Fréttir - 02.08.1918, Side 3
FRETTIR
3
*
Landakotsskólinn
byrjar 1. sept. n. k. kl. 10 f. h. Þeir sem ætla að stunda nám i
Landakotsskóla í vetur, eru vinsamlega beðnir um að snúa sér sem
fyrst til undirritaðs eða St. Jósepssystranna i Landakoti. Skólagjaldið
í ár er: í 1. og 2. bekk 5 kr., í 3 og 4. bekk 6 kr., í 5. og 6. bekk
7 kr. og í 7. og 8. bekk 8 kr. á mánuði. Auk þess 25 kr. sem
þátttöku í dýru eldsneyti fyrir hvert barn yfir alt árið.
H. Cortenraad.
róííir
sru víðlesnasfa Bíaðið í Bccnum.
Ekkert dagblað bœfarins selst jafn vel.
Areiðanlega bezt að auglýsa í FHÉTTUM.
Kréttir.
Rosta 5 anra eintakið í lausasölu.
Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á mánnði.
Auglýsingaverð: 50 aura
hver centimeter í dálki, miðað við
Qórdálka blaðsíður.
Afgreiðsla í Austui'-
stræti 18, sími 316.
Við anglýsing'nm er tekið á af-
greiðslnnni og i prentsm. Gntenberg.
Útgefandi:
Félag: í Beykjavík.
Ritstjóri:
Guðm. Gnðmundsson,
Sími 448. Pósthólf 286.
Viðtalstími venjulega ki. 4—övirka
daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti.
„Friðarsamningarnir“
og „fimtudagurinn í júli“.
í »Fréttum« 5. júní var prentað-
ur draumur, sem Guttorm Jónsson
frá Hjarðarholti dreymdi í vetur
er leið. — Hann þóttist staddur í
Hjarðarholti og sjá tvær stúlkur
mætast þar, aðra heimastúlku en
hina aðkomandi, og flutti sú að-
komandi þá fregn, að »friðarsamn-
ingar grðu nndirskrifaðir fimtu-
daginn í júlímánuði í sumar kl.
11 f. ha.
Guttormur hélt að hér mundi
átt við lok heimsófriðarins, og
öðrum datt ekki í hug að setja
þennan draum í samband við
neinn annan ófrið og lögðu engan
trúnað á drauminn, með því að
engin líkindi voru heldur til, að
þeim ófrið gæti orðið svo skyndi-
lega til lykta ráðið, sem og ekki
Varð.
Aftur mun engum hafa dottið í
hug að setja drauminn í samband
við ófrið, sem bæði hefur varað
miklu lengur og stendur okkur
miklu nær, þ. e. stjórnmálaófrið-
inn milli íslands og Danmerkur.
En svo undarlega vill nú til að
fimtudaginn 18. júlí nálægt kl. 11
f. h. mættust tvær nefndir, önnur
íslenzk og heimaalin, en hin dönsk
og aðkomandi, og skrifuðu undir
þá fullgerðan samning, sem bindur
enda á deilurnar milli þessara
tveggja landa, og átti sú aðkom-
andi frumkvæðið.
Ráða menn nú, hvort menn vilja
álita að samband sé á milli
^raums Guttorms og þessa atburð-
ar. — Þeim, sem trúa á drauma,
mun þykja fyrirboðinn allskýr,
e‘nkum þegar þess er gætt, að í
drauminum var alls ekkert minst
a» að hér væri átt við heimsófrið-
inn.
X.
Hvað er í íréttum?
Tar Sjgnrðason
verzlunarmaður (frá Stokkseyri)
arð sextugur i fyrradag. Héldu
n°kkrir Árnesingar honum sam-
^®ti og afhenti Sig. Eiríksson reglub.
Ir hönd eins vinar hans honum
andaðan göngustaf. ívar er nú
við verzlun hjá Gunnari Gunnars-
syni kaupm.; fékk hann fyrstur
verzlunarle^'fi á Stokkseyri og er
margt gott um manninn. Mynd
hans og æviágrip var í »Óðni« í
fyrra.
Laxveiðin
í Ölvesá er frábær í sumar,
einkum að Selfossi og Helli alt til
þessa. — í Elliða-ánum hefur og
veiðst vel, t. d. fékk borgarstjóri
þar 9 væna laxa á stöng eitt
kvöldið og 6 morguninn eftir við-
líka. Hefur hann sumarsetu þar
við árnar um tíma.
Almenningseldhósið
kom til umræðu á bæjarstjórnar-
fundi í gær. Dýrtíðarnefnd hafði
gefið skýrslu um gerðir sínar í
þessu máli og bjóst ekki við að
almenningseldhús gæti komist upp
í haust, vegna þess að hentugt
húsnæði og áhöld hefðu ekki feng-
ist enn. Aftur á móti yrði lögð á-
herzla á að reyna að koma þessu
í framkvæmd hið fyrsta t. d. um
áramót. —; Bríet Bjarnhéðinsdóttir
átaldi nefndina fyrir framkvæmda-
leysi og sagði að »krosstrén«, sem
treyst hefði verið á, hefðu nú
brugðist. — Borgarstjóri tók svari
nefndarinnar og sagði málið at-
hugað af kappi og starfað að því
að tryggja fyrirtækinu hús og for-
stöðu hið fyrsta. — í sama streng
tók Ólaíur Friðriksson og mót-
mælti því að nokkur stöðvun væri
á málinu. — Þorvarður benti á
að ekki gæti komið til mála að
láta húsnæðisleysi verða málinu
að falli. Hús yrði að fá hvað sem
það kostaði og taka með valdi ef
ekki fengist öðruvísi. Almennings-
eldhús væri t. d. nauðsynfegra en
danshús fyrir fólkið, ef því væri
að skifta.
