Fréttir

Tölublað

Fréttir - 30.06.1918, Blaðsíða 3

Fréttir - 30.06.1918, Blaðsíða 3
F F'E T T I R 3 i JEndnrprentuu bönnnft. Til fánans. (Einai* Benediktsson) Nokkuð hratt, en með góðum áherzlum. Árni Thorsteinson. 2. Skín þú, fáni, eynni yfir, eins og mjöll í fjallahlíð. Fangamarkið fast þú skrifir fólks í hjartað ár og síð. Munist, hvar sem landinn lifir, litir þinir alla tíð. 3. Hvert eitt landsins fley, sem flýtur, fáni vor, þig beri hátt, hvert þess barn, sem ljósið litur, lífgar vonir, sem þú átt. Hvert þess líf, sem þver og þrýtur, þínum hjúp þú vefja mátt. 4. Meðan sumarsólir bræða svellin vetra’ um engi’ og tún, skal vor ást til íslands glæða afl vort undir krossins rún, djúp sem blámi himinhæða, hrein sem jökultindsins brún. að kjósa nefnd til að hrinda því máli í framkvæmd«. Kosnir voru í nefndina: Jón Helgason l)iskup, Eggert Pálsson prófastur, séra Bjarni Jónsson, séra Gísli Skúlason og séra Frið- rik Friðriksson. Þá var tekinn fyrir næsti liður á dagskránni: Stofnun íslenzks prestafélags, og í sambandi við það var rætt um stofnun nýs kirkjulegs tímarits eða blaðs. — Samþykt var að stofna félagið og gengu allir, sem á fundi vorn, þegar í það, en á fundi voru þá 26. Þá var kosin bráðabirgðar- nefnd til að veita félaginu for- stöðu og hlutu kosningu: Jón biskup Helgason, Magnús dósent Jónsson, Eggert próf. Pálsson, Sigurður P. Sivertsen prófessor °g Skúli præp. hon. Skúlason. Skorað var á hina ný-kosnu ^fcfnd, að beita sér fyrir bættum ^unakjörum presta og enn frem- llr saniþykt svohljóðandi tillaga: ®^ýnódus lætur eindregið í ljósi Pa ósk, að prestsetursjarðir í ni urlögðum prestaköllum verði ekki seldar«. a butti prófessor Sigurður 1VCr sen erindi; í hvaða merk- ingu og hvers vegna nefndi Jesús sig »mannssoninn?« Loks talaði biskup um Hall- grímskirkjuna i Saurbæ og þær framkvæmdir, sem orðið hefðu á því máli síðan á síðasta Synó- dus. Um 2000 kr. hafa borist i gjöfum frá því í fyrra til kirkju- byggingarinnar, og verður leitað samskotanna framvegis. Síðasta málið á dagskrá var, 200 ára dánar-minning Jóns Vída- líns árið 1920. Gat biskup þess, að til væri dálítill sjóður, sem æskilegt væri að eila, svo hægt yrði að minnast hins nafnfræga biskups á einhvern vel viðeigandi hátt. ÞessiF sátu prestastefnuna: pró- fastarnir Árni Björnsson, Görð- um, Jón Sveinsson, Akranesi, Eggert Pálsson, Breiðabólsstað, Kjartan Helgason, Hruna, Magnús Bjarnason, Prestsbakka, og prest- arnir síra Erlendur Þórðarson, Odda, Þorsteinn Benediktsson, Krossi, Ólafur Finnsson, Kálfholti, Olafur V. Briem, Stóra-Núpi, Gisli Skúlason, Stórahrauni, Ólafur Magnússon, Arnarbæli, Friðrik Jónasson, Útskálum, Árni Þor- steinsson, Kálfatjörn, Brynjólfur Magnússon, Stað, Magnús Þor- steinsson, Mosfelli, Bjarni Jónsson, Reykjavík, Einar Torlacius, Saur- bæ, Eiríkur Albertsson, Hesti, Sigurgeir Sigurðsson, Isafirði, Sig- urður Stefánsson, Vigur. Friðrik Friðriksson, Reykjavik, Einar Friðgeirsson, Borg, Sigurður P. Sívertsen, prófessor og Magnús Jónsson, dósent, Rvík, ennfremur uppgjafaprestarnir síra Sigurður Gunnarsson, Skúli Skúlason, Þor- valdur Jónsson, Jóhannes L. L. Jóhannesson og kand. theol. Sig- urbjörn Á. Gislason, Halldór Gunnlaugsson, Ásgeir Ásgeirsson og Sigurður Ó. Lárusson svo og guðfræðisnemendurnir Hálfdán Helgason, Friðrik Fxiðriksson. Magnús Guðmundsson og Stanley Guðmundsson. Hvað er í íréttum? t Guðjón Ólafsson gjaldkeri sparisjóðsins á Eyrar- bakka og verzlunarmaður þar, andaðist 27. þ. m. nærri hálfsjö- tugur að aldri. Sterling er á leið hingað úr hringferð, væntanlegur í dag. Með skipinu eru frá Isafirði Jóhann Þorsteins- son kaupm., Finnur Thordarson bankafulltrúi og Sofl'ía dóttir hans, Jón Hróbjartsson kaupm. o. fl. Bragi vélbátur frá ísafirði fer vestur á morgun. Á handfæri veiða menn nú töluvert af þyrsk- lingi utan við Efiersey. (xullfoss er væntanlegur á þriðjudaginn. Á Alþingi er til umræðu á morgun í efri deild: kirkjugarður á Stokkseyri og í neðri deild: dýrtíðaruppbót, bráða- birgða-launaviðbót og önnur ófrið- armál. Sigurðnr 1. fór upp í Borgarnes í nxorgun; er væntanlegur aftur í kvöld.

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.