Fréttir - 31.12.1915, Síða 4
970
FRETTIR
[31. d«s.
Framtíðarsamband
Þýskalands og Austurríkis.
Nú fyrir nokkru komu ýmsir
verslunarfróðustu menn Þýska-
lands og Austurrikis saman á
fund í Vínarborg til þess að ræða
um hagsmunasamband þessara
rikja i framtíðinni. Fundur þessi
hefir vakið allmikla athygli víða
erlendis og þykjast menn nú sjá,
að hér sé verið að stíga fyrsta
framkvæmdaskrefið í þá átt, að
gera Þýskaland og Austurríki-
Ungverjaland að einni germanskri
heild.
Þessi hugmynd, að mynda nán-
ara samband milli þessara ríkja,
hefir verið á döfinni alla tíð síð-
an striðið hófst. Hefir mikið
verið um hana rætt i þýskum
og austurískum blöðum, og jafn-
vel verið ritaðar um hana stórar
bækur. En upptök sin á hún
að rekja til þess bróðurhugar,
sem stríðið hefir myndað milli
þjóðanna og eins til þess að
menn þykjast sjá, að eigi muni
fjandskapareldur óvinaþjóðanna
útdauður, þótt vopnin verði lögð
niður.
En vitanlega er mjög erfitt að
koma þessari hugmynd í fram-
kvæmd, svo að eigi sé hagsmunum
annarshvors ríkisins hætt, og þá
einkum Austurríkis, er stendur
Þýskalandi að baki í flestum
verklegum efnum. Ef svo fer,
sem menn giska helst á, að fyrsta
sporið í þessa átt verði það, að
koma á tollsambandi milli ríkj-
anna, þá má vera vel um búið,
því þess er að gæta, að í Aust-
urriki ægir saman mörgum þjóð-
flokkum, sem eigi er víst að
kynnu vel svo nánu sambandi
við Þýskaland, þó að barist hafi
þeir ötullega við þess hlið í
ófriðnum.
Annars hafa miðveldin svo oft
vakið undrun manna með dugn-
aði sínum í þessum ófriði, að
engan skyldi kynja, þótt þau
fengju yfirstigið alla þá örðug-
leika, sem tálma öruggu sam-
bandi milli þeirra. n.
FRÉTTIR
koma út á hádegi hvern dag.
Ritstjóri: Elnar Gunnarsson.
Hittist daglega heima (Laufásv.
17) kl. 3—4. Simi 528.
Afgreiðslan er á Laufásvegi 17,
opin kl. 10—10. Sími 528.
Auglýsingar má athenda
i afgreiðsluna eða i prentsm.
Gutenberg, Sími 471. Einnig er
tekið við smáauglýsingum (gegn
borgun) virka daga:
í tóbaksbúð R. Leví’s. til kl. 11
síðd. og verzl. Kaupangi til kl.
8 síðdegis.
Sími 528 Sölutorgið Sími 528
Minsta angl/sing'averð 15 anr. einn sinni; kr. 1,50 80 sinnnm.
Rúm fyrir tvo, samandregið, selst
með tækifærisverði. Afgr. v. á.
Rjúpnabyssa ágæt til sölu með
góðu verði. Afgr. v. á.
lúda,
ýsa og
karíi
og NÍld
söltuð og reykt til sölu.
Semja ber við
B S. Kjarval,
Kirkjustræti 8 B.
Leiftur fást á afgr. Frétta.— Send
eftir pöntun. Sími 528.
Veggmyndir margar ljómandi falleg-
ar tegundir, fást mjög ódýrt.
Afgr. v. á.
Reykingaborð, besta nýárs gjöf fæst
með tækifærisverði. Afgr. v. á.
f
II
Vandað silki
i slifði og svuntur nýkomið i BÁRUBÚÐ.
■------------------------------II
Fiðla sérlega góð fæst með gjaf-
verði. Afgr. v. á.
Orgel, píano, fiðla, grammófón,
guitar og klarinett til sölu með
sérstöku tækifærisverði á Lauga-
veg 22; ýmsar nótnabækur til
sölu á sama stað.
„NAP0LE0N“ heitir besti vindillinn
fæst i LIVERP00L. Reynið hann.
Sjakketföt á tæplega meðalmann
fást afaródýr. Afgr. v. á.
Fuglabyssa óskast til kaups. Afgr.
v. á.
Divan tvífóðraður sérlega góður
til sölu mjög ódýr. Afgr. v. á.
Steinolian er ávalt ódýrust í stór-
um og smáum kaupum í versl-
uninni »Von«.
Hingad
setja. menn tmð sem þeir vilja
soekja. menn J>að sem þeir vilja kaupn.
Etfgert Claessen, yfirréltarmála-
flutningsmaður Pósthússtr. 17.
Venjulega heima 10—II og 4—5. Sími 16.
Bogi Brynfólfsnon
yflrrétturmálaflutning'Hmadur.
Skrifstofa Aöalstræti 6 (uppi). Tals. 250
Skrifstofutími frá kl. 12—1 og4—6síðd.
ijrúkuð íslensk jrímerki
keypt hæsta verði á
FRAKKASTÍG 7.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
♦ Glamlar og nýjar ♦
J sögu* <>s frædibæk> ^
^ ur, innlendar og erlend- +
♦ ar, eru seldar með 10— ♦
♦ 75°/o afslætti í Bókabúð- J
| inni á Laugave^l *5Í. ^
♦ ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
1000 nýárs-kort mjög fjölbreitt
úrval, fæst með gjafverði. Afgr.
v. á.
