Fréttir - 09.06.1918, Síða 1
DAGBLAÐ
Bifreið
i
fer daglega til Hafnarfjarðar frá
Fjallkonunni kl. 11 og kl. 4. Frá
Hotel Hafnarfirði kl. 2 og kl. 7.
Farmiðar eru seldir á báðum
stöðum.
Vfsur.
Hvert stefnir?
Glöggskj'gnir menn sjá það nú
þegar, að sultarstríðinu er nálega
lokið. En enginn skyldi þó gera
sér vonir um að viðskiftaleiðir
opnist fyr en eftir ófriðarlok, ef
þær opnast þá. Blöðin hafa flutt
þær fregnir að Þjóðverjar leggi nú
tundurdufl í flóann inilli Jótlands
og Svíþjóðar. Bendir það til þess
að nú verði sultarstríðið að verzl-
unarstríði og að þjóðverjar setji
viðskiftatakmörkin fyrir vestan
Jótland og Kjölinn milli Noregs
og Svíþjóðar. Noregur yrði þá liið
eina land í Norðurálfu norðan-
verðri, sem kæmi eigi innundir
verzlunarsvæði þjóðverja.
Þessir hlutir hefðu margvíslegar
afleiðingar fyrir oss íslendinga.
Fyrst og fremst þær, að oss væri
meinuð verzlun og siglingar í
Austurveg, og yrðum vér þvi að
láta oss nægja Vesturveg meðan
svo stæði. í öðru lagi mundu öll
tengsl við Danmörku verða oss
hættuleg, þau er lengra gengi en það
eitt að hafa sama konung án þess það
skerði í nokkru fullveldi landsins.
Þetta yrði fyrir þá sök, að áður
en Danmörk væri , með þessum
hætti tekin inn fyrir ófriðarvébönd
Miðveldanna, þá mundi hún skjótt
verða talin óvinaland hinna stríðs-
þjóðanna. En þá væri allur vor
hagur undir því kominn, hvern
veg þær þjóðir litu á afstöðu vora
til Danmerkur. Ef þær teldu oss
hluta úr Danmörku, þá mundu
þær blátt áfram taka oss sem ó-
vinaland, en vissi þær hið rétta,
þá mundi engin þeirra hreyfa við
oss.
Margt er öfugt sagt um íslenzk
stjórnmál, en ekkert er þó van-
hugsaðra en þegar menn tala um
að á þessum tímum hefðu sjálf-
stœðismálin átt að vera óhreyfð,
heldur all starf vort að lúta að
bjargráðum.
Atvikin á allan hátt
okkar stefnu breijta,
gœfunnar í gmsa átt
er því bezt að leita.
Ef að lokað eitt er hlið
frá öðru liurð er snúin. —
Bezt er œ að vera við
vegamótum búinn.
Verum ei við eina fjöl
ávalt feld, en reynum
á því bezta’ að eiga völ
í sem flestum greinum.
Verum einni höfn ei háð.
liœtl er ei við grandi
ef við getum að eins náð
einhversstaðar landi.
T. J. Hartmann.
Kaffisamsæti
Hið síðara er rétt, en hið fyrra
gersamlega rangt, því að hið mesta
bjargráð og lifsnauðsynlegasta er
að láta þjóðir heimsins vita: að
engin önnur þjóð, ekkert annað
ríki hefur minsta rétt til þess að
ráða yfir íslandi. Og þótt vér höf-
um sama konung sem Danir, þá
sé islenzka rikið fullvalda og ein-
ráðið í að eiga fullan frið tuð alla,
livern veg sem rás viðburðanna
fer.
Hver dagur sem líður áður en
vér gerum ráðstafanir í þessu efni
felur í sér hina mestu hættu fyrir
oss, og það mundu kjósendur telja
óvit eða svik, ef þingið skildist
svo nú, jafnvel um stutt skeið, að
ekkert væri gert í þessu.
Menn munu nú spyrja, hvað
gert verði, ef Danir þverskallast.
En það má öllum vera kunnugt
að Alþingi og stjórn íslands getur
þá gefið út yfirtysing um það,
hvers eðlis samband vort við
Danakonung er, og birt fyrir öðr-
um þjóðum.
Tryggast væri að Alþingi gerði
þetta sem fyrst.
heldur Stórstúkan í Good-Templarahús-
inu mánudagskvöldið 10 þ. m kl. 9
::: fyrir meðlimi Reglunnar. :::
Aðgöngumiðar á 2 kr. 50 aura ^verða
seldir í Good-Templarahúsinu í dag
::: (sunnudag) lcl. 4-7 siðdegis. :::
Allir templarar velkomnir.
Veitin
verða á íþróttavelliu.wm í dag1 frá kl. 3 og á
Iwerjut lcvölíii meðan knattspyrnumótið stendur.
— IBifreiÖ flytur fólk fram og til baka.
Virðingarfylst
Caffi Fjallkonan.
Islandsmál í norsknm Uöðum.
í blaðinu y>Tidens Tegna. stóð í
f. m. ritstjórnargrein um ísland,
hlýleg og góð í vorn garð, svo
sem þaðan er að vænta. Fyrst
minnist greinarhöf. á póstsam-
bandsörðugleikana og kveður því
örðugt fyrir Norðmenn að fylgjast
með í þvi, er nú sé að gerast í
stjórnmálabaráttu vorri, en kveðst
trúa því, er (Ólafur) Friðriksson
ritstjóri (Dagsbrúnar) hafi sagt í
því efni. Og svo fer hann svo-
feldum orðum um afstöðu Norð-
manna til málsins:
»Hverjar mótbárur sem menn
kunna að finna gegn því, að ís-
land verði sjálfstætt ríki, þá er eitt
víst, er eigi verður móti mælt:
íslendingar eru sjálfstæð þjóð,
Segja má að sönnu, að enn sé
ekki dæmi til þess í heiminum,
að riki hér um bil á stærð við
Bergens-amt, sé sjálfstætt ríki, og
vafalaust geti landið sjálft beðið
tjón af sliku stjórnskipulagi frá
alþjóða-sjónarmiði séð. En sann-
leikurinn er sá, er ekki verður
heldur hrakinn, að heimsþjóðirn-
ar vita fyrir löngu, að á íslandi
bj’r þjóð með sérstöku þjóðerni,
alveg sérstök út af fyrir sig, — að