Fréttir

Issue

Fréttir - 31.08.1918, Page 1

Fréttir - 31.08.1918, Page 1
I beasínlejsiiiii biðja menn um bíla á Nýja-Landi, sími 367 Magnús Skaftfeld. Steíán Jóbannsson Sæþörungar. Pað er kunnugra en frá þurfi að segja, að grasspretta hefur verið mjög léleg í sumar víðast hvar á landi hér. Er því auðsætt, að heyjaforði muni verða lítill í haust. Útlitið er ískyggilegt og sjálfsagt er að reyna alt sem mögulegt er til þess, að bústofn bænda verði ekki settur á gaddinn, en minki þó sem minst. Nú er svo komið, að taka verður á því sem til er, og nota margt, sem ekki er litið við í góðu árunum. — Á eg þar einkum við hina miklu gnægð þörunga við strendur lands vors. Þegar svona stendur á, er al- mennur fóðurskortur vofir yfir, er sjálfsagt að nota sér þessi auðæfi hafsins eftir því sem hver hefur dug til. Áður hef eg ritað um þetta efni í Búnaðarritinu. Var sú ritgerð sérprentuð og send í flestar sveitir á landinu. Að þessu sinni skal eg sérstaklega benda á, hvernig þörunganna skal a|Iað og hvernig bezt er að geyma þá. þörunga er aflað á tvennan hátt. — Annað hvort eru þeir teknir á vaxtarstaðnum, eða þeir eru teknir úr hrönnum (brúkum). Þegar þörungar eru teknir á v'axtarstaðnum, er lang-bezt að skera þá um stórstraúmsfjöru. — þar sem ströndum hallar litið og útfiri er mikið iná auðveldlega skera þarann efst í þarabeltinu. Einnig má taka þarann þótt dýpra sé, en til þess þarf þá kaðal nokkurra faðma langan og króka eða nokk- urskonar öngla. í þéttu þarabelti eru krókarnir ágætt veiðarfæri. Þar sem útfiri er mikið, má taka sölin á þuru um stórstraumsfjöru. Sölvareitirnir eru neðan við þang- beltið. E*ar sem strendur eru sæ- brattar, eins og t. a. m. víða á Auslfjörðum, er erfiða viðfangs að DAGBLAÐ elska Enn fást Fréttip frá upphafl. Eftir CARL THEODOR CASPARI. Jeg elska þig, er líni Ijósra mjalla, við lóu-kvakið vakin, úr þú fer, og litasl um og lilju-stöngli að lialla þig langar veiknm armi' að brjósti þjer, — er húmar að og brúðar blœju falla um barm þinn sje jeg — kvöldsins hia-lín. Jeg elska þig, er ómar vors þig kalla og ástum-glöð þú titrar, tjúfan mín! Jeg elska þig, er y/zr vang og vengi þú veitir þínum auði hugul, blíð — og hollum andar líf-blœ þlnum lengi um lyng og smáradrög og birkihlíð, — með þúsund skógar-börn við barm á engi er blund þú festir sumarkvöldið hljótt. Jeg elska þig, er heyri' eg hljóma strengi um holt og ása milda júlí-nótt. Jeg elska þig, er hljóð þú býst að halda í liaustboð glœst í veldi kvöldroðans, — með gullin djásn og demants-ljómann kalda við dauðann sjálfan stígur brúðardanz, — er fús þú kastar skrúða og skrauti valda' og skilur við í auðmýkt, bljúgri þrá. Jeg elska þig, er heiðljós himintjalda ið hinnsta kvöld þjer Ijóma' um fölva brá. Guðm. Guðmundsson. (C. Th. Caspari, norskt skúld, fœddur 1853.) ná í þörungana. Þó má slæða þá upp um stórstraumsfjöru, en sölva- tekja í stórum stil er erfið, þar sem aðdjúpt er. Þá er hin aðferðin, sem öllum er tamast að viðhafa, að taka þörungana úr hrönnunum (brúk- unum). Ef inenn vilja þá