Fréttir - 10.08.1918, Page 3
FRETTIR
3
JF’réttir.
Kosta 5 nnra eintakið i lausasölu.
Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á mánnði.
Auglýsingaverð: 50 aura
hver centimeter í dálki, miðað við
Qórdálka blaðsíður.
Aígreiðala í Austur-
stræti 18, WÍmi 316.
Við anglýsinguni er tekið á af-
greiðslnnni og í prentsm. Gutenberg.
Útgefandi:
Félag 1 Reykjavík.
Ritstjóri:
Guðm. GuðmuiHÍWHOii,
ekilld.
Sími 448. Pósthólf 286.
Viðtalstimi venjulega kl. 4—övirka
daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti.
Breyting á fylkja- og bæjanöfnum
í Noregi.
Ríkisráð Norðmanna hefur sam-
þykt að leggja fyrir Stórþingið
lög um breytingu á stifta- og
amtanöfnum þeim, er festust á
þeim tímum er Danir ríktu í Nor-
egi. Á alt að færast í gamla horf-
ið. Kristjaníustifti á að heita Oslo,
Kristjánssands- og Hamarsstifti ó-
breytt, Bergensstift Björgvin, Trond-
hjem Nidaros og Tromsö Trams.
Ömtin á að kalla »fylke« og
amtmennina »fylkesmænd« eða
»jarler«. Kristjaníuamt á að heita
Oslo/ylke, Smaalenene Ausifold,
Jarlsberg Vestfold, Akershus Rome-
rik, Buskerud Ringerike, Hede-
marken Heidmark, Christiansamt
Upland, Bratsberg Telemark, Nede-
nes Austagder. Lister Vestagder,
Stavanger Rogaland, Söndre Berg-
enhus Sogn og Fjordarne og Roms-
dal Möre. Rá koma nöfnin Sör-
tröndelag. Nordtrondelag, Haaloga-
land, Trondenes og Finnmark.
Samskonar breytingu á bæjar-
nöfnunum hefur bæjarstjórnin líka
hugsað sér, en ekki viljað koma
með írumvarp um það að bæjun-
um fornspurðum. Hefur bæjar- og
borgarstjórnum verið sendar til um-
sagnar þessar nafnbreytingar og
kemur frumvarpið þá ekki fyr en
að ári. Sagt er að verslunarstéttin
sé yfirleitt mótfallin því að kalla
Kristjaníu Oslo og Bergen Björgvin.
Reikningur
Landsbanka íslands 1917.
Nýbirtur er reikningur bankans
fyrir árið 1917, og hefur arður af
bankarekstrinum numið 361947 kr.;
hefur þar af verið varið 19218 kr.
til lækkunar á bókfærðu verði er-
lendra verðbréfa, 44602 er ágóði
landssjóðs af innskotsfé og 279910
kr. hafa verið lagðar i varasjóð.
Árið á undan (1916) var arður
bankans nærri því jafnmikill, kr.
346125. Varasjóður bankans er nú
orðinn 1,6 milj. kr., 1916 var hann
1.3 milj. kr. Eftirfarandi liðir úr
efnahagsreikningum bankans (ásamt
útibúunum) sýna viðskiftaaukning-
una og framþróun bankans:
1914 1915 1916 1917
Diis.ltr. Dús.kr, Dús.kr. Dús.kr.
Innstæðufé
á hlaupa-
reikningi . 418 671 1237 2573
Innstæðufé i
sparisjóði. 3930 5715 7655 9501
Innstæðufé
gegn við-
tökuskírt. 626 903 1167 1518
Inneign veð-
deildar . . 759 838 1014 1099
Sjálfskuldar-
ábyrgðarlán 1656 1485 1531 1648
Reikningslán 1001 1155 1586 2143
Víxlar innl.
og ávísanir 2683 2822 5102 10169
Bankavaxta-
bréf. . . . 1152 1109 1085 1294
Inneign er-
lendis. . . 739 3562 3677 1467
Hrað er í tréttum?
