Fréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - 14.09.1918, Qupperneq 4

Fréttir - 14.09.1918, Qupperneq 4
4 FBETTIR d. Landhelgisgæzlu tekur Island í sínar hendur, er það vill. Ákvæði 1908 9. gr. um sam- félagsslit málanna a—b og ákvæði 1918 18. gr. um slit samnings þess, er í lagafrv. því felst, sem hér ligg- ur fyrir, eru mismunandi, að því leyli, að samþykki Alþingis eða Ríkisþings er nóg eftir 1908, en hér þarf 2/3 Alþingis og atkvæða- greiðslu kjósanda, þannig að samn- ingnum verður eigi slitið, nema a/i6 eða 56,25 °/o þeirra, sem á kjör- skrá verða, greiði atkvæði með því. Sjá III. kafla, aths. við 18. gr. Eftir 37 ár hefði sambandið milli íslands og Danmerkur eftir 1908 og ef uppsagnar-ákvæðum 9. gr. hefði verið beitt, verið þannig: a. Konungur og konungsætt hin sama. b. Önnur mál óuppscgjanlega sameiginleg og undir forræði Danmerkur samkvæmt 1908, 6, sbr. 7. gr.: 1. Utanríkismál og 2. Hermál. 3. Konungsmata og borðfé konungsættar ákveðin af báðum löndum samkv. 6. gr. c. Jafnréttis-ákvæði þegnanna samkv. 5. gr. 1. og 2. málsgr. Og svo auðvitað, að 4., 6., 7. 1. mgr. og 8. gr. frv. 1908 hefðu haldið gildi sínu. Eftir frv. 1918 gelur sambandið verið þannig eftir 25 ár: Að konungssambandið eiit standi og að öðru leyti sé ekkert réttar- samband milli landanna annað en það, sem er að alþjóðalögum milli fullvalda og siðaðra ríkja. ísland getur áður en 25 ár eru liðin hafa ráðstafað samkvæmt frv. eftir vild öllum málum sínum, nema um- boðinu til meðferðar utanríkis- málanna eftir 7. gr. og að því leyti sem það er bundið við jafnréttis- ákvæði 6. gr. En umboðið eftir 7. gr. getur það tekið aftur eftir 25 ár og einnig numið brott jafn- réttisákvæðið að sama tíma liðn- um. Frv. 1908 töldu margir mikla framför, ef miðað var við ástand það, sem nú rikir og samband landanna hefur hvilt á um hríð í verki og framkvæmd, þó að lög- laust hafi verið að dómi flestra hérlandsmanna. Og er þó hverjum manni sýnilegt, að frv. 1918 er annars eðlis, gleggra og fer alla leið til fullveldis landinu til handa, bæði í orði og í verki, eins og fullsannað hefur verið í II. og III, kafla álits þessa. Dreng-i vantar til að selja Fréttir. Au^lýsiagum í Fréttir er veitt móttaka i Litlu búðinni í Pingholtsstræti þegar af- greiðslu blaðsins er Iokað. Enn fást Eréttir frá upphafl. Prentsmiðjan Gutenberg. Mb, Patrekur fer til Vestfjarða eftir helgina. Tekur flutning og íarþega. Nánari upplýsingar gefur Viðskiftafélagíð. Sími 701. Nú hef ég fengið birgðir af hinum heimsfrægu Undcr- wood-ritvélum sem bera sem gull af eiri af öllum ritvélum á heimsmarkaðinum. Berið þær saman við aðrar tegundir til að sannfærast. Varið ykkur á að kaupa ritvélar sem eru aðeins léleg eftirlík- ing af Underwood. Underwood er sú fullkomnasla, endingarbezta, hávaða- minsta og þægilegasta ritvél, sem til er. Frægustu kappritarar heimsins í samíleytt 8 ár í röð hafa unnið heimsverðlaun fyrir flýti á Underwood. UndLerwood-ritvélar eru búnar til hjá heimsins stærstu ritvélaverksmiðju: Underwood Typewriter Co., New York. Verksmiðj- urnar eru fyrir utan borgina, en við Vesey Street stendur hin feikna stóra Underwood Building upp á 18 hæðir, sem er eingöngu noluð fyrir skrifstofur. Fáið hjá mér verðlista með myndum, er sýnir nákvæmlega alla kosti Underwood-ritvélanna, Kanpið Underwood, þá eigið þið ritvél sem þið eruð allaf ánægðir með. líristján Ó. Skagfjörð. „€tfrittir" aru Bazía auglýsingaBlabié. Guy Boothby: Faros egypzki. 