aðferð- ina, þá er ekki um annað að gera en að íaka það, sem öldur hafsins bera á land. Þó ber þess að gæta, að hollara er íyrir skepnurnar að taka úr hrönnum í klettafjöru eða slórgrjdtri fjöru, en að taka úr sandorpnum hrönnum. Þá hef eg bent á þessar tvær aðferðir til þess að ná í þörung- aoa, er þá eftir að tala um verk- unina. Er er um tvent að ræða eins og heyverkun, sem sé: að þurka og súrsa. Bezt er að þurka þörungana fyrir kýr. Ef þörungar eru teknir nýir er ágætt að þeir rigni eða sé þvegnir, og síðan þurkaðir á ein- hverjum góðum þurkvelli. — Þegar þeir eru þurrir orðnir eru þeir geymdir eins og hvert annað þurt hey. Sé þarinn stórvaxinn eins^og t. a. m. Maríukjarni og’Beltisþari, er bezt að brytja hann nokkuð smátt áður en gefið er. 'Þurkaða þörunga á að afvatna áður en gefið er og hella niður vatninu sem þeir hafa legið i. Þá er súrsun þörunga ágæt verkunar-aðferð. Daníel Jónsson bóndi á Eiði á Langanesi viðhafði fyrstur manna þessa aðferð, og|er það mesta furða, hve}|fáir af ná- búum hans hafa tekið~|Það ^eftir honum. — Ásgeir í Knararnesi hefur tekið aðferðina upp að dæmi|DaníeIs. Bæði Daníel og Ásgeir hrósa súr- þaranum mjög og segja hann sé afar-gott fóður, einkum fyrir sauðfé. Á Eyrarbakka hafa menn og við- haft súrsun. Gryfjurnar hjá Daníel á Eiði eru nú 6X6X4 álnir. — Þær geta auðvitað verið dýpri, alt eftir þvi, hvernig hagar til. — Daníel hefur grafið gryfjurnar í malarkambinn og hlaðið þær inn- an með streng og fylt þær úr hrönnum og borið svo farg ofan á. — Súrsun þörunga verður efalaust algeng hér á landi ei' stundir líðá. Verkaður þari er að allra dómi hollari en nýr þari og ættu menn því að afla sér forða af verkuðum þara. — En séu menn neyddir til að gefa nýjan þara, þá er um að gera að hreinsa hann sem bezt og afvatna. Eg hef áður (i Búnaðarritinu) tekið fram, að af sæþörungum eru sölin bezt til fóðurs, þar næst beltisþari, þá kemur mariukjarni (murukjarni fyrir norðan). Þang- tegundirnar, sem allsstaðar er nóg af, eru lakari og þær á ekki að taka, ef menn geta náð í góðu teg- undirnar.------— Þar sem sölvafjörurnar eru miklar, væri hyggilegt að taka sem mest af sölvum og þurka. Nægur markaður mundi fást í nærsveit- um, þótt meira væri tekið en menn þyrftu sjálfir á að halda. Þá væri og hyggilegt að súrsa þang í þó nokkuð stórum stíl þar sem mikl- ar hausthrannir berast á land. Algengt er í sumum sveitum að menn láta sauðfé að mestu leyti Jifa á fjörubeit. Gengur féð þá í hrönnum fyrri part vetrar, en í bitfjöru seinni partinn, en víða er bitfjaran af skornum skamti síðari hluta vetrar og oft og tíðum getur alveg tekið fyrir hana. Þar sem svo liagar til er alveg sjálfsagt að súrsa svo mikið að haustinu, að nóg sé, þótt taki fyrir fjöru. Að minsta kosti ætti að vera nóg.af súrþara síðari hluta vetrar þegar hrannar nýtur ekki lengur — þess utan er súrsaður þari — og gaml- ar hrannir (brúkir) — hollari en nýr. — Helgi Jónsson. (Önnur blöð eru beðin að taka þessa grein upp.)

x

Fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.