Karlmannaföt, nærri ný fást með
gjafverði. Afgr. v. á.
Divan-beddi nýr til leigu. Afgr. v. á.
Dyratjald úr perluþráðum, mjög
skrautlegt, til sölu með lágu
verði. Afgr. v. á.
Myndastyttur, veggmyndir, o. fl.
er best og ódýrast í mynda-
versluninni á Laugav. 1.
Sófi, borð, stólar til sölu með
tækifærisverði. Afgr. v. á.
Gasnetin með kórónumerkinu
endast best. Fást hjá Jónasi
Guðmundssyni, Laugaveg 33.
Sími 342.
235
hesku liðsforingja, tjöldin tætt niður og hina
óttasiegnu hermenn flýjandi yfir brúna í
skjól fjallanna.
Fjöllin eru mjög tilkomumikil og leikur
um þau hvitleitur úðinn úr fljótinu, en upp
úr honum mæna hamrar, klettar og tindar
i blárri móðu, eins og þau hefðu verið lit-
uð í sterkum lit. Þessi litblær sézt aldrei
á Qöllunum þegar norðar dregur. Yíir þessu
öllu svífa skýin á heiðtæru vesturloftinu
og ér líkast þvi, sem snjórinn á allraefstu
fjallatindunum spegli sig i þeim. Heyrist
nú skothríðin án aíláts gegnum móðu þessa,
einkum til fótgönguliðsins, en fjöllin norðan
til i dalnum taka undir, rétt eins og bardag-
inn stæði þar líka. Sækja sumir fram, en
aðrir hopa undan eins og á leiksviði í leiks-
lok. Týnir þar margur lífi sínu í þessum
hildar- og heljar-leik og skilur eftir ástvini
og ættingja.
Annars er það merkilegt hvað daglega
lífið og glaðværð þess hefir getað haldist
ósnortið af hinni geigvænlegu alvöru alt í
kring. Þarna sé eg nú t. d. þrjá serbneska
stráka, sem eru að totta fyrstu vindlingana
sína og hafa sjálfsagt fundið þá einhversstað-
ar innan um herbúðirnar. Þarna eru tvær
stúlkur i marglitum röndóttum kjóium, að
sækja vatn i ána og bera vatnsföturnar í
herðatré.
236
Mér verður gengið ofan að ánni. Þar
eru þýzkir dátar að sundleggja hesta sína.
Situr einn á baki og teymir hest við hlið
sér, Þar eru serbneskar konur að þvo ull-
arþvott og standa úti i vatninu upp i hné.
Það er líka bezt að standa hér í mölinni
og baða hendurnar i straumnum til þess
að geta fundið »anda« fljótsins og áttað sig
á hlýjunni, sem er í veðrinu um þetta leyti
árs. Hér hafa Tyrkir og Serbar borist á
banaspjótum fyrir 600 árum]og um það leyfi
leið hið mikla serbneska keisaradæmi undir
lok, en hverning hér verður umhorfs eftir
600 ár — það veit enginn. Nú, á þessum
tímum, eru þýzkir hermenn að sundleggja
hesta sína i fljótinu. Það eru hetjuliðar nú-
tímans, sjálfsagt skyldir hinum eldri, jafn
Ijósir á hár og skegg og jafn útiteknir og
langt frá heimilum sínum í ókunnum lönd-
um. — En nú ganga þeir ekki á mála og
lifa engu ævintýralífi. Nú þjóna þeir hinu
mikla föðurlandi og fylgja heilagri köllun
sinni, líða skort á mörgu, leggja lífið í söl-
urnar og fá ekkert að launum nema með-
vitundina um það, að hafa stutt og eflt
hina sameiginlegu framtíðarhugsjón Þýzka-
lands.
Nú heyrist söngur hermanna, sem eru
að leggja aí stað úr hýbýlum sínum til fram-
hersins, en landsmenn koma út í dyrnar
237
og hlusta á þá álengdar. Þeir hafa líka
hraustum mönnum á að skipa, en horfa
þó undrandi á þessa fjörlegu og vasklegu
norðanmenn. Nú svífur flugvél niður eins
og hvítur blettur á bláum undirlit, fleigir
frá sér bréfi, hefur sig upp aftur og held-
ur síðan til óvinanna á ný.
Brúarsmiðirnir eru að gera við trébrúna,
sem hvílir flöt á sjö slólpum í ánni, og
heyrast hamarshöggin innan um byssu-
skotin. Serbar hafa sprengt brúna og að-
gerðin er ekki nema hálfnuð, en nú má
ekki bíða, því að hersveitir og herfylki
þurfa að komast yíir um. Eru fylkingarn-
ar svo þéttskipaðar, að hvergi bregður góm-
stórum ljósum»bletti fyrir í þessari dökkleitu
mannaröð. Það er eins og ólgan og æðis-
gangurinn frá bardögum fram hersins berist
alla leið hingað og Þjóðverjar elta Serba
um holt og hæðir, dældir og dali með þess-
um feikna hraða, sem einkennir þetta serb-
neske strið. Þegar orusta er úti á einum
stað, þá er eins ogauðnin, sem eftir verður,
dragi að sér heila herskara og óteljandi
manngrúa með einhverju heljaraíli og knýi
þá áfram til nýrra viðureignar. Ef maður
stendur fyrir neðan brúna og horfir upp á
við, þá verður maðar ekki eins var við
þennan ílýti á mönnum og skepnum og
standi maður við brúarsporðinn, þá sýnast