364 hefur verið synjað um í þrjú þúsund ár. Hlustið þér á. Nú heyrast óp og andvarpanir í Lundúnaborgl Sóttin magnast með hverri klukkustund, en hraustir menn og veikburða konur, sveinar og meyjar í blóma aldurs síns, eldri og yngri börn — alt fellur þetta eins og stráið fyrir sigð kornskurðarmanns- ins! Hvaðanæva stíga neyðaróp mannanna til himins og það er eg, sem hef komið öllu þessu til leiðar — eg, Ptahmes, þjóún guð- anna, spámaður konungsins, maðurinn, sem þú kvaðst mundu sakbera fyrir öllum al- heimi!« Hann hóf upp hægri höndina og benti á mig, »Dári!« hrópaði hann með voðalegri kald- hæðni. »Þú sandkorn á sjávarströnd! Hver ert þú, sem hyggur þig fullfæran að rísa gegn mér? Vit þú að enn er timans fylling ókomin — enn þarfnast eg þín. Nú læt eg þig falla í dá aftur og í þ\í dái skalt þú framkvæma alt sem eg skipa þér««. Meðan hann mælti þetta, virtist hann hækka og stækka og verða æ ógurlegri. Augun tindruðu í hausnum eins og glóandi kol og virtust læsa sig alla leið inn í heila minn. Eg sá að Valería reis upp af gólfinu, þar sem hún hafði legið í hnipri, og sá hana seilast eftir austrænum rýting, sem var á 365 borðinu. Því næst stökk hún á hann eins og tígrisdýr, en hröklaðist jafnharðan út að veggnum eins og einhver ósýnileg hönd hefði hrundið henni, en eg var eins og hlýðið barn, lét aftur augun og sofnaði. XXI. í þessu dái hélt Faros mér ekki skemur en fimm daga og sex nætur, og hef eg ekki nokkra hugmynd um neitt af þvf, sem til bar allan þann tíma, þótt ótrúlegt megi virðast. Ekki veit eg, hversu lengi Faros hefði haldið mér í þessari dáleiðslu, ef hann hefði haft vald eða mátt til þess. Það eitt veit eg, að eg vaknaði að morgni sjötta dags undarlega ruglaður í höfðinu. Eg hélt að vísu opnum augunum og var ekki annað að sjá, en að eg væri glaðvakandi, en þó var líkast þvf, sem eg mundi þá og þegar sofna aftur. — Smám saman vitkaðist eg samt og heilinn tók að starfa á eðlilegan hátt, og það var eins og vald það, sem Faros hafði yfir mér, smá minkaði á einn eða annan hátt. Þá var eins og eg vaknaði skyndilega af svefni og stóð eg alklæddur í herbergi mínu, en eg sá, að eg hafði legið í rúmi mínu, og þegar eg leit út um gluggann sá eg, að enn var skamt 366 liðið dags. Þó mundi ég hvorki eftir þvf að eg hefði háttað ofan í rúm né heldur, að eg hefði klætt mig. Þá datt mér í hug, hvað okkur Faros hafði farið á milli. Eg mintist þess, að hann hafði benl á mig og að eg hafði sofnað í þeirri svipan og þar með var gátan ráðin. Faros hafði auðvitað látið bera mig til herbergis iníns og hátta mig ofan í rúm, þegar eg var orðinn meðvilundarlaus. petta hlaut að hafa verið daginn áður og fyrst eg var nú búinn að ná mér aftur, þá var tíminn enn þá nógur til að gera það sem eg hafði ætlað mér. Þegar eg var kom- inn að þessari niðurstöðu, opnaði eg dyrnar og gekk ofan stigann. Það var undarlega hljótt, ekki að eins í húsinu sjálfu, heldur einnig úti á strætinu. Eg staldraði við á neðri hæðinni og leit út um glugga, en svo langt sem augað eygði, gat eg hvergi séð nokkurn vagn á götunni, engan mann og engar barnfóstrur í lystigarðinum og samt heyrði eg klukkuna slá níu niðri í anddyrinu. Pað greip mig einhver ónotatilfinning við þetta, en hún leið brátt frá aftur og þá var mér það eitt í huga að ná tali af yfirvöld- unum og skýra þeim frá hinu djöfullega at- hæfi Faros og hvern þátt eg hefði átt í því. Ætlaði eg svo að taka afleiðingunum með jafnaðargeði.

x

Fréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.