Rafstöð haí'narinnar
er nú farið að setja upp. Á hún
að vera í vöruskemmu bæjarins á
hafnarbakkanum fram undan Duus.
Er þar í norðurhluta hússins hlaðið
byrgi úr steini utan um vélarnar
til tryggingar gegn eldshættu. Vélin
framleiðir 4xfs hestafl og fæst þannig
ljósmagn, er nægja mun fyrst um
sinn. Er nú verið að setja niður
lampastaura 6 að tölu niðri við
bakkabrúnina. Á hver þeirra að
bera tvo lampa með 50 kerta ljós-
magni hvor.
Holræsi
er nú verið að gera með fram-
brún hafnarbakkans. Á það að
taka við vatni er safnast annars
fyrir og hingað til hefur gert bakk-
ann ófæran, er hlákur gengu og
blautt var um.
Síðan á að steinleggja 7 metra
breiða ræmu fremst á bakkanum,
eða upp að iampastaurunum. —
En undir þeirri steinleggingu þurfa
sjálfsagt að vera rennur er taka
við því vatni, sem safnast fyrir í
kringum skemmurnar og ofar á
bakkanum.
Talsíma
þyrfti að leggja niður á hafnar-
bakka á tveimur stöðum, svo að
skip þau sem þar eru geti strax
fengið sima út í sig, er þau eru
lögst. í sama skyni þarf að vera
sími út á Austurgarð og Norður-
garð. Mundi það spara mikla fyrir-
höfn að geta náð símasambandi
við skip, t. d. þar sem Villemoes
lá í gær við Norðurgarðinn, í stað
þess að þurfa að fá bát og róa
þangað út. Einhversstaðar mun
sími liggja út á höfn nú þegar,
því að Fálkinn er vanur að hafa
síma þegar hann er hér. Hinum
skipunum, einkum farþegaskipum,
ætti að gera skyldu að hafa síma.
Skarðsstöðvarkolin.
Með Úlfi í fyrradag komu 30—
40 smálestir af þessum kolum.
Segja svo menn sem hafa reynt
þau, að þau séu ágætt eldsneyti,
enda líta þau svo út. í félagi um
að nema þessi kol eru, Bogi á
Skarði, sem á námulandið, Ólafur
G. Eyjólfsson kaupmaður og Guðm.
Einarsson steinsmiður, er stendur
fyrir verkinu. Hefur hann 4 menn
í vinnu þar vestra við að brjóta
kolin og eru líkur til að þeim tak-
ist að losa talsvert. Mun það flutt
hingað eftir föngum. Hvert tonn
er hér selt á 130 krónur flutt í
land.
Samsæti
á að halda á þriðjudagskvöldið
Árna Eggertssyni er verið hefur
erindreki vor vestanhafs nú um
eins árs skeið. Mun hann halda
til Vesturheims með Gullfossi næst.
Rottuplága
er mikil í vöruskemmunum á
hafnarbakkanum og víðar. Þyrfti
að leggja hina ítrustu rækt við að
útrýma þessum ófagnaði, því að
auk þess sem rottur bera með sér
sóttnæmi, skemma þær og óhreinka
kornvörur og önnur matvæli. Heil-
brigðisfulltrúinn mun hafa þetta í
huga.
Götugerð bæjarins.
Henni miðar áfram þótt hægt
fari. Er haldið áfram við Lauga-
veginn og hefur bæzt þar við nýr
kafli frá því er komið var í fyrra.
í Lækjargötu er nú komið að
syðsta kaflanum. Þar verður gat-
an látin breikka þannig, að aust-
urbrúnin komi i beina línu við
Fríkirkjuveginn. En til þess hefur
verið sneitt neðan af túnbletti þeim
sem er fyrir vestan Barnaskólann.