24miljóna króna lán
samþykti bæjarstjórn að fela
borgarstjóra og Sveini Björnssyni
að útvega til þess að fullgera höfn-
ina, og færa út landið við hana
með fleiru. Er þetta gert með
hiiðsjón af því að ekki þurfi að
falla niður vinna í bænum.
Skjöldur,
Bifröst og Sigurður I. fóru í
morgun fullfermdir fólki upp í
Hvalfjörð eins og til stóð. Veður-
horfur eru góðar og líkindi til að
fólkið skemti sér.
Inflóenzan.
Hún breiðist út hægum, en viss-
um skrefum. En ekki mun hún
hafa náð hámarkinu enn þá. —
Byrjar hún eins og vant er með
nokkrum hita, en á eftir kemur
slen og taugaverkir. Munu flestir
hafa náð sér eftir 3—4 daga, ef
þeir fara vel með sig. En upp úr
veikinni geta menn fengið lungna-
bólgnu og annað verra, ef veikir
eru fyrir og fara óvarlega.
Raflýsingu
er verið að setja víða í bænum.
Hafa menn ýmist eina rafvél fyrir
hús sitt eða eru í félagi við aðra.
Rafstöðin í húsi Natans og Olsens
miðlar mörgum í kringum sig.
Munu nú flest húsin milli Póst-
hússtrætis og Lækjargötu hafafengið
þaðan rafmagn, en þess utan er
nýbúið að leggja rafsíma yfir Aust-
urvöll til Hallgríms Benediktssonar.
Þá er verið að setja raftæki í
Lauganesspítala. Kleppsspítali fékk
raflýsingu í vor. Og höfnina á að
raflýsa í haust frá stöð sem verð-
ur höfð í einu af geymsluhúsun-
um á hafnarbakkanum. Ýms hús
sem eru eða hafa verið í byggingu
munu fá raflýsingu, svo sem hús
það er Thor Jensen lætur byggja
uppi í Þingholtum, hús P. J. Thor-
steinssonar, Esjuberg o. fl. — Fer
líklega svo, að allur bærinn verð-
ur orðinn raflýstur með mótorum
áður en vatnsaflið kemur til sög-
unnar.
Lagarfoss
leggur af stað tii Ameríku í kvöld.
Kemur við i Halifax.
Hósnæðiseklan.
Til þess að bæta úr henni ákvað
bæjarstjórn í gær að byggja enn
eitt húsið við Suðurpólinn jafnstórt
hvoru þeirra tveggja, sem þar eru
fyrir. Hið fyrsta sem bygt var
kostaði 16 þús. kr., hiá. næsta 26
þús. og hið fyrirhugaða er áætlað
að muni kosta 36 þúsundir.
Smjöreklan.
Bærinn hafði samið við nokkur
smjörbú austanfjalls um kaup á
öllu því smjöri er þau framleiddu
fyrir 6,20 kílóið. Nú fóru búin
fram á að fá verðið hækkað um
10°/o, en bæjarstjórn vildi ekki fara
fram úr því verði sem umsamið
var, en eiga þá heldur á hættu,
að framleiðsla búanna yrði mink-
uð.
Úr erlendum blöðum.
Góstaf Svíakounngur
varð sextugur að aldri 16. júní
síðastliðinn. Var sá dagur haldinn
hátíðlegur í Svíþjóð. Biöð hinna
Norðurlanda-þjóðanna minnast
Gústafs konungs hlýlega og hrósa
viðleitni hans til að koma á nor-
rænni samvinnu.
Englendingar bjarga sokknnm
skipum. Bretar hafa nú lagt
mikla áherzlu á að bjarga skipum,
sem sökt hefur verið af kafbátum
eða tundurduflum. Um næst síð-
ustu mánaðamót voru þeir búnir
að bjarga á 5. hundrað stórum
skipum, og var mörgum þeirra
talið óbjargandi með þeim aðferð-
um er áður voru kunnar. Auð-
vitað reyna þeir ekki að bjarga
öðrum skipum en þeim, er sokkið
hafa á fremur grunnu vatni.
Silfurbróðkaup
héldu brezku konungshjónin
laugardaginn 6. júlí. Átti að halda
það í kyrþey, en ekki varð þó kom-
ist hjá því, að úr því yrði opinber
hátíðisdagur að miklu leyti. Með-
tók konungur ýmsar gjafir í því
skyni að hann ráðstafaði þeim til
þess að lina neyð, er stafaði að
heimsófriðinum. Fólk safnaðist
saman fyrir utan höllina og á
þeim leiðum, þar sem menn vissu
að konungshjónin mundu aka um,
og vottuðu hollustu sína á allar
lundir.
I
t