seldi t. d. kaflið á 20 skildinga, sem hinir seldu á ríkisort. Kom Glad hvert sumarið eftir annað og urðu hinir spekulantarnir að breyta vöru- verði sínu eftir honum hvort sem þeim var það ljúft eða leitt. Arið 1853 kom og Jóhannes forgilti frá Reykjavík. Var það skip Grosseraverslunar- innar og með því Jón Stefánsson frá Straumi á Skógarstönd, hét Clausen skipstjóri. Ekki kom það skip oftar. Þá kom og einu sinni Ásgeir Ásgeirsson frá ísafirði siðar etazráð. Hét skip hans Lovisa. Þorlákur kaupmaður Jóhnsson frá Reykjavik kom og eitt sumar á ensku skipi og ýmsir fleiri komu, er ekki verða hér taldir. Það var venja spekúlanta að taka sér einn hátíðisdag. Völdu þeir til þess afmæli Clausens gamla í Stykkishólmi. Fóru þeir þá út að Reykjalaug og voru þar sem hveralækurinn skiftist og síðan er kallaður Kaupmannahólmi. Höfðu þeir með sér klyfjahestá og á þeim svínsflesk, skonrok, öl, brennivin og romm. Voru þangað allir velkomnir og hverjum veitt eftir vild. Not- uðu héraðsmenn vel boðið og var aðsókn sem á hvalfjöru. Enginn kvenmaður sótti þá samkomu. Annars var yfirleitt hver dagurinn öðrum líkur meðan spekúlantarnir voru við Borð- eyri. Klukkan að ganga 6 á morgnana fór kokkurinn á fætur og ferjumaðurinn. Var þá oft komið margt fólk á tangann. Gekk svo ferjan milli skips og lands allan daginn og langt fram á nótt og oftast hlaðin af fólki og ull og annari vöru. Allir fengu frítt far. Flestir spekúlantar létu hönd selja hendi, en Bjarni Sandholt og Bryde lánuðu nær eftir vild. Um sama Ieyti og spekúlantar fóru að koma á Borðeyri komu þeir einnig á Skeljavík við Steingrímsfjörð, en hún er litlu innar en nú stendur Hólmavíkurkaup- staður; var útlend vara afhent þar, en svo komu bændur aftur með sína vöru á átt- æringum til Borðeyrar. Enginn kofi var á Borðeyri fyrstu árin sem spekúlantar komu þar, og ekki fyr en Pétur Eggerz reisti þar hús árið 1860. Það var 24 álna langt og 12 álna breitt og stend- ur þar enn. Hann tók vörur þær af skipum Clausens sem ekki gengu út og verslaði með þær. Síðan stofnaði hann verslunarfélag ásamt þeim Páli Vídalín í Tungu og Skaptasen lækni. Hét það Verslunarfélag Húnvetninga og var hlutafélag, en hluturinn var 25dali. Félag þetta gat ekki þrifist og mistu menn hluti sína. Keypti Zöllner þá húsið af Pétri, en Bryde bygði nýtt hús á .tanganum. Úr því féllu niður spekúlantsferðir til Borð- eyrar og höfðu þær staðið í 31 ár. En þetta varð 1879. Pórdunurnar í Elsasz eftir Fritz Sánger. (Frh.). »Hvert ætlarðu að fara?« »Elsa rétti honum miðann, sem foringinn fyrir brúarverðinum hafði fengið henni. Hann sagði: »Eg get ekki lesið þetta gler- augnalaust. En mér er sama bvert þú ætlar að fara, komdu heim með mér og drektu hjá mér kaffí; fyrst þú hefir sofið undir trénu mínu, þá er best þú komir líka heim og borðir hjá mér morgunverð«. Elsa leit á manninn. Hann var meðal- maður á hæð, hafði gráýrótt skegg, var góð- legur á svipinn og bar í hendinni körfu fulla af eplum og perum. »Eg veit ekki —«, sagði hún hugsandi. »Hvort þú þorir að eiga undir því, — var það ekki það, sem þú ætlaðir að segja. Þú skalt ekki setja það fyrir þig; komdu með mér; ófriðurinn hefir séð fyrir því, að nú eru tvö sæti auð við borðið heima. Mér þykir vænt um að sjá þig í öðru þeirra. Elsa hugsaði sig um eitt augnablik. Maðurinn þagði. Hann laut niður og tók upp ávöxt, sem lá á jörðinni. Nú hafði hún ráðið við sig, hvað hún ætlaði að gera. »Má eg ékki gera þetta«, sagði hún og tók við körfunni af honum. Hún tíndi upp alla ávextina, sem lágu hjá næstu trjám, og lét þá í körfuna. Svo lögðu þau af stað og gengu saman áleiðis til þorps- ins. Gamli maðurinn spurði hana nú ekki framar, hvaðan hún kæmi eða hvert hún ætlaði. Hann sagði henni, að hann hefði komið til Elsasz árið 1870. Nú komu þau að þorpi einu. Gamli mað- urinn átti þar heima. Þau gengu inn í garð- inn og fóru um bakdyrnar inn í húsið. í eldhúsinu var stúlka. »Hefirðu fundið nokk- uð?« spurði hún, án þess að líta við. »Já, dálítið skrítið«. »Hvað er það?« Nú sneri hún sér við og leit á stúlkuna og hrökk við, stamaði upp nokkurum vina- legum afsökunarorðum, vegna þess að ekki hefði verið tekið til í húsinu. Svo lagði hún á borðið. Þau settust öll við það, og þar að auki ungur maður, sonur gamla mannsins. Við borðið var talað um daginn og veg- inn. Faðirinn og sonurinn unnu í pjátur- smiðju í þorpinu og töluðu um vinnu sína, eins og enginn ókunnur væri við, og þetta hafði einkennileg áhrif á Elsu. Henni fanst hún vera komin aftur í hús föður síns; áhyggjurnar og hugsanirnar voru hér svo líkar því, sem þar hafði verið. Þegar búið var að borða, fór SofFía — svo hét stúlkan — að taka af borðinu. En báðir mennirnir fóru út. Elsa hjálpaði stúlkunni. Hún þurkaði matarilátin, en Soffía þvoði þau. Og þegar Soffía fór að laga til í setu- stofunni, náði Elsa sér í tusku, til þess að þurka með af húsgögnunum. Þær töluðu um, hvað hún nú ætlaði fyrir sér. Hálftíma síðar sátu þær saman við gluggann, önnur við saumavélina, hin hafði prjóna í höndunum. Alt í einu stóð Soffía upp og fór út í smiðjuna. Gamli maðurinn var þar einsam- all. »Pabbi«, sagði hún, »eigum við ekki að hafa hana hjá okkur, hún heitir Elsa. Mér finst að við megum verða fegin að fá hana, fyrst að Henní er farin. Eg held eg geti látið mér þykja eins vænt um hana og mér þótti um Henní«. Gamli maðurinn lagði frá sér það sem hann var að smíða. »Mér er sama. Spurðu hana, hvort hún vilji vera hjá okkur«. »Eg skal vera svo góð við hana, að hún fari ekki frá okkur«. Soffía fór aftur inn i stofuna. Þar sat Elsa við vinnu sína. »Eigið þið ekki einhvern i stríðinu?* spurði Elsa. (Frh.)

x

Fréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.