— Fríkirkjuveg var byrjað að bæta
í vetur og verður því vonandi hald-
ið áfram, en ekki látið standa lengi
við hálfverk það sem komið er við
upphleðslu á Tjarnarbakkanum.
Lýti mikil eru að grjóti því sem
liggur laust í sjálfri Tjörninni við
bakkana. Setjast og í það ýms
óhreinindi. Ekki má minna vera
en að því væri raðað reglulega, ef
bráðnauðsynlegt er að hafa það.
Lík séra Jónasar Jónssonar
var flutt norður á Akureyri í
gær með Willemoes eftir ósk Ak-
ureyringa, er báðu þess að hann
yrði grafinn á Akureyri og kosta
útför hans i virðingarskyni. Sýna
þeir þar enn sem fyrri höfðing-
skap sinn og ræktarsemi.
Sorgarathöfn fór fram í dóm-
kirkjunni hér, áður en líkið var
flutt um borð. Kirkjukórinn tjald-
aður og skrautlýstur. En yndis-
fagra minningarræðu hélt séra
Magnús Helgason skólastjóri. Báru
skólabræður hans kistuna inn og
út úr kirkju, þeir Jón Jakobsson,
Pálmi Pálsson, Jóh. Sigfússon,
séra Bj. Þórarinsson, séra Kristinn
„ H ugf ró”
Laugaveg 34. Sími 739.
Selur í fjölbreyttu úrvali:
Tóbaksvörur. Sælgæti,
Gosttrykki, Öl,
Reykjarpípur,
TóbaRspunga,
o. m. 11.
Verð hvergi lægra.
Vörur sendar heim.
Daníelsson og séra Jóh. Þorsteinss.
Með líkinu fór norður frú Þór-
unn ekkja hans og Jónas læknir
sonur hans.
Þessa ráðabreytni um útförina
bar svo brátt að, að færri voru
viðstaddir en ella myndi, og var
þó fjölmenni eigi lítið.
Barn
skar sig á ljá á Grœnuborgar-
lúninu í fyrra dag. Bjó Konráð
læknir um sárið. — Óvarlegt mjög
er hvorttveggja: að láta orf með
ljáum liggja á teig hér, þegar frá
er gengið, og eigi síður hitt, að
leyfa börnum að fara inn á tún-
bletti meðan verið er að slá þá.
Er þetta ekki fyrsta sinni, er slys
hlýzt af því.
Úr erlendum blöðum.
Prentarafélagið
brezka, utan Lundúnaborgar,
hafði fyrir ófriðinn 23,583 meðlimi.
Af þeim eru 7,069 á ófriðarsvæð-
inu og 560 eru fallnir.
Skátar
Baden-Powell’s liðsforingja starfa
að strandgæzlu á Norður-Englandi.
Nýlega var hann viðstaddur her-
æfingar 2000 skáta í Richmond,
hélt þar ræðu og kvað stjórnina
þakkláta þessum drengilegu sjálf-
boðaliðum fyrir störf þeirra, er
væri prýðilega af hendi leyst, en
við búnir skyldu þeir verða miklu
meira og erfiðara starfi um það
er lyki ófriðinum.
Tólf skjaldmeyjar,
lögreglukonur, eru nú teknar í
lögregluliðið í New-York; hafa þær
skjöldu, kylfur, skammbyssur og
handjárn í fórum sínum og eru
eigi sem árennilegastar.
Slitehasny hershöfðingi
hinn rússneski, er áður var
flotaforingi í sjóher Rússa og stýrði
baltiska flotanum, var tekinn fastúr
af Bolsjevíkum. Dæmdu þeir hers-
höfðingjann til dauða og tóku
hann þegar af lífi.
Allsherjarfnndar kvenna
í New South Wales hefur sent
áskorun til sambandsstjórnarinnar
um að samþykkja fullkomin áfeng-
isbannlög til þess að vernda fram-
kvæmdarþrótt og þol þjóðarinnar.